Skólaþing í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 19. nóvember 2022 - Hópur 1 by Ingvar Sigurgeirsson

1. Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála í sveitarfélaginu?
- fámenni er kostur en líka galli, í litlum hóp er gott utanumhald en í fámenni er erfitt að finna félaga
- persónuleg reynsla er mjög góð, hvað hver og einn einstaklingur er mikil manneskja, hver einstaklingur skiptir mjög miklu máli, gríðarlega dýrmætt veganesti inn í framtíðina - við getum ekki borið okkur saman við stærri samfélög, það fylgja því alltaf einhverjir gallar að búa í fámennu samfélagi, en tækifærin eru líka í því að virkja mannauðinn sem er á staðnum,
- persónulegt skólasamfélag, mjög hrifin af þessu litla samfélagi
- mætti bæta aðgengi annarra um skólakerfið - erfitt að segja utanaðkomandi frá skólasamfélaginu hér, hvað það sé verið að gera, þetta er gert í öðrum sveitarfélögum og ég tel að skólasamfélag komi öllum við og þess vegna eigum við að geta öll saman um skólann okkar.
- kostir að hafa lítinn skóla en stærðin í dag finnst mér alveg á mörkunum, vegna félagslegs þáttar, það hafa komið árgangar sem eru mjög litlir og þá er erfitt að finn félaga og það er erfitt fyrir börn
- vil bæta við, ég hef áhyggjur af félagslega þættinum, ef að barnið mitt er í fámennum árgangi
- líka viðbót, hef reynslu af báðu, eiga börn sem eiga erfitt í fámenni, en líka reynslu af félagslegri einangrun í stærri hóp
- hef reynslu að í fámenni þá lærir maður að umgangast fleiri aldursbil
- sennilega fjölgar hér í skólanum, en það má ekki gleyma því að sumar fjölskyldur kjósa að vera í fámennri samfélögum og persónuleg tengsl verða mjög mikil
- þessi gullni meðalvegur er flókinn
- það má segja það að skólinn sé fámennur og við megum ekki gleyma kostunum við það
- að auka tækni í skólastarfinu, meiri samvinnu á milli skólana í nágranasveitarfélögum,
- mjög ánægð með hvað það er verið að vinna að mörgum verkefnum í skólanum, t.d grænfáninn, líka heilmikið um uppábrot, kannski er það of mikið, veit það ekki - það þarf líka að halda rútínu, listamenn hafa komið í heimsókn
- en skóladagurinn er líka dálítið langur vegna landlegra legu, vegna skólaaksturs, ef við miðum við skóla í þéttbýli þá eru börnin komin fyrr heim .. hjá okkur þurfa börnin að sitja lengi í skólabíl
- ég hef áhyggjur af of mikilli skjánotkun í umhverfi barna, set spurningar við mikla símanotkun í skólakerfinu og  íþróttastarfið mætti vera meira
- leikskólinn er æðislegur

2. Hverjir eru helstu styrkleikar?
- mannauðurinn í skólanum og hvað við erum dugleg að nýta hann
- ýmislegt hægt að gera í leikskólanum, útisvæðið er frábært, salurinn er alveg frábær svo margt hægt að gera í salnum
- áherslan á umhverfið skiptir mjög miklu máli í dag
- það er þessi hugsun um að færa kennsluna á fjölbreyttara form, ekki bara sitja yfir bókum, við færum kennsluna út
- í fámenni er hægt að líta á það að það sé auðveldara að halda utan um fámennan hóp
- mikill styrkleiki að það séu fá börn í skólanum, nálægðin við náttúruna, að þau fari út og inn og allt í blandi, hvað það þarf lítinn fyrirvara með svona lítinn hóp, uppbrot og sveitalíf, að vera í tengslum við dýr og náttúruna
- lítil hætta á að barn ,,týnist" að það sjáist ekki í nemendahópnum,,
- fjölbreytileikinn í kennslunni er frábær, auðvelt að breyta til í kennslu
- persónuleg tengsl við foreldra í leikskólanum, mjög gott
- allar árshátíðirnar á öllum skólastigunum, eða hátíðirnar, það að koma fram og standa fyrir framan hóp af fólki, styrkleiki að það sé gefinn tími til að undirbúa árshátíðir og þau fá að standa upp og standa fyrir sínu, þau fá sjálfstraust og það býr með þeim
- mannauður í skólanum, mér finnst dýrmætt að ,,innfædddir" kennarar þekkja sögu samfélagsins og það er dýrmætt, persónleg tengsl, fjölskyldutengsl og þessi þéttu tengsl í samfélaginu skipta svo miklu máli, væri hægt að nýta meira, fara til dæmis í heimsóknir á bæi,
- mikill styrkur að geta farið í skóginn og grænfáninn
- mjög mikill kostur að fá morgunmatinn í skólanum - hann er alveg frábær, gott úrval

