Kennsluáætlun - Þemakennsla um fjöll á Íslandi by Ellen Sif Skúladóttir

Þemakennsla um fjöllin
16 kennslustunda kennsluáætlun um fjöll fyrir 4. bekk.

Helsta kennsluaðferðin er þemakennsla en í kennslunni þá koma við sögu fjölmargar kennsluaðferðir sem kennari nýtir sér við að koma sem mestu til skila til nemendana.
Nemendur vinna í hópum að upplýsingaöflun og útfærslu á plakati þar sem þeir útbúa mynd af fjalli hópsins og með því fylgja upplýsingar sem þeir hafa safnað saman með þeim tilgangi að kenna hinum í hópnum um fjallið.

Fagmennska í áætlanagerð. Áætlun um nám og kennslu

Námsmarkmið
að nemendur

átti sig á að fjöll eru mjög fjölbreytt - og öðlist þannig þekkingu á að geta lýst muninum,

öðlist færni í að lesa í hæðarlínur og skilja hugtakið hæð yfir sjávarmáli,

öðlist getu í vinnubrögðum sem einkennist af frelsi, sköpunargleði og samstarfi.

Námsmat
Námsmatið á þemavinnunni verður þríþætt og mun það samanstanda af jafningamati, sjálfsmati og mati á plakötum og lokakynningum.

Leiðsagnarmat
Kennarinn mun styðjast við leiðsagnarmat þegar það kemur að því að meta lokaútkomu plakata og kynninga. Með því metur kennarinn framfarir nemenda eftir að hafa fylgst með nemendum á námstímanum og leiðbeint. Notaðar eru fjölbreyttar matsaðferðir, m.a. frammistöðumat og samræður til þess að safna upplýsingum um stöðu nemenda, hvað þeir geta og vita. Gert er ráð fyrir að bæði kennari og nemendur séu þátttakendur í matinu og er markmiðið með því að báðir aðilar nái betur að ígrunda gerðir sínar og ná þannig betri árangri í því sem þeir eru að gera.
Plakötin og kynningarnar sem nemendur vinna í hópavinnu verða metin af kennara (Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2011, bls. 14-15).

Jafningjamat
Jafningjamatið mun fara fram innan hvers hóps og munu nemendur meta vinnu hvors annars og þátttöku þeirra í samvinnunni.

Hver meðlimur hópsins metur aðra nemendur og verður það allt nafnlaust. Mikilvægt er að nemendum sé kynnt þessi aðferð þannig að þeir geti lagt sanngjarnt mat á frammistöðu annarra og notað það á uppbyggilegan hátt. Aðeins mun kennarinn sjá þessar niðurstöður og taka þær saman í bland við hina námsmatsþættina.
Tilgangurinn með jafningjamati er að nemendur hjálpi hver öðrum að gera betur og skiptist á skoðunum (Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2011, bls. 61).

Sjálfsmat
Með sjálfmati eiga nemendur að meta sjálfir nám sitt til þess að þeir geti skilið betur hvað þarf að gera til þess að ná árangri. Það getur hjálpað þeim að styrkjast í trúnni á eigin geta og færni. Í sjálfamatinu mun vera lagt áhersla á þrjár leiðir til að íhuga og meta vinnuna sem þeir lögðu í verkefni: að líta um öxl, að tengja við viðmið og að sanna sig. Nemendur fá að skrá niður hugsanir sínar um verkefnið og segir frá hvað þeir gerðu vel og hvað hefði mátt fara betur (Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2011, bls. 53).

Oft eru nemendur neikvæðir gagnvart því að sjálfsmat sé notað til að gefa einkunn í lok námstíma þar sem þeir telja það tilgangslaust og að ekki sé tekið mark á þeirra einkunn. En með því að leggja áherslu á þátttöku nemenda við að setja sér markmið og að vera stöðugt að ígrunda það hvernig þeim miðar breytist matið í að vera dæmandi í að vera leiðbeinandi fyrir nemendur (Erna Ingibjörg Pálsdóttir, 2011, bls. 62).

Viðfangsefni
Fjöllin sem sjást í nærumhverfi skólans.

