Kynning um mig og á námsefni by Ólafur

Kynning á mér
Ég heiti Ólafur Sigurðsson og er kennaranemi á þriðja ári. Samfélagsfræði er mitt aðalkjörsvið og náttúrufræði sem auka kjörsvið. Ég er því í þessum áfanga sem partur af val einingum. Ég valdi þennan áfanga því lýsingin á honum virkaði spennandi og ég tel að áfanginn muni vera gagnlegur. Meðfram náminu starfa ég sem stuðningsfulltrúi í Vogaskóla.
Ég er elstur þriggja systkina og hef búið allt mitt líf í Vesturbæ Reykjavíkur að frátöldum tveimur árum þegar ég bjó í Rotterdam í Hollandi. Um þessar mundir bý ég á Keilugranda ásamt kærustu minni.
Áður en ég skráði mig í kennaranámið hef ég starfað við ýmislegt og af öllum þeim störfum hefur mér liðið best og fundist skemmtilegt að vinna með börnum. Í gegnum tíðina hef ég unnið í búðarstörfum, sem málari, fríhöfninni, húsvörður, frístundaheimili og skólaliði í Hagaskóla.
Áhugamál mín flest tengd íþróttum. Ég fylgist með mörgum íþróttum en stunda fáar. Á veturna er ég duglegur að fara á snjóbretti og á sumrin stunda ég golf og fjallgöngur. Önnur áhugamál sem ekki tengd eru íþróttum eru ferðalög erlendis og um Ísland og ljósmyndun.

Námsefni
Snjallforritið Bookcreator er forrit sem ég hef notað nokkrum sinnum í starfi mínu í Vogaskóla. Forritið er fyrir nemendur eldri en fjögurra ára og gæti því verið notað með elstu börnum leikskóla, grunnskóla og jafnvel framhaldsskóla. Í forritinu búa nemendur til rafbækur um viðfangsefni. Í bókunum geta þau sett inn ljósmyndir, myndskeið,  texta, teikningar, hljóðskrár og margt annað. Í forritinu fá nemendur frjálsar hendur við að skapa kynningar, glósur, ritgerðir eða önnur verkefni. Kennarar geta einnig útbúið sýnar kynningar og útbúið verkefni sem þeir deila svo með nemendum sínum. Á heimasíðu forritsins http://bookcreator.com/ er boðið upp á kennsly fyrir kennara. Þar er farið yfir helstu eiginleika forritsins og góðar ábendingar um hvernig má nota það til að hámarka árangur.
Kostir forritsins eru að mínu mati hversu frjálsar hendur nemendur fá til að skapa sín verk á fjöl, hversu vel forritið virkar með einhverfum og öðrum nemendum með sérþarfir, góð heimasíða sem býður upp á góða kennslu fyrir kennara og nemendur. Það er mikill kostur við forritið að það sé hægt að nota það með nemendum á öllum aldri og í flestum námsfögum. Einnig er kostur hversu auðvelt er að deila verkefnum með samnemendum og kennurum.
Ég er búinn að lesa margar athugasemdir og dóma um forritið og það er nánast engir gallar nefndir í þeim dómum. Ég hef heldur ekki rekið mig á neina galla við notkun forritsins í kennslu. Eini gallinn sem mér dettur í hug er að forritið kostar í kringum 5$ eða rétt rúmar 500 íslenskar krónur. Forrtið er þó hægt að nýta án þess að borga en með fríu útgáfunni fylgja ekki allir eiginlegikarnir.