3. Hvaða er brýnast að bæta?
- mikilvægt að bæta húsnæðið eða byrja nýtt, með íþrótasal og sundlaug
- veit ekki hvort það sé brýnt að bæta úr því, en mig langar til að koma upp eigin skógi við skólann í staðinn fyrir að fara bara fáeinum sinnum inn í Þjórsárdal, vil að þau geti farið út í skóginn sinn
- svo vil ég fá alla bestu kennarana hingað
- trommusett, kassagítar og aðstöðu fyrir það, sér stofu fyrir tónlistarkennslu og meira samstarf við tónlistarskólana og fleiri tónlistarkennara til að efla þennan þátt enn frekar
- vantar uppbyggingu á húnsnæðinu hérna, þarf að bæta íþróttakennslu fyrir krakkana og sundlaugina þarf að bæta, ekki hægt að læra að synda í litlum andapolli og ef við myndum bæta þá mundi það laða miklu meira að
- fólk horfir alveg á aðstöðuna sem er til staðar og við þurfum að bæta úr, t.d. vegur íþróttahúsið á Flúðum mikið, við þurfum líka að hafa aðdráttarafl
- ég hef mjög góða reynslu af vendikennslu (vendikennsla.is) hef mikla trú á því, kannski hægt að nota tímann í bílnum, kannski í skólabílnum, þá eru þau ekki svo háð því að hafa einhvern heima til að hjálpa þeim, og tíminn nýtist meira, börnin geta gengið í að lesa aftur, hlusta og þá er aðgengið þarna eftir þörfum - það finnst sumum erfitt að hafa ekki náð því sem kennarinn sagði þannig að þetta jafnar námstækifærin
- húsnæðið þarf að bæta, ef að allt fer eftir og hér fjölgi þá þurfum við að huga að því, fyrr en seinna
- það þarf að bæta ýmislegt við leikskólann
- samvinnan á milli skólanna, milli leik- og grunnskólans - samskiptin á milli kennarana - að skólasamfélagið hittist og spjalli, það hefur stundum verið reynt en
- vissulega er samstarfið með nemendum gott en fullorðna fólkið, tengslin milli kennaranna mega vera meiri, bætir starfsandann
- líka má vera meira samstarf við aðra skóla, kennara í öðrum skólnum
- ég hef mjög góða reynslu af skólabúningum, bætir jafningjastöðu nemenda, engin togstreita um einhver meiri eða minni, margt þægilegt við þetta, lítil stéttaskipting, hafði fyrst efa um það en svo fékk ég mjög góða reynslu
- byggja 50 metra sundlaug í Brautarholti fyrir eldri en leyfa litlu krökkunum að vera áfram í Árnesi í litlu lauginni
- við megum ekki gleyma því að íþróttir þurfa ekki alltaf að vera í húsi, að byggja upp lífstíl að geta verið í íþróttum úti og í nágrenni, þurfum ekki alltaf að hlaupa inn í iþróttahöll til að stunda likamsrækt
- læra að nota snjóþrúgur í íþróttum eða skíði
- að mæta á skíðum í skólann
- mjög mikilvægt að bæta hljóðvist, í skólunum, sums staðar alveg hræðilegt

