Mótun skólastefnu fyrir Þingeyjarsveit: Íbúafundur í Skjólbrekku - hópur 1 by Ingvar Sigurgeirsson

1. Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála í sveitarfélaginu?
Tel að akkúrat núna sé húsnæðisskortur helsta vandamálið, ásamt fyrirsjáanlegum kennaraskorti í framtíðinni þar sem margir kennarar eru komnir á elsta skeið. Opnari sýn gagnvart nýsköpun og framþróun á menntun vantar, útfærsla á fjarkennslu, t.d. Þó krakkar séu í minni hópum dagsdaglega þá væri gott að geta gefið þeim möguleikann á samveru og samkennslu.

Nemendaskortur er alvarlegur, veikir árgangar (1-4 einstaklingar). Nemendur verða að hafa samanburðinn í kennslu, íþróttum og tómstundum til að þroskast vel - samkeppnishæft umhverfi.  Það er vandamál sem lagast alls ekki ef húsnæðisskortur verður áfram og bera fer á kennaraskorti. Núverandi samstarf (tilraunaverkefnið) er virkilega gott og vert að skoða áfram. Erum að reka góða grunn- og leikskóla en starfsmannaskortur hefur óhjákvæmilega áhrif.

Starfið er býsna gott en húsnæði - húsnæði - húsnæði. Það hefur sínar afleiðingar því húsnæðisskortur og kennaraskortur helst í hendur. Hver skóli hefur sitt og er að sinna því mjög vel en spurning hvort ekki sé hægt að efla samstarfið enn betur. Þá verður sveitarstjórn að hafa í huga að mannauðurinn skiptir miklu máli. Aukafæðingarstyrkur, íþróttastyrkur osfrv eins og var í mannauðsstefnu Skútustaðahrepps.

2. Hverjir eru helstu styrkleikar?
Helstu styrkleikar er mannauðurinn sem við höfum. Erum með ótrúlega flotta kennara í öllum skólunum og ofboðslega flott skólastarf sem þau eru að vinna.

Staðsetningin okkar er ómetanleg og við höfum svo ótrúlega mikla möguleika í að nýta umhverfið meira, náttúrulæsi, læra að þekkja umhverfið osfrv. Umhverfisfræði og náttúruvernd.
Starfsmannahópurinn er náinn og það er mikill styrkleiki, bæði í leik- og grunnskóla og það eru allir tilbúnir að vinna saman til að búa til góða einstaklingar.

Lítið samfélag, litlar einingar osfrv hafa sína kosti. Öruggt og þægilegt umhverfi og nálægð við náttúruna. Samstarfið við íþróttafélagið er stórkostlegt og samþætting skóla og frístunda er frábær. Frír morgunmatur í skólanum, frír hádegismatur, frístund eftir skóla, skólinn byrjar klukkan 8:30 - þetta er allt frábærir kostir.

Samþætting skóla og tónlistarskóla er ofboðslega flott. Að krakkar geti fengið að læra á hljóðfæri á skólatíma er til fyrirmyndar.

3. Hvaða er brýnast að bæta?
Húsnæðisskortur, og þar af leiðandi starfsmannaskortur er brýnast að bæta. Brýnt að bæta leikskólahúsnæðið fyrir komandi árganga, það er sprungið. Grunnskólahúsnæðið er frekar óhentugt, stór rými en ekki fleiri minni rými. Er hægt að gera eitthvað í grunnskólanum til að stúka meira af? Sameiginleg kaffistofa fyrir leik- og grunnskólastarfsfólk, það skiptir svo miklu máli fyrir móralinn. Bæting á útisvæði, semsagt bæði útikennslusvæðinu og báðir leikvellir. Þá skortir upp á lýsingu. Tryggja aðgengi gangandi á milli skólans og ÍMS, t.d. loka hringakstrinum í kringum skólann.

Sundkennslu er ábótavant, það vantar sundlaug fyrir skólasund.

Brýnt er að bæta samstarf milli skóla á grunn- og leikskólastigi og að bæta samstarf milli skólanna þriggja - spurning hvort hægt sé að nýta mismunandi skóla fyrir mismunandi skólastig?

Nauðsynlegt er að bæta tónlistarskólastarfið, bæði með því að auka hljóðfæraval og að koma yngsta stiginu í virkt tónlistarstarf strax við upphaf skólagöngu eins og tíðkaðist fyrir nokkrum árum. Leikskólastigið ætti einnig að fá að prófa og reyna sig við hljóðfæri.

Sveitarfélagið þarf líka að taka þátt í því að efla starfsmannahópinn í þeirra starfi. Starfsmenn allra skólanna þurfa að fá tækifæri til að efla samstarfið.

