Verkefni G - Matsaðferðir by Hallgerður Guðlaugsdóttir

Activities-specific Balance Confidence Scale (ABC Scale)
Þetta matstæki er staðlað en er frábrugðið Berg jafnvægiskvarðanum að því leyti að hér er skjólstæðingur beðinn um að meta sjálfsöryggi sitt í 16 mismunandi aðstæðum sem reyna á jafnvægi. Matstækið var þróað af hópi iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og skjólstæðinga þeirra sem voru eldri en 65 ára.

Atriðin sem eru metin eru:

1.      Að ganga um á heimili sínu (innandyra).

2.      Að fara upp og niður stiga

3.      Að beygja sig eftir inniskó sem er á gólfinu inni í skáp (botninum á skápnum).

4.      Að teygja sig eftir dós (t.d. niðursuðudós) af hillu í augnhæð

5.      Standa á tánum og teygja sig eftir einhverju sem er hærra en höfuð manns

6.      Standa á stól og teygja sig eftir einhverju

7.      Sópa gólfið

8.      Að ganga frá heimilinu sínu að bíl í innkeyrslu.

9.      Að setjast inn í bíl eða að standa upp úr honum.

10.  Að ganga yfir bílastæði við verslunarmiðstöð.

11.  Að ganga upp eða niður ramp.

12.  Að ganga um í verslunarmiðstöð þar sem er mikið af fólki sem gengur hratt framhjá þér.

13.  Þegar fólk rekst í þig í mannmergð.

14.  Að stíga upp í rúllustiga eða af honum á meðan þú heldur í handrið.

15.  Að stíga upp í rúllustiga eða af honum á meðan þú heldur á einhverjum hlutum (svo þú getur ekki haldið í handrið).

16.  Að ganga um úti í hálku.

Skjólstæðingur svarar á skalanum 0-100% í heilum tugum þar sem 0% þýðir ekkert sjálfsöryggi í aðstæðunum og 100% þýðir algjört sjálfsöryggi.

Heildarstig eru reiknuð og flokkuð í þrjá flokka:

·       Undir 50% er lág líkamleg færni

·       50-80% er meðal líkamleg færni

·       Hærra en 80% er mikil líkamleg færni

Ekki er til íslensk þýðing af matstækinu en hér má nálgast það: https://strokengine.ca/wp-content/uploads/2020/08/ABC-Scale-Instructions-updated-Oct-23-2020.pdf

Hér er hægt að nálgast meiri upplýsingar um matstækið: https://strokengine.ca/en/assessments/activities-specific-balance-confidence-scale-abc-scale/

Purdue Pegboard Prófið
Er staðlað próf sem notað er til að mæla grófhreyfingar og handlagni í fingrum, fingurgómum, höndum og handleggjum hjá einstaklingum með mögulegar skerðingar vegna stoðkerfis eða taugasjúkdóma.

Notað fyrir allan aldur, ekki gefið upp hvaða hóp prófið hentar ekki fyrir.

Notast er við sérstakt borð sem að er með fjórum holum fyrir pinna, skífur og bolta. Svo eru tvær raðir með sitthvorum tuttugu og fimm götum sem að setja á pinnana ofan í.

Fyrst er hægri höndin bara notuð og skjólstæðingur fær 30 sekúndur til að setja pinna ofan í göt. Síðan er vinstri höndin og gert eins með henni. Svo eru báðar hendur notaðar saman og gert það sama í 30 sekúndur. Í lokin er svo báðar notaðar og þá á að setja pinna ofan í gat svo skífu, bolta og skífu í 60 sekúndur.

Einstaklingur fær stig fyrir hvert atriði fyrir sig, hversu mörgum pinnum, boltum og skífum var náð að setja ofan í götin.

Matskvarðinn byggir á rannsókn sem gerð var á 360 einstaklingum án skerðinga og er mismunandi milli kynja. Ákveðin viðmið í hversu mörgum pinnum á að ná fyrir hvern aldur og kyn.

Matstækið krefst ekki sérstakar þjálfunar en að fagaðili hafi kynnst sér matstækið vel. Það tekur um 5-10 mínútur að leggja fyrir skjólstæðing og er einungis til í enskri þýðingu.

