Endurhæfingahúsið HVER á Akranesi / Starfsendurhæfing Vesturlands by Beta

Starfsfólk
Iðjuþjálfi (forstöðumaður og meðferðaraðili)

Iðjuþjálfi (meðferðaraðili)

Félagsráðgjafi (einkaþjálfari)

Sálfræðingur

Sjúkraþjálfi

Sjúkraliði

Almennur starfsmaður (sem er ásamt sjúkraliðanum, "andlit staðarins". Taka á móti fólki þegar það kemur þangað fyrst, sér um kaffi og veitingar og fylgist með fólki í opnu rými staðarins (
Starfsendurhæfing Vesturlands, e.d.a).

Einu sinni á ári er fyrirmyndardagurinn haldinn á vegum Vinnumálastofnunar.
Á þessum degi bjóða vinnustaðir og fyrirtæki til sín einstaklingum með skerta starfsgetu eða fötlun. Þar fær fólk að kynnast áhugaverðum störfum og nýjum verkefnum á vinnumarkaði. Með því opnast augu fyrirtækja fyrir starfskröftum með skerta starfsgetu. Og um leið er hægt að sýna fólki sem er vant að vinna við önnur störf hve fjölbreyttur vinnumarkaðurinn er (Vinnumálastofnun, e.d.).

Á Vesturlandi er Fyrirmyndardagurinn haldinn í samstarfi við Starfsendurhæfingu Vesturlands, Endurhæfingarhúsið Hver, Fjöliðjuna á Akranesi, Ölduna í Borgarnesi, Smiðjuna í Snæfellsbæ og Ásbyrgi í Stykkishólmi.
Á landsvísu er mest þátttaka m.v. höfðatölu á Vesturlandi. Það er góðu samstarfi fyrir að þakka. Annars staðar á landinu er það svæðisskrifstofa Vinnumálastofnunar sem sér alfarið um skipulagningu og umsjón verkefnisins (

Skessuhorn, 2017).

Upplýsingar um staðinn

aHVER var stofnað árið 2008. Það var upphaflega tilraunaverkefni starfsendurhæfingar til þriggja ára. Þeir sem stóðu að stofnun verkefnisins voru
- Akraneskaupstaður
- Rauði Krossinn
- Heilbrigðisstofnun Vesturlands - Svæðisskrifsstofa um málefni fatlaðra.

Árið 2010 hófst samstarf við VIRK starfsendurhæfingu.

Árið 2011 gaf Akraneskaupstaður grænt ljós á áframhaldandi starfsemi. Það sást mikill hagur í því að sinna endurhæfingahópi.

Árið 2012 flutti starfsemin í stærra húsnæði og áframhaldandi formun á starfseminni fór á flug.

Árið 2014 var Starfsendurhæfing Vesturlands stofnuð.

Hvernig þjónustu er verið að veita?
Innan veggja HVERS fer fram margskonar þjónusta sem í grunninn felst í því að auka virkni og vellíðan einstaklinga. Starfsemina getur verið snúið að útskýra þar sem hún er mjög fjölbreytt og mismunandi hópar fólks nýta sér þjónustuna. Starfsemi HVER flokkast bæði undir athvarf og endurhæfingu. Annars vegar nýtir fólk á vegum félagsþjónustu Akraneskaupstaðar athvarfshlutann þar sem það sækir félagsskap, hvatningu og ýmis uppbyggjandi námskeið.

Hins vegar er það starfsendurhæfingarhlutinn sem er veigamesti partur þjónustunnar.  StarfVest  starfar með Vinnumálastofnun og er í samstarfi með VIRK starfsendurhæfingu. Nánar verður fjallað um það samstarf hér á eftir.

Markmið starfseminnar í heild er að auka lífsgæði, rjúfa félagslega einangrun, veita stuðning við að ná markmiðum, auka persónulega- og samfélagslega virkni og færni, hvetja fólk í nám eða að aðstoða það aftur á vinnumarkaðinn í viðeigandi starfshlutfalli.

