Vettvangsheimsókn - Hugarafl by Sandra Sigurðardóttir
Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum.
Hugarafl er á Lágmúla 9, 108 Rvk.
Sími: 414-1550
Netfang: hugarafl@hugarafl.is
Fjarfund á tíma C-19
Hugarafl veitir félagsmönnum öfluga þjónustu daglega í gegnum fjarfundarbúnað
http://hugarafl.is/
Þetta var dagskráin meðan við vorum í vettvangsheimsókn
1 markþjálfa, 2 iðjuþjálfa, 1 sálfræðing, 1 sálfræðimenntaðan starfskraft, 1 Gestalt therapist, 1 Yoga kennara, 2 verkefnastjóra og 1 ráðgjafa. (Auður Axelsdóttir og Svava Arnardóttir, munnleg heimild, 2. nóvember 2020)
Auður Axelsdóttir
Auður lærði iðjuþjálfun í Kaupmannahöfn og útskrifaðist 1994 eftir þriggja ára nám. Hún er með þjálfunarréttindi í Andlegu hjartahnoði (eCPR). Er núna að mennta sig í Open Dialog fræðunum eða nálguninni, sem tekur þrjú ár og öðlast eftir það réttindi og verður hún þá OD þjálfari. (Auður Axelsdóttir, munnleg heimild, 15. nóvember 2020) Auður er einn af stofnendum Hugarafls sem sagt síðan 2003. Auður tekur bæði einstaklingssamtöl og fjölskyldusamtöl. Hennar samtöl með einstaklingum eru aðallega vegna endurhæfingarinnar, gerð endurhæfingaráætlana og eftirfylgd með þeim. Hún segir það orðið "lúxus" hjá henni að hafa einhvern í föstum viðtölum vegna annríkis sem framkvæmdastjóra. En það eru samt alltaf nokkrir og hún segir það nauðsynlegt til að halda sér svolítið við í föstu meðferðarsambandi. Með fjölskyldum vinnur hún í reglulegum samtölum, núna sinnir hún einungis einni fjölskyldu en það er vegna Covid, hún hefur þá verið að nota zoom en þannig hittir hún líka aðstandendahóp tvisvar í mánuði. Í viðtölum með fjölskyldum notar hún nálgunina Open Dialog ef því verður komið við, í öðrum tilfellum veitir hún stuðning og ráðgjöf. Einnig notar hún eCpr(Andlegt Hjartahnoð) í viðtölum, hvort sem er um fjölskyldur eða einstakling að ræða. Hún tekur einnig bráðaviðtal, þá er það vegna einstaklings sem leitar til Hugarafls til dæmis í geðrofi eða mikilli vanlíðan. Þá getur það líka verið fjölskylda sem leitar til þeirra vegna þess að einhver er veikur innan fjölskyldunnar og það þarf að taka ákvarðanir. Það er þekkt að þau í Hugarafli vinni mikið með fjölskyldum og segir hún ekki vanþörf á að sinna þeim hópi’’. (Auður Axelsdóttir, munnleg heimild, 15. nóvember 2020)
Svava Arnarsdóttir
Svava lærði iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri og er með 4 ára B.Sc. gráðu í iðjuþjálfun. Hún er nú í meistaranámi í fötlunarfræðum við HÍ. Svava byrjaði í Hugarafli sem launaður starfskraftur í ágúst 2016. Hún var virkur Hugaraflsfélagi frá jan 2010- des 2012. (Svava Arnardóttir, munnleg heimild, 13. nóvember 2020)
Svava með tiltölulega fá einstaklingssamtöl í viku hverri en hún hittir flest sem hún vinnur með sirka á 2-3 vikna fresti í einstaklingssamtölum því svo eru þeir einstaklingar markvisst að vinna í endurhæfingu sinni í vikulegum endurhæfingarhóp og fleiri jafningjahópum í Hugarafli. Hún hefur 4-6 einstaklingssamtöl á viku en miklu fleiri stundir í hópastarf og verkefnavinnu.
