Félagsfælni by

Kvíðaraskanir
Félagskvíði, einnig þekktur sem félagsfælni, fellur undir flokkinn kvíðaraskanir. Kvíðaraskanir eru geðraskanir sem einkennast af viðvarandi og óhóflegum kvíða eða ótta. Þessi röskun getur haft veruleg áhrif á daglegt líf einstaklingsins og getur leitt til forðunarhegðunar.

Greiningar miðvið fyrir kvíðaraskanir
Þegar kvíðinn er farin að hafa áhrif á þitt daglega líf og valda þér langavarðandi vannlíðan þá ertu komin með of mikin kvíða. Greiningarviðmiðin eru þessu:

1.Mikill kvíði eða hræðsla við ákveðinn hlut eða aðstæður

2.Mælanleg kvíðaviðbrögð þegar viðkomandi er nálægt þeim hluti eða í þeim aðstæðum

3.Viðkomandi gerir sér grein fyrir að kvíðinn er meiri en aðstæður gera ráð fyrir  -  órökréttur, leiðir oft til þess að viðkomandi fer að fela kvíðann, sem veldur enn meiri kvíðaviðbrögðum

4.Markvisst reynt að forðast aðstæður eða hluti sem valda kvíða

5.Kvíðinn hefur truflandi áhrif á daglegt líf og kemur í veg fyrir að viðkomandi getur sinnt daglegum athöfnum eins og hann best vill.

Orsakir
Orsakir félagskvíða eru margþættar og geta verið einstaklingsbundnar. Helstu áhættuþættir eru:

Erfðir: Rannsóknir hafa sýnt að félagskvíði getur verið arfgengur, sem bendir til þess að erfðaþættir geti aukið hættuna á að þróa röskunina. ​Þetta á þá kannski meira við um kvíða almennt en það getur tekið birtingamynd félagskvíða

Umhverfisþættir: Neikvæðar félagslegar reynslur, svo sem einelti eða höfnun í vinahópum, í æsku eða einhverskonar vanræksla í æsku geta aukið líkur á félagskvíða. ​Mjög einangrað fólk t.d. fólk sem á enga vini eða fjölskyldu er einnig líklegri til að þróa með sér félagskvíða. fólk sem er með mjög lítið sjálfstraust og lítur mikið niður á sjálfan sig er líka mjög líklegt að þróa með sér félagskvíða.

Persónuleikaþættir: Einstaklingar sem eru feimnir eða ekki mjög félagslynd geta verið viðkvæmari fyrir félagskvíða.

Einkenni
Félagskvíði einkennist af:

Miklum kvíða í félagslegum aðstæðum: Einstaklingar upplifa mikinn kvíða eða ótta við að verða dæmdir á neikvæðan hátt af öðrum. ​þau hafa áhyggjur af því að óstöðuleikinn þeirra og kvíði sé mjög augljós og sjánlegur fyrir alla og veldur það því að einstaklingar geta byrjað að stama, roðna, titra og eikur það þannig kvíðann og þannig getur það farið í vítahring.

Forðunarhegðun: Þeir forðast oft aðstæður þar sem þeir gætu verið dæmdir eða metnir, svo sem að tala fyrir framan hóp eða mæta í félagslegar samkomur. ​í þeim aðstæðum sem þau geta forðast það að mæta finna þau fyrir mjög miklum kvíða sem getur líka leitt út í kvíðaköst.

Ofhugsun: Einstaklingur ofhugsar allar félagslegar aðstæður sem þau eru í þá getur það verið fyrir, eftir eða á meðan eða blanda af öllu

Líkamleg einkenni: Þetta getur falið í sér hraðan hjartslátt, svitamyndun, skjálfta eða roða.

Greiningar viðmið
Til að fá greiningu á félagskvíða þurfa þessi einkenni sem eru hér fyrir ofan að vera viðvarandi, yfirleitt í sex mánuði eða lengur, og valda verulegri truflun á daglegu lífi einstaklingsins.