Þjónustan er í formi fræðslu og fyrirlestra sem fagfólk innanhúss heldur eða að keyptir fyrirlesarar, margskonar hreyfing í boði, með eða án stuðnings. Auk þess er ýmiskonar hópefli og skemmtanir með það að markmiði að æfa fólk í samskiptum og félagsfærni.

Þar sem þjónusta HVER er kerfislega tvískipt verður farið nánar út í það hér til hliðar.

Hver er hugmyndafræði þjónustunnar?
Unnið er út frá hugmyndafræði valdeflingar og skjólstæðingsmiðaðrar nálgunar. Það er mikil breidd í þörfum skjólstæðinga, andleg og líkamleg. Þeir sem nýta sér þjónustu HVER er eins ólíkir og þeir eru margir og er áhersla á að mæta hverjum og einum á þeim stað sem hann eða hún er á.

Hvar fellur þjónustan innan laga umhverfisins
Lög nr. 60/2012 - um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða.

Markmið laganna er að tryggja einstaklingum með skerta starfsgetu, eftir slys eða veikindi, atvinnutengda starfsendurhæfingu. Það er einnig tekið fram í lögunum að starfsendurhæfingasjóðir og stofnanir á vegum ríkis og sveitafélaga starfi saman eins og hægt er og myndi heildstætt kerfi endurhæfingar.

Einnig fellur hluti þjónustunnar undir lög nr. 55/2006 - um vinnumarkaðsaðgerðir. Markmið þeirra laga er að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þátttakendur á vinnumarkaði.  Auk þess er þeim  ætlað að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.

Hvernig tengist þjónusta HVER við aðra þjónustu innan velferðarkerfisins?
HVER tengist mörgum greinum innan velferðarkerfisins sökum þess hve margir hafa komið að uppbyggingu starfseminnar. Má þar nefna

Akraneskaupstaður

Borgarbyggð

Snæfellsnes

Dalabyggð

Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Vesturlandi

Rauði Krossinn

Símenntunarmiðstöð Vesturlands

Vinnumálastofnun

VIRK starfsendurhæfing

Stéttarfélag Vesturlands

Verkalýðsfélag Akraness

VIRK býður ekki upp á úrræði heldur kaupa þau úrræðiþjónustu frá HVER.
VIRK, Vinnumálastofnun og Starfsendurhæfing Vesturlands hafa verið í formlegu samstarfi síðan árið 2014. Haldnir eru reglulegir rýnifundir með sérfræðingum á vegum VIRK og svo félagsráðgjafa og iðjuþjálfa frá StarfVest. Á þessum fundum er rýnt í þarfir einstaklinga og hvar þeir standa í endurhæfingunni. Hvaða úrræði sé hægt að bjóða þeim eða hvort þeir þurfi að fara í örorkumat.

Miðað er við að einstaklingur sé með vottaðan heilsubrest frá lækni þegar hann kemur til ráðgjafa VIRK og ráðgjafar starfa alltaf í samráði við lækni. Skilyrði fyrir aðstoð hjá VIRK eru þau að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði svo fljótt sem verða má. Einnig skiptir það veigamiklu máli að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa. Þá er um að ræða fjarvistir frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða líkamlegum toga.

Markmið atvinnutengdrar starfsendurhæfingar er að auka þátttöku á vinnumarkaði eftir að hafa búið við skerta starfsgetu vegna heilsubrests í kjölfar veikinda eða slysa (Virk, e.d.).