Námsumhverfi
Námsumhverfið er úti í náttúrunni. Að hefja kennslu um fjöll Íslands með þau fyrir augunum.

Kveikja
Gönguferðin sjálf og umræður við útsýnisstaðinn eru hugsaðar sem kveikja á stóru þemaverkefni um íslensk fjöll.
Með því að virða fyrir sér fjöllin í nærumhverfi nemenda er verið að höfða til reynsluheims þeirra (Ingvar Sigurgeirsson, 2013).

Kennsluaðferð
Skoðunarferð (útlistunarkennsla)
Kennari bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og farið er í stutta gönguferð í nærumhverfi skólans. Gengið er á útsýnisstað eða niður í fjöru í nærumhverfi skólans á degi þegar skyggni er gott en mikilvægt er að kennari sé búinn að undirbúa sig og hópinn vel áður en lagt er af stað. Þegar hópurinn kemur auga á fjöll þá miðlar kennari þekkingu sinni og reynir að kveikja áhuga nemenda (Ingvar Sigurgeirsson 2013, bls. 79-80) með vel völdum spurningum tengdum fjöllunum sem fyrir bregða.

Spurnaraðferð (umræðu- og spurnaraðferðir)
Kennari stýrir umræðu með hópnum með nokkrum lykilspurningum (Ingvar Sigurgeirsson, 2013, bls. 117). Umræður eru hafnar þegar fjöll sjást og spurningum varpað upp, t.d. „þekkiði einhver nöfn á fjöllunum sem við sjáum?“, „hefur einhver í hópnum gengið á eitthvert þessara fjalla?“, „hafið þið ferðast í nágrenni fjallanna?“ o.s.frv
En þannig notar hann tengingu við þeirra eigin reynslu sem kveikju og má nota sem upphaf samræðnanna.

Tenging við fræði
Með þessari kennsluaðferð erum við að vinna með þekkinguna, að nemendur öðlist þekkingu með því að  hlusta á, ræða eða með upplifun og reynslu í gegnum athafnir (aðalnámskrá grunnskóla, 2013, bls 39). Sem tengist þá fyrsta stigi í flokkunarkerfi Blooms á þekkingarsviðinu -  minni (e.remember) (Kennslumiðstöð Háskóli Íslands. e.d).

Viðfangsefni
Eldvirkni á Íslandi og gerð fjalla

Námsumhverfi
Skólastofan er námsumhverfi kennslunnar en kennarinn hefur útbúið litla "safnasýningu" um eldvirkni, hraun- og bergtegundir.

Kveikja
Safnsýning á hraun- og bergtegundum er kveikjan en nemendur ganga inn í stofuna án þess að hafa fengið sérstaka innlögn. Umræður verða teknar með samlestri í seinna hluta kennslustundarinnar.

Kennsluaðferð
Sýning (útlistunarkennsla)
Kennari hefur týnt til nokkrar bergtegundir og hraunmola, þann nýjasta úr Fagradalsfjalli. Safninu raðar hann síðan á borð í miðju stofunnar þar sem þau eru merkt og nemendur mega virða þau fyrir sér. Að auki hefur kennari fundið til fréttir úr dagblöðum frá eldgosum fyrr og síðar, líka frá því nýjasta sem nemendur heyra mikið um og nokkrir hafa mögulega farið að sjá. Fréttirnar hengir hann á töfluna og geta nemendur skoðað þær líka. Á þennan hátt hefur kennari útbúið jarðfræðisafn í smámynd í stofunni sinni. Kennari getur einnig sýnt stutta klippu af sjónvarpsfrétt frá eldgosi uppi á skjá (Ingvar Sigurgeirsson, 2013, bls 78)

Lesið, spurt og spjallað (þulunám og þjálfunaræfingar)
Kennari og nemendur skiptast á við að lesa í lestrarbókinni Komdu og skoðaðu fjöllin sem verður mikið stuðst við í kennslunni í þemaverkefninu um íslensk fjöll.
Lesnar verða blaðsíður 4 og 5 sem fjalla meðal annars um ólíkar tegundir fjalla á íslandi, jarðskorpuhreyfingar og bergtegundir. Kennari stoppar við og við lesturinn, varpar upp spuringum og ræðir við nemendur (Ingvar Sigurgeirsson, 2013, 97-98), mjög líklegt er að þau tengi umræðuna við hlutina sem þau skoðuðu á sýningunni í fyrri hluta kennslustundarinnar.
Nemendur ættu þá að vera færir um að geta greint á milli ólíkra tegundir fjalla og lýst muninum.