Ólíkar birtinga myndir félagskvíða
Dæmi 1:
Stína glímir við mikinn og áberandi félagskvíða. Hún vill helst vera heima hjá sér og kvíðir því gríðarlega að fara í skóla eða vinnu. Þegar hún er í skólanum reynir hún að halda sig út af fyrir sig og gerir allt sem hún getur til að draga ekki athygli að sér. Hún einangrar sig svo mikið að hún á varla vini. Þegar hún þarf að tala fyrir framan hóp, tala í síma eða fara í ókunnar aðstæður, svitnar hún mikið, roðnar, stamar og í verstu tilfellum fær hún kvíðakast. Hún er með lítið sjálfstraust og sjálfsmat, hún er vandræðarleg, talar lágt og lítið.

Dæmi 2:
Lára glímir við félagskvíða sem er ekki eins áberandi. Hún mætir í skóla og vinnu alla daga og tekur jafnvel þátt í félagsstörfum eða dvelur oft í félagslegum aðstæðum. Út á við virðist hún opin, örugg og með gott sjálfstraust þegar hún talar fyrir framan hóp af fólki. Hún á marga vini, og það myndi ef til vill koma fólki á óvart að hún þjáist af félagskvíða.

Lára er hins vegar mjög fær í að fela kvíðann á bak við „grímu“ og virka á yfirborðinu mjög félagslega. Í raun upplifir hún sömu tilfinningar og Stína, en þær sjást ekki utan á henni. Á hverjum morgni finnur hún fyrir miklum kvíða og íhugar oft að sleppa því að mæta í skólann. Þegar hún er í félagslegum aðstæðum ofhugsar hún öll samskipti – túlkar hvert einasta líkamsviðbragð annarra, endurmetur eigin orð og hreyfingar, allt á meðan hún reynir að virka „eðlileg“.

Eftir langan dag í félagslegum aðstæðum, eða eftir að hafa talað fyrir framan hóp, fer hún yfir hvert einasta orð sem hún sagði og ofhugsar allar mögulegar túlkanir annarra á hegðun sinni. Þrátt fyrir að eiga vini sem hún treystir, er hún stöðugt að efast um hvort þeir finni hana í raun og veru skemmtilega eða hvort hún hafi sagt eða gert eitthvað vandræðalegt. Hún er föst í endalausri ofhugsun sem lamar hana félagslega.

í stuttum orðaum...
Á Íslandi eru ýmis meðferðarúrræði í boði fyrir þá sem glíma við félagskvíða:

Hugræn atferlismeðferð (HAM): Þetta er fyrsta val í meðferð við félagskvíða og hefur sýnt fram á góðan árangur. ​

Lyfjameðferð: Í sumum tilfellum eru kvíðastillandi lyf notuð samhliða sálfræðimeðferð.

það er hægt að losna við félagskvíða alveg með nógu miklum vilja og góðum úrráðum.

Hugræn atferlismeðferð (HAM)
Hvað felst í HAM?

HAM samanstendur af tveimur lykilþáttum:

Hugrænn þáttur – Breyting á hugsanamynstrum

Einstaklingar með félagskvíða eiga oft neikvæðar og ósannar hugsanir um sjálfa sig og aðstæður, t.d.:

„Ég mun verða sér til skammar.“

„Allir munu dæma mig ef ég tala.“

Í HAM lærir einstaklingurinn að greina og skora á þessar hugsanir, breyta þeim í raunhæfari og minna ógnvekjandi hugsanir.

Atferlisþáttur – Smám saman að takast á við kvíðavekjandi aðstæður

HAM inniheldur oft útsetningarmeðferð, þar sem einstaklingurinn æfir sig í að vera í félagslegum aðstæðum í litlum skrefum.

Þetta getur verið t.d. að hefja litla samræðu við ókunnugan, svara í símann eða halda ræðu í smærri hópi.

Markmiðið er að kenna heilanum að slík samskipti séu ekki eins hættuleg og hann telur.

Batahorfur með HAM

HAM er mjög árangursrík meðferð við félagskvíða.

Margir finna fyrir verulega minni kvíða eftir 10-20 skipti hjá sálfræðingi.

Áhrifin eru oft langvarandi, þar sem fólk lærir aðferðir til að stjórna kvíða til framtíðar.

