Mótun skólastefnu fyrir Þingeyjarsveit: Íbúafundur í Stórutjarnaskóla - hópur 1 by Ingvar Sigurgeirsson

1. Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála í sveitarfélaginu?
Þungbúið yfir skólamálum og margt í farveginum sem er ekki jákvætt. Sérstaklega unglingadeild í Reykjadal.
Ekki tekið tillit til Stórutjarnaskóla innan þess samhengis.

Stórutjarnaskóli má alls ekki leggjast niður, það yrði dauðadómur yfir samfélaginu hér.

Finna leiðir til að fá fleira fólk í sveitarfélagið og leiðir til að bæta samgöngurnar. Erfitt að reka skóla þar sem engin börn eru. Sveitirnar leggjast í eyði ef farið verður í að leggja niður skóla.

Þurfi að vera þjónusta í boði fyrir börnin í sveitinni til þess fólk haldist hér.

Samstarf og - vinna er gleðiefni en það þarf að vera sótt á alla staði, Stórutjarnaskóla líka.

Margt sniðugt að gerast, t.d. með samnýtingu skólasálfræðings og tölvumála. Hins vegar er ákveðin hræðsla við að ef skólastarf verður fært mikið lengra austur yrði það dauðadómur yfir Fnjóskárdalnum.

Það er ákveðin uppbygging í sveitinni og þessi skóli ætti að vera tilvalinn til uppbyggingar ákveðinnar sérstöðu til að nemendur annarsstaðar frá hefðu jafnvel áhuga á að sækja Stórutjarnaskóla.

Stórutjarnaskóli er fýsilegur kostur sem skóli og tónlistarkennsla innan skólans er frábær.

Of stuttur opnunartími í leikskólanum hér fyrir vinnandi fólk og erfitt að vinna fullt starf með ung börn. Það er ekki til þess að fólk sækist í að flytja hingað.

Starfið er þó mjög gott. Húsnæðið er mjög gott.

Vantar grundvöll fyrir því að ungt fólk flytji hingað t.d. húsnæði og leikskólapláss.

2. Hverjir eru helstu styrkleikar?
Styrkleikar Stórutjarnaskóla:
Lítill og góður skóli
Grunn-, leik- og tónlistarskóli og sundlaug á staðnum og allt undir sama þaki. Samþætting þar af leiðandi greið leið og er mjög mikil nú þegar.
Ekki of langt í burtu, tiltölulega stutt fyrir börnin að sækja skólann
Húsnæði gott og öll aðstaða til staðar
Krakkarnir koma vel undirbúnir inn í framhaldsskólann
Hægt að senda leikskólabörn með skólabílnum
Góðir skólabílstjórar
Nálægt Akureyri, margir foreldrar sækja vinnu til Akureyrar.
Margt starfsfólk kemur frá Akureyri, stutt að fara.
Mjög góð tónlistarkennsla
Aðgangur að sálfræðingi, talmeinafræðingi, sérkennslu... aðgangur að allskyns stoðþjónustu og fagaðilum þar sem nemendur komast strax að, ekki biðlistar.
Miklu minna batterí en annarsstaðar, allir þekkjast og eru heimavanir sem er mikill styrkur.
Fríar máltíðir og frí ritföng
Mjög gott og dýrmætt samstarf milli skólastiga
Samfélagið í heild. Samfélagið  kemur að málum af því það skiptir alla máli, ekki bara foreldra.
Menningarstundir einu sinni í mánuði
Þéttur foreldrahópur
Leikskólabörnin hafa fengið að æfa sund.
Hefðir s.s. dansvika og danssýning
Náttúran og umhverfið
Grænfána- og heilsueflandi skóli.
Framúrskarandi skóli (Stórutjarna- og Þingeyjarskóli)
Bækistöð Sálubótar og eldri borgara, samkomur Fnjóskdælinga fara hér fram.

Styrkleikar sveitarfélagsins:
Bæði E-listi og K-listi höfðu það á sinni stefnuskrá að halda öllum skólunum gangandi

3. Hvaða er brýnast að bæta?
Fjölga börnum og barnafjölskyldum

Sveitarfélagið sýni vilja til að byggja upp í Fnjóskadal, Ljósavatnsskarði, Bárðadal og nærsveitum.
Fólk í þéttbýli hefur margt vilja til að búa í sveit en hefur ekki tækifæri til (húsnæði/atvinna)
Sveitarfélagði þarf að líta á svæðin sem ákveðna kjarna í kringum skólana og hugsa um uppbyggingu út frá þeim.

Opnunartími leikskólans, þannig að fólk geti verið í fullri dagvinnu og börnin í leikskólanum á meðan.

Hugsa þarf upp leiðir að frístund og skóli geti tekið við börnum tímanlega svo foreldrar geti sótt vinnu t.d. inn á Akureyri.

Setja upp eineltisáætlanir og vinna eftir þeim.

Jafna út skóladaginn svo honum ljúki á sama tíma alla daga upp á t.d. æfingar inn á Akureyri. Æfing lendir t.d. akkúrat á skólatíma en daginn eftir þegar ekki er æfing þá er barnið í frístund á sama tíma.

Skapa aðstæður til að fólk geti flutt í sveitina með börn. Skólinn og aðstæður í sveitarfélaginu þurfa að vera aðlaðandi fyrir foreldra.
Samgöngur þurfa að vera í lagi, annars fæst ekki fólk í sveitina. Búið að opna alla vegi Þingeyjarsveitar kl. 7:00 á morgnana.
Sár þörf fyrir húsnæði, þar þarf sveitarfélagið að stíga inn í.

Þarf að bæta úti aðstöðuna, fá sparkvöll. Þarf að bæta bæði leikskólahúsnæði og -útisvæði.