Í brennidepli
Áherslan í iðjuþjálfuninni er á skjólstæðingsmiðaða meðferð, byggða á vali skjólstæðings, í samvinnu við iðjuþjálfa og aðra Hugaraflsfélaga skv. hugmyndafræði Carl Rogers (2013). Notuð er batahugmyndafræði, jafningjagrundvöllur og valdefling einstaklinga aðallega í gegnum hópastarf en einnig er veitt eftir atvikum einstaklingsmiðuð ráðgjöf og viðtöl. Hugarafl skipuleggur starf sitt út frá því að efla virkni/iðju einstaklinga sem hafa glímt við andlegar áskoranir og vinnur með þeim að bata þeirra með því að styrkja þá út frá bæði hlutlægri (aukin dagleg og almenn iðja) og huglægri vídd iðju (sjálfsefling, þátttaka í hópastarfi og áhrif á dagskrá og stefnu samtakanna) skv. skilgreiningu Wilcock (1999). Einnig er tekið á félagstengdum þáttum með því að bjóða upp á stuðningshóp fyrir aðstandendur og fjölbreyttir hópar til að ræða ýmsar hliðar andlegra áskoranna.
Samtökin hafa haft áhrif á umhverfið, aðallega á geðheilbrigðiskerfið m.a. með því að hvetja til fjölbreyttari úrræða í málaflokknum, minnka sjúkdómsvæðingu, og miðla þekkingu milli notenda og fagfólks t.d. í tengslum við lyfjanotkun. Þau hafa líka opnað á umræðu í samfélaginu til að minnka fordóma og efla réttindi þeirra sem missa geðheilsuna (Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri og iðjuþjálfi, munnleg heimild, frá fundinum “Bati með Auði” 3.nóvember 2020).
Faglegar forsendur
Innsýn var veitt inn í forsendur starfsins og á hvaða fræðilega grunni það byggist á. Sérstök áhersla var hjá gestgjöfunum á tengsl starfseminnar við batahugmyndafræði Daniel Fisher (2006) og  valdeflingarhugmyndafræði Judi Chamberlin (http://hugarafl.is/samstarf/ sótt 15.11.2020).
Opnir umræðufundir
Fylgst var með nokkrum opnum umræðufundum í hópastarfinu á netinu. Í valdeflingarhópnum kom t.d. berlega í ljós að iðjuþjálfunin er byggð á þeirri hugmyndafræði sem minnst var á hér á undan. Flestir hóparnir sem við fylgdumst með byrja með fræðslu og eftir það opið fyrir almennar umræður en í valdeflingarhópnum fá þátttakendur betra tækifæri til að tjá sig betur því hópnum er skipt upp í minni lokaða vinnuhópa sem fara yfir eigin stöðu og markmið. Ekki var möguleiki að fylgjast með lokuðum hópum v. eðli viðfangsefna þeirra sem þarf að eiga sér stað í öruggu umhverfi. Gefin voru dæmi um uppsetningu einstaklingsmiðaðar áætlunar sem Svava Arnardóttir hefur þróað.
Mesta lífsfyllingin og vellíðan fæst þegar hæfni einstaklings og áskoranir/verkefni lífsins eru í samræmi og flæði næst skv. kenningu Csikszentmihalys (2008). Rannsóknir staðfesta að þáttur iðju og færni er í beinu samhengi við jákvæða heilsu og vellíðan (t.d. Ullén et al., 2012 og Lipskaya-Velikovsky, 2020). Í sjálfu sér má segja að þetta ætti að vera augljóst, hvort sem iðja skerðist vegna tímabundinna veikinda, áfalla eða langvarandi ástands, þá þekkjum við flest það að geta ekki notað líkamann eða starfað eðlilega vegna þessa og hvernig það skerðir lífsgæðin. Í tilfelli andlegra áskoranna væri það t.d. hvernig að heyra raddir, þunglyndi og kvíði getur lamað iðju einstaklingsins og á skömmum tíma gjörbreytt veraldlegum aðstæðum og heilsufari til hins verra. sjá t.d. lokaverkefni tengd bata og iðju (2003 og 2005).