Tenging við fræði
Í þessari lotu erum við að vinna með skilninginn. Kennari miðlar þekkingu með fjölbreyttum leiðum sem verður til þess að nemandi geti rætt, flokkað og borið saman viðfangsefnin (aðalnámskrá grunnskóla, 2013, bls 39) Þarna erum við þá komnar á annað þrep flokkunarkefisins Blooms sem er skilningur (e.understand) (Kennslumiðstöð Háskóli Íslands. e.d).

1. lota (60 mín.)

2. lota (60 mín.)

3. lota (40 mín.)

Viðfangsefni
Fjöllin á landakorti, hvernig eru þau teiknuð á korti (hæðarlínur) og hvað merikir hugtakið hæð yfir sjávarmáli?

Námsumhverfi
Í skólastofunni er mikilvægt að til staðar séu rétt námsgögn, fyrir þessa kennslustund er þörf á bæði stóru íslandskorti og einhverskonar skjávarpa. Það er líka nauðsynlegt að nemendur geti unnið saman á víð og dreif um stofuna og jafnvel farið fram á gang eða í heimakrók til þess að bera saman lausnir sínar úr verkefnunum.

Kveikja
Hæðarlínur á landakorti skoðaðar á stóru korti í skólastofunni.

Kennsluaðferð
Lesið, spurt og spjallað (þulu og þjálfunaræfingar)
Kennari styðst aftur við aðferðina lesið spurt og spjallað sem er yfirleitt kölluð samlestur. Lesnar eru blaðsíður 2 og 3 og farið yfir hvað þýðir hugtakið hð yfir sjávarmáli. Kennari spyr ver valdar spurningar til þess að fá nemendur til þess að átta sig á hugtakinu.

Þrautalausnir
Nemendur fá þraut sem tengist hæð yfir og undir sjávarmáli.
Á blaðinu sem dreift er á milli nemenda eru teikningar af fjöllum við hafið og við fjöruborðið sést neðansjávar, niður á nokkur hundruð metra dýpi.
Á teikningunni er lína sem merkir sjávarmálið og svo er talnalína niður og upp með viðeigandi metrafjölda. Kennari varpar myndinni upp á skjá og útskýrir vel myndina fyrir nemendum og að tölurnar undir sjávarmáli séu fyrir neðan núll, semsagt mínus- eða negatívar tölur, en í stærðfræðikennslu undanfarið hafa nemendur einmitt verið að læra um þessar tölur og að nota talnalínur.
Nemendur eiga svo að leisa þrautirnar sem felast í því að finna hæðarmismun á milli fyrirbæra neðansjávar, kafara, fiska, kafbáta ets og fjallstoppanna. Þau nota talnalínuna til þess að finna lausnirnar.
Því næst fá nemendur að vinna tveir og tveir saman og bera saman lausnir sínar og setja fram sína niðurstöðu. Því næst kynna þær hana fyrir kennaranum og nauðsynlegt er að kennarinn sé opinn fyrir ólíkum úrlausnum (Ingvar Sigurgeirsson, 2013, bls. 143-144)

Tenging við fræði
Hérna þurfa nemendur að nota þekkinguna sem þeir hafa lært og beita henni við úrvinnslu verkefnis.  Sem tengist þá þriðja þrepi á þekkingarsviði í flokkurnakerfi Blooms  - beiting (e.apply) (Kennslumiðstöð Háskóli Íslands. e.d). Einnig tengist kennslustundin líka 4 þrepinu - greining (e.evaluate) nemendur öðlast hæfni í að skilgreina hugtök

4. lota (60 mín.)

