My supercalifragilisticexpialidocious padlet by gerda bjorgvinsdottir

Lubbi finnur málbein
Við höfum ákveðið að viðfangefnið okkar að þessu sinni yrði Lubbi. Hann er frábær og skemmtileg leið til að hjálpa börnum að læra málhljóð og byggja upp málþroska barna í gegnum alla leikskóla gönguna. Langflestir leikskólar nota Lubba í daglegu starfi og flest börn þekkja Lubba vel. Það eru margar útfærslur hvernig leikskólar vinna með Lubba, langvinsælustu eru þó lögin sem eru hlustuð í hópastarfi eða samverustundum, Lubba kassinn sem inniheldur allskyns hluti sem tengast hverju málhljóði fyrir sig og Lubba heimsóknir þar sem Lubba bangsin á hverji deild fer og heimsækir börn yfir einhvern x langan tíma, síðan kemur hann heim á deild og kennarar lesa hverskonar ævintýri Lubbi lenti í með hverju barni fyrir sig. Auðvitað er margt meira í boði sem við förum nánar í hér á eftir.

En hver er þessi Lubbi sem er verið að ræða hér um? Lubbi er íslenskur fjárhundur sem vill læra tala íslensku en til þess að hann geti gert það þá ferðast hann um Ísland og finnur íslensku málbeinin sem hann elskar að naga (Lubbi.is, 2025). Hann kynnist fullt af nýju fólki sem hjálpar honum að finna málbeinin með því að æfa sig að bera fram hljóðin. Alls eru 35 málbein sem hann verður að finna til þess að geta lært að tala íslensku.

Lubbi snýst um það að hjálpa börnum á aldrinum 2-7 ára að bera fram mismunandi hljóð á einfaldan hátt. Bókin Lubbi finnur málbein er röðuð eftir einfaldleika hljóðana og því er hún t.d. ekki í stafrósröð. Í bókinni eru sögur fyrir hvert málhljóð. Kennarar lesa sögurnar fyrir börnin. Einnig eru lög sem fylgja hverju málhljóði fyrir sig ser eru spiluð fyrir börnin í samveru eða hópastarfi.

Það er hægt að fá veggspjald sem hægt er að hengja inná deildum svo börnin geti skoðað öll málhljóðin. Það er einnig sýnt í myndum hvernig það er hægt að gera hljóðin með hreyfingum og þannig er tengt tákn með tali inn í verkefnið. Börn hafa mikin áhuga á þessu og læra hreyfingarnar á sínu málbeini frekar hratt ef það er endurtekið jafnt og þétt.

Það er einnig til vefsíða lubbi.is og þar inná er margt fróðlegt. Þar er hægt að finna upplýsingar um hvað Lubbi snýst um, kennarar geta sótt um námskeið um hvernig á að kenna Lubba rétt og einnig er hægt að kaupa allskyns pakka sem innihalda námsefni fyrir leikskóla til að nýta í kennslu.

Í fyrra komu út þættir "Lubbi finnur málbein" þar sem sögurnar úr bókinni lifna við á skjánum. Börnin geta horft á efni sem er fróðlegt en skemmtilegt á sama tíma. Kennarar geta nýtt sér þættina í kennslustundinni ef þau hafa aðgang að stöð 2 appi. Einnig geta forledrar tekið meiri þátt í að kenna börnum málhljóðin heima samhliða leikskóla sem getur leitt til betri árangurs hjá börnunum.

Það eru 4 megin hæfniviðmið sem börn verða að ná með því að læra Lubba, það er:

Að geta borið orðin rétt fram

Börn nái að tala á skíran og skiljanlegan hátt

Börn læri mismunandi málhljóð

Börn læri að bera kennsl á hlutum sem tengjast hverju málhljóði fyrir sig með UT verkfæri eins og t.d. ljósmyndun,

Þessi hæfni eru miserfið eftir aldri og getu barna. Því eldra sem börnin verða því flóknara er hægt að hafa verkefnin fyrir hvert málhljóð fyrir sig. Á endanum þegar börnin fara að útskrifast úr leikskóla eiga þau að hafa náð fullri getu á þessi fjögur hæfniviðmið.

A) Inntak
Með því að kenna börnunum Lubba þá vonumst við eftir því að börn nái hæfniviðmiðum eins og að tala á skíran hátt og á endanum nái þau að bera orðin rétt fram.

Það er líka mikilvægt að við náum að grípa börnin sem við sjáum að þurfi meiri aðstoð og með því að nýta Lubba jafnt og þétt og jafnvel aðeins meira fyrir þau sem þurfa á því að halda, að þau nái góðri hæfni áður en þau fari yfir í grunnskóla.

B) vinnan með Lubba
Markmiðið er að vinna með Lubba í hverji einustu viku með mismunandi málhljóði. t.d. með því að hafa Lubbastund í hópastarfi/ samverustundum. Þá er hægt að lesa bókina um þann málhljóð sem er tekin í hverji viku og einnig hlusta á lagið sem tengist málhljóðinu. Síðan er hægt að hafa kósy föstudaga og leyft börnum að horfa á einn Lubba þátt ef það er möguleiki á því. Þriðja daginn er síðan hægt að skoða Lubba kassa og ræða eða spila leiki með börnum um það sem er í boði í kassanum. Listinn er auðvitað ekki tæmandi en þetta eru bara nokkrar hugmyndir sem eru í boði til að ná markmiðinu sem eru sett fyrir kennaran.