Hér er hægt að nálgast meiri upplýsingar um matstækið: https://strokengine.ca/en/assessments/purdue-pegboard-test-ppt/

Box and Block
Er staðlað próf sem að metur grófhreyfingar handa, fingra og handleggja.

Notað fyrir allan aldur en ekki mælst með að nota ef að um mikla skerðingu á efri útlimum og einnig mikla vitræna skerðingu er að ræða hjá einstakling.

Notast er við trékassa með tveimur hólfum. Í öðru hólfinu eru 150 litlir trékubbar og einstaklingurinn fær 60 sekúndur til að færa einn kubb í einu yfir í hólfið við hliðina og svo er talið hversu mörgum kubbum hann náði. Önnur höndin notuð í einu.

Til er matskvarði yfir meðaltal hversu marga kubba næst að færa yfir hjá báðum kynjum, eftir aldri og hvort sé um vinstri eða hægri hönd að ræða. Því fleiri kubbar sem náðst hefur að raða hinu megin er túlkað sem betri handlagni.

Þarf ekki sérstaka þjálfun fyrir fagaðila til að nota matstækið.

Heildarmat tekur frá 2-5 mínútur

Er upphaflega á ensku og hefur ekki formlega verið þýtt á nein önnur tungumál.

Hér er hægt að nálgast meiri upplýsingar um matstækið:
https://strokengine.ca/en/assessments/box-and-block-test-bbt/

The Nine-Hole Peg Test (NHPT)
Er staðlað matstæki sem að metur fingrafimi og fínhreyfingar fingra.

Notendahópur er 18 ára og eldri og ekki mælst með að nota fyrir einstaklinga með miklar skerðinga í efri útlimum eða með miklar vitrænar skerðingar.

Notast er við ferningslaga plötu með níu götum öðru megin og grunnri holu með níu pinnum hinum megin. Einstaklingur á að setja einn pinna í einu ofan í götin eins fljótt og hann getur og er tekinn tími hversu lengi hann er að því. Alltaf á að byrja á ríkjandi hendi eða sem að er ekki skert.

Matskvarðinn miðast við meðaltal sem að er til yfir hversu lengi tók fyrir heilbrigða einstaklinga út frá kyni og aldri og hvort sé um að ræða hægri eða vinstri hönd. Því fljótari sem að einstaklingur nær að klára að setja pinnana ofan í götin því betri fingrafimi og fínhreyfingar býr hann yfir.

Þarf ekki sérstaka þjálfun fyrir fagaðila til að fá að nota tækið.

Matstækið er á ensku og hefur ekki formlega verið þýtt yfir á annað tungumál.

Hér er hægt að nálgast meiri upplýsingar um matstækið:
https://strokengine.ca/en/assessments/nine-hole-peg-test-nhpt/

Sollerman matstækið
Er staðlað matstæki sem að metur handafærni, það byggir á sjö af átta algengustu handargripum sem notuð eru við athafnir daglegs lífs. Það eru nálargrip, peningagrip, lyklagrip, sívalningsgrip, kúlugrip, töskugrip og fimm fingra grip.

Einstaklingur þarf að framkvæma 20 verk og fagaðili fylgist með og tekur tímann. Verkin eru:

1. Setja lykil í skrá og snúa um 90*. 2. Krónupeningur tekinn upp af flötu yfirborði og settur í veski sem hangir á vegg. 3. Opna og loka rennilás. 4. Taka krónupening upp úr veski. 5. Lyfta tré kubb yfir 5 cm háa brún. 6. Lyfta straujárni yfir 5 cm háa brún. 7. Snúa skrúfu með skrúfjárni. 8. Tína upp hnetur. 9. Skrúfa lok af krukku. 10. Hneppa hnöppum. 11. Skera í gegnum leir með gaffal og hníf. 12. Setja aðhaldssokk á aðra höndina. 13. Skrifa með penna. 14. Brjóta saman blað og setja í umslag. 15. Setja bréfaklemmu á umslag. 16. Lyfta símtóli að eyra. 17. Snúa hurðarhún um 30*. 18. Hella vatni úr fernu. 19. Hella vatni úr könnu yfir í bolla. 20. Hella vatni úr bolla yfir í bolla.

Gefin eru stig fyrir frammistöðu hvers verks fyrir sig frá 0-4 stig

4 stig Verkið er unnið innan 20 sekúndna og án erfiðleika með réttu handargripi.

