Ígrundunarverkefni by Sunneva María

Persónur
Selma Ýr: 36 ára frá Kópavogi og starfar sem kokkur
Yngvi Páll: 37 ára frá Kópavogi og starfar sem rafvirki
Ljósmóðurnemi: 28 ára mastersnemi frá Sauðárkrók
Sara: Gömul ljósmóðir. Hefur starfað í 30 ár á fæðingadeildinni
Ársól: Nýfætt stúlkubarn
Læknir: Læknir sem starfar á Landspítalanum

Sagan
Mikil hamingja og gleði spratt upp í litla húsinu við Lækjargötu, þegar tvær línur komu í ljós á óléttuprófinu. Selma var með tárin í augunum úr gleði en sömuleiðis var hún kvíðin og áhyggjufull. Hún vissi ekki hvernig hún átti að takast á við þetta nýja stóra verkefni. Selma og eiginmaður hennar Yngvi höfðu farið í gegnum grýttan veg eftir að hafa farið í gegnum tíu hormónameðferðir og endalaust af óléttuprófum. Selma kom æðandi inn í herbergið til Yngva með tárin í augunum og tilkynnti honum fréttirnar. Hún átti erfitt með koma í orð því sem hún vildi segja vegna mikilla tilfinninga. Yngvi brást vel við og var meira en tilbúinn í þetta verkefni. Meðgangan gekk vel, allt virtist vera ganga upp eins og í sögu. Henni leið eins og þetta væri of gott til að vera satt.

Örlagaríka morguninn 23. desember árið 2003 vaknaði Selma upp með mikla verki. Yngvi greip spítalatöskuna sem þau voru búin að útbúa og þau drifu sig út í bíl. Yngvi þurfti að skafa af rúðunni og mikill snjór var á götum Reykjavíkurborgar þennan morgun. Jólatraffíkin leyndi sér ekki, það gerði Selmu stressaða. Þegar komið var á Landspítalann tók á móti þeim ungur ljósmóðurnemi sem fylgdi þeim inn á fæðingarstofuna. Allt gekk hratt fyrir sig og í fimmta rembing kom fullkomið stúlkubarn í heiminn. Stúlkan tók brjóstið um leið og fann Selma strax fyrir móðurástinni og hamingjunni sem þessi litla stelpa átti eftir að færa hjónunum.

Fyrsta nóttin, þann 24. desember, gekk erfiðlega og grét stúlkan stanslaust alla nóttina. Nýbökuðu foreldrarnir vissu ekkert í hvorn fótinn þau áttu að stíga. Yngvi hringdi bjöllunni klukkan 5:24 og inn kom gömul ljósmóðir með kalt viðmót. Yngvi sagði við ljósmóðurina “litla stelpan okkar hættir ekki að gráta, hún er búin að drekka. Ekkert virðist róa hana niður”. Þá hreytti gamla ljósmóðirin “ég tek hana bara fram svo þið getið hvílt ykkur” og tekur stúlkuna úr höndum Selmu áður en þau ná að segja orð. Eftir að ljósmóðirin lætur sig hverfa með stúlkuna horfðu Selma og Yngvi á hvort annað með undrandi svip. Selma upplifði tómleika og ónotatilfinningu. Yngvi segir við Selmu “jæja, eigum við þá ekki bara að hvíla okkur ástin mín?” þreytulega. Selma ansar “jú ætli það ekki”. Hjónin leggja sig. Þau vakna um áttaleytið og ekkert bólar á litlu stúlkunni þeirra. Selma segir Yngva að hringja bjöllunni í snatri. Inn kemur ljósmóðurneminn sem tók á móti stúlkunni með hana í fanginu. Selma varð glöð þegar hún sá stúlkuna sína en segir áhyggjufull við ljósmóðurnemann “hver var með hana á meðan við sváfum?”. Ljósmóðurneminn svarar “engar áhyggjur, það var hún Sara. Hún er þaulvön og búin að vinna hérna í 30 ár”. Selma kinkar kolli og er létt eftir að hafa fengið stúlkuna sína í fangið. Samt sem áður finnur hún enn fyrir þessari ónotatilfinningu. Ljósmóðurneminn spyr léttilega “eruð þið eitthvað búin að hugsa um nöfn?” “já, við höfðum hugsað okkur að skíra hana Ársól” segir Yngvi glaður á svip.

Seinni part dags fá þau grænt ljós að fara heim eftir læknisskoðun með litlu Ársól. Það tók tíma fyrir nýbökuðu foreldrana að aðlagast breyttum aðstæðum með lítið stúlkubarn á heimilinu og var fjölskyldan hálf ringluð og dösuð. Selma átti erfitt með að finna til móðurástar gagnvart Ársól líkt og fyrst þegar hún fékk hana í hendurnar. Þetta er eitthvað sem hún þorði aldrei að viðurkenna fyrir neinum og var henni erfitt.