Viðfangsefni
Útlínur Íslands og staðsetning fjalla á Íslandskortinu

Námsumhverfi
Nemendur þurfa að hafa gott veggjapláss í stofunni og góðan aðgang að stóra bekkjarlandakortinu. Þau þurfa einnig að hafa góðan aðgang að íslandskorti, bæði stóru uppi við töflu en gætu einnig nýtt kortabækur og spjaldtölvur

Kveikja
Nemendum er sýnt landakort af Íslandi og fjallar stuttlega um skiptingu landsins og fær nemendur til að taka þátt í stuttri umræðu um það hvert þeir hafa komið á landinu.

Kennsluaðferð
Verkleg æfing
Kennari varpar með skjávarpa upp landakorti af Íslandi og útlínur landsins teiknaðar upp eftir myndinni á stórann maskínupappír.
Þetta nýja kort er nefnt Fjallakortið okkar og er hengt upp á Vegg í stofunni.

Upplýsingaöflun : Athuganir - heimildakönnun
Nemendur er beðnir um að koma með nöfn á  fjöllum sem þeir þekkja og merka inn á kortið. Þeir fá að nota stóra landakortið við kennaratöfluna og kortabækur sér til stuðnings til að staðsetja fjöllin nákvæmlega. Næst er kíkt á bókina komdu og skoðaðu fjöllin, og fjöllin sem er fjallað um í henni merkt sérstaklega inn á kortið.

Tenging við fræði
lHérna höldum við áfram að vinna með greininguna, með því að tengja þau fjöll sem þau þekkja á landakortinu,  sem nýtist þeim við frekari úrvinnslu við lokaverkefnið.

Viðfangsefni
Fjöllin í komdu og skoðaðu fjöllin - nemendum skipt í vinnuhópa

Námsumhverfi
Höfð er sætaskipting og borðunum raðað í 3-4 manna hópa sem sitja saman næstu vikur á meðan fjallaverkefnið stendur yfir.

Kennsluaðferð
Hópvinna - (einfölduð útfærsla af púslaðferð)
Nemendur fá að kjósa hvaða fjall þeir vilja verða
sérfræðingar í. Fjall sem þeir þekkja vel eða hafa áhuga á að kynnast betur.
Þeim er boðið að skrifa 3 fjöll á miða, frá því sem þeir hafi mestan áhuga á og svo annað og þriðja sætið.
Kennari raðar þeim þannig í hópa eftir áhuga en hefur þó um leið svigrúm til þess að velja í hópana eftir því sem hann telur best með tilliti hverjir vinna vel saman.

Vinnan í framhaldi snýst um að hóparnir kynni sér "sitt" fjall mjög vel til þess að geta kennt hinum hópunum um það á kynningunni í lok verkefnisins.

Tenging við fræði
Þarna erum við að vinna með hæfniþáttinn þar sem nemendur öðlast yfirsýn og getu til að hagnýta þekkingu og leikni (aðalanámskrá grunnskóla, 2013, bls 39)

5. lota (40 mín.)

Viðfangsefni
Hæð fjallana.

Kennsluaðferð
Farið er yfir hæð fjallana með nemendum og reiknað í sameiningu hvað margar Hallgrímskirkjur komast fyrir ein ofan á annari innan í fjallinu sem hver hópur vinnur með. Nemendur geta komið með hugmyndir af hlutum sem hægt er að nota í dæmi sem eru leist til þess að átta sig betur á stærð fjallana.

Heimanám:
Upplýsingaöflun
Nemendur fá sent heim með sér blað þar sem þeir eiga að setja inn upplýsingar um fjallið sitt.
Á blaðinu er listi yfir heimasíður sem þeir geta fundið upplýsingar á en eru þeir einnig hvattir til að fá aðstoð hjá foreldrum og öfum, ömmum, vinafólki eða frændum og frænkum.

Viðfangsefni
Fjöllin á landakorti, að staðsetja fjöllin á korti.

Kveikja
Landakortið í ráðhúsinu.