3 stig Verkið er unnið með smá erfiðleikum, ekki innan 20 sekúndna eða ekki alveg rétt grip.

2 stig Verkið klárað eða einungis unnið að hluta innan 60 sekúndna, ekki rétt handargrip.

0 stig Verkið einungis klárað að hluta ekki innan 60 sekúndna eða getur ekki framkvæmt verkið.

Mest er hægt að skora 80 stig í matinu. Heilbrigður einstaklingur á að ná 80 stigum á ríkjandi hendi og 77-79 stig á hendinni sem notuð er minna.

Tekur í kringum 20 að gera matið og notendahópurinn er 18-64 ára.

Kröfurnar um að mega nota tækið er að lesa handbókina vel.

Matstækið hefur ekki verið þýtt yfir á íslensku

Hér má finna meiri upplýsingar um matstækið:
http://www.swisswuff.ch/images/adl/adl-pdf/sollermann1995handfunctiontest.pdf

Jebson Taylor Hand Function Test (JHFT)
Er staðlað matstæki sem að metur fínhreyfingar og handafærni við athafnir daglegs lífs.

Matið samanstendur af sjö verkum sem að einstaklingur þarf að gera með báðum höndum í sitthvoru lagi, fagaðili fylgist með, útskýrir og tekur tímann á meðan. Verkin eru:

1. Skrifa stutta setningu eftir forskrift. 2. snúa við fimm spjöldum á borði. 3. Taka upp litla hluti af borði og setja ofan í krukku. 4. Taka upp baunir með skeið og setja ofan í dós. 5. Raða flötum spilakubbum ofan á hvorn annan. 6. Raða léttum dósum hlið við hlið 7. Raða þungum dósum hlið við hlið.

Matskvarðinn byggir á rannsókn sem að gerð var á 300 heilbrigðum einstaklingum á mismunandi aldri. Matið snýst um að ná sem stystum tíma í hverju verkefni.

Notendahópur er 8 ára og eldri og ekki mælt með að nota fyrir einstaklinga með miklar vitrænar skerðingar.

Matstækið er formlega til í enskri og portúgalskri þýðingu.

Ekki er krafist neinnar sérstakrar þjálfunar fyrir fagaðila til að mega nota tækið.

Heildar tími mats getur tekið frá 15-45 mínútur að klára.

Hér er hægt að finna meiri upplýsingar um matstækið:
https://strokengine.ca/en/assessments/jebsen-hand-function-test-jhft/

Functional Dexterity Test (FDT)
Er staðlað matstæki sem að metur samhæfingu, fínhreyfingar og hreyfifærni handa.

Notast er við kubbaborð með 16 götum sem að 16 hringlaga kubbar passa ofan í. Hringlaga kubbarnir eru svartir á öðrum enda og hvítir á hinum endanum. Einstaklingurinn á að taka kubbinn upp úr gatinu, snúa honum við og setja aftur ofan í. Markmiðið er að ná sem bestum tíma. Sekúndur bætast við tímann ef að einstaklingur missir kubb, snertir kubbaborðið eða notar hina höndina til að hjálpa.

Ef að einstaklingur nær að klára verkið innan við 55 sekúndur er það talið eðlilegt. Annars er tíminn stöðvaður eftir tvær mínútur.

Matskvarði fylgir tækinu sem að metur einstakling út frá tæima sem að tók að klára verkið.

Notendahópur er frá 6 ára aldri og upp úr.

Heildar tími mats er 2-5 mínútur.

Ekki þarf sérstaka þjálfun fyrir fagaðila að mega nota tækið, kynna sér handbók vel áður.

Matstækið hefur ekki verið þýtt yfir á íslensku.

Hér má finna meiri upplýsingar um matstækið:
https://www.jhandtherapy.org/action/showPdf?pii=S0894-1130%2821%2900067-3

Pinch mælir
Er staðlað próf sem að mælir fingrastyrk.

Metin eru þrjú grip, lyklagrip, nálargrip og peningagrip. Mælitæki er sett milli fingra og einstaklingurinn á að þrýsta eins fast og hann getur.

Til eru ýmiskonar tæki frá mismunandi framleiðendum sem að mæla fingrastyrk. Handbók sem að fylgir mælitækinu sem að er viðmiðunartafla í um fingrastyrk og með skýrum fyrirmælum um hvernig fagaðila skal bera sig að við útskýringar og notkun.

