Hrafnagilsskóli by Þórdís Jónsdóttir

150 nemendur stunda nám sitt við Hrafnagilsskóla. Hrafnagilsskóli er grunnskóli í Eyjafjarðarsveit sem var formlega vígður 3. desember árið 1972. Við fylgdumst með starfi Lilju Möller iðjuþjálfa, en hún er í 75% starfi og er eini iðjuþjálfinn sem starfar í skólanum af 30 starfsmönnum. Við fengum að fylgjast með henni vinna með sínum skjólstæðingum og viðburðum sem hún tók sér fyrir hendur. (Lilja Möller, munnleg heimild, 2. október 2018)(Sigurður Aðalgeirsson, e.d.)

Lilja Möller er fædd árið 1969. Hún útskrifaðist sem iðjuþjálfi úr Háskólanum á Akureyri árið 2012 og hefur starfað í Hrafnagilsskóla síðan þá, eða 7 vetur. Ástæðan fyrir því að hún fór að vinna í Hrafnagilsskóla var vegna þess að hún fór í vettvangsnám þangað þegar hún var að stunda nám hér við háskólann á Akureyri og þá heillaðist hún strax að þessu starfi.
Starf hennar er mjög fjölbreytt og áhugavert og vinnur hún með fjölbreyttum hóp af einstaklingum. Markhópurinn sem Lilja vinnur með eru börn í skóla á aldrinum 6 - 16 ára og sýndi hún okkur hversu mikilvægt starf hennar er fyrir þau. Hún hjálpar börnunum að stunda þá iðju sem er innan veggja skólans, svo sem hjálpar þeim að fúnkera vel í skólaumhverfi. Hún er með 10 skjólstæðinga í einstaklingsbundinni iðjuþjálfun en svo er hún einnig með nokkra hópa.
(Lilja Möller, munnleg heimild, 2. október 2018)

MOHO - Líkanið um iðju mannsins
Hugmyndafræðin sem Lilja styður sig hvað mest við er MOHO, eða líkanið um iðju mannsins. Hugmyndafræðin byggist á því að útskýra venjur okkar og afhverju við stundum þá iðju sem við stundum og hversu vel við leggjum okkur fram við hana.
MOHO útskýrir hvernig daglega iðjan, sem okkur þykir mikilvæg er skipulögð inn í okkar daglegu rútínu og hvernig hún aðlagast að því umhverfi sem hver einstaklingur býr við.
1. Afhverju stundum við þessa ákveðnu iðju?
2. Hvaða máli skiptir hún fyrir okkur?
3. Hvernig er hún skipulögð þannig að hún henti okkar lífi?
4. Hversu vel við iðkum við hana?
Þessar spurningar tengjast allar saman og ef einhver ákveðin þáttur breytist þá breytist allt. MOHO kerfið er opið kerfi og mikilvægir þættir kerfisins eru t.d. sjálfstætt skipulag, iðja, samskipti, umhverfið, rútína, framkoma, þroski og reynsla. (Kielhofner, 2002)

COPM - Mæling á færni við iðju
Einstaklingsmiðað matstæki sem var hannað til að mæla breytingar á færni við daglega iðju frá sjónarhorni skjólstæðings. Færnivandinn er skilgreindur og unnið er að því að breyta því sem þarf að breyta eftir forgangsröðun skjólstæðingsins.

(Anna Alexandersdóttir og Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, 2012)

Lilja á stóran þátt í að efla nemendur í Hrafnagilsskóla. Hún tekur þátt í að skipuleggja samverustundir sem eru á hverjum morgni og eru gerðar til að efla nemendur, þá helst við framkomu. Hún er með sjálfsmyndunarnámskeið fyrir nemendur í 7-unda bekk, þar sem hún talar um samfélagslega pressu, staðalímyndir og þjálfar krakkana í að fara út fyrir þægindaramman sinn með allsskonar aðferðum. Hún er líka með hreyfiþjálfun fyrir 1. bekk þar sem að hún leggur áherslu á sjálfsstyrkingu og einfaldar hreyfingar. Þessar einföldu hreyfingar eru mjög mikilvægar upp á miðpunkt líkamans og skyntaugarnar. Bæting á hreyfigetu tengist auknum árangri í því að til dæmis skrifa, teikna og lesa.  (Lilja Möller, munnleg heimild, 2. október 2018)

