Malaría og Njálgur by Hugrún Björk Jörundardóttir
Álfheiður Kristín
Hæ, ég heiti Álfheiður.
Ég bý á Akureyri með manninum mínum, dætrum okkar 2 og hundinum okkar. Ég er að mestu uppalin í Mývatnssveit en hef búið um allt land (fun fact! ég var í 6 mismunandi grunnskólum)
Ég hef gaman af líkamsrækt og crossfit og við fjölskyldan stundum hestamennsku.
Ég var að læra vélstjórn áður en ég fékk áhuga á hjúkrunarfræði en sá áhugi kviknaði þegar ég var að vinna sem aðstoðarmaður á slysó. Eins og staðan er núna er stefnan sett á bráðahjúkrun og afur á slysó en hver veit hvert áhuginn dregur mann
Embla
Hæ, ég heiti Embla. Ég hef verið búsett í Þýskalandi síðastliðin tvö ár með kærastanum mínum og við flytjum síðan til Noregs í sumar.
Líkamsrækt, handbolti, góður matur og gott sjónvarp er í miklu uppáhaldi þessa dagana.
Ég fór mjög blint út í hjúkrunarfræði námið, en hef alltaf haft mikinn áhuga á heilsu, líkamanum og samskiptum svo þetta smellur alveg vel saman. Fjarnámið heillaði mig einnig þar sem ég mun vera mikið á flakki næstu árin. Hef síðan ekki hugmynd um hvert þetta nám mun taka mig í framtíðinni.
Helga Sunna
Hæ, ég heiti Helga Sunna alltaf kölluð Sunna. Ég bý í Garðabæ með manninum mínum Kolla og dóttir okkar Hrafndísi Helgu. Ég missti vinnuna í Covid og lét gamlan draum rætast, að skella mér í hjúkrunarfræði. Ég elska hunda, innanhúshönnun, fjölskyldu og vini, útivist og tónlist. Ég er með BSc í sálfræði og er einnig snyrtifræðingur.
Hugrún Björk
Hæ, ég heiti Hugrún Björk og er 32 ára kona sem er búsett á Selfossi með manninum mínum og þremur börnum. Ég er uppalin á Álftanesi (forsetinn var sko nágranni minn).
Ég er búin að gera allskonar í lífinu en meðal annars er ég búin með BS í sálfræði, hef unnið í leikskóla, í bakríi, á lager, í frístund og sem þjálfari í frjálsum íþróttum.
Mér finnst skemmtilegast að æfa crossfit í góðra vina hópi, elska að spila og syngja og hafa gaman.
Ég fékk áhuga á hjúkrun eftir að ég átti börnin mín en draumurinn var alltaf að verða ljósmóðir, ég veit ekki hvert leiðin liggur en ég veit að hún er skemmtileg :).
Velkomin
Við erum hópur 2 og í þessu verkefni ætlum við að veita ykkur fræðslu um lyf gegn Malaríu og gegn Njálgormasýkingu en þetta eru efnistök úr köflum 12 og 13 í bókinni Focus on Nursing Pharmalogy.
Við munum einnig fjalla um snýkjudýrin sem valda þessum sjúkdómum ásamt því að fjalla um sjúkdómana sem þau valda, hvernig þeir smitast, greinast og hver meðferðin er við þeim.
Hér að neðan kemur góð kynning á okkur og hvernig við ætlum að fræða ykkur um þetta efni.
Malaríu spuring
Hvaða tegund Malaríu sníkjudýrs veldur mestum skaða?
a) P. Ovale
b) P. Falciparum
c) P. Vivax
d) P. Malariae
Njálg spurning
Hvernig smitast njálgur?
a) Með biti Njálg-orms.
b) Með því að kingja eggi úr njálg
c) Með snertismiti við smitaðan einstakling.
d) Með dropasmiti.
Mynd af snýkjudýrunum
VERMOX
ATC flokkur:
P02CA01 Mebendazolum.
Vermox er lyf sem nýlega er komið í lausasölu og notað er hérlendis við njálgormasýkingu en þetta er breiðvirkt ormalyf. Virka efnið í Vermox er Mebendazól en það truflar getu næmra orma til þess að taka upp glúkósa og tæmir einnig glýkógenbyrgðir sem ormurinn þarf til þess að æxlast og lifa af. Lyfið hindrar einnig þroskun eggja njálgsins.