Hér má finna meiri upplýsingar um matstækið:
https://www.3bscientific.com/product-manual/12-0392x_inst_ver5-04_spreads_pushpullsmall.pdf

Dynometer grip mælir
Er staðlað próf sem að metur gripstyrk.

Einstaklingur situr með olnboga í 90* og slakar axlir. Mælitæki sett í lófa og einstaklingur látinn halda eins fast og hann getur.

Til eru ýmis tæki frá mismunandi framleiðendum sem að mæla gripstyrk. Handbók fylgir mælitæki sem að í er tafla með viðmiðunartöflu yfir gripstyrk og skýrum fyrirmælum hvernig fagaðili skal bera sig að við útskýringar og notkun tækisins.

Hér má finna meiri upplýsingar um matstækið:
https://www.3bscientific.com/product-manual/12-0392x_inst_ver5-04_spreads_pushpullsmall.pdf

Short Physcal Performance Battery (SPPB)
Þetta er staðlað matstæki sem reynir á jafnvægi í eldra fólki. Það samanstendur af  þremur mismunandi standandi stöðum, 3-4m gönguæfinu og að standa upp úr stól. Stig eru gefin fyrir hvort skjólstæðingur náði að framkvæma hverja standandi stöðu í 10 sekúndur hverja, og stig á skalanum 1-4 eru gefin fyrir hve langan tíma það tók að framkvæma gönguæfinguna og að standa upp úr stól. Til þess að framkvæma matið þarf einfaldlega að hafa stól og úr til tímatöku. Það tekur um 10 mínútur að framkvæma matstækið.

Heildarstig eru 12 talsins og niðurstöður undir 10 gefa til kynna skerðingu á hreyfifærni.

Hér má nálgast lýsingu og leiðbeiningar fyrir matstækið: https://research.ndorms.ox.ac.uk/prove/documents/assessors/outcomeMeasures/SPPB_Protocol.pdf

Hér má nálgast matstækið sjálft: https://www.sralab.org/sites/default/files/2018-03/SPPB-Score-Tool.pdf

Berg Balance Scale (BBS)
Mælir jafnvægi í eldra fólki. Matstækið er staðlað og samanstendur af 14 atriðum sem eru ýmist kyrrstöður eða æfingar/hreyfingar sem þarf að halda/gera í ákveðið langan tíma. Gefin eru stig á kvarðanum 0-4 og svo eru reiknuð heildarstig, mest 56 stig.

0-20 stig: jafnvægisskerðing

21-40 stig: viðunandi jafnvægi

41-56 stig: gott jafnvægi

Til í íslenskri þýðingu (þó ekki formlega samþykkt) sem var gerð 1998 af Bergþóru Baldursdóttur, Karen Bjarnhéðinsdóttur og Margréti Garðarsdóttur. Á íslensku er talað um Berg jafnvægiskvarðann. Hann má nálgast hér: https://www.physio.is/media/stodkerfisvandamal/Bergkvardi.pdf

https://strokengine.ca/en/assessments/berg-balance-scale-bbs/

Motor Assessment Scale (MAS)
Staðlað matstæki sem metur 8 hreyfingar. Hreyfingarnar eru:

·       að fara úr baklegu í hliðarlegu

·       að fara úr baklegu í sitjandi stöðu á rúmbrík

·       að halda jafnvægi í sitjandi stöðu

·       að standa upp úr sitjandi stöðu

·       að ganga

·       upphandleggsfærni (upper-arm function)

·       handarhreyfingar

·       flóknari handarhreyfingar

Einnig er metið 9. atriði sem má þó sleppa þegar það á ekki við, en það er almenn vöðvaspenna í líkamanum. Til þess að framkvæma matið þarf að hafa til nokkuð marga hluti en þó eru það allt hlutir sem er auðvelt að nálgast. Þeir eru:

·       Úr til að taka tíma

·       8 jellybeans

·       Plastglas

·       Bolta

·       Stól

·       Greiðu

·       Penna

·       Tvo bolla

·       Vatn

·       Autt blað

·       Sívalan hlut, t.d. krukku

·       Borð

Það getur tekið frá 15 mín til klukkutíma að framkvæma matið en það er ekki til í íslenskri þýðingu. Matstækið er frítt og hægt að nálgast það á mörgum stöðum.

