Benjamín Dúfa by Ásta Guðný Unnsteinsdóttir
Aldurshópur
Við ákváðum að finna barnabók fyrir miðstig. 5-7.bekkur geta unnið með þessa bók en við völdum að gera verkefni fyrir 7.bekk, og eru verkefnin þá meira krefjandi. Þessi bók hentar vel þessum árgang og ætti að vekja áhuga nemenda á bókmenntum. Þetta er áhrifamikil saga en á sama tíma fyndin og skemmtileg. Persónurnar eru fjölbreyttar og hafa mismunandi eiginleika og ættu þá allir nemendur að geta fundið persónu sem þeir eiga samleið eða samkennd með. Sagan er tilfinningaþrungin og sýnir vel það góða og slæma í mannlífinu frá mörgum hliðum.
Upplýsingar um verkið
Kennsluhugmynd
Hægt væri að samþætta verkefnið um þessa bók við smíði. Nemendur gera leikþátt um atvik úr sögunni, t.d. um riddarareglu Rauða drekans. Í smíði búa þau til sverð og skjöld í smíðakennslu og eru þau þá komin með leikmuni. Þarna er komið verklegt hópaverkefni sem er sjálfstætt og skapandi viðfangsefni.
Lokaorð
Benjamín Dúfa er lífleg saga með góðan boðskap. Hægt er að vinna með bókina á fjölbreyttan hátt og jafnvel samþætta greinar í úrvinnslunni.
Ef einhver hefur ekki lesið bókina nú eða horft á myndina þá mælum við eindregið með því.
Kennsluhugmynd frh.
Börnin fá lestrarplan hvaða kaflar eru til náms í hverri viku. Bókmenntaþátturinn er að þau skiptast á að ræða kaflana í pörum eða að skrifa stutta samantekt úr köflunum sem voru til lestrar.
Þegar nemendahópurinn er búinn með bókina þá fer af stað stutt ritgerðarvinna. Eftir þetta er gaman að horfa á myndina.
Hugmynd að hópverkefni
Nemendur vinna saman í hópum og búa til veggspjald. Hver og einn hópur fær persónu sem á að vinna með og eiga helstu einkenni hennar að koma fram á veggspjaldinu og er einnig markmið hópsins að sýna á plakatinu fyrirgefningu, vináttu, dauða og sorg og baráttu góðs og ills. Nemendur útbúa veggspjald þar sem persónu er vel lýst; útliti , umhverfi, s.s. fjölskylda, og hugsanaský þar sem kemur fram hvað gæti verið að brjótast um í huga persónunnar, tengt vináttu, sorg og öðrum tilfinningum. Á veggspjaldið gera nemendur líka blaðsíður úr dagbók þar sem skrifað er hvað er að gerast í lífi eða huga persónunnar á líðandi stundu. Í þessu verkefni vinnur hópurinn sem heild og mikilvægt að nýta styrkleika hvers og eins. Nemendur fá að vera frumlegir og skapandi og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín.
Skjöldur
Þessa mynd geta nemendur notað til að teikna mynd af tákni riddarafélaginu.
Útdráttur
Benjamín Dúfa fjallar um 4 stráka, þá Benjamín, Andrés, Róland og Balda. Sagan er að mestu leyti sögð frá sjónarhorni Benjamíns. Beint á móti leikó þar sem krakkarnir í hverfinu leika mikið saman býr Guðlaug gamla með köttinn sinn, Bólu-Hjálmar. Guðlaug er nokkurskonar verndarengill krakkanna gegn hrekkjusvínunum Helga svarta og Berg kúk. Róland flytur í hverfið og vingast við Benjamín, Andrés og Balda. Hann segir strákunum frá sínum stærstu draumum, að verða riddari eins og forfeður sínir frá Skotlandi. Þessi vinahópur stofnar riddarafélag og fær félagið nafnið Regla rauða drekans og standa þeir gegn ranglæti með réttlæti. Keppnisskap Andrésar varð til þess að hann hætti í Reglu rauða drekans og stofnaði nýtt félag, Svarta fjöðrin.
Húsið hennar Guðlaugar fer illa í brunanum og kemur það öllum á óvart að Helgi svarti bjargaði henni úr húsinu. Guðlaug og Helgi mynda falleg tengsl þegar þau dvelja á sjúkrahúsinu eftir eldsvoðann. Regla rauða drekans taka málin í sínar hendur þegar uppbygging á húsinu hennar hefst. Þeir safna og fá bankann og aðra góða nágranna með sér í lið. Einn tveir og bingó er komið nýtt hús fyrir Guðlaugu sem er afar þakklát fólkinu í nærumhverfi sínu. Svarta fjöðrin þrýstir stöðugt á Reglu rauða drekans að berjast. Fyrrnefnda félagið rænir Balda eitt kvöldið og vilja ekki sleppa honum fyrr en Benjamín og Róland koma að berjast. Kvöldið fer ekki eins og planað var og endar með sorgar hremmingum...