1. Hvað er Byrjendalæsi by Anna Sigrún Rafnsdóttir

Byrjendalæsi
Síðan haustið 2006 hefur kennsluaðferðin Byrjendalæsi verið kennd í 1. og 2. bekk. Það má segja að vagga Byrjendalæsis sé á Akureyri. Rósa Eggertsdóttir sem þá var starfsmaður við Háskólann á Akureyri mótaði og þróaði þessa aðferð. Lundarskóli, Oddeyrarskóli og Síðuskóli voru fyrstu skólarnir til að kenna eftir þessari stefnu og síðan hefur hún breiðst um landið.  Þessi aðferð er samvirk aðferð þar sem unnið er með lestur, tal, ritun og hlustun á heildstæðan hátt.  Unnið er með gæðatexta sem ýtir undir ímyndunarafl nemenda og kveikir áhuga þeirra á að fræðast meira um textann. Unnið er með þennan texta í viku til hálfan mánuð, þar sem verið er að þjálfa m.a. stafavinnu, hljóð stafanna, orðaforða, skilning og ritun af ýmsu tagi. Í rituninni er m.a. lögð áhersla á það að búa til sögur með orðaforða sem þau hafa tileinkað sér í gegnum textann sem unnið er með. Unnið er með hugtakakort út frá ákveðnu þema í textanum (Jenný Gunnbjörnsdóttir, Rósa Eggertsdóttir og Þóra Rósa Geirsdóttir, 2010).

Þegar Byrjendalæsi var að stíga sín fyrstu skref í grunnskólum landsins var fyrsta spjaldtölvan ekki komin á markað þannig að kennsluhættir miðuðust ekkert við notkun hennar.  Það sem kennarinn hafði var m. a. töflutúss, tafla, blýantur og blöð. Það er lögð mikil áhersla á að nemendur séu að skrifa sjálfir textann sem þeir eru að vinna með. Fyrir þá sem eru lengi að skrifa verður það til þess að þeir komast yfir minna efni en þeir gjarnan vildu vera að vinna með. Núna hefur spjaldtölvan verið að ryðja sér til rúms í grunnskólum landsins.  Möguleikar hennar til að létta nemendum ákveðin verk eins og að skrifa eru ótæmandi. Komin eru forrit sem hjálpa nemendum við að búa til hugtakakort og mörg frábær forrit til sögugerðar hafa litið dagsins ljós sem geta hjálpað nemendum sem eru í erfðileikum með að skrifa. Þessi forrit eru að sjálfsögðu þannig uppbyggð að þau nýtast öllum nemendum hvort sem þeir eru komnir vel á veg eða styttra í sínu námi (Jenný Gunnbjörnsdóttir, Rósa Eggertsdóttir og Þóra Rósa Geirsdóttir. 2010). Byrjendalæsi, lestur eða læsi. Skíma 2 (10): s. 26-29.

Í úrvinnslu og enduruppbyggingunni í BL er mikið notað sögugerð og hugtakakort. Ég sjálf hef kennt eftir þessari aðferð í 10 ár og sé að margir nemendur koma oft litlu efni frá sér vegna þess að þau eru hæg að skrifa. Vegna þessara þátta vil ég taka Book Creator og Simple mind forritin inn í BL og vinna með þau.

Book Creator

Book Creator er forrit til að búa til rafbækur það má gefa rafbókum sínum líf á nokkra vegu. Auk hefðbundins textaleturs er hægt að handskrifa orð. Það má flytja inn myndir úr galleríinu og af netinu eða hreinlega teikna þær inni í sjálfu forritinu. Það má einnig setja inn hljóðskrár og/eða nota myndskeið sem hluta af bókarhönnuninni. Þannig að þegar búa skal til rafbók má hafa hana í hefðbundnum stíl eða virkilega breyta út af vananum og gera hana óvenjulega og frumlega.

Simple Mind /mind mup

Hugarkort sem eru þannig uppbyggð að hægt er að setja fram viðfangsefni með lágmarksnotkun orða einnig er hægt að setja inn myndir. Ákveðin orð, tákn eða myndir draga þekkingaratriði fram úr minninu. Annað einkenni hugarkorta er að þau eru kort sem veita yfirsýn yfir eitthvert ákveðið viðfangsefni og góð leið til að meta skilning á eftir kennslu á ákveðnu viðfangsefni.  Í spjaldtölvu er svo auðvelt að breyta í stað þess að ef nemendur eru að gera þetta á blaði þá eru þau alltaf að stroka út og oft í lokin er blaðið þeirra orðin ein klessa. Annað vandamál er það að þau byrja á einum stað og svo er blaðið ekki nógu stórt. Í spjaldtölvu er þetta ekki vandamál.

Viðtal við Rannveigu og Rúnar um Byrjendalæsi

Fræðslumyndband um Byrjendalæsi

BÓKIN

Frumkvöðullinn af því að taka saman allar þessar aðferðir og setja undir einn hatt