Starfskenning by Kristbjörg Guðrún Halldórsdóttir

Að setja mér mörk
Þessi þáttur er mér mjög mikilvægur þar sem hann endurspeglar það hvernig ég horfi á kennarastarfið. Hafandi starfað sem kennari í eitt ár er mér ljóst að allt það sem ætlast er af kennurum í dag er yfirþyrmandi mikið og því tel ég þetta vera minn helsta áhersluþátt. Kennarastarfið er yfirgripsmikið þar sem við erum eigum fyrst og fremst að hlúa faglega að menntun nemenda ásamt því að passa upp á velferð þeirra. Ég vil því passa að setja mér skýr og sanngjörn mörk í garð nemenda, samstarfsfólks og foreldra svo að starfið verði mér ekki um og of.

Að halda uppi aga
Það er mér mjög mikilvægt að halda upp miklum aga í kennslustofunni þar sem það hefur áhrif á allt starfið. Með settum reglum verður dagurinn fyrirsjáanlegri fyrir nemendur sem stuðlar að því að nemendum líði vel og að þeim vegni vel (Wormeli, R., 2003). Þegar ég byrjaði að starfa sem kennari var ég meira með það hugarfar að vera vinkona nemenda til þess að ná til þeirra. Hins vegar hef ég fundið af reynslunni að allt gengur mun betur ef ég held uppi góðum aga.

Valdefling nemenda
Þessum áhersluþætti má ná fram með því að leggja áherslu á þátt nemenda í eigin námi og leyfa þeim að taka þátt og finna lausnir við raunverulegum vandamálum. Einnig er mikilvægt fyrir þá að geta tjáð sig um málefni líðandi stunda og veita þeim þannig tækifæri á að taka ríkari þátt í samfélaginu. Með því að valdefla einstaklinga er verið að veita þeim þær stoðir svo að auðveldara sé fyrir þá að taka þátt og láta málin sig varða. Þegar maður sér að gjörðir manns skipta máli og að maður hafi í raun og veru fundið úrlausnir við vandamálum veitir það manni styrk og trú á eigin getu.

Að fara á dýptina
Það er mér mjög mikilvægt að nemendur kafi ofan í námsefni og komist þannig á dýptina frekar en að rétt kannast við yfirborðið. Líkt og segir í Aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2011, á kennari "að vera leiðtogi í námi nemenda" en þetta finnst mér vera gríðarlega mikilvæg áminning að kennari þurfi að hjálpa nemendum að komast á þann stað að vilja vita meira. Það getur maður gert með alls kyns ólíkum leiðum og reynt að aðlaga það að hverjum nemenda fyrir sig.

Aukin útivera - Tengsl við náttúru
Með því að auka við útiveru í skólanum, allan ársins hring, er líklegra að maður nái að ýta undir forvitni og vilja til að vita meira um náttúruna og koma vel fram við hana. Ein leið að því væri að fara í göngutúr með nemendur á hverjum degi, sama hvernig viðrar. Þar gæti kennari lagt fyrir hugleiðingu eða spurningum sem nemendur þyrftu að velta fyrir sér á leiðinni. Að lokum yrði svo umræða um upplifanir og reynslu og jafnvel haldið áfram með það út daginn eða sem langtímaverkefni. Þetta er svokallað grenndarnám sem ýtir undir sjálfbærari hugsunarhátt líkt og fjallað er um í ritinu Connecting the Dots frá árinu 2011. Aukin útiveru eykur undir tengsl við náttúru þar sem maður upplifir það af fyrstu hendi hvernig samspil manna og náttúru á sér stað. Með auknum tíma úti við er líklegra að maður verði forvitnari á að fræðast enn meira hvað leynist í náttúrunni. Þetta stuðlar þá að því að vilja gera betur og eykur líkurnar á að maður breyti lífstílnum sínum í þágu náttúrunnar. Þetta er má gera með því að leyfa nemendum að kynna sér málið á sinn eigin máta og nýtast við fjórðu leiðinni til skólaumbóta (Oddný Sturludóttir, 2018) þar sem nemendur reyna að finna lausnir við raunverulegum vanda í heiminum. Tengsl við náttúru ýtir undir þá vitund og skilning fyrir náttúrulegum ferlum og gerir það líklegra að vilja vernda og taka fyrir málstað náttúrunnar. Þegar maður hefur myndað tengsl er líklegra að maður láti málin sig varða. Auk þess er þetta mikilvægt til að auka vellíðan.

Heimildir:
Kozak, S. og Elliott, S. (2011). Connecting the Dots: Key Learning Strategies for Environmental Education, Citizenship and Sustainability. Learning for a Sustainable Future. http://www.lsf-lst.ca/en/projects/teacher-resources/dots

Oddný Sturludóttir. (2018). Fjórða leið skólaumbóta - (Frelsi til að kafa djúpt 1). Skólaþræðir. ISSN 2547-6467

Aðalnámskrá grunnskóla - Almennur hluti. (2011). Sótt á https://www.stjornarradid.is/media/menntamalaraduneyti-media/media/frettatengt2016/Adalsnamskra-grunnskola-3.-utg.-2016.pdf