Hér er aðgangur að eyðublaðinu með leiðbeiningum: https://www.physio-pedia.com/images/5/5d/Motor_Assessment_Scale.pdf

Six-Minute Walk Test (6MWT)
Mjög einfalt matstæki sem mælir hve langt skjólstæðingur getur gengið á sex mínútum. Einnig eru til útgáfur með styttri og lengri tíma. Það sem þarf að hafa í huga fyrir þetta mat er að skjólstæðingur sé ekki að reyna á sig tvo tíma á undan matinu, að hann sé í þægilegum fötum og góðum skóm. Matið á að framkvæma innandyra þar sem hægt er að ganga óhindrað í 30m löngum gangi. Við enda 30m skal setja keilu en einnig að merkja hverja 3m með límbandi á gólfið. Einnig þarf að hafa í huga að ekki á að spjalla við skjólstæðinginn á meðan hann gengur, en við hverja mínútu má gefa hvatningu í rólegum tón.
Ekki á að hita upp fyrir matið, og mikilvægt er að skjólstæðingur sitji í 10 mínútur áður en matið hefst.

Fyrir og eftir matið er skjólstæðingur beðinn um að meta eigin mæði og þreytu með Borg skalanum og einnig er hægt að taka lífsmörk.

Mikilvægt er að meta fyrirfram hvaða útgáfa af matstækinu hentar fyrir skjólstæðing, og hvort hann geti gengið óstuddur. Hér má nálgast ítarlegar leiðbeiningar að skráningu og framkvæmd matsins: https://strokengine.ca/en/assessments/six-minute-walk-test-6mwt/

Mini Mental State Examination (MMSE)
Þetta matstæki er hálfstaðlaður spurningalisti sem ætlað er að greina vitræna skerðingu. Matstækið samanstendur af 11 spurningum sem reyna á mismunandi vitræna getu, t.d. athygli, minni og reikning. Heildarstig eru 30 og niðurstöður sem eru 23 stig eða færri gefa til kynna að um vitræta skerðingu sé að ræða. Ef niðurstöður eru á bilinu 18-23 er talað um væga vitræna skerðingu en mikla skerðingu ef stigin eru 17 eða færri. Þó eru til aðrar túlkanir á þessum stigaflokkum. MMSE er til í íslenskri þýðingu og hér má nálgast matstækið og leiðbeiningar á íslensku: https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item2524/MMSE%20Pr%C3%B3f%20til%20a%C3%B0%20meta%20vitr%C3%A6na%20getu.pdf

Aðrar upplýsingar í textanum hér að framan eru fengnar hér: https://strokengine.ca/en/assessments/mini-mental-state-examination-mmse/

Modified Barthel ADL Index (BI)
Metur hreyfifærni og sjálfstæði einstaklinga við framkvæmdir á athöfnum daglegs lífs.

Notað fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem hafa fengið heilablóðfall, parkinson, fólk sem hlotið hefur heilaskaða eða almennt eldra fólk. Staðlaður viðtalsrammi/ sjálfsmatslisti sem metur færni einstaklings með taugavöðva eða stoðkerfisvanda til að hugsa um sig í daglegu lífi í endurhæfingar-tilgangi. Það er ekki mælt með að 75 ára og eldri fylli sjálfir út matslistann.

Metið er og gefin eru stig fyrir hvort viðkomandi geti matast, baðast, klæðst, gengið stiga, hafi stjórn á hægðum og þvaglátum, flutningur í og úr rúmi, göngugetu og flutt sig yfir í hjólastól.

Heildarstigagjöf og mat á þörf á aðstoð:

0-24	Algerlega háður öðrum um sjálfsönnun og     hreyfingu

21-60	Þó nokkuð til verulega háður einhverjum um sjálfsumönnun og hreyfingu

61-90   Lítillega til þó nokkuð háður einhverjum um sjálfsumönnun og hreyfingu

91-100 Lágmarks/mjög lítil aðstoð

100       Sjálfbjarga við sjálfsumönnun og hreyfingu

Það þarf ekki sérstaka þjálfun til að leggja þetta mat fyrir, tekur um 2-5 mín að leggja það fyrir og um 20 mínútur til að ljúka því.