Í lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða

(nr. 60/2012) er fjallað um skilyrði fyrir þjónustu starfsendurhæfingarsjóðs: Skilyrði fyrir þjónustu starfsendurhæfingarsjóðs er að einstaklingur búi við heilsubrest sem hindrar fulla þátttöku hans á vinnumarkaði og að hann stefni að endurkomu á vinnumarkað eða að auka þátttöku á vinnumarkaði svo fljótt sem verða má. Enn fremur er það skilyrði að einstaklingurinn hafi þörf fyrir þjónustuna, hún sé til þess fallin að auðvelda honum að fara aftur til vinnu og líkleg til árangurs á þeim tíma sem hún er veitt. Þá er það skilyrði að einstaklingurinn hafi vilja og getu til að taka markvissan þátt í atvinnutengdri starfsendurhæfingu og fylgja þeirri áætlun sem þar er sett fram. Á Vesturlandi eru tveir ráðgjafar frá VIRK, einn á Akranesi og einn í Borgarnesi, sem vinna í samstarfi við lækna, aðra fagaðila og stofnanir eftir þörfum. Þessar stofnanir eru t.d. HVER, Starfsendurhæfing Vesturlands og Vinnumálastofnun.
(Virk, e.d.)

Hverjir standa að StarfVest?
Starfsendurhæfing Vesturlands er sjálfseignarstofnun, þjónusta hennar stendur öllum vestlendingum til boða og er hún fjármögnuð í gegnum samstarfssamning við VIRK.

StarfVest var stofnað árið 2014 af sex stofnaðilum (Starfsendurhæfing Vesturlands, e.d.b). Þau eru:

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Vinnumálastofnun Vesturlands

Stéttarfélag Vesturlands

Verkalýðsfélag Akraness.

Þar sem þetta er eina slíka þjónustan í boði á Vesturlandi þá ber VIRK að fjármagna hana skv. lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða (nr. 60/2012).

Hver ber ábyrgð á þjónustunni?
StarfVest ber að svara til VIRK um þau úrræði sem í boði eru á hverjum tíma hjá þeim skv. lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða (nr. 60/2012).
VIRK er aðal eftirlitsaðili þjónustunnar.
Forstöðukona StarfVest sér um skipulag þjónustunnar í samstarfi við stjórn StarfVest. Stjórnina skipa sex fulltrúar stofnaðilanna. Stjórnin er því líka einn af eftirlitaðilum starfseminnar. Þau vinna saman að því að úthluta því fjármagni sem fæst í gegnum samstarf VIRK.

HVER er í samstarfi með Vinnumálastofnun. Það samstarf fellur undir lög nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir. Þar er m.a. fjallað um mat á hæfni atvinnuleitenda, skipulag úrræða til þess að auka vinnufærni atvinnuleitenda, þátttöku atvinnuleytenda í vinnumarkaðsaðgerðum og eftirlit með þátttöku atvinnuleitenda í vinnumarkaðsaðgerðum. Markmið samstarfsins er að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þátttakendur á vinnumarkaði og stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli. Skv. 15.grein laganna skulu ráðgjafar Vinnumálastofnunar leita eftir samstarfi annarra þjónustuaðila í samráði við atvinnuleitendur þegar þeir þurfa á þjónustu annarra fagaðila til að ná árangri við að bæta vinnufærni sína í því skyni að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar kemur þjónusta HVER inn í.

Hvernig fer þjónustan fram?
Einstaklingar undir þrítugu ber skilda til að skila af sér mætingu í ýmsa dagskráliði þjónustu HVER líkt og um mætingu í vinnu væri að ræða skv. lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (nr. 55/2006). Það er stór hluti þeirra sem mæta í HVER í gegnum Vinnumálastofnun.

Fólk í leit að vinnu með skerta starfsgetu vegna andlegra eða líkamlega skerðinga sækir sér einnig þjónustu HVER í gegnum Vinnumálastofnun. Þá er unnið að því að finna starfshlutfall sem hentar einstaklingum ásamt því að finna vinnustað við hæfi. Í tengslum við það þá fer samstarf HVER og Vinnumálastofnunar fram í formi vinnuprófana. Þá er unnið náið með vinnustöðum og stofnunum í nærumhverfi fólks. Fólk fer á tímabundna vinnusamninga þar sem það fær að prófa sig áfram í starfi og starfshlutfalli innan vinnustaða. Vinnuveitandi veit af skerðingu einstaklingsins og Vinnumálastofnun borga hluta af launum. Við fengum að heyra það frá yfirmanni Vinnumálastofnunar Vesturlands og forstöðukonu HVER að það hefur sýnt sig að gerð vinnusamninga opna margar leiðir á vinnumarkaðnum. Bæði fyrir fólk með skerta starfsgetu sem og vinnustaði. Fyrirtæki geta séð hag sinn í því að hafa fólk í hlutastörfum því þau hafa fengið að láta á það reyna með stuðningi Vinnumálastofnunar.