Lyfið er til í töfluformi og sem mixtúra.
Skammtastærð lyfsins er sú sama fyrir fullorðna og börn en lítil reynsla er á notkun lyfsins fyrir börn yngri en tveggja ára. Taka á 100 mg töflur eða 5 ml af mixtúru einu sinni og mælt er með því að öll fjölskylda og nánir leikfélagar taki lyfið á sama tíma til þess að sporna við útbreiðslu smitsins. Endurtaka þetta þarf eftir tvær til þrjár vikur.
Ekki á að taka lyfið ef:
-Einstaklingur er með þekkt ofnæmi við mebendazól eða einhverju öðru efni lyfsins.
-Ef barn er yngra en eins árs. Tilfelli hafa komið upp að börn hafa fengið krampa við inntöku lyfsins.
-Barnshafandi konum er ekki ráðlagt að taka inn lyfið sökum þess að ekki er vitað um áhrifin.
-Ef einstaklingur er með barn á brjósti en lyfið getur smitast í brjóstamjólk.
Hvað er njálgur
Njálgur (e. Enterobius vermicularis) er lítill hvítur hringormur sem getur valdið iðrasýkingu í mönnum.
Kvendýrið er um 8–13 mm langt og 0,5 mm þykkt á meðan karldýrið er um er 2–5 mm langt og 0,2 mm þykkt.
Egg njálgsins eru aflöng, hálfgegnsæ með þykkri skel og er ekki hægt að greina með berum augum.
Njálgur er algengasta sníkjudýrið hjá börnum og fullorðnum í löndum með svipað veðurfar og er á Íslandi.
Líftími njálgsins er talin geta verið allt að tveir mánuðir.
Hvernig lýsir sjúkdómurinn sér í mönnum?
Tveir af hverjum þremur einstaklingum finna fyrir miklum kláða og pirring við endaþarmsop þar sem ormurinn verpir eggjum sínum og skríður um. Einstaka sinnum finna einstaklingar einnig fyrir kláða við leggangnaop.
Einn af hverjum þremur einstaklingum með njálgsmit eru algjörlega einkennalausir.
Ef njálgsýking er mikil (mikið af ormum til staðar) geta einkennin orðið lystarleysi, kviðverkir, uppköst og svefnleysi.
Hvernig smitast njálgur?
Njálgur er bráðsmitandi og skráningarskildur sjúkdómur.
Njálgurinn smitast með því að einstaklingur gleypir njálgs-egg en þau eru algengari meðal barna og fólki sem vinnur á stofnunum eins og leikskólum og skólum.
Eggin klekjast út í smágirninu og þróast þar yfir í fullorðin dýr sem færa sig síðan niður í ristilinn. Þetta þroskaferli tekur einn mánuð. Þegar dýrin eru orðin fullvaxta og hafa kynmök í smágirninu, drepst karldýrið en kvendýrið flytur sig niður í ristilinn og að endaþarmsopi. Þar verpir það miklu magni af eggjum og drepst svo sjálft. Þegar eggin klekjast skríða lirfurnar upp ristilinn og í smágirnin þar sem þau þroskast þar til sama ferli endutekur sig.
Þegar kvendýrið verpir eggjum við endaþarmsop verður mikil erting og kláði af líminu sem festir eggin ásamt orminum sjálfum sem skríður þar um. Sýktur einstaklingur fer þá oft að klóra sér og fær egg á fingurnar og drefir þeim í umhverfi sínu með snertingu.
Algengi njálgs
Talið er ormasýkingar í meltingarvegi eða öðrum vefum líkamans hafi áhrif á um einn milljarð manna árlega og er þetta því meðal algengustu sjúkdóma í heiminum.
Njálgormar eru ein tveggja tengunda sem valda flestum þessara sýkinga.