Kennsluaðferð
Útilistunarkennsla - skoðunarferð
Farið er í gönguferð niður í Ráðhús Reykjavíkur og skoðað stóra þrívíddarlandakortið af Íslandi

Hópavinna með upplýsingöflun

Hóparnir eiga að vinna saman og byrja á því að finna fjallið sem þeim var úthlutað á kortinu.
Því næst á hver hópur að koma upp með 20 fjöll sem þeir þekkja og skrifa á lista, þeir þurfa því næst að staðsetja þau á kortinu og geta stuðst við góða kortabók sem staðsett er við þrívídda landakortið.
Þegar hópurinn er búinn þá skilar hann listanum til kennara sem fer með þeim yfir staðsetningarnar á fjöllunum á listanum.

Viðfangsefni
Umræða á milli nemenda um kynningu á fjöllum. Nemendur ræða saman um hvað þeir vilji að komi fram á kynningunni sinni og deila hugmyndum sín á milli.

Kveikja
Til að byrja þessa kennslustund eru nemendur spurðir að góðum og opnum spurningum; t.d. „Hvað myndu þið vilja læra um fjöllin sem hinir hóparnir eru að fjalla um?"
Með því er líklegt að nemendur hugsi betur um hvað þeim finnst áhugavert að læra og vita um fjöllin.

Kennsluaðferð
Þankahríð(e. brainstorming)
Umræðutími um hvernig kynningarnar á fjöllunum eiga að vera. Nemendur koma með hugmyndir af því sem þeir telja mikilvægt að komi fram og hvað þeim þætti gaman segja frá í kynningunum. Nemendur kasta hugmyndum á milli sín og þróa þannig verkefnið.

Tenging við fræði
Hér nýtum við 5. þrep í flokkurnarkerfi Blooms á þekkingarsviðinu, sem er mat (evaluate) (Kennslumiðstöð Háskóli Íslands. e.d). Hér þurfa nemendur að draga saman það sem þeim þótti áhugaverðast, sem verður þá viðfangsefni þeirra í lokaverkefninu.

Viðfangsefni
Gönguferð á Úlfarsfell. Með þessari gönguferð fá nemendur tækifæri til þess að öðlast reynslu og er þetta flott uppbrot á kennslunni. Það eru ekki allir nemendur sem eru vanir að stunda fjallgöngur og hafa þeir allir mismunandi reynslu og þekkingu á fjöllunum. Með því að labba á Úlfarsfellið fá nemendur gott útsýni á önnur fjöll í kringum höfuðborgarsvæðið. Einnig geta nemendur spáð betur í umhverfinu sínu og séð hvernig fjöllin liggja og byggjast upp.

Tenging við fræði
Með vettvangsferðum læra nemendur að bera virðingu fyrir umhverfi sínu og erum við því þarna að vinna með hæfni þáttinn. Þar sem hæfni gerir kröfur um ábyrgðartilfinningu og virðingu (aðalnámskrá grunnskóla, 2013, bls 39). Einnig erum við að vinna með leikniþáttinn þar sem nemendur fá sína eigin reynslu á viðfangsefninu

6. lota (40 mín.)

7. lota (80 mín.)

8. lota (40 mín.)

9. lota (heill kennsludagur)
Þessi lota verður ekki talin með í kennslustundafjölda

10. lota (60 mín.)

11. lota (80 mín.)
Þessari lotu verður dreift yfir 2 daga

12. lota (40 mín.)

Viðfangsefni
Verkefnavinna á kynningu um fjöllunum heldur áfram. Nemendur vinna í sínum hópum að því að safna saman og velja úr upplýsingunum um fjallið sem verða hluti af kynningu þeirra fyrir aðra nemendur.

Námsumhverfi
Nemendur hafa nokkuð frjált val um það hvar þeir vinna verkefnið innan veggja skólastofunnar, hvort það á borðum eða gólfi. Gott er að nemendur á að vera með nógu mikið pláss í kringum sig.

Kveikja
Nemendur eru beðnir um að loka augunum og ímynda sér að þeir séu staddir á fjallinu sem þeir eru að vinna með. Hvað sjá þeir í kringum sig í huganum? Er eitthvað í kring sem þeir sjá og vilja vita meira um?

Kennsluaðferð
Hópavinna
Nemendur vinna ennþá í hópnunum sínum og eiga þeir að. hafa lokið skrásetningu á tæknilegum upplýsingum á sínu fjalli. Hóparnir þurfa að vinna í sameiningu í úrvinnslu þeirra gagna sem þeir eru með og koma sér saman um verkaskiptingu.