Eins leiðinlegt og það er að segja það þá var heimsóknin ekki alveg eins og við hefðum vonað. Það er bara af því að við vorum svo óheppnar með daga og flest allt iðjuþjálfunartengt féll niður. Vinnutíminn hennar Lilju er frá 8-2 alla virka daga og við fengum að koma á mánudegi, þriðjudegi og svo part úr föstudegi. En við byrjuðum alla dagana á því að fara í samverustundina og var hún mjög fróðleg, þá koma 1-7 bekkur saman, en unglingastigið er með sína eigin. og hver bekkur er með sína viku til þess að kynna einhverskonar verkefni. T.d. voru krakkarnir í 3 bekk með vikuna þegar við vorum í heimsókn. Þau voru búin að búa til verkefni og þau voru að lesa það upp og æfa sig að koma fram, en þetta mun klárlega nýtast þeim mjög vel í framtíðinni.
Á mánudeginum fengum við að fylgjast með Lilju þegar hún hitti einhverfan strák á unglingastigi í tíma sem hann átti skráðan hjá henni. Þar var hún með spjöld með myndum á og hann átti að segja frá hvað væri að gerast á hverri mynd, þar var hún að þjálfa hann í skilning á iðju í daglegu lífi. En það er í raun það eina sem við gerðum á mánudeginum sem var eitthvað iðjuþjálfunar tengt annars var Lilja bara að kynna okkur fyrir skólanum.

Aldís Inga Freygarðsdóttir og María Sigríður Þórðardóttir. (2003). Rannsókn á matstækinu Sensory Profile fyrir börn á aldrinum 3 til 10 ára (Lokaverkefni til B. Sc. prófs í iðjuþjálfunarfræði). Sótt af https://skemman.is/bitstream/1946/266/1/sensory.pdf

Anna Alexandersdóttir og Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir. (2012). Iðjuþjálfar í grunnskólum á Íslandi (Lokaverkefni til B. Sc. prófs í iðjuþjálfunarfræði). Sótt af https://skemman.is/bitstream/1946/12022/1/Lokaverkefni.pdf

Kielhofner, Gary. (2002). A Model Of Human Occupation: Theory and Application. (3. útgáfa) sótt af https://books.google.is/books?hl=en&lr=&id=iNKSuVWytKYC&oi=fnd&pg=PR5&dq=model+of+human+occupation&ots=S2z3O_w_Rb&sig=d0DCXEO1cbt4Ml7Qm886L86InY4&redir_esc=y#v=onepage&q=model%20of%20human%20occupation&f=false

Sigurður Aðalgeirsson. (e.d.). Saga Hrafnagilsskóla. Sótt af https://krummi.is/grunnskolinn/saga-hrafnagilsskola/

Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir. (2011). Iðjuþjálfun barna og unglinga. Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilsson (ritstjórar), Iðja, heilsa og velferð: Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi (kafli 8, bls 137-150). Akureyri: Háskólinn á Akureyri.

https://vimeo.com/259323287

Á þriðjudeginum féllu tveir einstaklings tímar niður, vegna veikinda og einnig féll niður sjálfsmyndunarnámskeiðið sem hún átti að vera með fyrir 7-unda bekk því þau voru að fara á reyki. Eina sem var þennan dag var frístund þar sem Lilja var með fjölbreytta leiki t.d. setti hún upp leik þar sem að krakkarnir fóru í hlutverk búðarstarfsmanns og kaupanda. Þau áttu að búa til samtöl en máttu ekki nota stafinn S. Það var sem dæmi þjálfun í að fá börnin til að fylgja fyrirmælum og þjálfa skipulag hugsunar. Þennan dag reyndum við að spurja hana eins mikið af spurningum og við gátum, því það var engin dagskrá hjá henni fyrir utan frístundina.