4. Hvaða sóknarfæri sjáið þið helst? Hvernig viljið þið þróa starfið? Í skólanum ykkar? Í sveitarfélaginu?
- við sjáum sóknarfæri á útisvæðinu í leikskólanum, að fara meira út, tengjast náttúrunni meira, þurfum að fara að spá í það meira, náttúruna og umhverfismál þrátt fyrir að vera að vinna í því, viljum opna okkur
- sóknarfæri í því að nýta þennan mannauð sem við höfum, alltaf að nýta það fólk sem við höfum
- meira samstarf á milli skóla, meiri sóknarfæri þar, nýta þekkingu annarra, vera í meiri samskiptum, góð samskipti í skólasamfélaginu í uppsveitunum
- það dó allt í kovid, en áður var það hjá skólaþjónustunni að deildarstjórarnir hittust á fundi, það var svo rosalega gott, að spegla sig í umhverfi við hina deildarstjórana
- sóknarfærin tæknilega,
- mjög gott að börn hitti næsta skólastig, samfella milli skólastiga, held að það sé einfalt að byggja upp gott samstarf, hvað vill þessi skóli segja hinum skólanum,
- þegar það er komið þá verða svo mörg tækifæri
- orka sem fer á milli
- syngja meira
- á mér draum um að þetta samfélag verði Syngjandi skólar, í gegnum söngin verður svo mikil tækifæri, sjálftraust, málskilningur, svo hollt og gott tól
- að vinna í gegnum tónlist, þeir einstaklingar sem eiga erfitt, þeir blómstra í tónlist, kraftaverkatól
- það er svo sorglegt að þegar skóinn kreppir að þá er skorið niður í list og verkgreinakennslu
- sorglega lítil aðstaða til tónlistarkennslu í Þjórsárskóla
- alltaf sungið á föstudögum í skólanum þegar ég var lítil
- rosalega mikilvægt að flétta tónlistarkennslu inn í skólastarfið, það þarf stuðning, er svolítið sér á báti
- vikulegt tónlistarþema, fara í smiðjur, búa til tónverk, afraksturinn frá þessum krökkum er svo magnaður
- tónlist er kraftaverkatæki
- barnakór eða skólakór
- það var einu sinni skólakór - en ekki lengur, það vantar kennarana
- táknsmálskennsla, að það sé hægt að læra táknmál
- ekki mikil þörf á táknmáli en það er samt mikilvæg því kannski þarftu að læra það einhverntíma
- (mikil umræða um táknmál, allir áhugasamir um táknmál, uppruna, notkun og nytsemi )
- ef það yrði uppbygging á skólanum - þá felst í því sóknarfæri út af fyrir sig - þá verður í kjölfarið að huga að þessum hlutum, samráð fyrir alla sem vinna á þessum vettvangi
- aðstaða fyrir allar listgreinarnar

5. Hverjar eru skoðanir ykkar á skólaskipan? Óbreytt skipan? Grunnskólinn verði allur á Flúðum? Heildstæður grunnskóli í Þjórsárskóla (1.-10. bekkur)? Önnur skipan?
- ef við myndum færa þetta upp í 10. bekk hérna, það var svo stór áfangi fyirir mig persónulega að skipta um skóla hefði ekki viljað missa af því,
- er bara ekki skemmtilegt að hafa allt skólasamfélagið á sama stað ? leik, grunn, framhald
- en finnst mjög gott að krakkarnir taki stökkið í Flúðaskóla,
- ef það á að hafa 1-10. bekk alllan hér þá verðum við að hafa meira samstarf við hina skólana
- félagslífið þarf að vera svo gott þegar maður er á unglingastiginu, að hafa vini
- ef að skólinn hér á að vera 1-10 hér þá þarfa ð vera meira í boði hér
-við þurfum absalútt að passa upp á skólann hér, lykilatriði í byggðaþróun að skólinn sé hér - við getum boðið Hrunamönnum hingað, við erum orðin fleiri en þau
- starfið óbreytt eins og það er núna, efla skólann hér en finnst mjög mikilvægt að þegar þau koma í 7. bekk þá fái þau að fara í stærri hóp,
- núna eru líka litlir árgangar og það er svo mikilvægt að blanda saman og til að auka félagatengslin
- vil gjarnan hafa óbreytt ástand
- ég trúi því að ég sé uppbygginggn að gerast, team Árnes alla árgana hér
- mér finnst að börnin eigi að geta klárað daginn sinn í skólanum, vinnudagur barnanna sé samfelldur, heill dagur
- mér fyndist geggjað að hafa leik og grunnskóla á sama stað það er í draumasamfélaginu, svo mikil tímasparnaður í akstri því við búum í svo langri sveit
- ein lausn er að öll börnin séu keyrð í leikskólann en svo fara skólabílar frá leikskólanum upp í skóla
- mikilvægt að hugsa út fyrir boxið
- það skiptir mjög miklu máli hver íbúaþróun verður - ef það verður mjög mikil fjölgun þá höfum við skólann á einum stað en ef það er ekki fjölgun þá vil ég að unglingarnir haldi áfram að fara upp á Fúðir og jafnvel fyrr
- en með stækkandi sveitarféalgi þá þurfum við að huga að leikskólanum, annað hvort að hafa hann miðsvæðis eða
- vegalengdirnar eru alltaf svolítð að þvælast fyrir okkur
- geggjað að byggja glænýjan leikskóla í Árnesi
- Við ætlum að byggja nýjan skóla í Sandlækjarmýrinni
- loka Landstólpafjósinu eða Þrándaarholtsfjósinu og hafa skólana þar
- það væri geggjað að hafa stórt sameiginlegt skólasamfélag í miðju sveitarinnar
- við þurfum að vera á tánum með að stækka skólann ef við erum að fara að fjölga
- við þurfum að bjóða upp á gott samfélag, aðlaðandi samfélag

