Leikskólinn á krossgötum (hópur 4) by Ingvar Sigurgeirsson

1. Er æskilegt / hægt að samræma starfstíma og þjónustustig leikskólanna?
Já, það er æskilegt. Það er nauðsynlegt að búa til sameiginlegt leikskólaár og -dagur, líkt og grunnskólinn gerir. Það færir minni samanburð milli sveitarfélaga, kemur í veg fyrir samkeppni sveitarfélaga. Búa til sameiginleg gæði leikskólastarfs. Samhæfa þjónustustig, t.d. opnunartíma og leikskólagjöld. Þurfum að vinna að þessu sameiginlega að skapa gæði leikskólastarfsins.

Það er enginn á því að það sé ekki æskilegt í þessum hópi, þ.e við þurfum að vinna saman og hætta pissukeppni sveitarfélaganna, á kostnað gæða skólastarfsins.

Þetta er of mikil pólitík einstakra flokka að berjast fyrir lægi og lægri aldri og það geri þeirra sveitarfélag betra en annarra. Losna við samkeppni pólitíkusa milli sveitarfélaga og búa til samræmt kerfi óháð sveitarfélögum.

Einkaskólar eru líka vandi, þ.e. þeir geta gert sem þeir vilja, varðandi skipulag, þjónustustig, kjaramál og fleira. Sameiginlegt gæðakerfi þarf líka að ná til þeirra.

Þetta snýst um jafnræði að vinna að sameiginlegum ramma sem er óháður pólitíkusum í einstaka sveitarfélögum.

2. Hvernig getum við komið betur til móts við starfsfólk með annað móðurmál en íslensku?
Vandi hér er að ríkið segist annast íslenskukennslu fullorðinna en sinnir því ekki svo pressan er að vinnustaðir verði að leysa það. Það á ekki síst við leikskóla. Það er ekki gott fyrir leikskólakerfið að eiga jafnframt því að ráða starfsfólk og síðan að vera íslenskukennari þess líka. Leikskólakerfið þarf að einbeita sér að menntun barnanna en ekki starfsmanna.

Íslenskuumhverfið þarf að vera gildandi á hverri deild á leikskóla og erlend mál þar í minnihluta. Þetta getur vissulega verið áskorun fyrir kerfið. Það verður að vera meiri og betri íslenskukennsla á vegum ríkisins ÁÐUR en erlent starfsfólk kemur í skólana. Setja mögulega ramma hér, t.d. varðandi tungumálagetu og hlutfall á deildum.

Starfsfólk af erlendu bergi er líka misvel undirbúið að starfa á leikskólum sumt mjög hæft og gefur leikskólunum mikið. Þurfum að geta vandað til ráðnininga en ekki bara að taka við fólki af því að það vantar starfsfólk.

Hafa þó möguleika til að vera með leikskólafræðslu sérstaka, sem íslenskukennsla í leiðinni, til erlends starfsfólks. Þurfum að hafa fræðslu líka sem mest utan vinnutíma (nema þá sem hluti símenntunar sem er innan kjarasamninga). Leikskólakerfið á ekki að þurfa borga fræðsluna með tíma sínum.

3. Hvernig stuðlum við að jákvæðari umræðu um leikskólastigið?
Leikskólakennarar þurfa að tala sig og leikskólastarfið upp. Þurfa að vera jákvæðari á eigið starf, t.d. minnka álagsumræðuna. Neikvæð umræða á starfsmannastofum leikskóla virðist yfirgnæfandi sums staðar (dæmi er um...).

Leikskólakennarar þurfa að vinna að jákvæðari fagviðhorfum sem stéttin vill standa fyrir - og sýna hana innan leikskólans og í samstarfi við foreldra og samfélagið.

Þurfum að vinna stöðugt að bæta og efla fagstarfið í leikskólum. Leikskólinn fengið meiri skipulagstíma líkt og grunnskólinn og fær meiri faglega möguleika. Það ætti að hjálpa til að draga úr neikvæðri umræðu.

Þurfum að vera með jákvæðari fræðslu til ungs fólks um leikskólakerfið, þ.e. það fær neikvæð skilaboð um að vinna í leikskóla, í samfélaginu, í kennaranámi, í leikskólunum sjálfum, hjá pólitíkusum sveitarfélaga. Of lítið gert úr mikilvægi leikskólastarfsins sem gerir það eftirsóknarvert að vinna þar og hefur mikið gildi fyrir samfélagið.

Fjölmiðlar eru með of neikvæðar fréttir um leikskólastarfið, þurfa að horfa betur á jákvæðar hliðar þess.

4. Hvaða sóknarfæri eru í samstarfi um málefni leikskólanna þvert á sveitarfélög?
Stokka upp og horfa á leikskólann nýjum faglegum augum. Þurfum líka sýn á góðar breytingar (frekar en breytingar í sjálfu sér). Þurfum nýjar faglegar lausnir, byggja á hefð en sjá líka möguleika á nýjungum. Það á ekki síst við um innra skipulag, verkefni, starfsviðhorf, flæði, sveigjanleika, lausnaleit, sjá nýjar þarfir barnanna. Húsnæðið trufli ekki skapandi hugsun og faglegar nýjungar.

Þurfum að vinna þvert á sveitarfélög, á landsvísu, með að búa til samhæft (ekki samræmt) skipulag á ársgrunni, sbr. grunnskólakerfið sem þó er ekki endilega að herma eftir því).

Þurfum í grunninn að hugsa um leikskólastarfið sem menntunarkerfi en ekki sem geymslustað.

Þurfum að vinna í því að fjölga leikskólakennurum í leikskólum sem er með fátt fagfólk (20-80% starfsmanna leikskólakennarar eftir skólum sem býr til ójafnræði fyrir börnin) - í dag er kerfið öfugt, þ.e. leikskólakennarar sækja í skóla þar sem margt fagfólk er fyrir. Þurfum hvatakerfi til að fá fagfólk að sækja í skóla þar sem fáir leikskólakennarar eru fyrir.

Dagskrársíða