Á föstudeginum tókum við þátt í hreyfiþjálfunarkennslustund hjá 1 bekk þar sem þau voru að taka próf í einföldum hreyfingum eins og til dæmis kasta bolta, sippa, ganga á jafnvægislá og klifra í rimlum. Lilja leyfði okkur að sjá um prófið, við fengum að útskýra fyrir börnunum hvernig prófið gekk fyrir sig og skrá niður einkunn fyrir hverja þraut í prófinu. Þau gátu fengið 0, 1/2 eða 1 útfrá getu, 0 var þá að þau gátu ekki gert þrautina, 1/2 var að þau gátu smá og 1 ef þau gátu gert hana. Þau vinna síðan að því allan veturinn að efla þessar hreyfingar og taka síðan sama próf aftur í lok skólaárs og þá eru bætingar þeirra kannaðar.

MNS - Mat nemenda á skólaumhverfi
Greinir hversu vel skólaumhverfi kemur til móts við þarfir nemenda með einhverskonar hamlanir. MNS byggir á því að nemendur fari í viðtal og getur þetta gert þjónustu iðjuþjálfa í skólum, bæði markvissari og skipulagðari. (Anna Alexandersdóttir og Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, 2012)

SFA - Skólafærni athugun
Markhópurinn fyrir þetta matstæki eru öll börn á aldrinum 6-12 ára óháð skerðingu og fötlun. Matstækið er staðlaður spurningalisti sem er fylltur út af fagaliðum sem þekkja vel færni nemendans við ýmis verkefni. Matstækið er ætlað til að meta færni og þáttöku við nám og önnur viðfangsefni í skólanum. (Anna Alexandersdóttir og Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, 2012)

SP - Sensory Profile
Það er markbundið matstæki fyrir börn á aldrinum 3-10 ára og er ætlað til þess að meta hversu vel börn túlka og vinna úr skynáreiti. Einnig skoðar þetta áhrif röskunar á hegðun og færni í daglegu lífi barnanna. (Aldís Inga Freygarðsdóttir og María Sigríður Þórðardóttir, 2003)

Lilja er meðvituð um styrkingu á sjálfsmynd barnsins og leggur mikið upp úr því að auka trú þess á eigin áhrifa mátt og getu. Hún segir að teymisvinna með fjölskyldum geti oft verið krefjandi og er það til dæmis vegna þekkingaleysis foreldra. Hún þarf að vita hvenær starf hennar er ekki næg hjálp fyrir skjólstæðinginn og hvenær hún þarf að sækjast eftir aukinni aðstoð annarra sérfræðinga, líkt og sálfræðinga.

Iðjuþjálfun í skólum er því gríðarlega mikilvæg starfsstétt vegna þess að iðjuþjálfinn þekkir ýmsar leiðir til að aðlaga nemendum viðfangsefni skólans svo þeir geti náð sínum markmiðum á sinn hátt. (Lilja Möller, munnleg heimild, 2. október 2018)

Vinnu aðstaðan hennar Lilju er fundarherbergi skólans. Ef einhver þarf að nota fundarherbergið þá þarf Lilja að finna sér annan stað til að vera á.