Varist að nota það þegar einstaklingur er mikið færniskertur og getur séð um sig sjálfur en upplifir samt mikla skerðingu eða þegar einstaklingur hefur upplifað vægt heilablóðfall því viðkomandi er móttækilegur breytingum en hefur samt sem áður ákveðnar afleiðingar fyrir hann.

Það hefur verið þýtt og staðfært yfir á íslensku.

Frábær bæklingur en þetta matstæki finnst í viðauka B https://www.landspitali.is/library/Sameiginlegar-skrar/Gagnasafn/BRUNNURINN/Kliniskar-leidbeiningar/Heilablodfall---naering-og-vokvi/klinleid_hjukrun_endurhaef_heilablodf_0913.pdf?download=true

http://endurhaefing.is/modifiedBarthel.htm

Meira um hér:
https://strokengine.ca/en/assessments/barthel-index-bi/

COPM
Er óstöðluð matsaðferð og nýtist til að meta breytingar á ákveðnu tímabili. Notað sem viðtalsrammi fyrir fagaðila til að afla upplýsinga um einstaklinga á öllum aldri. Hvernig skjólstæðingar forgangsraða, skynja og meta færni sína við daglega iðju og ánægju með hana. Skoðuð er eigin umsjá, störf, tómstundir og fundinn út hvort einhver færnivandi sé til staðar.

Það hefur verið þýtt yfir á meira en 35 tungumál og er til á íslensku, hægt er að kaupa það á heimasíðu The COMP. https://www.thecopm.ca/buy/translations/#:~:text=The%20COPM%20has%20been%20translated,being%20added%20all%20the%20time.

https://www.thecopm.ca/

Video hér, hvernig eigi að nota matstækið, skref fyrir skref https://www.thecopm.ca/learn/#wp-video-lightbox/4/

Guðmundur
Hér koma þau matstæki sem geta nýst við að skilgreina, skýra eða túlka orsakir iðjuvanda Guðmundar. Guðmundur er eldri maður sem býr einn. Hann er listmálari og spilar bridge með vinum sínum. Hann á orðið erfiðara með sum verk og sum einkenni hans benda til byrjandi Parkinson. Þau verk sem reynast Guðmundi erfiðari en áður fyrr eru að ganga um, standa upp og að handleika litla hluti, eins og pensil eða tannbursta.
Þessi samantekt matstækja tekur mið af iðjuvanda Guðmundar.

Áhrifaþættir iðju, OCAIRS (Occupational Circumstances Assesment Interview and Rating Scale)
Matstæki sem er hálfbundið viðtal með fjögurra þrepa raðkvarða og samantektarblaði og getur notast fyrir breiðan hóp skjólstæðinga, sérstaklega fyrir unglinga eða fullorðinn, aldraðan aðila sem hefur vitræna getu sem og tilfinningalegt jafnvægi til að geta tekið þátt í viðtali. Fólk af ólíkum toga með ólík vandamál. Viðtal sem finnur út hvernig skjólstæðingurinn lítur á sitt eigið iðjulíf og virkjar hann til þess að meta sjálfan sig og til að taka þátt í íhlutunaráætlun og aðlögun á samfélaginu.

Matstæki sem gefur mynd af þátttöku skjólstæðings í iðju út frá 12 hugtökum:

Hlutverk

Venjur

Trú á eigin áhrifamátt

Gildi

Áhuga

Framkvæmdaþætti

Skammtímamarkmið

Langtímamarkmið

Túlkun fyrri reynslu

Efnisheim

Samfélag

Aðlögunarfýsni

sem tengjast Líkaninu um iðju mannsins (MOHO). Hjálpar að finna út hvað torveldar þátttöku viðkomandi í að sinna iðju sem er honum mikilvæg, metur þá þætti sem ýta undir eða draga úr iðju hans.

Það tekur skamman tíma að leggja það fyrir eða um 20-30 mín og 5-20 mín að vinna úr niðurstöðum sem auðveldar markmiðaða þjónustu. Fagaðilinn metur hvort og hvenær er við hæfi að nota OCAIRS og hann þarf að búa yfir góðri viðtalstækni og kunna matstækið vel og þá hugmyndafræði sem það byggir á.

Upplýsingar fengnar úr inngangi matstækisins/bláa bókin.