Bætur á malarvegum, börnin þurfa að hossast á þessum vegum á hverjum degi.

4. Hvaða sóknarfæri sjáið þið helst? Hvernig viljið þið þróa starfið? Í skólanum ykkar? Í sveitarfélaginu?
Í skólanum:

Starfið er nokkuð gott nú þegar en vantar betri aðstöðu úti fyrir börnin.

Leggja áherslu á samgöngur og fá fleiri í sveitarfélagið

Það þarf nýtt húsnæði fyrir leikskólann. Ef sveitarfélagið vill taka inn yngri börn (12 mánaða) þá þarf að bæta aðgengi að honum.

Bæta útisvæði og leiksvæði yngstu barnanna.

Ýmislegt ágætt á útisvæði grunnskólans en það má alltaf bæta í

Stórutjarnaskóli er magnaður staður og það væri hægt að gera hann að skóla sem krakkar t.d. frá Akureyri myndu vilja sækja. T.d. að gera Stórutjarnaskóla að útivistarskóla, einn sinnar tegundar.

Vegna smæðar að geta aðstoðað krakkana betur og styðja við bakið á þeim í námi á hærra stigi (framhalds) og tónlistarnámi.

Fámennur skóli og samkennsla er kostur og nánd milli kennara og nemenda verður meiri, finna fleiri sóknarfæri í þessum kostum.

Í sveitarfélaginu:

Samvinna milli skólanna getur verið mjög góð og margt hægt að gera í því en það þarf að huga að því að laða að gott fólk í skólana.

Samstarf skólanna og eldri borgara - hugsa upp sóknarfæri í því samhengi.

6. Hafið þið skoðanir á skólaskipan - og ef svo hverjar?
Óbreytt skólaskipan væri æskilegust. Þrír grunn-, leik- og tónlistarskólar, einn framhaldsskóli.

Samstarf leik-, tón, og grunnskóla má alls ekki hætta hér á Stórutjörnum. Hófst upphaflega sem viðbragð við fámenni og ætti mögulega að endurskoða ef mikil fjölgun verður eða ef samstarfið gengur ekki jafn vel og það gerir nú.

7. Hvernig viljið þið sjá skólastarfið eftir fimm til tíu ár? Hvað viljið þið helst að einkenni það?
Öflugt og standi á góðum grunni. Samvinna milli leik-, grunn- og tónlistarskóla með möguleika á lengri vistun svo fólk geti sótt vinnu.

Stefna sem byggir upp heilbrigða einstaklinga, vel undirbúna og meðvitaða um hvað felst í því að vera einstaklingur.

Mikill fókus á samskipti, sem reynir mikið meira á í litlum skólum en stórum og þarf að vinna markvisst með.

Ekki færri en 50 nemendur (50-60 nem lágmark).

Eftir 10 ár þarf að vera skóli hérna ennþá. Börnum þarf að fjölga núna strax.

Grænfánaskóli og nemendur hafi góða færni í umhverfisverndarhugsun og sjálfbærni.

Nemendur og kennarar verði glaðir og ánægðir og hér ríki hamingjan ein.

Ákveðin sérkenni verði byggð upp svo Stórutjarnarskóli beri sín sérkenni.

Höggva aðeins úr fjallinu til að lengja sólarganginn.

Nýta sveitina og búskapinn (bændasamfélag) í stefnu og námská skólans. Nemendur verði meðvitaðir um bændasamfélagið sem einkennir Þingeyjarsveit.
Leggja áherslu á sjálfbærni.

Vegir sveitarfélagsins verði öruggir til aksturs, malarvegir malbikaðir svo hægt sé að koma börnum örugglega til skóla.

5. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur samstarf skólanna og við kennara í nágrannasveitarfélögunum?
Sem kennari er gott að geta speglað sig við hina skólana geta leitað til annarra fagaðila. Samnýta sálfræðing og aðra stoðþjónustu.

Sem foreldri sé ekki fyrir mér að barnið mitt sé að fara að fara marga daga austur fyrir. Gott og jákvætt samstarf er á milli Stórutjarnaskóla og þriggja skóla í Eyjafirði og mikil ánægja með það og tilfinning fyrir því að það sé vilji til að halda því áfram.

Að hvaða leyti væri hægt að nýta tæknina meira í samstarfinu, t.d. yfir snjóþyngstu mánuðina. Nýta sérþekkingu kennara í hverjum skóla fyrir sig þvert á skóla hvort heldur sem er í staðnámi eða í fjarnámi.

Hollt að vera í samstarfi við kollega sína, spegla hugmyndir og víkka út sjóndeildarhringinn, sækja þekkingu og færni í vinnufélaga í hinum skólunum (stækka vinnustaðinn) óháð því hvort nemendur fara á milli eða ekki.

Byggja upp þrjá skóla alla með sína sérstöðu þannig að fólk geti valið sér skóla eftir áherslum. Orka kennara fer í að sinna vinnu innan skólans og mikil samvinna og samstarf við kennara utan skólans, hvar á að finna tíma í það?

Jákvætt ef Reykjahlíðarskóli og Þingeyjaskóli haldi samstarfi áfram af krafti en Stórutjarnaskóli hefur litlar forsendur til að leita austur fyrir Fljótsheiði og hætta á því að verði frekar fólksflótti ef af því verður og fólk leiti í auknum mæli til Akureyrar.

Heimsóknir á milli skóla mættu alveg vera fleiri og kennarar skólanna djammi saman t.d. árshátíð. Gott að kynnast innan sveitarfélagsins en ekki endilega gott að keyra nemendur mikið á milli skólanna.

Framhaldsskólinn á Laugum hentar mjög mörgum en hann ætti ekki að teygja anga sína inn í grunnskóla sveitarfélagsins.

Aftur á aðalsíðu