Einstaklingar
Einstaklingar sem eru að vinna úr áföllum/veikindum og er komið með nógu mikla færni til að vilja líða vel og mæta á eigin forsendum, þ.e.a.s. tilbúið að vinna í eigin vandamálum. Að sögn Auðar Axelsdóttur þá er Hugarafl ekki staður þar sem fólk mætir bara til að fá sér kaffi. Auðvitað er fólk líka velkomið að setjast og hanga að því gefnu að það er að vinna í sínum bataverkefnum. Ekki spurt hvaða greiningu eða sjúkdóm skjólstæðingur er með heldur af hverju viðkomandi er í núverandi stöðu (Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri og iðjuþjálfi, munnleg heimild, frá fundinum “Bati með Auði” 3.nóvember 2020).
Vettvangsstaðurinn okkar, Hugarafl eru félagasamtök fyrir 18 ára og eldri sem vilja vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Félagið er með öfluga starfsemi á netinu og er talið vera stærstu grasrótarsamtök þessa hóps. Fólkið sem tekur þátt í starfsemi Hugarafls glímir við andlegar áskoranir, er með skert iðjumynstur og þannig misst færni í eigin umsjá og hlutverkum í lífinu. Við vorum viðstaddar fjarfundi þar sem við fengum innsýn í áherslur í starfi Hugarafls og vinnu iðjuþjálfanna Auðar Axelsdóttur og Svövu Arnardóttur. Sem vinna út frá hugtakinu valdefling og á jafningjagrundvelli. Í þessu verkefni verður farið yfir tengsl starfseminnar við hugmyndafræði D. Fisher og J. Chamberlin. Það verður fjallað um hvernig félagar velja iðjuhópa og skipuleggja eigin tímaáætlun og hvernig það tengist eflingu heilsu og vellíðan þeirra.
Ríkisstyrkt
Hugarafl er ríkisstyrkt að mestu leiti frá Velferðarráðuneytinu og eru síðan með samninga við Kópavog og minni styrki frá Reykjavíkurborg og endurhæfingasjóðnum Virk. (Auður Axelsdóttir og Svava Arnardóttir, munnleg heimild, 2. nóvember 2020.)
Efla virkni
Efla virkni/iðju einstaklinga sem hafa glímt við andlegar áskoranir og vinnur með þeim að bata þeirra með því að styrkja þá út frá bæði hlutlægri (aukin dagleg og almenn iðja) og huglægri vídd iðju (sjálfsefling, þátttaka í hópastarfi og áhrif á dagskrá og stefnu samtakanna).
Félagar geta skipulagt tímaáætlun og sótt fundi skv. dagskrá Hugarafls á virkum dögum milli 09:00-16:00. Skrá sig þarf árlega sem virkan aðila til að halda áfram þátttöku.
Tímum covid-19
Venjulega er starfsemin í húsnæði samtakanna, en v. sóttvarnaaðgerða hafa þeir verið haldnir í gegnum fjarfundi á netinu. Hugarafl er með lokaðan Facebook hóp fyrir meðlimi samtakanna. Nýr hópur er stofnaður fyrir hvert ár. Í dag eru skráðir 225 meðlimir í „Hugaraflsfólk 2020“. Þar inni eru virkir Zoom streymishópar. Við fengum tímabundinn aðgang að Facebook-hópnum á meðan vettvangsnáminu stóð. Skjólstæðingar bæta iðju jafnt innan hópastarfsins og í daglegu lífi. Hugarafl er líka þekkt fyrir stórar ráðstefnur og vinnusmiðjur, t.d. hafa Judi Chamberlin, Daniel B. Fisher og Patch Adams öll komið á vegum samtakanna (http://hugarafl.is/samstarf/ sótt 15.11.2020).
