Íbúafundur - 3: Endurskoðun skólastefnu Borgarbyggðar by Ingvar Sigurgeirsson

1. Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála í Borgarbyggð?
-Stöndum okkur vel varðandi mannafla. Sérstaklega varðandi fagfólk. Menntunarstig er hátt.
-Stoðþjónustan er ekki á nægilega góðum stað. Okkur vantar fleiri sérfræðinga til þess að takast á við einstök mál.
- Almennt góð reynsla af skólunum. Þeir eru fjölbreyttir.
- Gríðarlega stórt sveitarfélag þannig að það er gott að hafa skólana nálægt nemendunum. Erfitt væri að hafa einn stóran skóla í sveitarfélaginu.
- Góð reynsla nemenda af samstarfi skóla. Bæði grunn- og menntaskóla sem og grunn- og leikskóla. Mætti auka samstarf grunnskólanna og menntaskólans.
- Skipulag samstarfs er gott en var erfiðara í COVID.
- Meira samstarf í Borgarnesi heldur en í uppsveitum.
- Of mikið samstarf getur líka verið álag fyrir nemendur þannig að þetta er fín lína.
- Sérfræðiþjónusta innan skólanna er ekki nægilega góð.(skólahjúkrunarfræðingar vita ekki hvert þau eiga að snúa sér. - Vantar úrlausnirnar). Rætt um talmeinafræðinga, atferlisfræðinga, sálfræðinga og aðra og stöðu þeirra í skólunum og hvernig hægt er að blanda þeim inn í skólastarfið og tengingu þeirra við sérkennara.
- Skólabílar: Virðast vera góðir bílar í notkun núna sem og góð reynsla af skólabílstjórunum. Tómstundabílarnir er nýttir af nemendum. Skólabíllinn í MB hefur gengið mjög vel. Vantar tómstundabíl til baka á Mýrarnar.
-Staðan eftir COVID og samskipti við heimili: Tilfinningin er að Borgarbyggð hafi sloppið tiltölulega vel í COVID þannig að möguleiki var á því að funda meira með foreldrum (Td foreldraviðtölum) heldur en annars staðar.

2. Hverjir eru helstu styrkleikar?
- Fagfólk: Menntaðir kennarar á öllum skólastigunum.
- Mjög fjölbreyttir.
- Samstarf milli skólanna er gott. Boðleiðir eru stuttar og nemendur hafa gott aðgengi að kennurum.
- Húsnæði GB mjög gott eftir breytingar.
- Húsnæði MB mjög vel nýtt og góð aðstaða.
- Öll skólastig í sveitarfélaginu.
- MB: Skólaþróunarverkefnið getur verið mjög sterkt fyrir allt sveitarfélagið - eins og Framtíðarverið og STEAM.
- Stærsta atvinnugreinin í sveitarfélaginu. Ótrúlega góðar tengingar.
- GB: Góðir kennarar, gott að tala við þá, sérstaklega í hverju fagi fyrir sig. Stutt í fótbolta. Útistofan verður vonandi góð þegar hún kemst í notkun. Aðstaða til list- og verkgreina mjög góð. Nýsköpunarverkefni reyndust mjög vel.
- GBF: Mikil samheldni í starfsmannahópnum. Samvinna milli starfsstöðva góð. Starfstöðvar nálægt nemendum og íbúum - stutt fyrir flest börn að fara í skólann. Samstarf milli LBHÍ og GBF (Hvanneyri) hefur verið fróðlegt. Möguleiki fyrir börn að færa sig á milli starfstöðva ef þau finna sig ekki á sínu svæði. Góð útikennsla.
- Háskólar: Samstarf milli MB og LBHÍ hefur verið mjög gott. Núna er mögulega líka að hefjast samstarf líka milli MB og Bifrastar. Bifröst hefur líka komið að ýmiskonar málum innan.
-Tónlistarskólinn: Hljómar mjög vel að útvíkka hann í listaskóla. Nemendur eru ánægð með söngleikjadeildina. Er með leiklistarnámskeið fyrir ungmenni sem er kennt í MB.
- Samnýting húsnæðis.

