Starfsnámið mitt vor '25 by Rannveig Klara Guðmundsdóttir

Ígrundun
Það sem stendur mest upp úr vettvangsnáminu mínu eru nemendurnir mínir og tengslin sem ég hef náð að skapa við þau. Þessi tengsl hafa verið mér mjög dýrmæt en á sama tíma hafa þau reynst mér erfið. Ég legg mig mikið fram við að reyna að ná góðum og persónulegum tengslum við mína nemendur. Ég hef látið það vera mjög skýrt að ég sé til staðar fyrir þau og að þau megi alltaf leita til mín ef eitthvað bjátar á. Mínir uppáhalds kennarar úr grunnskóla voru einmitt þeir kennarar sem geisluðu af náungakærleik og skilningssemi. Þetta hefur mér alltaf verið hugleikið frá því að ég byrjaði að kenna og tel sjálf að því betri tengsl sem eru á milli kennara og nemenda því markvissari verður kennslan. Ég hugsa þetta líka svolítið út frá sjálfri mér, því betri tengsl ég er með við manneskju því meiri virðingu ber ég fyrir henni og því meiri virðingu sem ég ber fyrir henni því meira hlusta ég á hana.

Þetta er líka eitthvað sem rannsóknir styðja, t.d. nefnir hann Marzano (2003) í bók sinni Classroom Management That Works tengsl nemenda og kennara sem eitt af lykilþáttum í árangursríkri bekkjarstjórnun og að þessi tengsl hafi bein áhrif á ekki einungis hegðun heldur námsárangur þeirra líka. Þetta kemur einnig skýrt fram í greininni „Ef við náum ekki bekkjarstjórn þá getum við gleymt þessu“: Mat á námskeiði í bekkjarstjórnun fyrir starfsfólk skóla eftir Söru Bjarneyju Ólafsdóttur, Bergljótu Gyðu Guðmundsdóttur og Margréti Sigmarsdóttur (2024). Þær fjalla þar um námskeið í bekkjarstjórnun sem byggist á SMT-skólafærni að einhverju leyti sem er einmitt sú stefna sem er ríkjandi í skólanum þar sem ég starfa. Í greininni kemur fram að það séu góð samskipti sem eru lykillinn að vellíðan í skólastarfi. Þær segja að góð samskipti byggjast á virðingu, trausti og samkennd. Í greininni segir einmitt að þegar kennarar leggja sig fram í að mæta nemendum með skilningi, hlýju og skýrum væntingum að þá standa nemendur sig almennt betur í námi og hegða sér betur.

Ég hef fundið þetta á eigin skinni, yfir skólaárið hafa nemendur almennt verið að hegða sér betur og standa sig betur og sé ég það greinilega á frammistöðu þeirra í verkefnum. Nemendurnir mínir eru þekkt innan skólans sem erfiður hópur og hafa myndað sér ákveðið orðspor yfir skólagöngu sína en ég gæti ekki verið stoltari af þeim hóp sem ég er með í dag. Ég tel að frammistaða mín sem umsjónarkennari þeirra og mín áhersla á að byggja upp mína kennslu á gagnkvæmri virðingu hafi virkað mjög vel. Þetta er þó ekki allt dans á rósum og get ég sagt það með fullri vissu að ekkert sé fullkomið. Nemendur hafa auðvitað verið að haga sér misvel og hafa komið upp erfið agamál sem og eineltismál á þessu skólaári. Þá finn ég einna helst fyrir því hvað sterk tengsl geta líka tekið á mann. Þegar nemendur t.d. koma til mín og segja mér frá vanlíðan sinni vegna annara nemenda eða jafnvel almennrar vanlíðan að þá finnst mér ég bera ábyrgð, jafnvel meiri ábyrgð en ég get borið. Það hefur tekið virkilega á að sjá nemendum mínum líða illa en ég hef verið að vinna í að setja mér sterk mörk og hlúa að sjálfri mér. Á maður ekki alltaf að setja súrefnisgrímuna á sjálfan sig fyrst? Það að vera hlý og til staða þýðir ekki að ég geti leyst vandamál allra. Ég hef oft þurft að leita mér í stuðning samnemenda minna í dýrmætu bekkjartímunum í háskólanum og einna helst í hana Eddu Rún mína sem hefur fylgt mér í gegnum súrt og sætt öll mín fimm ár í kennaranámi. Hún hefur reynst mér dýrmætur stuðningur og minnt mig oftar en einu sinni og oftar en tvisvar á að ég sé að gera mitt besta og að það sé í raun eina sem ég get gert.

