Kennsluáætlun by Anna Krissa

VIÐFANGSEFNI
Viðfangsefnið sem við viljum vinna með í kennslunni okkar er sjórinn og sjávarlífið. Okkur finnst mikilvægt að börn fái að kynnast heiminum frá ungum aldri, og þar sem við sjáum ekki ofan í sjóinn með berum augum finnst okkur gráupplagt að þau fái að kynnast sjónum með öðrum hætti. Það er hægt að gera svo margt til að kenna börnum um sjávarlífið, og margskonar aðferðir eru til með endalausum möguleikum. Kennslan okkar gæti hentað fyrir börn á aldrinum 3-6 ára. Hugmyndin okkar eru að börnin kynnist lífverunum í sjónum, gróðrinum í sjónum og læri um leið mikilvægi þess að menga ekki sjóinn. Við erum með ýmis konar hugmyndir til þess að útfæra kennsluna sem kemur fram hér síðar.

GRUNNÞÆTTIR SEM TENGJAST VIÐFANGSEFNINU
Viðfangsefnið okkar væri hægt að tengja við alla grunnþættina en þá aðallega sköpun og sjálfbærni.

Sköpun: Eins og segir í aðalnámsskrá leikskóla þá á nám sér stað þegar einstaklingur vinnur með áreiti, tengir það fyrri þekkingu og skapar nýja. Við erum öll með meðfædda forvitni sem er frábært þegar kemur að því að upplifa nýja þekkingu, eins og að skoða sjávarlífið. Þegar börnin fá að upplifa að "vera ofaní" sjónum í gegnum þrívíddargleraugu eða þrívíddarbækur þá uppgötva þau svo margt og það getur vakið ímyndunarafl þeirra til þess að skapa út frá því sem þau sjá. Það væri t.d. hægt að rétta öllum börnunum blað og liti til þess að búa til mynd eftir að þau hafa skoðað og þar sjáum við sköpununa sem kemur fram út frá því sem þau sáu. Ímyndunaraflið okkar getur verið svo margskonar og enginn hugsar eins, svo það er forvitnilegt að sjá hvað þau ímynda sér út frá sjónum og sjávardýrunum.

Sjálfbærni: Eins og kemur fram í aðalnámskrá leikskóla þá er algengasti skilningur á hugtakinu sjálfbærni að við skilum umhverfinu til afkomendanna í ekki lakara ástandi en við tókum við því. Þegar við sýnum börnunum sjóinn og sjávarlífið þá fá þau að upplifa heim sjávardýranna sem þau geta ekki séð með berum augum. Við getum svo frætt þau í leiðinni og þau skoða hvað mengun getur gert, t.d. hvaða áhrif hefur það ef við hendum rusli í sjóinn? Ef við notum of mikla sápu o.s.frv. Þetta vekur börnin til umhugsunar og getur leitt til þess að þau taki skynsamar ákvarðanir hvað varðar umhverfið sitt, alveg frá ungum aldri.

HÆFNIVIÐMIÐ
HÆFNIVIÐMIÐ 1:  Barnið hefur sýn á því hvernig umhverfi hafsins lýtur út.
- Í leikskólanum læra börnin um umhverfi sitt og hér er tækifæri á því að sjá hafið frá öðru sjónarhorni. Það getur verið svo spennandi og mikil upplifun að fá að sjá það sem ekki er hægt að sjá með berum augum sem leiðir til þess að barnið getur fengið dýpri skilning.

HÆFNIVIÐMIÐ 2: Barnið áttar sig á því að það á ekki að menga sjóinn.
- Þetta hæfniviðmið tengist sjálfbærni að miklu leyti þar sem að barnið sér hvernig hafið er og upplýsist um mikilvægi þess að halda því hreinu fyrir lífverurnar í sjónum. Þegar við fræðum börnin um hafið og áhrifin sem mengun getur haft í för með sér þá átta þau sig á því að það er mikilvægt að hugsa vel um náttúruna.

HÆFNIVIÐMIÐ 3: Barnið hefur fengið reynslu á því að nota upplýsingatæknina til að sjá hluti frá öðrum sjónarhornum.
- Á leikskólaaldri hafa börn ekki endilega skilning á því hvernig upplýsingatækni virkar en gott er fyrir þau að sjá möguleika hennar.

MARKMIÐIN OKKAR
Hverju viljum við ná fram sem kennarar með því að;
Vinna með þetta viðfangsefni: Við viljum ná fram áhuga barnanna á hafinu og sjávarlífinu ásamt því að brýna fyrir þeim mikilvægi þess að halda hafinu hreinu. Við viljum fræða börnin um dýrin í sjónum og heimili þeirra, gróðurinn og áhrif mengunnar.
Vinna með þessa grunnþætti: Sköpun og sjálfbærni eru mikilvægir grunnþættir sem hægt er að efla með margvíslegum hætti. Börnin geta skapað óendanlega mikið út frá því sem þau læra og sjá í sambandi við þetta viðfangsefni. Einnig ýtir viðfangsefnið mikið undir sjálfbærni þar sem að fræðsla vekur mikla umhugsun og getur leitt til skynsama ákvarðanna frá ungum aldri.
Nota tiltækin verkfæri í UT: Með þessum verkfærum sem við viljum nota geta börnin séð það sem ekki er hægt að sjá í venjulegum kringumstæðum. Verkfærin ýta einnig undir forvitni barnanna og gerir lærdóminn skemmtilegann og meira spennandi fyrir þeim.