6 vikna lotur
Hóparnir eru ýmist opnir öllum eða lokaðir og starfa í 6 vikna lotum í senn. Notendur og fagfólk vinna saman á jafningjagrunni. Stuðst er við viðurkennda hugmyndafræði valdeflingar og batamódelsins en einnig nýttar óhefðbundnar aðferðir eins og jóga,  dans og listsköpun. Samstarfshópar notenda og fagfólks skipuleggja starfið. Samstarfs- og siðareglur, t.d. ákveðnar kröfur um að hafa lokið daglegri iðju (eigin umsjá) til að geta tekið þátt í netfundi. Vera sýnileg í þjóðfélaginu og kynnast þeim sem málið varðar. Á heimasíðu samtakanna er að finna upplýsingar um starfsemi félagsins og ítarefni. Þar segir m.a. „Hópastarf, verkefnavinna og virk þátttaka byggð á valdeflingu, batahugmyndafræði og jafningjagrunni.“ (http://hugarafl.is/adrir-hopar/ sótt 14.11.2020)
Ávining
Þessi heimsókn varpaði ljósi á nýja hlið iðjuþjálfans þar sem hann vinnur innan samtaka sem styður við hópastarf sem er fyrir alla sem taka þátt og möguleikana til að skapa fjölbreytt verkefni eftir þörfum og áhuga þeirra. Iðjuþjálfinn tekur svo þátt í að móta stefnu samtakanna með reynslu sinni og bakgrunni sem fagaðili en tekur ekki völdin og ákvarðar meðferð fyrir hvern og einn en það er í höndum þeirra sem kjósa þjónustuna.
Það sem gerir svo stöðu iðjuþjálfanna sem starfa innan Hugarafls snúnari er að laun þeirra eru ekki örugg. Þessi stofnun er rekin á styrkjum og er það háð ákvarðanna ríkisstjórnar hverju sinni hvort verkefnið fær styrk ár hvert. Annars starfar þar fólk af hugsjón og hefur þessi hópur skapað mjög öflugt samfélag sem stór hópur reiðir sig á en það er misjafnt ár hvert hvort það er metið til fjárs. Starfsmenn geta ekki reitt sig á starfsöryggi né tryggt framtíð félagsins eins og staðan er í dag.
Í náminu enn sem komið er er lítið minnst á geðheilbrigðissviðið og þær takmarkanir sem fólk býr við þegar það er að kljást við andlegar áskoranir eins og samtökin kjósa að kalla það. þá er það jafnvægi sem Catherine Backman (2014) ræðir um í bókinni á vissan hátt ekki viðeigandi fyrir manneskju sem á tíðum á erfitt með að fara fram úr rúminu sökum þunglyndis eða kvíða.
Í Creek´s bók er rætt að það séu til nokkur líkön til að mæla heilsu og vellíðan en það sé snúið að nota þau til að mæla geðheilsu. Bataferlið er þá frekar í brennidepli frekar en að jafnvægi sé náð á einhverjum ákveðnum skala.
Það kom einmitt fram í heimsókninni að það er um að ræða stærri hóp en tölur gefa til kynna sem þurfa að kljást við andlegar áskoranir. Það fylgir þessum kvillum því miður skömm, ekki bara hjá þeim sem eru að kljást við kvillana heldur hjá fjölskyldum þeirra líka. Auður er að læra fjölskyldufræði og vinnur með aðstandendum og hefur reynslu af því að aðstandendur lendi oft á vegg sökum ákveðinna fordóma í samfélaginu. Þess vegna eru það færri sem viðurkenna og ræða opinskátt um geðræn vandamál. Það hlýtur að teljast erfitt að veita þjónustu og fá fjármagn fyrir hóp sem vill ekki endilega vera sýnilegur og láta heyra í sér opinberlega.
Anna Kristrún Sigurpálsdóttir og Harpa Guðmundsdóttir (2003). Áhrifavaldar í bata geðsjúkra : eigindleg rannsókn á upplifun geðsjúkra af eigin bataferli [B.S. verkefni, Háskólinn á Akureyri]. Skemman, http://hdl.handle.net/1946/271
Bannigan, K., Bryant, Wendy, Fieldhouse, Jon, Creek, Jennifer, og Lougher, Lesley. (2014). Creek's occupational therapy and mental health. 5. Ritstjórar: Katrina Bannigan, Wendy Bryant, Jon Fieldhouse, Jennifer Creek, Lesley Lougher. ed., Occupational therapy essentials. 72-80.
