Staða fræðslu- og skólaskrifstofa í dag (hópur 5) by Ingvar Sigurgeirsson

1. Hver er staðan? Heildarmat?
Skipulag mjög misjafnt t.d. eftir stærð sveitarfélaga. Fyrirkomulagið ólíkt, skólaþjónustan sumstaðar að miklu leyti staðsett úti í skólunum en annars staðar á miðlægum skrifstofum.

Getur verið flókið fyrir litlar skólaskrifstofur að halda utan um alla þætti t.d. innra og ytra mat ... sumstaðar lítið aðgengi að sérfræðingum. Sum verkefni eru svipuð óháð stærð sveitarfélaga s.s. persónuvernd o.fl.  sem er erfitt fyrir minni sveitarfélög.

Tíminn fer oft mikið í úrlausn einstakra erfiðra mála. Meiri tími og orka ætti að fara í að vinna með grunninn, starfshætti o.s.frv.  Það gengur illa af ýmsum orsökum eins og tíðum mannabreytingum o.fl.  Vettvangurinn svo brothættur.

Mönnunarvandi og lágt hlutfall faglærðs starfsfólks kallar á meiri ráðgjöf og stuðning.

Ramminn er að nokkru leyti óljós, þ.e. hvað eiga skólaþjónustur að gera?  Hið sama má reyndar segja um skólann að sumu leyti.

Umræður um samvinnu sveitarfélaga um skólaþjónustu, spurning hvort að þróunin út um landið verði í formi meiri samvinnu innan landshluta.

2. Hvað er helst verið að gera vel?
Innleiðing farsældarlaganna er stórt verkefni sem er yfirleitt að ganga vel.

Íslenska menningin - fólk sem vinnur í menntageiranum er mjög ástríðufullt gagnvart starfinu.  Skólar skipta mjög miklu máli í samfélaginu og fólk / foreldrar gera miklar kröfur.

Upplifun flestra af skólakerfinu og skólaþjónustu er góð og fjölmörg úrræði í boði - þó að mætti merkja annað af umræðunni.

Vel menntað fólk að störfum í skólaþjónustunni.

Verið að vekja athygli á því sem er vel gert.  Skólaskrifstofur eru talsmenn "kerfisins" bæði inn á við og útávið.

Misjafnt hvað vel er gert - sumir skólar / svæði eru mjög góð í að koma til móts við þarfir eins og t.d. einhverfu.. aðrir eru góðir í að að koma til móts við annað.

Skólastarf gengur yfirhöfuð nokkuð vel.  Mikill vilji til lausnaleitar og reynt að koma til móts við þarfir fólks.

Inngildandi starfshættir eru styrkleiki - þó að alltaf megi gera betur og áskoranirnar séu margar.

3. Hverju er helst ábótavant? Hvað vantar? Hvað er brýnast að bæta?
Hægt að vinna meira miðlægt það sem hægt er og þarf ekki að vinna sérstaklega í hverjum og einum skóla.

Nýta meira samlegðaráhrif - skólaþjónustur geti samræmt sitt verklag - nefnt sem dæmi - öll sveitarfélög að vinna verklega varðandi skólaforðun - væri hægt að hafa miðlægt þrjú dæmi um áætlanir sem hægt væri að nota.  Myndi hafa í för með sér orku- og tímasparnað þar sem ekki þyrfti að skiptast á skoðunum og takast á um hluti víða um landið.

Vantar ramma utan um skólaþjónustuna - hvað á skólaþjónustan í raun að gera?

Bæta innra mat skóla - og ytra mat. Hægt að gera meira án þess að hver og einn skóli þurfi að finna upp hjólið.

Gögnin séu þannig að auðvelt sé að nýta þau.

Þarf að styðja meira við skólastjórnendur þannig að fleiri vilji vinna störfin. - Við erum í ímyndarkrísu og starfið er erfitt. Grundvallaratriði að störf skólastjórnenda séu vel mönnuð - þannig verður í raun minni þörf á skólaþjónustu.