NÁMSUMHVERFIÐ
Verkefnið er unnið í litlum hópum í afskekktu rými þar sem er mögulegt að loka sig af. Unnið er annað hvort við borð eða setið saman á dýnu á gólfinu. Öll börnin fá að prófa þrívíddargleraugun og gott væri ef hægt væri að varpa því sem er að gerast í símanum upp á vegg.

DÆMI UM VERKEFNI
Fyrsta verkefni sem við myndum setja fram fyrir börnin væri að rétta þeim blað og liti eftir þrívíddarlestrarstund og biðja þau um að teikna einhverja lífveru og gróður sem þau sáu og þeim fannst vera fallegt. Þetta verkefni opnar fyrir marga sköpunarmöguleika og með þessu þá verður lestrarstundin enn eftirminnilegri.

UT VERKFÆRI
þrívíddargleraugu: Okkur finnst frábær hugmynd að nota þrívíddargleraugu til þess að læra vegna þess að það örvar fleiri skilningarvit, það vekur mikinn áhuga og forvitni barnanna að geta séð á meðan þau hlusta, og þetta getur líka hjálpað börnum sem eiga í erfiðleikum með að halda athygli við það eitt að hlusta. Við ímyndum okkur að það yrði mjög gaman að lesa fyrir þau sögu á meðan þau horfa ofan í sjóinn því það er svo mikil upplifun fyrir þau að hlusta og horfa bæði í einu og þessi upplifun gæti skilið meiri lærdóm eftir heldur en það eitt að hlusta.

Þrívíddarbækur:  Hvað er meira spennandi en að gera farið inn í söguna sem er verið að lesa? Þrívíddarbækur eru algjör snilld og við sjáum fram á að þær geti haft mjög góð áhrif á lærdóm barna. Við ímyndum okkur að það væri ótrúlega gaman að skipta börnunum niður í nokkra litla hópa og hafa þrívíddarlestrarstundir með þeim. Bækurnar eru þannig að lesin er saga og á nokkrum síðum er hægt að skanna merki inn í ipad svo að bókin "lifnar við" og myndirnar sjást á skjánum í þrívídd. Þetta getur haft svo ótrúlega marga kosti í sér m.a. þetta vekur mikla athygli svo börn sem eiga erfitt með að halda athygli í venjulegum lestrarstundum gætu átt auðveldara með að fylgjast með, þetta líkt og þrívíddargleraugun örvar fleiri skilningarvit svo að efnið sem verið er að lesa um gæti komist betur til skila þar sem þetta er eftirminnileg og spennandi upplifun fyrir börnin. Við teljum að þrívíddarbækur geti vel dýpkað skilninginn hjá börnunum og þau upplifa sögurnar á skemmtilegann hátt. Þetta er eitthvað sem við viljum mjög gjarnan vinna með í okkar starfi.

Þessi bók (sjá mynd) er t.d. algjör snilld. Þetta er þrívíddarbók um dýrin í sjónum, maður hleður niður fríu appi til þess að skanna myndirnar og þegar myndirnar eru skannaðar í síma eða ipad þá kemur nafnið á dýrinu og nöfnin á öllum líkamspörtum þess og hægt er að skoða myndina í 360 gráðu sjónarhorni með því að snúa henni með fingrunum.

ÖPP
OCEANIA - SEA ANIMALS STORY AND GAMES FOR KIDS
Oceania appið er leikur sem hentar börnum. Það er mjög margt sem leikurinn inniheldur, leikir, þrautir, og lærdómur um sjávardýrin. Sagan er þannig að sá sem spilar er strákur (Rooney) og strákurinn og vinir hans í sjónum þurfa að hjálpast að við að hreinsa sjóinn vegna mengunar. Þau taka ruslið og hreinsa til og svo meðfram því er hægt að ýta á hvert dýr og læra um það, hvað það heitir og hvað það gerir. Leikurinn býður líka upp á litamöguleika þar sem hægt er að lita myndir af dýrunum.

Myndbönd

UNDERWATER SEA LIFE FOR KIDS
Þetta app er sérstaklega búið til fyrir börn á leikskólaaldri. Það eru þrír möguleikar í þessu appi sem eru; að læra (learn), para saman (match) og fanga (spot). Þegar ýtt er á læra þá er hægt að ýta á mismunandi dýr og þá kemur það dýr upp á skjáinn og play takki við hlið þess. Þegar ýtt er á play þá spilast fróðleikur um dýrið og á meðan getur barnið skoðað dýrið og snúið því að vild. Í match leiknum þá á að para saman tvö eins dýr. Í spot leiknum þá kemur fyrst mynd af dýrinu sem maður á að finna á skjánum og svo kemur stór mynd af sjónum og mörgum dýrum að synda og maður á að finna dýrið sem kom upp fyrst.

Myndbönd fyrir þrívíddargleraugu
Hægt er að finna ýmis konar myndbönd á youtube fyrir sýndarveruleikagleraugu. Ef maður leitar af "VR sealife" eða "virtual reality videos" þá koma upp svona tvískipt myndbönd. Sum þrívíddargleraugu hafa þann fídus að hægt er að setja símann inn í gleraugun og horfa þannig á myndbandið í þrívídd. Við höfum prófað svoleiðis gleraugu, þau eru frábær og það yrði ótrúlega gaman að leyfa börnunum að prófa þau.

Heimildir
3D 'n' Play. (2014, 12. mars). Ocean World 3D - Side By Side (SBS) [myndskeið]. Youtube. https://www.youtube.com/watch?v=K6xyPOttq7o&t=1s

Aðalnámskrá leikskóla 2011/2011

Awesome Video. (2017, 30. nóvember). 4K- The most beautiful coral reefs and undersea creature on earth [myndskeið]. Youtube. https://www.youtube.com/watch?v=nvq_lvC1MRY

Kennslustund