6. Hvernig viljið þið sjá skólastarfið eftir fimm til tíu ár? Hvað viljið þið helst að einkenni það?
- sjá stóran skóla á einum stað í sveitarfélaginu
- með áherslu á náttúruna og tónlist
- vel menntaða kennara  og gott fólk
- það er draumsýnin, að hafa þetta allt á sama stað - eftir 10 ár þá verður þetta orðið svona
- samfellt skólastarf, listsköpun ríkjandi, alls konar list, þemastarf, tengsl við náttúruna og vendikennsla
- samfellt skóladæmi, mikið umhverfislegt  og sammála öllu því sem búið er að tala um
- ef við hugsum okkur að það verði aukning, þá þurfum við að huga að því að byggja upp skólastarf sem byggist á kærleika, ekkert eins mikilvægt eins og að hafa kærleiksríkt umhverfi í skólanum, ekkert eins mikilvægt fyrir börnin.
- það þarf að styðja rosalega vel við þá sem starfa í skólanum, við þurfum að hlúa að starfsfólkinu, ofsalega krefjandi starf og mikilvægt að styðja við þá sem eru að byrja
- kærleiksríkt hjarta
- starfsumhverfið þarf að vera gott, ef þú vilt fá góða kennara þá verðurðu að hlúa að þeim annars fara þeir eitthvað annað
- breyta því hvernig skóladæmið er sett upp - þessi einkunnaviðmið, að nemandi þurfi að uppfylla einhverja einkun eða staðal, það er þrúgandi fyrir nemandann. frekar að stuðla að læra á áhugasviði eða þema, held að börnin njóti sín betur
- einstaklingsmiðað nám er svo mikilvægt
- grunnskólinnn er mjög fastur í skorðum með skipulag náms, þau sem geta ekki fylgt þessu eru bara sett í sérkennslu en kannski myndu þau blómstra ef að námið væri áhugamiðað
- kenna börnunum meira um samfélagið, fjármálalæsi, kynfræðsla, um lífeyrissjóði, frekar um fjármálalæsi en osmósu
- eftir 10 ár ætlum vð að kenna alls konar praktísk atriði,
- eftir 10 ár erum við ákaflega stolt af skólasamfélaginu okkar og ættum að gera það á styttri tíma en 10 árum
- sveitarfélagið er svo langt og fór að hugsa um staðsetningu skólana, ef að byggðin þéttist í Árnesi
- samt er hugmyndin um skóla í Sandlækjarmýrinni svo góð, þá er kominn skógarskólinn, útiveran mikil,
- skólinn er hjarta sveitarfélagins - ef það er ekki skóli þá deyr samfélagið út.

Aftur á aðalsíðu