Í fimm daga skoðun þegar tekið er blóðsýni úr hælnum á Ársól ákveður Selma að biðja um blóðflokkagreiningu. Yngvi horfir hissa á Selmu og skilur ekkert hvaðan hún er að koma. Læknirinn tekur sýnið og segir niðurstöður koma inn á heilsuveru innan þriggja daga. Þegar komið var út í bíl segir Yngvi “um hvað snerist þetta með blóðflokkinn?” “æj, Yngvi. Mér finnst ég ekki bera sömu tilfinningar til þessa barns eins og ég gerði þegar ég fékk það í hendurnar fyrst. Ég vil bara vera fullviss um að þetta sé barnið okkar”. Yngvi segir “af hverju sagðirðu mér ekki frá þessu?”. Selma svarar honum ekki, bílferðin heim var óþægileg og þögul.

Niðurstöður komu inn á heilsuveru þremur dögum síðar. Í kjölfar þess hringdi læknirinn og boðaði þau á fund. Stress fyllti hjónin og mikil óvissa tók við. Læknirinn tók vel á móti þeim og bauð þeim að setjast niður. Andrúmsloftið var þrungið. “Ég er því miður ekki með góðar fréttir” segir læknirinn áhyggjufullur. “Niðurstöður úr blóðflokkagreiningu gefa það til kynna að þetta sé ekki barnið ykkar”. Selma fékk hnút í magann. Yngvi segir mjög reiður “það getur ekki verið, hver heldur þú eiginlega að þú sért”. Læknirinn svarar þá “Ársól er í blóðflokki A og þið eruð í B og O. Því er ekki möguleiki að þið séuð foreldrar hennar. Ég er hræddur um að spítalinn hafi gert mistök og sent ykkur heim með vitlaust barn, mér þykir þetta mjög leitt”. Læknirinn var með kökk í hálsinum og tár í augunum en reyndi að stappa í sig stálinu. Selma og Yngvi komu ekki upp orði. Selma réttir lækninum Ársól og rýkur út. Læknirinn situr einn með Yngva inn í stofunni og tjáir honum að hann geti veitt þeim viðeigandi aðstoð en Yngvi neitar því harðlega og yfirgefur læknastofuna.

Selma og Yngvi upplifðu mikinn missi og óhamingju. Það var búið að taka frá þeim mikilvægann part af lífi þeirra. Þau ræddu aldrei tilfinningar sínar í tengslum við þennan missi sem leiddi til þess að þau skildu.

Hér verður fjallað um örlagaríka klemmusögu um hjónin Selmu Ýr og Yngva Pál sem lenda í þeirri hræðilegu lífsreynslu að taka heim með sér vitlaust barn af fæðingardeildinni.

Við ákváðum að búa til spennandi sögu sem grípur lesandann strax. Atvikið getur og hefur átt sér stað í raunveruleikanum þótt ólíklega vilji til. Við lýsum aðstæðum vel til að byrja með og byggjum síðan upp spennu eftir því sem líður á söguna.

Við fengum innblástur frá amerísku dramaþáttaseríunni Switched at Birth frá árinu 2011. Við ákváðum að setja verkefnið upp á Padlet vegg, þar sem við höfum ekki prófað það áður og fannst okkur það spennandi og skemmtilegt.

Okkur fannst mikilvægt að búa til sögu sem leyfir okkur að hugsa um mismunandi samskipti og aðstæður út frá námsefni þessa áfanga.

Atvik 1
Samskipti milli hjónanna og gömlu ljósmóðurinnar Söru

Ástæða þessarar uppákomu var vegna erfiðra samskipti milli hjónanna og ljósmóðurinnar Söru. Sara æddi inn í herbergi hjónanna með kalt viðmót. Hún kynnti sig ekki og hrifsaði Ársól úr höndum Selmu án þess fá samþykki frá foreldrunum. Sara sýnir enga nærgætni í garð nýbökuðu foreldranna og útskýrir illa fyrir þeim hvert hún er að fara með Ársól, hvenær þau eiga von á henni til baka og hver hugsar um hana á meðan þau hvíla sig.

Atvik 2
Samskipti milli Yngva og Selmu tengt læknisheimsókn

Ástæða þessara uppákomu var vegna lélegra samskipta milli hjónanna. Selma biður um blóðflokkagreiningu án þess að ræða við eiginmann sinn Yngva. Hún var ekki búin að tjá tilfinningar sínar og heldur Yngva frá hugsunum sínum. Selma hugsar ekki út í tilfinningar Yngva og leyfir honum ekki að hafa skoðun á þessu máli.