Mat og markmiðssetning
Við upphafskynni barns og iðjuþjálfa byrjar virkt ferli sem kallast mat. Mikilvægt er að skoðanir og forgangsraðanir barns og fjölskyldu séu hafðar að leiðarljósi í matsferlinu. Í matsferlinu er iðjuvandinn tilgreindur af barninu, foreldrum eða öðrum lykilaðilum og síðan er grunnur lagður af frekara mati og skoðað er hvort að iðjuvandinn tengist einstaklingsþáttum eða umhverfi. Velja þarf matsaðferðir og matstæki, framkvæma matið og túlka niðurstöður. Markmið eru sett í kjölfarið af matinu og síðan er unnið að þessum markmiðum. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Matstæki
Það er til hellingur af matstækjum fyrir börn og fjölskyldur og er mjög mikilvægt að velja rétt matstæki að hverju sinni. Það þarf að velja matstækið útfrá þörfum og aðstæðum hvers og eins. Mikilvægt er að iðjuþjálfinn undirbúi sig vel áður en hann leggur matstækin fyrir svo að einbeiting hans sé á frammistöðu og atferli barnsins en ekki á leiðbeiningar eða handbók matstækisins. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Þegar iðjuþjálfar vinna með börnum er áherslan breytileg eftir aldri. Hjá þeim yngstu er áherslan lögð á grunnfærni, t.d. Líkamsbeitingu og samhæfingu sjónar og handa. Áherslan er einnig lögð á hagnýta færni eins og t.d. félagsfærni en í því felst að  hlusta, lesa í aðstæður og bregðast við samskiptum á viðeigandi hátt. Meiri áhersla er síðan sett á að aðlaga umhverfi eða iðju barnanna eftir því sem þau eldast, og þá er verið að stuðla að þáttöku barnsins og vellíðan.
Iðjuþjálfar sem starfa í grunnskólum þurfa að samræma hugmyndafræði iðjuþjálfunar og menntakerfisins. Einstaklingarnir sem iðjuþjálfar starfa með eru börn með hamlanir svo sem hreyfiþroskaröskun, hreyfihömlun, sálfélagslegir örðuleikar, hegðunarvanda, athyglisbrest með ofvirkni eða á einhverfu rófi. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Sálfélagslegir örðuleikar
Þegar Iðjuþjálfar starfa með börnum sem eru með sálfélagslega örðuleika er félagsleg þáttaka í umhverfi mikilvægur þáttur. Einstaklings- og samskiptaþættir eru hafðir í huga s.s. félagsfærni, sjálfsmat og skapferli. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Ofvirkni með athyglisbrest
Þegar starfað er með börnum með ofvirkni með athyglisbrest þarf að sýna þeim skýran ramma, stöðugleika, venjur og festu til þess að þau nái að mestu leyti að stjórna sinni hegðun heima og í skólanum á sem árangursríkastan hátt. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Einhverfu róf
Þegar starfað er með börnum á einhverfu rófinu þá er lögð áhersla á félagsfærni, tjáskipti, hreyfifærni, hegðun, skynúrvinnslu, eigin umsjá og þáttöku í leik. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Hreyfihömlun
Þegar starfað er með börnum með hreyfihömlun eru hjálpartæki notuð og óhefðbundnar aðferðir og oft þörf á lengri tíma til að takast á við viðfangsefnin. Það er t.d. mjög mikilvægt að umhverfi barnsins sé aðgengilegt til þess að barnið geti tekið þátt í öllu sem fram fer og sinnt sínum félagslegu þörfum eins og allir aðrir. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Skólatöskudagar
Iðjuþjálfar sinna einnig forvörnum og heilsuvernd barna og unglinga. Sem dæmi þá sjá þeir t.d. um skólatöskudagana. En tilgangurinn með þessum dögum er að fyrirbyggja stoðkerfisvanda sem rekja má til rangrar notkunar á skólatöskum. Þá eru iðjuþjálfarnir með stutta fyrirlestra og sýnikennslu og svo vigta þeir nemendur og töskurnar þeirra til þess að sýna fram á hlutfall skólatösku af líkamsþyngd barnanna. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Fjölskylda er þungmiðja þjónustu iðjuþjálfa og er áhersla lögð á teymisvinnu milli iðjuþjálfa og hennar en í skólanum þá bætast þar við umsjónarkennari og sérkennari líka. Teymisvinna felst í því að vinna með fjölskyldu útfrá þörfum og óskum barns og foreldris. Iðjuþjálfinn þarf að hafa á hreinu að félagsleg þáttaka í fjölbreyttu umhverfi hentar ekki alltaf. Þessir einstaklings og samskiptaþætti barnsins skipta nefnilega miklu máli því það er misjafnt eftir einstaklingum með hamlanir hvar styrkleikarnir og veikleikarnir liggja. (Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2011)

Ak film. (2018, 9. mars).

Birna Guðrún Baldursdóttir - Glerárskóla Akureyri [myndskeið]. sótt af https://vimeo.com/259323287