Skemmtilegt fræðisluvídjó um Njálgs-smit
VANQUIN
ATC flokkur:
P02CX01 Pyrvinum
Vanquin er lyf í lausasölu sem notað er hérlendis við
njálgormasýkingu. Virka efnið í Vanquin er Pýrvín en það drepur bæði njálg og lirfur hans en hefur ekki áhrif á þau egg sem eru þegar til staðar svo mikilvægt er að taka lyfið aftur tveimur til þremur vikum seinna til þess að drepa orma sem hafa þroskast þá. Sterkt litarefni er í lyfinu sem litað getur hægðir rauðar.
Lyfið er aðeins til í töfluformi.
Skammtastærð lyfsins fer eftir þyngd einstaklings en lyfið er aðeins ætlað einstaklingum sem eru þyngri en 10 kg en lítil reynsla er á notkun lyfsins fyrir börn yngri en tveggja ára. Taka skal eina 50 mg töflu á hver 10 kg líkamsþyngdar en mest má fullorðin einstaklingur sem er þyngri en 75 kg taka 8 töflur inn í einu. Taka skal töflurnar eftir máltíð með vatnsglasi og alls ekki tyggja töflurnar vegna litarefnisins. Mælt er með því að öll fjölskylda og nánir leikfélagar taki lyfið á sama tíma
til þess að sporna við útbreiðslu smitsins.
Ekki á að taka lyfið ef:
-Einstaklingur er með þekkt ofnæmi við Pýrvíni eða einhverju
öðru efni lyfsins.
-Ef barn er yngra en tveggja ára nema með samráði við lækni.
-Barnshafandi konum eða konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að taka inn lyfið nema í samráði við lækni.
Efnistök og fræðsluaðferðir
Við gerð verkefnisins notum við aðallega kennslubókina en samhliða henni notum við sérlyfjaskrá, embætti landlæknis og heimasíðu lyfju.
Fræðslan sem við ætlum að veita samnemendum okkar eru helst í formi texta, mynda, myndbanda og minnispunkta. Von okkar er sú að fræðslan vekji áhuga, sé fræðandi og skemmtileg.
Hvað þarf að gera ??
Eftir að njálgur hefur verið greindur á heimili þarf að:
-Taka inn ormalyf
-Tilkynna skólum/leikskólum og heilsugæslu smitið. Oft sér heilsugæsla um næstu skref þegar upp kemur njálgssmit.
-Setja öll rúmföt og handklæði beint í þvottavél á meira en 40 gráður.
-Skerpa þarf vel á hreinlæti og þrífa alla fleti og dót þar sem njálgsegg gætu hafa komist t.d. hurðahúna, ljósarofa, leikföng barna, rúmdýnu og gólffleti.
-Þrífa þarf klósett og vask vel daglega.
-Gott er að byrja hvern dag á að fara í sturtu og þrífa sig vel.
-Þvo sér oft og mjög vel um hendur og sértstaklega eftir klósettferðir og sjá til þess að börn geri það einnig.
Greining njálgs
Ef leikur grunur á að um njálgsýkingu sé til staðar er hægt að athuga það með nokkrum ráðum.
Hægt er að skoða við endaþarmsop tveimur til þremur klukkutímum eftir að einstaklingur er sofnaður t.d. geta foreldrar skoðað svæðið umhverfis endaþarminn með vasaljósi hjá börnum sínum. Ormarnir sjást þá yfirleitt vel við endaþarmsopið.
Hægt er að setja límband við endaþarmsop um leið og einstaklingur vaknar eftir nætursvefn og skoða í smásjá en oft sjást þá egg sem límst hafa við límbandið.
Stundum er hægt að sjá ormana utan á saur.
Eggin er ekki hægt að sjá með berum augum.
Fullorðnir geta fylgst með hægðum og sjái þeir hvíta orma utan á hægðum er líklega um njálg að ræða.
Stundum tekst ekki að staðfesta smit með þessum aðferðum en engu að síður getur reynst nauðsynlegt að meðhöndla vegna smits hjá öðrum sem viðkomandi umgengst.
Almennt um malaríu
Malaría sýkist til manna með moskítóbitum og er alvarlegur smitsjúkdómur. Hún dreifir sér þannig að sýkt moskítófluga ber með sér sníkilinn inn í blóðrás manna. Sjúkdómurinn er algengur í hitabeltislöndum og heittempruðum löndum og er ástandið verst í Afríku. Malaría hvarf úr Evrópu á seinni hluta 19. aldar, en þá voru engar markvissar aðgerðir gerðar til að útrýma henni. Þó hefur eyðing votlendis, bætt húsakynni, bætt umönnun dýra og lyf gegn malaríu spornað við því að malaría sé ekki enn í dag landlægur sjúkdómur í Evrópu.
