Jónas Hallgrímsson by

Jónas Hallgrímsson
Jónas Hallgrímsson fæddist 16. nóvember árið 1807 í öxnadal að Hrauni. Faðir hans var séra Hallgrímur Þorsteinssin, aðstoðaprestur hjá séra Jóni Þorlákssyni. Þegar Jónas var eins árs þegar hann flutti með foreldrum sínum að Steinsstöðum. þar orti hann fyrstu vísurnar sínar þegar að hann var aðeins 7 ára. þegar Jónas var 9 ára fór faðir hans á sjá að veiða ásamt tveimur ungum mönnum í Hraunsvatni en bátur sem að þeir voru á hvolfdi með þeim i og pabbi hans lést. Móðir hans stóð þá uppi með fjögur börn. Þegar að hann var 13 ára var hann sendur í nám hjá séra Einari Thorlacius presti í Goðdölum. Hann fór síðan í Bessastaðaskóla og kláraði almennt nám, hann sigli síðan til Kaupmannahafnar og fór í lögfræði þar. Hann fór aftur til Íslands til að stunda rannsóknir í náttúruvísindum, hann fór þrisvar sinnum aftur til Íslands til að fara í rannsóknar ferðir en hann lést mjög ungur aðeins 37 ára gamall eftir að hann braut á sér fótinn árið 1845.

Nýyrði hans og þýðingar
Jónas elskaði íslenska tungumálið og vildi halda því lifandi.
Hann bjó til mörg ný orð svo hægt væri að tala um náttúru og vísindi á íslensku.
Orðin hans eru enn notuð í dag og sýna sköpunargáfu hans og ást á landinu.

Hér koma orð sem við þekkjum og þekkjum ekki.

Þekkt!

munaðarleysingi = barn sem misst hefur báða foreldra sína

sólmyrkvi = það þegar tunglið fer fyrir sólina og hylur hana

byssumaður = hættulegur maður vopnaður byssu

vinahópur = hópur vina

næturkyrrð = stillt og kyrrt veður um nótt

einstaklingar = ein stök lífvera

fjölbreyttur = með ýmsu mismunandi og ólíku móti

Ekki þekkt

fimbulfamba = ruglingslegt tal

fýll = stór gráleitur sjófugl

drottnunargirnd = rík tilhneiging til að stjórna öðrum

Gleikka = víkka eða gleiðast

Ljóðið Ásta
ÁSTA

Ástkæra, ylhýra málið,

og allri rödd fegra,

blíð sem að barni kvað móðir

á brjósti svanhvítu,

móðurmálið mitt góða,

hið mjúka og ríka,

orð áttu enn eins og forðum

mér yndið að veita.

Veiztu það, Ásta, að ástar

þig elur nú sólin?

Veiztu, að heimsaugað hreina

og helgasta stjarnan

skín þér í andlit og innar

albjört í hjarta,

vekur þér orð, sem þér verða

vel kunn á munni?

Veiztu, að lífið mitt, ljúfa,

þér liggur á vörum?

Fastbundin eru þar ástar

orðin blessuðu.

Losa þú, smámey, úr lási

lítinn bandingja!

Sannlega sá leysir hina

og sælu mér færir.

Útskýring:

Í Ástu kemur fram mjúk og tilfinningarík hlið hans. Ljóðið fjallar um ást, söknuð og vonbrigði. Það endurspeglar eigin reynslu Jónasar af ást sem gekk ekki upp og sýnir hvernig hann notaði ljóðin til að tjá tilfinningar sínar og hugsanir um lífið og ástina.

Ljóðið Álfareiðin
ÁLFAREIÐIN

Stóð ég úti í tunglsljósi, stóð ég út við skóg -

stórir komu skarar, af álfum var þar nóg.

Blésu þeir í sönglúðra og bar þá að mér fljótt,

og bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt.

Hleyptu þeir á fannhvítum hestum yfir grund -

hornin jóa gullroðnu blika við lund -

eins og þegar álftir af ísa grárri spöng

fljúga suður heiði með fjaðraþyt og söng.

Heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um leið,

hló að mér og hleypti hestinum á skeið.

Var það út af ástinni ungu, sem ég ber?

Eða var það feigðin, sem kallar að mér?

Útskýring:

Í Álfareiðinni sýnir Jónas Hallgrímsson ást sína á náttúrunni og þjóðtrú. Hann lýsir álfum sem ferðast um náttúruna á dularfullan og fallegan hátt. Ljóðið blandar saman raunheimi og ævintýrum og sýnir þannig rómantíska hlið Jónasar þar sem náttúran og ímyndunaraflið skipta miklu máli.

Heimildaskrá
JónasHallgrímsson.is. (e.d.). Æviferill Jónasar. Sótt 23. október 2025, af https://jonashallgrimsson.is/index.php?page=aeviferill-jonasar

Mér er í mun — Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar. (e.d.). [PDF]. Mennta‑ og menningarmálaráðuneytið. Sótt 23. október 2025, af https://vefir.mms.is/klb/mer_er_i_mun/nyyrdiJH_mererimun.pdf

Árnastofnun í íslenskum fræðum. (e.d.). m.is – einfaldar málið: Orðabók. Sótt 23. október 2025, af https://m.is/ordabok

Snerpa.is. (e.d.). Ljóðmæli Jónasar Hallgrímssonar. Sótt 23. október 2025, af https://www.snerpa.is/net/kvaedi/jonas.htm#link19