Viðfangsefni
Í þessari lotu vinna nemendahópanir útlitinu á  plakötunum sínum.

Kennsluaðferð
Nemendur fá að velja hvernig þeir vilja hafa fjallið sitt og hvaða efnivið þeir vilja nota til að skapa það. Kennari getur komið með hugmyndir t.d. akrílmálningu, klessuliti, kreppappír, garn, tímaritaúrklippur, bómull, efnabúta o.f.l.
Nemendur mættu koma með hugmyndir og hópunum síðan sett fyrir að ákveða í sameiningu útfærslu plakatsins og kynna svo sína hugmynd fyrir kennaranum.

Tenging við fræði
Með þessu verkefni erum við að vinna með hagnýtingu þekkingar og leikni - hæfnina. Hæfni felur í sér greiningu nemandans á eigin þekkingu og leikni með því að bera saman, finna samband, einfalda, draga ályktanir og rökstyðja (aðalnámskrá grunnskóla, 2013, bls 39). Þarna leggjum við áherslu á að nemendur geti hagnýtt fræðilega þekkingu þemavinnunar í kynningu á fjöllum

Viðfangsefni
Í þessum síðasta hluta þemaverkefnisins kynna nemendur fyrir hinum í bekknum fjöllin sem þeir unnu með.
Plakatið er hengt upp á vegg/töflu fremst í stofunni og hinir nemendurnir sitja fyrir framan og fylgjast með kynningum annara.
Hópurinn sem kynnir hefur skipt með sér upplýsingunum og æft kynningarnar vel.

Tenging við fræði
Þarna erum við að vinna með leikniþáttinn, en leikni er aflað með notkun á aðferðum og þjálfun í verklagi. Einnig felur hún í  sér greiningu með vali milli aðferða og skipulag verkferla (aðalnámskrá grunnskóla , 2013, bls 39). Við vinnu verkefnisins öðlast nemendur leikni í að tjá sig á skýran hátt og beita skapandi hugsun.

Kennsluumhverfi
Kennslan fer að miklu leiti fram í skólastofu bekkjarins en er búið að ganga úr skugga um að hún sé vel búin fyrir verkefnið. Að aðgangur að landakortum, bókum og spjaldtölvum til upplýsingaöflunar sé góður og að borðum sé raðað þannig að hóparnir geti unnið saman og dreift úr sér við vinnu á plakötum.
Auk skólastofunnar verður farið í 3 vettvangsferðir.
-Sú fyrsta í nærumhverfi skólans að virða fyrir sér fjöll úr fjarlægð og velta fyrir sér muni á hæð og fjalli o.s.fr.
-Farið verður í heimsókn í Ráðhús Reykjavíkur og unnið verkefni með stóra þrívíða landakortið þar.
-Fjallganga á Úlfarsfell. Farið verður með rútu og kennarar í árgangnum auk stuðningfullrtrúa verja einum degi með nemendum í útivist svo að allir geti tengt námið við eigin reynslu.

Lærdómsviðmið
Við ritun lærdómsviðmiða höfðum við flokkunarkerfi Bloom á þekkingarsviðinu til hliðsjónar til að lýsa þeirri hæfni sem þjálfuð er á hverju stigi fyrir sig, ásamt  lykilhugtökum aðalnámskrár - þekking, leikni og hæfni.

Við lok þemakennslunnar á nemandi að geta:

Þekking

þekkt helstu fjöll á Íslandi,

lýst ólíkum tegundum fjalla,

teiknað hæðarlínur inn á landakort,

skilgreint hugtakið hæð yfir sjávarmáli,

dregið saman niðurstöður um það sem hann hefur lært og nýtist í lokaverkefnið.

Leikni

sett eigin upplifun og reynslu í fræðilegt samhengi.

Hæfni

geta hagnýtt fræðilega þekkingu þemavinnunar í kynningu á fjöllum,

borið virðingu fyrir náttúru og umhverfi.

Flokkunarkerfi Blooms
(Kennslumiðstöð Háskóli Íslands. e.d).