Engar moskítóflugur hafa verið fundnar hérlendis enda er ekkert sem vísar til þess að malaría hafi verið landlæg á Íslandi. Þó greinast hér árlega stöku tilfelli meðal ferðamanna sem koma frá löndum þar sem malaría er landlæg.
Plasmodium-Ættin
Malaría orsakast af protozoa (frumdýri) af ættinni Plasmodium (Mýraköldusýkill) og hafa fjögur sníkjudýr verið greind sem smita frá sér sjúkdómnum:
Plasmodium falciparum er talið veran hættulegasta tegund frumdýra. Sýking frá þessu frumdýr veldur bráðversanandi sjúkdómi sem breiðist hratt og veldur einkennum eins og háum hita, alvarlegum lágþrýstingi, bólgu og rauðir útlimir, tap á rauðum blóðkornum og jafnvel dauða. P. falciparum veldur nánast öllum dauðsföllum af völdum malaríu.
Plasmodium vivax veldur vægari sýkingu og leiðir sjaldnar til dauða, er þó algeng.
Plasmodium ovale er sjaldgjæf, virðist vera á leið til útrýmingar.
Plasmodium malariae er landlæg á mörgum hitabeltissvæðum og veldur mjög vægum einkennum hjá íbúum á þeim svæðum en getur valdið bráðri sjúkdómum hjá ferðamönnum sem ferðast til hitabeltislanda.
Smitleið
Smit á sér ekki stað milli manna. Smitið berst með biti Anopheles-moskítóflugunnar (Kvendýr moskítóflugunnar). Frumdýrið sjálft berst inn í blóðrásina og lífsferill þeirra í mönnum hefst.
Embætti landlæknis. (e.d.). Njálgur (Enterobius vermicularis). https://www.landlaeknir.is/smit-og-sottvarnir/smitsjukdomar/sjukdomur/item15967/Njalgur-(Enterobius-vermicularis)
Embætti Landlæknis. (2012). Malaría - mýrarkalda. https://www.landlaeknir.is/smit-og-sottvarnir/smitsjukdomar/sjukdomur/item13086/Malaria---myrarkalda
Karch, A., M. (2020). Focus on Nursing Pharmacology. Wolters Kluwer.
Kristján Godsk Rögnvaldsson, Sigurður Guðmundsson og Magnús Gottfreðsson. (2016). Malaría á Íslandi, sjaldgæf en stöðug ógn fyrir ferðalanga. Læknablaðið, 102(6). doi: 10.17992/lbl.2016.06.84
Lyfja. (e.d.). Vanquin. https://www.lyfja.is/lyfjabokin/lyf/Vanquin
Lyfja. (e.d.). Vermox. https://www.lyfja.is/lyfjabokin/lyf/Vermox
Lyfjastofnun. (e.d.). Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notenda lyfsins Plaquenil 200 mg filmuhúðaðar töflur.
https://www.serlyfjaskra.is/FileRepos/68c09bc7-cda9-ec11-8114-005056a1b61b/Plaquenil_Sanofi-aventis-Norge_Fylgise%c3%b0ill.pdf
Lyfjastofnun. (e.d.). Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notenda lyfsins Vanquin 50 mg húðaðar töflur. https://serlyfjaskra.is/FileRepos/cf698d21-b31b-ec11-810e-005056a1b61b/Vanquin_Fylgise%c3%b0ill.pdf
Lyfjastofnun. (e.d.). Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Vermox 100 mg töflur Vermox 20 mg/ml mixtúra, dreifa. https://serlyfjaskra.is/FileRepos/f12237d2-99b8-eb11-8107-005056a1b61b/Vermox_t%c3%b6flur_og_mixtura_OTC_Fylgise%c3%b0ill.pdf
Lyfjastofnun. (e.d). SMPC seðill. Malarone (serlyfjaskra.is)
Meðgöngutími
Meðgöngutími er í flestum tilfellum 1-4 vikur, frá því að smit á sér stað þar til einkenni koma fram. Tíminn getur þó verið breytilegur eftir því hvaða Plasmodium-frumdýr á í hlut. Hjá P. ovale og P. vivax getur meðgöngutími í undantekningartilfellum farið upp í nokkur ár þar sem þær geta legið í dvala í lifur manna árum saman
Hvernig er hægt að fyrirbyggja malaríusmit?
