Hvalurinn er fastur. by Elísabet Kristín Kristmundsdóttir

Hvalurinn er fastur
Hvalurinn er fastur er fyrsta myndabók höfundanna Charles Fuge og Karen Hayles sem þau semja saman. Bókin er tilvalin fyrir yngsta stig grunnskólans þar sem hún er fallega myndskreytt og textinn auðlesinn. Hvalurinn er fastur fjallar um hval sem elskar að synda í sjónum og stökkva upp á yfirborðið og njóta sólarinnar. Einn daginn stekkur hann svo hátt að hann festist á ísjaka og kemst ekki ofan í sjóinn aftur. Smám saman fjölgar fiskum, fuglum, rostungum og allskyns sjávardýrum í kringum hvalinn og allir hjálpast að við að koma honum aftur í sjóinn. Í fyrstu gengur mjög illa en eftir því sem líður á daginn skín sólin heitar sem gerir það að verkum að ísjakinn bráðnar. Hvalurinn og allir vinir hans detta ofan í sjóinn með fagnaðarlátum. Sagan sýnir fallegan boðskap þar sem vinátta og samstaða er einkennandi og ná myndskreytingarnar að lýsa hverju augnabliki.

Hvalavefurinn
Hvalavefurinn er mjög sniðugur vefur á vegum Rúv. Þar er í boðið upp á fjöldan allan af fræðsluefni um hvali, ýmsar hvalasögur sem hægt er að lesa og spila fullt af skemmtilegum leikjum á borð við teiknileiki, samstæðuspil og púsl. Auk þess er þar að finna ýmsar hugmyndir af föndri sem hægt væri að nýta í kennslu. Hér er hægt að nálgast vefinn:  http://servefir.ruv.is/hvalir/hvalir/index.htm

Hvers vegna þetta efni?
Við völdum þetta efni þar sem börn á yngsta stigi hafa mikinn áhuga á sjávarlífinu. Bókin Hvalurinn er fastur væri góð kveikja í kennslu fyrir yngsta stig grunnskólans. Kennari myndi lesa bókina fyrir nemendur hugsanlega í heimakrók og sýna þeim myndirnar, þannig vekur hann áhuga nemenda sinna á námsefninu þar sem börn elska að hlusta á sögur og skoða myndirnar í leiðinni. Útfrá sögunni myndi kennarinn koma með ýmis verkefni handa nemendum sínum í tengslum við hvali, en verkefnin gætu tengst hvaða fagi sem er.

Vettvangsferð á hvalasafnið
Þar sem hvalasafnið í Reykjavík var nýverið opnað væri tilvalið að tengja það námsefninu og fara með nemendur í vettvangsferð á safnið. Sýningin er talin stærsta hvalasýning í evrópu og er mjög vinsæl hér á landi. Á safninu myndu nemendur læra meira um hvali og sjá þá í raunverulegri stærð. Með heimsókn á safnið myndu nemendur fá að kynnast efninu á sjónrænan og gagnvirkan hátt og fræðast þá enn meira um viðfangsefnið. Hér er hægt að fara inn á síðu hvalasafnsins og bóka sýningu.
http://whalesoficeland.is/heim

Samþætting námsgreina
Hvalaþemað væri hægt að nota í alls kyns námsþáttum skólans t.a.m. í stærðfræði væri hægt að leggja saman, draga frá og telja hvali. Í textílment væri hægt að kenna nemendum að hanna og sauma hvalapúða. Í myndmennt væri tilvalið verkefni að teikna sína eigin útgáfu af hval og í náttúrufræði væri hægt að kenna nemendum almennt um hvali, lengd þeirra, afkvæmi, mismunandi tegundir og líftíma.
Hér má sjá sniðuga hugmynd af textílverkefni fyrir nemendur.

Kennsluaðferð
Það eru nokkrar kennsluaðferðir sem gætu komið til greina til að kenna þetta kennsluefni. Okkur fannst sniðugt að nota flokkinn sem nefnist sjálfstæð og skapandi viðfangsefni. Sú kennsluaðferð gerir miklar kröfur á nemendur til að vinna sjálfsætt og vera skapandi í umfangsmiklum verkefnum. Þar er kennarinn aðallega í því hlutverki að vera leiðbeinandi. Það er hægt að tengja svona stórt verkefni inn í margar námsgreinar í einu og þá er algengt að vinna með ákveðið þema. Það er hægt að tengja ýmsar kennsluaðferðir inn í þemavinnu, þar má nefna „leitaraðferð“ og „hópavinnuaðferð“. Þemavinna þarf á góðum undirbúningi og samþættingu að halda til að framkvæma hana vel. Nemendur á yngsta stigi hafa yfirleitt gaman af því að fræðast og skapa um ákveðið þema í ákveðinn langan tíma. Þau verða oftar en ekki mjög spennt að læra eitthvað nýtt um viðfangsefnið á skemmtilegan hátt og því er þemavinna tilvalin aðferð til að nota í kennslu til að fjalla um ákveðið efni eins og t.d. um hvali.

Krækjur:
http://servefir.ruv.is/hvalir/hvalir/index.htm

http://whalesoficeland.is/heim

Hvalir
Menntamálastofnun gaf út bókina Hvalir en hún er þriðja bókin í lestrarflokknum Milli himins og jarðar. Bókin er miðuð inn á nemendur á yngsta stigi grunnskólans. Bókin yrði góð fræðslubók fyrir þetta stig þar sem hún er auðlesin og gefur upp helstu upplýsingar um hvali og einkenni þeirra.

Upplýsingatækni
Ef bæta þyrfti upplýsingatækni við barnabókaverkefnið væri hægt að nota stöðvavinnu sem uppistöðu. Á hverri stöð gæfist þeim tækifæri á að vinna með ipada eða tölvur þar sem þau þreyta ýmiss verkefni tengd viðfangsefninu(hvalir). Þá væri hægt að hafa þetta í 2 kennslustundum og samþætta önnur verkefni inn í sem tengjast ekki upplýsingatækni. Mikilvægt er að láta tæknina ekki yfirtaka alla aðra verkefnavinnu, þó svo að hún sé fjölbreytt og skemmtileg. Hægt er að búa til allskonar skemmtilega námsleiki, sem reyna á rökhugsun, samvinnu og sjálfstæð vinnubrögð.