Vantar meiri stuðning við fólk þegar það er að hefja störf í skólakerfinu - sama hvaða starf um er að ræða en ekki síst við nýja stjórnendur.

Er hægt að horfa meira á aðalatriðin og fara einfaldari leiðir - dæmi starfsáætlanir skóla - einfalda þær þannig að þær séu raunverulegt vinnugagn fyrir fólk sem vinnur á gólfinu.

Stéttarfélög mættu alveg hugleiða sinn þátt. Þar sem menntunarhlutfall er hátt í leikskólum verður starfið erfitt þar sem undirbúningstíminn er meiri heldur en ella.

4. Hvar liggja helstu sóknarfæri? Til hvaða aðgerða getum við gripið til að efla skólaþjónustuna? Getum við unnið meira saman?
Tvímælalaust getum við unnið meira saman.  T.d. með því að skipta verkum milli sveitarfélaga / skólaþjónusta þannig að þeir sem eru bestir á ákveðnum sviðum geti gerst leiðtogar og miðlað til verklagi og gögnum til annarra.

Við höfum ekki mikla yfirsýn yfir hvar góðir hlutir eru að gerast, þarf vettvang til að miðla því?  Gæti Grunnur búið til þann vettvang? Menntabúðir af einhverju tagi?

Pæling - er skólaþjónustan að styðja nógu mikið við kennarana sem eru á gólfinu - hvernig getum við gert það.

Innra og ytra mat, endurmenntunar- og þróunaráætlanir tali betur saman.  Endurmenntun er erfið í framkvæmd vegna þess að kennarar "eiga" peningana sem settir eru í verkefnið og vilja ekki endilega verja þeim í þætti sem falla að endurmenntunaráætlun skólans.

Sveitarfélög gætu unnið meira saman á sviði endurmenntunarmála.

Horfa gagnrýnið á þau verkefni sem eru unnin, hverju má sleppa í stað nýrra hluta sem eru að koma inn.

Gagnkvæmt mat - framkvæma ytra mat með því að skólastjórnendur séu með í að meta aðra skóla, þannig miðlast hugmyndir.  Á sama hátt mætti hugsa sér að starfsfólk skólaskrifstofa gæti metið starf hvert hjá öðru.

5. Hvert er, hvert verður eða hvert ætti að vera hlutverk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu?
Yfirsýn og samræming.  "Gæða- og eftirlitsstofnun"?  (ath - myndi líklega fara illa saman með ráðgjafarhlutverki stofnunarinnar).  Gæti gæða- og eftirlitsstofnun verið sú sama og með velferðarmálum?

Yfirsýn yfir verkefni skólaþjónusta. Samræming á ferlum / búa til fyrirmyndir að ferlum og verklagi fyrir skóla og skólaþjónustur.

Innleiða ný lög um skólaþjónustu (sem vonandi koma bráðum)

Ytra mat - leiðbeiningar.   Stuðningur við innra mat.

Fylgja eftir menntastefnu stjórnvalda.

Fyrri umræða

Seinni umræða

Raðið sóknarfærum / mögulegum aðgerðum í forgangsröð?
Auka samvinnu á milli sveitarfélaga.  Koma á vettvangi til að safna saman yfirliti / yfirsýn yfir það "besta" sem verið er að gera á sviði skólamála / skólaþjónustu og miðla því áfram.  Gæti verið á höndum Sambands ísl. svf. eða MMS?

Vantar löggjöf um skólaþjónustu - mjög brýnt að fá hana sem fyrst.

Gæðarammi fyrir skólaþjónustu.

Það eru mikil sóknarfæri í farsældarlögunum - en vantar úrræði fyrir þung mál þannig að lögin og hugsunin með þeim geti virkað sem skyldi.

Dagskrársíða

Ritari
Ágúst Jakobsson

agustj@mos.is