Hægt er að fá ávísað lyf hjá lækni til fyrirbyggingar en einnig er mikilvægt að verja húðina t.d. með skordýrafælu. Flugurnar sækjast minna í ljósan fatnað en dökkann og mikilvægt er að reyna eftir bestu geta að hylja sem mest af líkamanum. Flugnanet er einnig mikilvæg til að forðast flugurnar sem og að loka öllum gluggum og hurðum. Þó farið sé eftir öllum varúðarráðstöfunum er samt sem áður hægt að smitast.
Greining
Greining fæst með smásjárskoðun á blóðsýni.
Einkenni
- Hitatoppar með köldu og svitarófum
- Höfuð- og beinverkir
- Niðurgangur
- Hósti
Sýking með P. falciparum getur leitt til alvarlegra einkenna frá miðtaugakerfi
- Rugl
- Meðvitundarleysi og krampar
- Blóðleysi
- Truflanir í storkukerfi
- Miltisstækkun
- Gula
- Nýrnabilun
- Blóðþrýstingsfall
Sýkingin leiðir oft til dauða ef hún er ekki meðhöndluð
Forvarnaraðgerðir
Smyrja húð með áburði sem er fælandi fyrir moskítóflugur
Klæðast síðerma skyrtum og buxum með síðum skálmum
Hægt að úða flugnaeitri í svefnherbergið
Mikilvægt að sofa undir flugnaneti
Flugrunar sækjast minna í ljósan fatnað en dökkann
Loka öllum gluggum og hurðum
Moskítóflugur forðast loftræst herbergi
→  Þó farið sé eftir öllum varúðarráðstöfunum er samt sem áður hægt að smitast.
Meðferð
Í gegnum árin hafa moskítóflugur þróað þol gegn skordýraeitri og hefur það haft í för með sér að sjúkdómurinn lifir enn. Auk þess hafa sum frumdýr sem valda malaríu þróað með sér þol gegn malaríulyfjum. Ónæmi Plasmodium-frumdýra gegn lyfjum er útbreitt vandamál og einnig er það mismunandi milli landsvæða. Það er til fjöldi meðferðarmöguleika en þeir fara eftir þekkingu á ónæmi á því svæði þar sem sjúklingur varð fyrir smiti. Malaría er í dag mikil lýðheilsuógn og hefur víðtæk áhrif á heiminn.
Á ferðalögum til svæða þar sem malaría er landlæg er nauðsynlegt að taka lyf í forvarnaskyni. Úrvalið af lyfjum er mikið og því er mikilvægt að hafa góða þekkingu á ónæmi frumdýrana gegn lyfjum svo valið sé rétt lyf. Það eru mun minni líkur á malaríusýkingu í stórborgum en á landsbygðinni. Ekki er þörf á einangrun hjá einstaklingum með malaríu þar sem sjúkdómurinn smitast ekki á milli manna. Nánari upplýsingar um fyrirbyggjandi meðferð við malaríu má fá hjá heimilislækni og smitsjúkdómalækni.
Skemmtilegt myndband um malaríu, smitleið, hringrásina og fleira áhugavert.
Ferlið
Plasmodium-frumdýr fjölga sér fyrst í lifur og fara þaðan út í blóðið þar sem þau sýkja rauð blóðkorn. Í rauðu blóðkornunum á kynlaus fjölgun á sér stað. Blóðkornin springa svo frumdýrin losna út í blóðrásina og sýkja önnur rauð blóðkorn í kring. Þessi hringrás gerist nokkrum sinnum þar til kven- og karlkyns frumdýr (gametocytes) geta borist í Anopheles moskítófluguna þegar hún bítur einstakling. Moskítóflugan sýgur síðan blóð úr einstakling og þannig berast frumdýrin í fluguna og þaðan í næsta einstakling sem moskítóflugan bítur.
