Loftunarskýrsla Hópur 2 by Helgi Thorarensen

Inngangur
Loftun og súrefnisbæting er einn mikilvægasti hluti þess að vera með fiskeldi fyrir utan fóðrun. Til þess að fiskur geti vaxið vel og dafnað í eldiskerjum þá þarf hann að hafa nóg súrefni. Loftun og súrefnisbæting er nauðsynleg til að viðhalda nægilegri súrefnismettun og að auki er þetta mikilvægur þáttur í að losa CO2 úr eldisvatninu. Mælingar á súrefnismettun eru mikilvægar en aðferðirnar eru margar, misjafnar aðferðir henta misjöfnum aðstæðum hverju sinni og getur það skipt sköpum kostnaðarlega séð hvaða aðferð hentar best í hvert skipti.

Markmið þessarar tilraunar var að sjá hversu fljótt saltvatn var að mettast, með andrúmslofti með loftdælingu (loftun), með hreinu súrefni af þrýstihylki sem skotið var í saltvatnið og með koltvísýring sem var skotið í vatnið með þrýstihylki. Mælingar voru gerðar jafn óðum til að fylgjast með þróuninni. Að endingu var saltvatnið látið standa í 19 klukkustundir og síðan teknar mælingar til að dæma um hversu miklu magni af lofttegundum vökvinn var búinn að tapa yfir þennan tíma og hversu mikið sýrustigið hafði breyst. Tilgangurinn var að hjálpa okkur að skilja betur út hvað loftun og súrefnisbæting gengur út á og hvers vegna þetta er svo mikilvægur hluti af því að vera með fisk í kerjum.

Aðferðir
Tilraunin byrjaði þannig að það var farið og fundið ílát undir tilraunina, bali á hjólum sem varð fyrir valinu. Til að geta fylgst með gildum mettunar og sýrustigs þurftum við til þess mæla og vorum við með O2 mæli,  PH mæli og CO2 mæli. Því næst notuðum við loftdælu til að herma eftir hefðbundinni loftun á vatni með því að láta hann bubbla í vatninu. Þar var mælt og tekið niður á mínútu fresti í 20 skipti. Eftir það var tekið og hvolft úr balanum og sett í hann óloftað vatn. Næst tókum við hreint súrefni og skömmtuðum í balann þar voru endurteknar mælingar eins og í fyrri tilraun í 20 skipti. Í þriðju tilrauninni var svo koltvísýring skammtað í súrefnismettað vatn í balanum. Meðan á því voru teknar 10 mælingar með sama millibili og áður og teknar 30 mín í pásu og mældar aðrar 10 mælingar með sama millibili. Daginn eftir sirka 19 klukkustundum seinna var síðan tekin seinasta mælingin.

Niðursöður

Umræður
Þegar litið er á kostnaðarhluta þess að vera með loftun á móti því að vera með hreina súrefnis bætingu kemur ýmislegt í ljós. Súrefnið er dýrt og þá sérstaklega þegar þarf að fara flytja það langar vegalengdir. Mörg eldi eru farin að fjárfesta í búnaði til að framleiða sitt eigið súrefni en að auki notast þau við varabirgðir t.d. ef vöntun verður meiri en búnaðurinn getur framleitt eða við ófyrirséðar aðstæður t.d. ef búnaðurinn bilar eða rafmagn fer af. Í hefðbundinni loftun er ekkert súrefni notað heldur andrúmslofti blásið inn í loftarann til að metta loftið og um leið CO2 losað út. Súrefni er svo bara skotið inn til að halda mettuninni nægilegri fyrir fiskinn ef að loftunin er ekki að hafa undan. Við súrefnisbætingu er stuðst við hreint O2 sem notað er til að keyra upp mettunina.

Flutningur súrefnis er margfalt hærri við súrefnisbætingu en loftun.
Loftun: Minni hlutfallsþrýstingur milli lofts og vatns og þar með leiðandi flæðir súrefni hægar inn í vatnið.
Súrefnisbæting: Meiri hlutfallsþrýstingur milli loftbóla  en vatns, þess vegna flæðir súrefni inn í vatnið mun hraðar.

Því meiri sem súrefnismettunin verður í vatninu því hægari verður súrefnisflutningurinn vegna þess að hlutfallsþrýstingurinn verður minni.

Þeir óvissuþættir sem gætu mögulega haft áhrif á niðurstöðurnar eru þær að dreyfing súrefnisins var hugsanlega ekki næg. Hringrásin í vatninu og hreyfing á loftinu fyrir utan kerið lítil.

CO2 lækkar mun hraðar en súrefni. Þetta sjáum við á því að þegar vatnið var bætt með CO2 þá lækkaði súrefnið lítið en þegar súrefni var bætt í vatnið þá lækkaði CO2 mikið í takt við súrefnismagnið.

Hugsanleg skýring á því gæti verið að við súrefnisbætinguna hækkaði ph gildið, það leiðir til þess að CO2 hvarfist við vatnið frekar en O2. Einnig gæti það skýrst af því að við súrefnisbætinguna stígur auka súrefnið að yfirborðinu og út úr vatninu, í því ferli getur verið að CO2 "fljóti" þannig með súrefninu út úr vatninu.

Magn súrefnis sem bætist í vatnið á mismunandi tíma.

Súrefnisbæting í mg/min á mismunandi tíma

Co2 Styrkur vatns yfir ákveðin tíma, eftir 30 mín var vatnið súrefnisbætt og þá féll styrkur Co2 í takt við það

Súrefnisflutningur á mín og munur á mettun í vatni og lofti (loftun og súrefnisbæting)