13. lota (40 mín)

Viðfangsefni
Æfingar á kynningunum. Nemendur eiga að nýta þessa kennslustund í að æfa kynningarnar og skipta á milli sín upplýsingunum. Kennari gengur á milli hópa og hjálpar þeim með atriði eins og að snúa fram, leggja línurnar sínar á minnið o.þ.h

Tenging við Grunnþættina
Læsi er rauður þráður í gegnum verkefnið. Nemendur lesa efni um fjöll og einnig í hæðarlínur þar sem þau lesa í tölur. Þeir lesa í náttúruna í gönguferðinni og leita upplýsinga við gerð lokaverkefnisins með upplýsingatækni (aðalnámskrá grunnskóla 2013, bls. 19)

Heilbrigði og velferð - Heilsueflandi ganga.  Andleg, líkamleg og félagsleg vellíðan byggist á heilbrigði (aðalnámskrá grunnskóla 2013, bls. 23) og mun útivera almennt og fjallganga stuðla að þessum þáttum.

Lýðræði - Þegar notaðar eru samræðuaðferðir í kennslu þarf kennari að kenna nemendum reglur í umræðum, en þær geta verið ólíkar á milli kennara og bekkja en hafa það oft sameiginlegt að vera lýðræðislegar. Sem dæmi að bera virðingu fyrir skoðunum annara, að sýna öðrum viðringu á meðan þeir tjá sig, að grípa ekki fram í o.fl (Ingvar Sigurgeirsson, 2013, 115-116).

Jafnrétti  - allir nemendur fá að upplifa fjallgöngu saman, en ekki er það sjálfsagt að foreldrar fari mikið eða nokkuð með börnin sín út í náttúruna, hvað þá lengra en í nærumhverfi sitt. Markmið jafnréttismenntunar er m.a. að allir fái tækifæri til að þroskast á eigin forsendum og rækta hæfileika sína (aðalnámskrá grunnskóla, 2013, bls. 21).

Sjálfbærni  - kemur fram í göngutúrnum og fjallgöngunni og nemendur öðlast þá meiri virðingu fyrir náttúrunni með því að umgangast hana. Margt smátt gerir eitt stórt og þurfa nemendur að átta sig á því að þeir geta vel gert sitt þó svo að stóru breytingarnar eru ekki endilega að gerast (aðalnámskrá grunnskóla, 2013, bls 20).

Sköpun - kemur sterklega fram við vinnslu lokaverkefnisins sem eru myndræn plaköt fyrir kynningar um eitthvað tiltekið fjall. Þeir fá allskonar efnisvið til að gera plakötin sem flottust. Þegar nemendur fá tækifæri til þess að skapa eitthvað úr viðfangsefnum, þar sem þeir skilja merkingu og gildi, leiðir sú sköpunargleði til námsáhuga (aðalnámskrá grunnskóla 2013, bls.24).

Kennsluaðferðir
Í bókinni Litróf kennsluaðferðanna er kennsluaðferð skilgreind sem það skipulag sem kennarinn hefur á kennslu sinni, samskiptum við nemendur, viðfangsefnum og námsefni í því skyni að nemendur læri það sem að er keppt (Ingvar Sigurgeirsson, 2013, bls 12). Að okkar mati er þetta nokkuð skýr lýsing á hugtakinu en erfitt er að njörva nákvæmlega niður hugtakið því það er svo víðfemmt og eins fjölbreytilegt og kennarar og nemendur sem eiga við í hverju tilfelli. Það er mikilvægt að kennarar þekki vel helstu kennsluaðferðir og prófi sig áfram í starfi og finni hvaða aðferðir virki fyrir sig og hópinn sem um ræðir, en í kennsluáætluninni sem við gerðum á meðfylgjandi padlet vegg útfærðum við einmitt okkar nálgun á ólíkum kennsluaðferðum, með þeirri þekkingu og reynslu sem við höfum. Ein af meginforsendum þess að nemendur nái þeim hæfniviðmiðum sem stefnt er að eru fjölbreyttar kennsluaðferðir og námsumhverfi (Aðalnámsskrá grunnskóla, 2011, bls 91) og er það eitthvað sem við tileinkuðum okkur sérstaklega í verkefninu.