Malarone
ATC flokkur:
P01BB51 proguanil and atovaquone
Í Malarone eru tvö virk efni; Atóvakón og Prógúanílhýdróklóríð. Lyfið hefur snýkladrepandi verkun í blóði og hefur einnig verkun á Plasmodium falciparum sníkla í lifur.
Malarone er notað sem fyrirbyggjandi meðferð gegn malaríu af völdum Plasmodium Falciparum og einnig sem meðferð við bráðri malaríusýkingu af völdum P. falciparum.
Malarone hefur þann kost framyfir önnur malaríulyf að það hefur verkun gegn lyfjanæmum og lyfjaónæmum P. falciparum
Malarone sem fyrirbyggjandi meðferð:
hefja skal meðferð 24-48 klukkustundum áður en farið er inn á malaríusvæði og haldið áfram í 7 daga að dvöl lokinni.
Malarone sem meðferð við malaríu:
Fyrir fullorðna:
Fjórar töflur í einum skammti daglega, í þrjá daga í röð.
Fyrir börn:
11-20 kg : ein tafla daglega, í þrjá daga samfleytt
21-30 kg : tvær töflur í einum skammti daglega, í þrjá daga í röð
31-40 kg : þrjár töflur í einum skammti dagleg, í þrjá daga í röð
>40 kg : skammtar eins og fyrir fullorðna
Algengar aukaverkanir eru uppköst og niðurgangur, ef einstaklingur kastar upp innan einnar klukkustundar frá inntöku lyfsins á hann/hún að taka annan skammt, ef um niðurgang er að ræða skal taka lyfið eins og venjulegar leiðbeiningar segja til um.
Ekki skal nota lyfið sem fyrirbyggjandi meðferð við malaríu hjá sjúklingum mee verulega skerta nýrnastarfsemi.
Ekki skal nota lyfið ef einstaklingur er með ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna:
- Póloxamer 188
- Örkristallaður sellulósi
- Umbreyttur hýdroxýprópýlsellulósi
- Póvidón K30
- Natríumsterkjuglýkólat (týpa A)
- Magnesíumsterat
- Hýprómellósi
- Títantvíoxíð E171
- Rautt járnoxíð E172
- Makrógól 400
- Polýetýlen glýkól 8000
Plaquenil
ATC flokkur:
P01BA02 Hydroxychloroquinum
Plaquenil er lyf sem er notað til að fyrirbyggja Malaríu en einnig við malaríusýkingu. Virka innihaldsefnið í lyfinu er hýdroxýklórókínsúlfat. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að ung börn eru viðkvæm fyrir lyfinu og 200 mg töflur má ekki gefa börnum yngri en 6 ára eða börnum léttari en 31 kg.
Sem forvörn gegn malaríu er ráðlagur skammtur fyrir fullorðna tvær 200 mg töflur einu sinni í viku.  Ráðlagður dagskammtur fyrir börn er 6,5 mg á kg vikulega. Mikilvægt er að taka töfurnar alltaf á sama vikudegi.
Ef malaríusmit er staðfest er ráðlagður skammtur hjá fullorðnum: fjórar 200 mg töflur strax, tvær töflur sex klukkustundum síðar og tvær töflur á dag í tvo daga. Ráðlagður skammtur hjá börnum ef um staðfesta sýkingu er að ræða: 13 mg/kg strax, 6,5 mg/kg sex klukkustundum síðar og 6,5 mg/kg á dag í tvo daga.
Mælt er með því að hefja inntöku á Plaquenil viku áður en haldið er á svæði sem grunur er á malaríu, allan tímann sem dvalið er á svæðinu og sex til átta vikum eftir heimkomu. Ef notkun á lyfinu er hætt of snemma eru líkur á bráðamalaríu.
Hér er annað myndband um malaríu. Það eru til mörg mismunandi og skemmtileg myndbönd inn á youtube og við mælum með að kíkja þangað fyrir meiri fróðleik.
Algengi og dauðsföll
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnun er áætlað að um 300 milljón manns smitast árlega af malaríu og leiðir hún að minnsta kosti til milljón dauðsfalla á hverju ári, þar af eru um 90% börn.
Hver sem er getur fengið njálg