3. Hvaða er brýnast að bæta?
- Skólalóðirnar við allar starfsstöðvar við GBF, við GB og einhverja leikskólana.
- Skólabyggingarnar í GBF eru ekki nægilega góðar - Nema endurbæturnar.
- Skólabyggingin í GB er ekki góð á þeim stað sem ekki hefur farið í gegnum framkvæmdir.
- Stoðþjónustan er ekki nægilega góð. Þyrfti að vera talmeinafræðingur og sálfræðingur hjá sveitarfélaginu. Ekki barnasálfræðingur hjá heilsugæslunni. Langir biðlistar. Það var dregið úr sálfræðiþjónustunni hjá sveitarfélögunum þegar heilbrigðisráðuneytið bætti í heilsugæsluna.
- Vinnuaðstaða misjöfn milli skóla. Mjög góð vinnuaðstaða í MB þar sem nemendur geta lært í þeim aðstæðum sem þeim finnst þægilegast að vera í en í grunnskólunum eru nemendur fastir við einn borð og stól. Þarf að auka fjölbreytni í vinnuaðstöðu nemenda. Sum höndla illa að læra í margmenni.
-  Bæta tómstundaakstur á Mýrarnar. Mögulega hægt að hækka tómstundastyrk hjá börnum sem eru ekki í aðstöðu til þess að nota tómstundaakstur til þess að koma til móts kostnað foreldra.
-Yfirmenn skólastefnunnar þurfa að vera framkvæmdaaðilar skólastefnunnar og styðja við skólana í þeim málum sem þau eiga að taka fyrir. Skýrari aðgerðaráætlun þarf í skólastefnuna.

4. Hvaða sóknarfæri sjáið þið helst?
- Sjá aftur meira samstarf milli GB og GBF. Samstarfið var orðið mjög gott en er ekki á sama stað í dag. Það skilaði ýmsu fyrir skólasamfélagið.
- Meira samstarf milli grunnskólanna og MB/MB og háskólana. Mögulega að skapa einhvern formlegan vettvang/samfellu milli skólastiganna innan sveitarfélagsins. (Rauður þráður milli allra skólanna). Gæti verið einstakt bæði á landsvísu og heimsvísu.
- Samstarf hefur oftast verið í gegnum ákveðin verkefni en svo hefur samstarfið minnkar þegar verkefnin klárast. Allt faglegt samtal milli skólastiga gengur líka mjög vel fyrir starfsmenn skólanna. (T.d. skóladagurinn). Skipuleggja meira samstarf - hjá kennurunum annars vegar og nemendum hins vegar.
- Hafa komið upp hugmyndir frá nemendum um að vera með skiptinemaprógramm. Bæði að nemendur prófi að vera í öðrum skólum og að starfsmenn prófi að starfa í hinum skólunum.
- Framtíðarverið. Mikil sóknarfæri í því fyrir allt samfélagið.
- Skólasamfélagið er fjöreggið í sveitarfélaginu.
- Besti undirbúningur grunnskólanema fyrir menntaskóla er að fá að prófa menntaskólaáfanga til þess að skilja út í hvað þau eru að fara. Þó þarf að hafa í huga að menntaskólar eru ólíkir og því þarf að gæta að því að undirbúningur sé ekki einsleitur. Undirbúningur þarf að vera einstaklingsmiðaður.