Hvernig fer eftirlit þjónustu fram?
Vinnumálastofnun er með sérstaka erfitlitsdeild sem stendur vörð um íslenska velferðakerfið. Markmiðið með að starfrækja eftirlitið er að tryggja eins og kostur er að aðeins þeir sem uppfylla skilyrði um  atvinnuleysistryggingar fái greiddar atvinnuleysisbætur og til þess að koma í veg fyrir  misnotkun á atvinnuleysisbótum
(Vinnumálastofnun, e.d.).

Hvað er Fyrirmyndardagur?

HVER og Akraneskaupstaður funda reglulega um málefni sem sem tengjast starfseminni. Félagsráðgjafi frá Akraneskaupstað er stundum fenginn inn í HVER til þess að ræða við skjólstæðinga. Akraneskaupstað ber ekki lagaleg skylda til þess að tengjast HVER á nokkurn hátt en sér samt um að styðja við bakið á einstaklingum sem ná ekki að framfleyta sér og fjölskyldum sínum fjárhagslega eða eiga ekki rétt á bótum úr sjóðum en öllum er velkomið að kíkja í HVER til þess að sjá fólk og láta sjá sig. Einnig styður Akraneskaupstaður við HVER með því að greiða hluta launakostnaðar starfsfólksins en einhverjir starfsmenn fá hluta launa sinna greidd frá HVER og hluta frá Akraneskaupstað.

Hverjir eiga rétt á þjónustunni?
Skilyrði fyrir þjónustu hjá VIRK eru þau að einstaklingar séu með vottaðan heilsubrest sem rekja má til veikinda af andlegum eða líkamlegum toga og að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði.

Hver ber ábyrgð á þjónustunni?
Á fjögurra ára fresti er skipuð ný fimm manna stjórn og jafn margir menn til vara. Þessi stjórn ber ábyrgð á starfseminni skv. lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða (nr. 60/2012).

Lög um vinnumarkaðsaðgerðir nr. 55/2006.

Lög um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða nr. 60/2012.

Vinnumálastofnun. (e.d.). Um okkur: Eftirlit. Sótt af https://www.vinnumalastofnun.is/um-okkur/eftirlit

Akraneskaupstaður. (2014). Starfsendurhæfing Vesturlands stofnuð á Akranesi. Sótt af https://www.akranes.is/is/frettir/starfsendurhaefing-vesturlands-stofnud-a-akranesi

Starfsendurhæfing Vesturlands. (e.d.a). Starfsemin. Sótt af http://www.starfvest.is/starfsemin/

Starfsendurhæfing Vesturlands. (e.d.b). Stjórn og stofnaðilar. Sótt af http://www.starfvest.is/starfsemin/

Skessuhorn. (2017).  Fyrirmyndardagur til að auka möguleika til atvinnuþátttöku. Sótt af https://skessuhorn.is/2017/11/21/fyrirmyndardagur-til-ad-auka-moguleika-til-atvinnuthatttoku/

Vinnumálastofnun. (e.d.). Ráðgjöf og þjónusta: Ráðgjöf vegna skertrar starfsgetu: Fyrirmyndardagurinn. Sótt af https://www.vinnumalastofnun.is/radgjof-og-thjonusta/radgjof-vegna-skertrar-starfsgetu

VIRK starfsendurhæfingarsjóður. (e.d.). Sótt af
https://www.virk.is

Thelma forstöðukona HVER og Guðrún forstöðukona Vinnumálastofnunar á Vesturlandi

HVER á Akranesi
Heiðdís og Elísabet