Hvar er hægt að fá meðferð á Íslandi?
Hvar get ég fengið HAM á Íslandi?

HAM er í boði á nokkrum stöðum á Íslandi:

Heilsugæslan – Tilvísun til sálfræðings (yfirleitt biðlistar)

Sjálfstætt starfandi sálfræðingar – Margir sálfræðingar bjóða HAM (sjá salfraedingar.is)

Geðheilbrigðisteymi Landspítalans – Meðferð fyrir fólk með alvarlegri kvíðaraskanir

Námsráðgjafar/sálfræðingar í skólum – Sumir skólar og háskólar bjóða sálfræðiaðstoð með HAM

Netmeðferð í gegnum Mín líðan (minlidan.is) – Meðferð í gegnum netið

8 signs you might have social anxiety
https://youtu.be/MpovjH-06Uc?si=dWBVB0pqUnVXaAdD

Nokkrar sálfræði stofur á Íslandi
Sentia Sálfræðistofa

Reykjavík, Ísland

Býður upp á sálfræðiþjónustu, sálfræðilega athugun og meðferð, auk námskeiða fyrir börn og unglinga.

Sálfræðistofa Reykjavíkur

Reykjavík, Ísland

Veitir sálfræðimeðferð fyrir einstaklinga án þörf fyrir tilvísun frá lækni, með áherslu á persónulega þjónustu og ákvörðun meðferðarúrræða.

Sálfræðistofan Höfðabakka

Reykjavík, Ísland

Sinnir greiningu og meðferð við sálrænum vanda barna, unglinga og fullorðinna, auk fjölskyldu- og parameðferða.

Áfalla- og Sálfræðimiðstöðin

Reykjavík, Ísland

Þverfaglegur hópur fagaðila sem veitir árangursríka og gagnreynda meðferð við mismunandi vanda, þar á meðal einstaklingsviðtöl, hópmeðferð og handleiðslu.

SÓL Sálfræði og Læknisþjónusta

Reykjavík, Ísland

Sérhæfir sig í greiningu og meðferð helstu þroska- og geðraskana hjá börnum og ungmennum upp að 25 ára aldri.

Sálstofan

Reykjavík, Ísland

Vinnur með börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra, veitir ráðgjöf, meðferð og greiningar vegna tilfinninga- og hegðunarvanda.

Sálfræðingarnir ehf.

Reykjavík, Ísland

Þverfaglegt teymi fagaðila sem stuðlar að almennri geðheilsu og vellíðan einstaklinga og vinnustaða, með sérþekkingu í sálmeinafræði barna, ungmenna og fullorðinna.

Mín líðan

Netþjónusta, Ísland

Leiðandi í fjarheilbrigðisþjónustu, býður upp á staðlaðar netmeðferðir við þunglyndi, félagskvíða og lágu sjálfsmati, auk fjarviðtala við sálfræðinga.

Þetta er ekki tæmandi listi, en gefur yfirlit yfir nokkrar sálfræðistofur á Íslandi sem veita fjölbreytta þjónustu. Fyrir frekari upplýsingar um sjálfstætt starfandi sálfræðinga og stofur er hægt að skoða félagatalið á vefsíðu Félags sjálfstætt starfandi sálfræðinga.

Heimildir
Heilsuvera. (e.d.). Félagsfælni. https://www.heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/felagsfaelni/

Mín líðan. (e.d.). Hvað er félagskvíði?  https://www.minlidan.is/10-tima-medferdir/medferd-vid-felagskvida/hvad-er-felagskvidi/

Áfalla- og Sálfræðimiðstöðin. (e.d.). Félagskvíði. Sótt af https://asm.is/felagskvidi/

Guðmundsdóttir, K. & Guðmundsson, E. Þ. (2011). Félagsfælni og meðferð hennar. Læknablaðið, 97(11), 677-682. https://www.laeknabladid.is/tolublod/2011/11/nr/4367

Charlie Kelmeckis- Perks of Being a Wallflower
Hann er gott dæmi um karakter sem glímir við félagsfælni (ásamt öðrum geðröskunum). Hann vinnur samt hægt og rólega í því í gegnum myndina.