6. Hafið þið skoðanir á skólaskipan - og ef svo hverjar?
- Horfa til þarfa barnanna.
- Gott að hafa skólana nálægt börnunum.
- Erum við að mæta þessum börnum nægilega vel? Er fámennið það mikið að þau séu ekki að njóta sín. Er mögulega best að þau keyri í 10 mínútur til viðbótar til þess að mæta þeim betur.
- Fá börn á Varmalandi núna. Góð hugmynd að færa leikskólann á Bifröst á Varmaland. Mögulega hafa bara yngri deild á Varmalandi og hafa eldri deildirnar saman annars staðar.
- Íbúafjöldinn sveiflast mikið til í sveitum. Skólar eru hryggjarstykkið í mörgum sveitarfélögum og því er mikilvægt að hugsa fyrst og fremst um börnin.
- Upplifun nemenda er mjög misjöfn í fjölmennum eða fámennum skólum. Hópaverkefni geta nýst nemendum til þess að vinna með mismunandi einstaklingum en það er erfitt í fámennum bekkjum. Samkennsla getur komið til móts við þetta.
- Megum ekki flýta okkur of mikið að framkvæma í þessum málum.
- Varmaland á að vera áfram en þá þarf að framkvæma á lóð og húsnæði.
- Þarf að gæta að því að fara í umræðuna í samstarfi við samfélögin til þess að lenda ekki í því sama og í Hvanneyrarmálinu. Taka umræðuna við nemendur á svæðinu.
- Skoða vel samstarf við GB og GBF. Nemendur hafa áhuga á því. Halda sömu starfstöðvum en auka samstarf. Það var einu sinni prófað að hafa samstarf við Laugagerði og GB - en það var mismunandi reynsla af því. Miðstigsleikar.
- Hlöðver kom og fór yfir þær tillögur sem fram hafa komið.
- Umræður eftir það.
- Aksturslengd frá Baulu-Kleppjárnsreyki og Baulu-Borgarnes er mjög svipuð þannig að ef nemendur úr Norðurárdalnum fara á aðra staði þá er ekki víst hvert þau myndu fara.
- Sumum finnst það eina sem skiptir máli að það sé samstarf milli skólanna.
- Gamla hugmyndin hefur verið að búa til nýjan skóla en það tengist þá frekar vegaframkvæmdum að Hvítárvöllum en þá væru mjög mörg ár í það og myndi kosta mjög mikla fjármuni.
- Þegar spurt er um hvaða leið fólki hugnast hvað best er nefnt:
Samrekinn grunn- og leikskóli upp í 4. bekk. Spurning hvort hann verði á Varmalandi eða Bifröst en það er erfitt að segja til um íbúaþróun á Bifröst. Ef leikskóli verður á Varmalandi væri kannski mögulega hægt að skoða skólabíl fyrir leikskólabörn frá Bifröst. Líka í hina áttina.
5. bekkur og uppúr: Væri áhugavert að sjá hvernig kostnaður við skólabíla er. Styrkja unglingastig á Kleppjárnsreykjum.
Þetta þarf að taka í hreinskilnu samstarfi við nemendur á þessu svæði. Þau eru sérfræðingar á sviði - notendurnir.

5. Hvernig viljið þið sjá skólastarfið eftir fimm til tíu ár? Hvað viljið þið helst að einkenni það ?
- Faglegt starf.
- Faglegt samstarf.
- Tækifæri fyrir alla nemendur - aðstaðan fyrir nemendur er góð í skóla án aðgreiningar. Halda áfram og þróa það góða starf.
- Betra ástand á skólalóðum og skólabyggingum.
- Skapa formlegan vettvang milli skólastofnanna. Vera mjög greinileg á landsvísu sem skólasamfélag. Erum með öll tækifæri í hendi okkar. Fáum fagfólkið okkar saman til þess að skapa þennan vettvang saman.
- Fjölbreytt kennsla í öllum skólum. Það er mismunandi hvernig nemendum finnst best að læra. Leyfa okkur að prófa eitthvað nýtt.

Skólastefna Borgarbyggðar
Sjá á þessari slóð: https://www.gbf.is/wp-content/uploads/2016/08/Sk%C3%B3lastefna-Borgarbygg%C3%B0ar-2016-2020.pdf

Aftur á yfirlitssíðu