Íslensk þýðing og staðfæring Kristjönu Fenger. https://www.ii.is/fagid/matstaeki-og-verkfaeri/

Bókin Iðja, heilsa og velferð. Talað um matstækin þar.
https://rafhladan.is/bitstream/handle/10802/29626/I%C3%B0ja%2C%20heilsa%20og%20velfer%C3%B0.%20I%C3%B0ju%C3%BEj%C3%A1lfun%20%C3%AD%20%C3%ADslensku%20samf%C3%A9lagi.pdf?sequence=1

https://ocairs-forensic.pdffiller.com/

Iðjusaga (Occupational Performance History Interview OPHI-II)
Er skjólstæðingsmiðað matstæki sem er þróað innan Líkans um iðju mannsins (MOHO) og lýsir því hvernig einstaklingi hefur tekist að aðlagast sem iðjuvera í gegnum tíðina. Gefur heildarsýn á lífssögu einstaklinga og gefur mynd af iðjusjálfi, færni viðkomandi af iðju og umhverfi þess.

Viðtalsmatstæki sem er ætlað fyrir einstaklinga yfir 12 ára aldri á fjölbreytilegum starfsvettvangi og er auk þess öflugt rannsóknartæki. Gagnast einnig sem dæmi þeim sem kljást við mænuskaða, krónískan verkjavanda, MS, kæfisvefn, taugageðræna röskun. Upplýsinga er aflað í ca 40-75 mínútur í hálfstöðluðum viðtalsramma sem safnar upplýsingum um iðjusögu skjólstæðingsins og ætti að fara fram í góðu næði svo skjólstæðingurinn geti talað án þess að verða truflaður. Viðtalsramminn er með lista af spurningum, spurningum í flæðiriti og markorð í flæðiriti. Niðurstöður upplýsinga eru settar upp í samantekt, yfirliti og myndriti.

Það þarfnast ekki sérstakrar þjálfunar til að mega nota matstækið en nauðsynlegt að hafa aðgang að handbókinni https://moho-irm.uic.edu/default.aspx og kunna góð skil á Líkaninu um iðju mannsins og hafa öðlast góða færni í viðtalstækni.

Íslensk þýðing og staðfæring Kristjönu Fenger og Guðrún Pálmadóttir fæst hér https://www.ii.is/fagid/matstaeki-og-verkfaeri/

Upplýsingar héðan og úr inngangi matstækis/gula bókin

https://prezi.com/u2rnb_7basqa/occupational-performance-history-interview-ophi-ii/

MOHOST
Er matstæki fyrir fjölbreyttan markhóp skjólstæðinga sem hvetur til aukinnar iðjuþátttöku í daglegu lífi. Nýtist frá 18 ára og eldri eins og gigtarsjúklingum, einstaklingum með heila- og mænuskaða, króníska verki, parkinson, lungna sjúklingum og skjólstæðingum í endurhæfingu meðal annars eftir heilablóðfall.

Það er skjólstæðingsmiðað skimunarmat þegar iðjuþátttöku er ábótavant. Notaðar eru formlegar og óformlegar aðferðir sem geta tekið þjálfaðan meðferðaraðila frá 20-40 mín að framkvæma. Matstæki sem hentar vel í þverfaglegu teymi og sýnir heildarmynd af þátttöku í iðju skjólstæðingsins. Skoðaðir eru styrkleikar skjólstæðingsins útfrá áhrifa vilja, vanamynstri, framkvæmdaþátta og umhverfis á iðju.

MOHOST er notað sem hálfstaðlaður viðtalsrammi eða sem matslisti. Tekið er óformlegt viðtal eða notast við fastmótaðar spurningar við skjólstæðing eða aðstandenda. Þegar MOHOST er notaður sem staðalbundinn matslisti þá er matsblað fyllt út af meðferðaraðila. Einnig er áhorfi beitt sem formleg aðferð þar sem skjólstæðingi er fylgt eftir í athöfn eins og að laga kaffi. Þá eru 24 atriði metin, hvert þrep fyrir sig og  gefin eru stig á bilinu 4-3-2-1 og fundið út hvort og hvað sé að takmarka einstaklinginn í þátttöku til iðju. Hægt er að nota matstæki oft þ.e. í byrjun til að byggja íhlutun á, endurmeta og í lokin til að meta árangur.

Handbókin og matstækið er á ensku og fleiri tungumálum en er lauslega þýtt af Kristjönu Fenger og krefst engar þjálfunar til að mega leggja það fyrir.