Í gegnum vettvangsnámið hef ég lært að það sem skiptir mig og starfið mitt sem kennari eitt mestu máli eru tengsl. Ekki einungis þau sem ég á við nemendur mína heldur einnig samstarfsfólk mitt og mig sjálfa. Ég hef lent í ýmsum vandræðum með teymiskennurum mínum en ég held að sú vandræði hafa einungis gert það að verkum að tengslin okkar eru betri og sterkari fyrir vikið. Við vinnum núna a.m.k. eins og vel smurð vél. Það hefur verið mér rosalega dýrmætt að kynnast þessum erfiðu en fallegu hliðum starfsins. Í gegnum þessa reynslu hef ég þroskast sem kennari en einnig sem manneskja fyrst og fremst með því að vinna í að efla færni mína í tengslamyndun, hlýleika og í því að setja mér og öðrum mörk. Ég mun halda áfram í starfi mínu sem kennari að rækta þessi tengsl af virðingu, hlýju en einnig fyrst og fremst fagmennsku. Ég veit að það mun mögulega taka allan minn starfsferil sem kennari að fullkomna tengslin og vita hvenær eigi að setja punktinn niður en ég hlakka bara til þeirrar áskorunar. Ég mun halda áfram að nýta mér þau tengsl sem ég mynda við samkennara, fyrrum samnemenda úr kennaranáminu og sækja mér námskeið og fræðslur þegar við á. Ég er alltaf að leitast eftir því að verða betri í dag heldur en ég var í gær og hef ég það ávallt sem markmið mitt hvort sem það er í vinnunni eða í mínu daglega lífi.

Heimildir:

Marzano, R.J., Marzano, J.S., og Pickering, D.J. (2003). Classroom management that works: Download Classroom management that works: Research-based strategies for every teacher. ASCD. [Kafli 1 - The Critical Role of Classroom Management].

Sara Bjarney Ólafsdóttir, Bergljót Gyða Guðmundsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir. (2024). „Ef við náum ekki bekkjarstjórn þá getum við gleymt þessu“: Mat á námskeiði í bekkjarstjórnun fyrir starfsfólk skóla Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. Menntavísindasvið Háskóla Íslands.DOI: https://doi.org/10.24270/netla.2024/2

Starfskenningin mín
Þessi mynd inniheldur nokkra hluti sem mætti segja að séu táknrænir fyrir það sem ég tel mikilvægt í mínu starfi sem kennari og það sem mér finnst einkenna mig.

Á myndinni sjáiði mig sjálfa auðvitað og í kringum mig sést einnig kaffibolli. Kaffibollinn er oft með mér þegar ég er að kenna og fannst mér viðeigandi að hafa hann hér. Kaffibollinn gæti einnig táknað orku sem ég reyni að hafa inn í deginum mínum en ég reyni alltaf mitt besta til þess að mæta hress og tilbúin á að takast á við tækifæri og áskoranir dagsins.

Svo sést einnig í skipulagsbók, mín raunverulega skipulagsbók er þó aðeins fallegri en þessi en mér finnst mikilvægt að hafa eina slíka á borðinu mínu. Ég reyni eins og ég get að vera skipulögð og mér finnst alltaf gott að hafa daginn minn sjónrænan fyrir mér á borðinu mínu. Þetta geri ég einnig fyrir nemendur mína, mér finnst mikilvægt að þau viti hvað sé að gerast og hvað gerist næst svo að væntingar mínar til þeirra séu skýrar.

Þarna má einnig sjá gulan post-it miða, mér finnst gaman að nota post it miða í kennslu og nota þá oft sem tól til þess að auka virkni í tímum. Stundum fá nemendur miða þar sem þau eiga að skrifa hugmyndir að svörum þegar við erum í umræðum eða nota sem eins konar útgöngumiða í lok tímans. Post-it miðinn táknar því einnig áhuga minn á leiðsagnarmati og góðri virkni í tímum.