Björk Pálsdóttir, Hjördís Jónsdóttir, Ingibjörg Sig. Kolbeins, Kalla Malmquist, Magnús Pálsson, Sigríður Magnúsdóttir, Sveinn Finnbogason og Tryggvi Sigurðsson. (1999). Stefnumótun í endurhæfingu, Þverfagleg sýn. Reykjavík: Höfundar.
Csikszentmihalyi, M. (2008). Finding Flow: The psychology of engagement with everyday life. Harper Perennial Modern Classics.
Elín Ebba Ásmundardóttir og Sólrún Óladóttir. 2011. Iðjuþjálfun fullorðina: Geðheilsa í Iðja, heilsa og velferð. Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi. 179.
Fisher, A.G. (2009). Occupational Therapy Intervention Process Model: A model for planning and implementing top-down, client centered, and occupation-based interventions. Fort Collins: Three Star Press.
Harpa Ýr Erlendsdóttir og Ingibjörg Ólafsdóttir (2005). „Ég get meira en ég hélt" : eigindleg rannsókn á bataferli geðsjúkra: áhrif þátttöku í 13. hópnum. [B.S. verkefni, Háskólinn á Akureyri]. Skemman, http://hdl.handle.net/1946/173
Hugarafl. (e.d.). Hvað er Hugarafl?. Sótt af http://hugarafl.is/hvad-er-hugarafl/
Lipskaya-Velikovsky, L., Krupa, T., Silvan-Kosovich, I., Kotler, M. (2020). Occupation-focused intervention for in-patient mental health settings: Pilot study of effectiveness, Journal of Psychiatric Research,125, 45-51.
Ness, O., Borg, M. and Davidson, L. 2014. Facilitators and barriers in dual recovery: a literature review of first-person perspectives. Advances in Dual Diagnosis. Vol. 7 Nr. 3, 107-117. https://doi.org/10.1108/ADD-02-2014-0007
Rogers, C.S. (2013). Significant Aspects of Client-Centered Therapy. Ritstjóri Webb, D., Significant Aspects of Client-Centered Therapy (bls.39-59). Úgefandi www.all-about-psychology.com
Townsend, C.C. E. (2013). Introduction to Occupation: Pearson New International Edition. 10-13.
Ullén, F.,  Manzano, Ö., Almeida, R., Magnusson, P.K.E., Pedersen, N.L., Nakamura, J., Csíkszentmihályi, M., Madison, M.G. (2012) Proneness for psychological flow in everyday life: Associations with personality and intelligence. Personality and Individual Differences, 52(2), 167-172. https://doi.org/10.1016/j.paid.2011.10.003
Wilcock, A.A. (1999). Reflections on doing, being and becoming. Australian Occupational Therapy Journal, 63, 1-11. https://doi.org/10.1046/j.1440-1630.1999.00174.x
Hlutverk iðjuþjálfans var kannski ekki augljóst við fyrstu sýn í vettvangs heimsókninni en sem á leið skýrðist að hlutverk þeirra innan samtakanna er að valdefla og stuðla að jafningjagrundvelli hjá þátttakendum. Hugsunin er sú að þeir sem sitji hópfundina skilji eftir stöðu sína og titla við dyrnar, þarna séu allir jafningjar sem miðla svo sinni reynslu hver til annars. Samtökin eru svo um leið baráttusamtök fyrir málstað fólks með andlegar áskoranir. Þannig er vinna iðjuþjálfans einnig unnin fyrir málstað þessa stóra samfélagshóps.
Markmiðið er að fólk geti fótað sig sjálft í gegn um lífið með sínar andlegu áskoranir.
„Endurhæfing hefur í för með sér gagnkvæma aðlögun einstaklings og umhverfisins og felur í sér aðgerðir sem hafa þann tilgang að einstaklingar öðlist, auki og viðhaldi færni sinni við daglegar athafnir þar sem endurhæfing er yfirgripsmikið ferli [...]“ (Björk Pálsdóttir ofl. 1999).