4. Hvaða sóknarfæri sjáið þið helst? Hvernig viljið þið þróa starfið? Í skólanum ykkar? Í sveitarfélaginu?
Gríðarlegt sóknarfæri felst í sameiginlegu unglingastigi á Laugum.
Sóknarfærin er samstarfið milli skóla og gera skólana þrjá nokkurn veginn að einni heild þrátt fyrir þrjár starfsstöðvar. Þetta þarf að vera á öllum skólastigum til þess að efla alla nemendur, frá 1.-10. bekk. Sameiginlegur námsvísir fyrir alla skólana.

Það er sóknarfæri að allir þrír skólarnir hafa sína sérstöðu og hana þarf að efla. Útikennsla í Mýv, tónlistarkennsla í Þing og umhverfishugsun á Stórutjörnum.

Flæði kennara (allra, tónlistar líka) og stoðþjónustu milli skóla - að hver aðili geti stigið inn í næsta skóla og unnið þar. Mikið sóknarfæri er í samstarfi um náttúrukennslu við stofnanir á svæðinu, t.d. Rannsóknarstöðina við Mývatn, Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarð. Fáum vísindamennina til að koma og kynna krakkana fyrir þessu einstaka umhverfi sem við búum í. Þá felast einnig gríðarleg tækifæri í nýtingu á landi sveitarfélagsins á Kálfaströnd í samhengi við náttúrukennslu, náttúrulæsi, umhverfisvitund og fleira.

Opna á tækninýjungar, nauðsynlegt fyrir krakka að læra strax á það og umgangast tækin á eðlilegan hátt.

Það eru sóknarfæri í Reykjahlíðarskóla að hafa teymisvinnu. Sé fyrir mér að þetta yrði frjórra og kennslan yrði virkari.

Mikil sóknarfæri felast líka í öflugu foreldrastarfi í skólunum, þ.e. að foreldrar séu þátttakendur í skólastarfinu sjálfu.

6. Hafið þið skoðanir á skólaskipan - og ef svo hverjar?
Koma á miðlægum stjórnanda sem hefur yfirumsjón yfir skólunum (leik-, -grunn- og tónlistarskólum), ber ábyrgð og tryggir samþættingu milli skóla. Undir honum starfa deildarstjórar/skólastjórar sem eru með sinn skóla.
Að okkar mati ætti að aðskilja stjórnun í leik- og grunnskóla.
Sameiginleg kennsla á unglingastigi á Laugum er nauðsyn og þarf að hefja útfærslu sem allra fyrst. Með því að koma af stað unglingadeild á Laugum er verið að brúa bilið á milli grunn- og framhaldsskóla. Þetta myndi eflaust styrkja framhaldsskólastigið á Laugum enn frekar. Þessu tengt mætti líka skoða það að ekki eru allir 16 ára krakkar tilbúnir til að fara á heimavist og gætu þá nýtt skólabílinn sem er hvort sem er á ferðinni.
Sameina öll stig í íþrótta- og sundkennslu 1 x í viku á Laugum á vorin og haustin. Nauðsynlegt að gefa krökkunum tækifæri á að æfa sig í að spila hópíþróttir.
Verðum að halda flæðinu áfram milli leik- og grunnskóla, ekki einungis varðandi starfsfólk heldur líka nemendur. T.d. að geta valið leikskólastarf í vali. Ráða starfsmenn sem nýtast á báðum skólastigum, eru ekki eyrnamerktir öðrum skólanum. Þetta mætti líka skoða varðandi samnýtingu starfsfólks sveitarfélagsins milli stofnana, t.d. líka ÍMS.

7. Hvernig viljið þið sjá skólastarfið eftir fimm til tíu ár? Hvað viljið þið helst að einkenni það?
Gott samstarf og fullmannaðar stöður, það gerir starfið aðlaðandi og heldur einstaklingum frekar í starfi. Góð mannauðsstefna er nauðsynleg.
Að börnin séu hamingjusöm og virkt félags- og tómstundastarf einkenni skólana. Gott flæði  verði milli úti- og innikennslu, umhverfið nýtt til hins ítrasta við kennslu. Að aðstaðan sé bætt, inni og úti.
Að nemendur taki meiri ábyrgð á sínu námi og beiti sjálfstæðari vinnubrögðum.
Að tæknin sé nýtt í fjarkennslu og að kennararnir fái tækifærin til að sækja sér þekkingu á því sviði.
Að heilsueflandi samfélag og skólar séu í forgrunni skólastarfsins og að skólinn vinni eftir umhverfisstefnu.

5. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur samstarf skólanna og við kennara í nágrannasveitarfélögunum?
Nýta tæknina. Segjum sem svo að það sé frábær eðlisfræðikennari á Þórshöfn þá væri hægt að nýta hæfni hans með fjarkennslu+staðkennslu.
Menntabúðir fyrir starfsfólk á Norðurlandi eystra. Kynna sér starfsemi hinna skólanna, endurmenntun, hugmyndabanki og sækja eflingu til annarra kennarra.
Skólabúðir fyrir nemendur, hvort sem það er á Reykjum eða Norðurlandi eystra.

Aftur á aðalsíðu