Atvik 3
Samskipti milli hjónanna og læknis

Ástæðan fyrir því að þetta atvik átti sér stað var vegna viðbragða hjónanna við fréttunum sem læknirinn hafði fram að færa. Læknirinn reynir eftir bestu getu að tilkynna þeim þessar erfiðu fréttir og viðurkennir mistök spítalans. Þau brugðust bæði illa við en á mismunandi hátt. Samskiptin þar hefðu mátt vera betri milli læknisins og hjónanna.

Atvik 4
Skilnaður hjónanna

Ástæðan fyrir því að skilnaðurinn atvikaðist var vegna samskiptaleysis milli hjónanna sem varð til þess að þau gátu ekki unnið úr áfallinu saman.

Höfundar
Erna Karen Egilsdóttir
eke2@unak.is
kt: 260998-3159

Erna Ólöf Ólafsdóttir
eoo1@unak.is
kt: 270700-2760

Guðbjörg Heiða Stefánsdóttir
ghs1@unak.is
kt: 160101-3930

Sunneva María Pétursdóttir
smp1@unak.is
kt: 151002-3070

Atvik 2
Betari´s box og samhygðarfærni

Í þessu atviki hefði verið gott að hafa í huga Betari´s box, en Betari´s box segir okkur hvernig viðhorf og hegðun okkar hefur bein áhrif á viðhorf og hegðun annars fólks í kringum okkur. Betari´s box segir jafnframt að neikvæð og léleg samskipti geti myndað neikvæða hringrás samskipta. Það að Selma sýni eiginmanni sínum Yngva vantraust með að fara leynt með tilfinningar sínar, getur gert það að verkum að hann hætti alveg að treysta henni (glærupakki APH, 30. september 2022).

Á hinn pólinn hefði Selma getað sýnt Yngva samhygð og reynt að mæta honum þar sem hann er staddur. Selma er áhyggjufull nýbökuð móðir en tekur ekki mark á tilfinningum Yngva og heldur honum algjörlega í myrkrinu varðandi tilfinningar sínar. Mikilvægt er að Selma geti sett sig í spor Yngva. Jafnframt er mikilvægt að Selma reyni að skilja tilfinningar og sjónarhorn hans þegar hann upplifir eins og hún treysti honum ekki (glærupakki, AHA, 2. september 2022).

Nauðsynlegt er í öllum samskiptum okkar að gera sér grein fyrir því að það sem við segjum og gerum hefur bein áhrif á þá í kringum okkur og hvernig þeir koma fram við okkur, líkt og Betari´s box segir. Jafnframt er mikilvægt að nýta sér samhygð í samskiptum, þar sem hún hjálpar okkur að setja okkur í spor annara og átta okkur á tilfinningum þeirra.

Atvik 3
Tengsla- samhygðarfærni og DECS aðferð

Læknirinn stóð sig vel í þessum aðstæðum. Hann notaði til að mynda tengslafærnina sem hann bjó yfir. Hann viðhélt nálægð en samt fjarlægð. Hann tilkynnti þeim fréttirnar með einlægni, auðmýkt og kurteisi. Hann var meðvitaður um hve erfiðar og þungar fréttir þetta voru. Hann sýndi sammannlegar tilfinningar og skilning en reyndi samt að halda sér í hlutverki fagmannsins. Hann sýndi skilning á upplifun, tilfinningum og þörfum þeirra hjóna. Hann bauð þeim aðstoð en þau neituðu. Hann sýndi samhygð og reyndi að mæta þeim á þeim stað sem þau voru í.

(glærupakki, AHA, 2. september 2022)

Það er mikilvægt að stunda sjálfsskoðun, sjálfsvinnu og gefa sér tíma til að ígrunda aðstæður.

Gott hefði verið ef Selma hefði verið búin að ígrunda sjálfan sig til að vita hvernig best væri að bregðast við. Hún hefði geta notast við DESC aðferðina. Hana þarf að þjálfa og getur verið áskorun að nota í krefjandi aðstæðum sem þessum. Hún hefði getað byrjað á því að greina aðstæður og tjáð lækninum sínar tilfinningar (D) og náð sér niður á jörðina. Með því að tjá tilfinningar sínar (E) og taka sér tíma til að átta sig á því hvað væri um að vera, að hún væri búin að vera að hugsa um annað barn síðustu 8 daga, hefði hún geta brugðist betur við. Erfitt er að setja sig í þessi spor og eðlilegt að vissu marki er að bregðast við eins og Yngvi gerði en hann hefði sömuleiðis getað ígrundað sig og sína hegðun. Hjónin hefðu getað átt samtal sín á milli og ákveðið í sameiningu hvað næsta skref væri (S) og áttað sig á mögulegum afleiðingum sem gæti fylgt þessu áfalli (C) (glærupakki, AHA, 23. september 2022).