Á myndinni má einnig sjá íslenska orðabók, ég er íslenskukennari og ég elska tungumálið okkar. Ég legg mig alltaf fram að smita nemendur mína af þessari ást og reyni ég að valdefla þau í íslensku og minni þau á að þau eiga hlut í tungumálinu okkar.

Svo er ég líka með rautt hjarta á myndinni til þess að tákna þá hlýju og væntumþykju sem ég legg upp með í tengslum við nemendur mína. Eins og ég kom inn á í ígrunduninni minni vil ég vera kennari sem nemendur treysta og vilja leita til. Ég hef oft sagt þegar ég er spurð hvernig kennari ég vil vera, að ég vil vera kennari sem einhver nemandi hugsar til baka og hugsar Rannveig var minn uppáhaldskennari.

Svo er ég þarna með tvö klassísk kennaratákn eplið og krítartöfluna. Þessi tvö tákn, tákna fyrir mér grunngildi kennarastarfsins, að leiðbeina nemendum með skapandi og sveigjanlegum kennsluaðferðum.

Svo er ég líka með miða sem stendur á hrósmiði, en í skólanum sem ég starfa er unnið mikið með hrósmiða og að hrósa mikið. Mér finnst þetta vera mjög mikilvægt og tileinka ég mér mjög mikið að hrósa fyrir góða hegðun, mér finnst það bæði byggja góð tengsl og vera hvetjandi fyrir nemendur mína.

Svo síðast en ekki síst er ég með skilaboð frá vinkonu minni og samnemanda Eddu Rún, sem táknar stuðning frá fólkinu í kringum mig. Ég vil vera kennari sem nýtir sér stuðning og ráð frá öðrum kennurum og fólki í kringum mig og bæti mig út frá því.

Lokauppgjör
Þegar kemur að ávinningi vettvangsnámsins þá langar mig fyrst til að nefna tengslin við nemendur. Þau hef ég ræktað og unnið markvisst að og ég finn að það skilar sér í viðmóti nemenda minna. Ég hef lagt mikla áherslu á að búa til traust milli mín og nemenda minna og  rækta góð samskipti við nemendur, samkennara og foreldra. Ég tel að þetta hafi skilað mér góðum árangri í bekkjarstjórnun. En ég vil sérstaklega nefna að ég er búin að upplifa miklar framfarir í bekkjarstjórnun hjá mér. En ég hugaði að og lagði kapp í að betrum bæta bekkjarstjórnun hjá mér, þá gekk allt betur og það skilaði sér í bættari líðan og námsárangri. Þetta gerði ég einna helst með því að rækta tengsl, huga að skapandi aðferðum og vera með skýr markmið og væntingar fyrir nemendur mína. Stærsti og mikilvægasti ávinningurinn var samt að sjá nemendur mína vaxa, bæði námslega og félagslega og fá að upplifa það á mínu eigin skinni að ég væri þeim raunverulegur stuðningur.

En á móti var ein helsta áskorun einnig tengd nemendum mínum og sérstaklega líðan þeirra. Þegar nemendum mínum líður illa og það sem ég geri til að hjálpa þeim dugar ekki, þá tek ég það oft heim með mér á koddann og finn til vanmáttar. Þetta hefur þó sýnt mér mikilvægi þess að setja mörk, hlúa vel að sjálfri mér og nýta allt það stuðningskerfi sem mér stendur til boða.

Þegar kemur að álitamálum í vettvangsnáminu þá er fátt sem kemur upp í hugann. Ég hef þó mikið velt því fyrir mér hvernig hægt sé að styðja enn betur við nemendur með félagslega erfiðleika. Ég er með nokkra slíka nemendur og á oft erfitt með að finna enn betri leiðir til þess að styðja við þá, sérstaklega þá nemendur sem eru vinafáir. Ég held að það gæti verið sniðugt að kennaranemar fái góðar hugmyndir að hvernig skuli nota hópefli og slíkt á markvissan máta.
Ég get sagt það með fullri sannfæringu að ég geri mig vel grein fyrir eigin kostum og göllum og mun ég leggja mig fram allan minn starfsferil að vera meðvituð um hvoru tveggja og vinna með það. Ég hef öðlast góða innsýn inn í mína eigin kennsluhætti og aukið sjálfstraust. Ég mun halda áfram að þróa mig sem kennari og mína starfskenningu og ávallt leggja mig fram að vera meðvituð um hvernig ég geti bætt mig.