Fyrst um sinn nota iðjuþjálfar Hugarafls viðtöl en manneskjan er svo að þjálfa sig í að nota verkfæri sem iðjuþjálfinn leggur til svo að hann þurfi ekki að mæta í viðtal í hvert skipti sem eitthvað stórvægilegt kemur honum úr jafnvægi. Þannig móti einstaklingurinn eigin endurhæfingu í samvinnu við iðjuþjálfann. „Íhlutun iðjuþjálfans eykur hæfni skjólstæðings í athöfnum sem skipta hann máli og þátttöku hans í samfélaginu“ (Elín Ebba Ásmundardóttir og Sólrún Óladóttir. 2011).
Hópavinna
Það er mjög skýrt að markmiðið er að styrkja einstaklinginn til að taka fullan þátt í þeirri iðju sem hann kýs. Auður og Svava sögðu okkur frá því hvernig hindranir af sálrænum toga geta þó verið breytilegar frá degi til dags. Þannig hlýtur bataferlið að vera flóknara fyrir einstaklinginn.. Það geta átt sér stað framfarir hjá einstaklingnum en svo getur komið bakslag sem getur orsakast af áfalli eða streitu í lífi einstaklingsins.
Það kom fram í heimsókninni að fólk með þunglyndi og kvíða fær til dæmis bara hroll þegar það heyrir að það eigi að fara út í göngutúr og taka magnesíum, drekka kamillute eða aðrar náttúrulegar fyrirbyggjandi aðferðir frá utanaðkomandi fólki. Þannig að þegar líðan er slæm vill fólk að það sé almennilega hlustað á það og gefinn sé skilningur á því hvað það er sem þeir eru að ganga í gegnum. Þegar ástandið er verulega slæmt lamar það kannski alla þætti iðju hjá viðkomandi. Þá má segja að markmiðsbundin iðja sem flokkast undir eigin umsjá eins og að klæða sig, borða og baða sig sé á stundum jafnvel óyfirstíganlegt. (Borg, 2006)
Christiansen og Townsend (2014) ræða um mikilvægi rútínu sem inniheldur ákveðnar venjur til að stuðla að því að orka einstaklinga beinist að þeim atriðum í hans lífi sem hann vill leggja áherslu á. Nokkur áhersla var lögð á mikilvægi rútínu í hópavinnunni sem við fengum að taka þátt í. Það var rætt ákveðið kerfi sem einn notandi hafði komið sér upp til að halda utan um sín persónulegu markmið í sínu daglega lífi. Þessu kerfi var svo deilt innan hópsins og gátu þeir nýtt sér það verkfæri sem höfðu áhuga fyrir því. Þarna gat maður séð hópavinnuna virka og hvernig þátttakendur gátu miðlað sín á milli verkfærum sem höfðu nýst þeim.
Við fengum tímabundinn aðgang að Facebook-hópnum á meðan vettvangsnáminu stóð. Við fylgdumst með nokkrum opnum umræðufundum í hópastarfinu á netinu. Í valdeflingarhópnum kom t.d. berlega í ljós að iðjuþjálfunin er byggð á þeirri hugmyndafræði sem minnst var á hér á undan.
·        Samstarf notenda og fagfólks er í fyrirrúmi þar sem reynsla notenda er sett í farveg og er lögð að jöfnu við fagmenntun.
·        Samstarfshópar notenda og fagfólks skipuleggja starfið saman. Þeir hafa ákveðnar samstarfs- og siðareglur, t.d. kröfur um að hafa lokið daglegri iðju (eigin umsjá) til að geta tekið þátt í netfundi.
·        Skjólstæðingar bæta iðju jafnt innan hópastarfsins og í daglegu lífi.
·         Hóparnir eru ýmist opnir öllum eða lokaðir og starfa í 6 vikna lotum í senn.
Hugaraflsfélagar geta skipulagt tímaáætlun og sótt fundi skv. dagskrá Hugarafls á virkum dögum milli 09:00-16:00. Það þarf að skrá sig árlega sem virkan aðila til að halda áfram að vera þátttakandi
·        Óþvingað samstarf eflir sjálfstraust og trú skjólstæðinga á eigin áhrifamátt.
·        Hugarafl býður líka upp á óhefðbundnar aðferðir eins og jóga, tónslist og listsköpun.