Van den Branden, L., Van de Craen, N., Van Leugenhaege, L., Mestdagh, E., Timmermans, O., Van Rompaey, B. og Kuipers, Y. J. (2022). Flemish midwives’ perspectives on supporting women during the transition to motherhood – A Q-methodology study. Midwifery, 105, 103213. https://doi.org/10.1016/j.midw.2021.103213

Potter, P. A. og Perry, A. G., Stockert, P. A. og Hall, A. M. (2021). Fundamentals of nursing (10. útgáfa). Elsevier. Potter,

Við gerð þessa verkefnis lærðum við hversu mikilvægt það er að nýta góða samskiptatækni til að auka gæði samskipta, sömuleiðis til að hindra vanlíðan og koma í veg fyrir misskilning milli einstaklinga. Jafnframt hvernig hægt er að nýta ýmis viðfangsefni áfangans Samskipti og fagleg tengsl í samskiptum okkar við skjólstæðinga og annað fólk. Sem dæmi má nefna hversu mikilvægt það er að gera sér grein fyrir að viðhorf og hegðun okkar hefur bein áhrif á þá sem eru í kringum okkur. Einnig að nauðsynlegt er að þróa með sér samskiptatækni og gott meðferðarsamband við skjólstæðinga okkar. Hægt er að læra af klemmusögunni mikilvægi þess að sýna siðferðilega næmni sem fagmaður og búa yfir þeirri færni að geta túlkað aðstæður rétt. Sömuleiðis að búa yfir auðmýkt og nærgætni sem fagmaður og sýna sammannlegar tilfinningar.

Í starfi okkar sem hjúkrunarfræðingar getum við nýtt okkur alla ofantalda þætti og þar með stuðlað að góðu meðferðarsambandi, sömuleiðis aukið traust og bætt samskipti okkar við skjólstæðinga.

Atvik 1
Siðferðileg næmni og samskiptatækni

Það sem skorti hjá Söru var siðferðileg næmni, sem er mikilvægt að hafa sem fagmaður. Hana skorti færni til að túlka aðstæður rétt ásamt því var hún ekki meðvituð um hvernig hegðun sín og atferli höfðu áhrif á hjónin (glærupakki AHA, 30. ágúst 2022). Ef að Sara hefði verið meðvituð um það hvernig hegðun hennar og atferli gæti haft áhrif á líðan hjónanna þá hefði verið hægt að koma í veg fyrir þessa óvissu og óöryggi foreldranna.

Ljósmóðir er starf sem felur í sér að styðja við og undirbúa foreldra fyrir þetta nýja hlutverk að eignast barn. Mikilvægt er að samskipti milli ljósmóður og nýbakaðra foreldra séu góð þar sem hún styður við konuna á fæðingartímabilinu og metur skap og tilfinningar hennar til móðurhlutverksins (Van den Branden o.fl., 2022). Mikilvægt er sem fagmaður að þróa með sér góða samskiptatækni og mynda gott meðferðarsamband. Í því felst til dæmis að miðla upplýsingum á viðeigandi hátt og að tryggja að skjólstæðingur skilji þig og meðtaki upplýsingar. Einnig er mikilvægt að fá staðfestingu frá skjólstæðingi til þess að vera viss um að hann sé að meðtaka það sem fagmaðurinn segir (Potter o.fl., 2021).

Sara sinnti ekki starfi sínu sem ljósmóðir nógu vel. Hún sýndi enga hlýju og myndaði ekki gott meðferðarsamband, þar af leiðandi treystu foreldrarnir henni ekki nógu vel og voru óörugg að setja barnið sitt í hennar hendur. Hún fékk ekki samþykki frá foreldrunum fyrir því að taka barnið og var með kalt viðmót. Mikilvægt er fyrir nýbakaða foreldra sem eru í óörugg í sínu nýja hlutverki að finna fyrir hlýju og trausti frá fagmönnum. Sara hefði mátt auka öryggi og traust þeirra til hennar með því að útskýra hvar Ársól yrði, hver myndi sjá um hana og hvenær þau ættu von á henni aftur.

Atvik 4
Samhygðarfærni

Hjónin gátu ekki unnið úr áfallinu saman vegna samskiptaleysis.

Erfitt er að segja til um hvernig best er að vinna úr áföllum á borð við þessi en þó er mikilvægt að geta talað saman. Selma og Yngvi hefðu getað sýnt samhygð í garð hvor annars með því að ræða tilfinningar sínar í kjölfar áfallsins.

Sömuleiðis hefðu þau geta reynt að ræða og skilja tilfinningalegar upplifanir og sjónarhorn hvor annars (glærupakki, AHA, 2. september 2022).