Eftir mikla leit þá fannst ekki eyðublaðið á íslensku.

Hægt að finna form hér á ensku:
https://www.pdffiller.com/100419988-mohost-v2-0-uk-rating-formpdf-mohost-pdf-

Upplýsingar

https://moho-irm.uic.edu/default.aspx

https://www.sralab.org/rehabilitation-measures/model-human-occupation-screening-tool

Iðjulistinn (Occupational Questionnaire)
Er hálfstaðlaður spurningalisti undir áhrifum MOHO, er skjólstæðingsmiðaður þar sem einstaklingurinn skráir daglegar athafnir sínar og svarar spurningum um þær. Hann sýnir okkur athafnamynstur og hvernig athafnir okkar dreifast yfir mismunandi iðju eins og störf, eigin umsjá, upplyftingu, hvíld og hvernig einstaklingurinn metur frammistöðu sína við þessar athafnir.

Þessi listi er oft notaður í endurhæfingu og upplýsir hversu vel skjólstæðingurinn telur frammistöðu sína vera við athafnir, hvaða gildi þær hafa fyrir hann og hversu mikla ánægju þær veita viðkomandi.

Þýtt af Guðrúnu Pálmadóttur, Kristjönu Fenger og Sigríði Jónsdóttur.

https://moodleprev.unak.is/mod/resource/view.php?id=149426

OSA (Occupational Self Assesment)
Óstöðluð matsaðferð með mati á eigin iðju og er byggt á hugmyndafræði Líkansins um iðju mannsins. Það er talið henta fyrir alla skjólstæðinga frá 18 ára aldri og einnig fyrir eldra fólk sem eiga við einhver vandamál að etja í daglegri iðju. Má nefna einstaklinga með lélegt innsæi, sjón- og heyrnarskerðingu, lestrarvandamál og skerta vitræna getu.

Matstækið samanstendur af alls 21 athöfn sem tengist daglegri iðju. Það tekur um 15-30 mín að fylla það út.

Upplýsingum er aflað með sjálfsmatslista sem skjólstæðingurinn fyllir út sjálfur og lýsir upplifun hans af færni við athafnir og þátttöku og tilgreinir hversu mikið gildi athöfnin/þátttakan hefur fyrir hann. Skjólstæðingur forgangsraðar viðfangsefnum og setur sér markmið í samstarfi við iðjuþjálfa þar sem iðjuþjálfi virðir sjálfsákvörðunarrétt hans og eflir hann til að auka færni sína og kemur með lausnir við færnivanda.

Listinn hefur verið þýddur yfir á íslensku og heitir Mat á eigin iðju og notaður víða eins og á Reykjalundi og LSH en tókst okkur ekki að finna hann.

https://occupational-self-assessment-pdf.pdffiller.com/

https://www.sralab.org/rehabilitation-measures/occupational-self-assessment

Hægt að fylla inní matslistann á ensku online:
https://www.pdffiller.com/jsfiller-desk18/?requestHash=95c6f73d1b12ffeb04e89659aacccf02bb83d7fb356390c740d7ec67203297ef&projectId=975999381&loader=tips&replace_gtm=false#173e35d00bd0453f8125f619e565d960

Framkvæmdagreining
Þetta er staðlað matstæki og er nákvæm greining á iðjuvanda sem byggist á áhorfi.
Við framkvæmdagreiningu er skjólstæðingur beðinn um að framkvæma eitthvað verk, t.d. að laga kaffi og hella sér í bolla, og iðjuþjálfinn metur framkvæmdaþætti með hliðsjón af hreyfingu og verkferli. Einnig er metið heildargæði framkvæmdar í fjórum flokkum, áreynsla, skilvirkni, öryggi og tíðni aðstoðar.
Í lok áhorfs er gerð samantekt á þeim framkvæmdaþáttum sem hafa neikvæð eða jákvæð áhrif á framkvæmd verksins og þeir þættir svo tengdir við heildargæði framkvæmdar í stuttri samantekt.
Matstækið er til í íslenskri þýðingu og hér er hægt að sjá upplýsingar um matstækið: https://www.landspitali.is/sjuklingar-adstandendur/deildir-og-thjonusta/idjuthjalfun/matstaeki/
Hér er linkur á eyðublaðið sjálft: https://moodleprev.unak.is/mod/resource/view.php?id=158854