C) UT verkfæri
Nokkrar leiðir sem hægt er að nota upplýsingatækni með Lubba er t.d. að sýna börnum Lubba þætti og hlusta á lögin.

Einnig er hægt að taka ljósmyndir af Lubba með mismunandi málhljóðum og leyfa þannig börnum að taka virkan þátt í verkefninu. Ljósmyndaverkefnið væri lang einfaladast að framkvæma með elstu deildum eða 4-6 ára aldurinn en auðvitað er hægt að útfæra þetta á einfaldari hátt fyrir yngri börnin þar sem kennarar eða foreldrar hjálpa meira til við ljósmyndunnina. Síðan er hægt að prenta myndirnar út og börnin fái að líma myndirnar á veggspjald sem er síðan hengt inná deildum í þeirra augnhæð og þá geta börnin skoðað verkefnið sitt sem þau höfðu gert.

Málhljóð vikunnar - kennsluáætlun fyrir Lubba í leikskólastarfi
Samtals eru málbeinin sem Lubbi finnur 35 talsins sem stemmir ágætlega við þær kennsluvikur sem almennt eru í leikskólum með tiliti til skerðingu starfsins vegna fría og starfsdaga.

Það hentar því vel að taka nýtt málhljóð fyrir í hverri viku allt skólaárið. Þannig getur líka allur skólinn verið samstilltur í yfirferðinni á Lubba. Eins og áður segir þá fer röðin ekki eftir stafrófsröð heldur eftir erfiðleika framburðar. Þannig er því líka háttað í þessari kennsluáætlun, þessa röð er einfaldlega að finna í bókinni.

Það sem er gott að eiga í grunninn er Lubba bókin og geisladiskur en einnig er hægt að finna lögin á Spotify. Lubba málbein útprentuð og jafnvel plöstuð. Lubba bangsa, bangsi sem svipar til Lubba hefur oft verið hægt að fá í Ikea.

Hér að neðan koma hugmyndir að því hvernnig hægt er að vinna með Lubba á svipaðan hátt allt skólaárið, þar sem hugmyndin er að hver vika hafi svipaða uppbyggingu en að hægt sé að gera skemmtileg uppbrot inná milli þegar tækifæri gefast.

Málhljóð lagt inn
Hvert málbein á sér sögu í bókinni um Lubba sem og lag.

Í upphafi vikunnar er því málhljóðið lagt inn með því að lesa sögu þess í sérstakri Lubbastund. Lagið er spilað og æft. Lögin eru einnig táknuð og þannig tákn með tali tvinnað í vinnuna.

Lögin má áfram syngja í samverum en gott að einblína á nýjustu 4 málhljóð sem hafa verið lögð inn.

Í sömu Lubbastund skal málbeininu eða réttara sagt hljóðinu sem tekið er fyrir komið fyrir á ákveðnum stað til að halda sjónrænt utan um árangur starfsins. T.d. er hægt að föndra hljóðakletta og hengja málbein á þá.

Lubbi finnur fjársjóð
Eina samveru í viku er hægt að nýta til þess að skoða í fjársjóðskistuna hans Lubba.

Í kistunni eru fjölbreyttir hlutir sem allir deila málhljóði vikunnar, kistan er skoðuð með Lubba og hver hlutur ræddur.

Hægt er að gera meira úr stundinni með því að fara í athyglisleiki þar sem hlutunum er komið fyrir undir slæðu og einn fjarlægður en börnin þurfa giska hvaða hlutur. Þannig æfast þau líka í því að segja málhljóðin.

Lubbi fer í heimsókn - Upplýsingatækni
Það tíðkast í mörgum leikskólum að deildarbangsi fari heim með börnum yfir helgi þar sem allt er skrásett í myndum og dabókarfærslum og síðan rætt í leikskólanum. Hægt er að gera svipað nema útfrá Lubba og málhljóðunum. Þannig fengi hvert barn að fá helgarheimsókn frá Lubba, einu sinni á skólaári ef árgangurinn er stór en kannski tvisvar ef lítill. Heimsókninni myndi fylgja lítið heimaverkefni sem fælist í því að taka nokkrar myndir af Lubba með hlutum sem deila málhljóði vikunnar, þ.e. vikunnar sem leið, þannig er líka verið að teygja vinnuna örlítið yfir í næstu viku. Barn sem færi heim með Lubba eftir að málhljóðið A væri tekið fyrir myndi kannski taka mynd með afa, agúrku eða ananas. Myndirnar væru svo sýndar í samveru þar sem barnið fengi að segja frá heimsókninni. Svona er búið að tengja upplýsingatækni við verkefnið með því að æfa börnin í að taka myndir. Hægt er að prenta þetta út eins og áður segir og safna öllum myndum á einn stað eða búa til Paddlet vegg og hafa sýningu í lok árs.

Lubbi hér og þar
Hægt er að koma Lubba við hér og þar í starfinu, það er misjafnt hvað hentar og hvað málhljóðin bjóða uppá. Skemmtilegt væri að gera eitthvað öðruvísi a.m.k. einu sinni í viku en það þarf ekki alltaf að vera það sama.

Listastarf:

Hægt er teikna eða mála ákveðin fyrirbæri sem byrja á málhljóði vikunnar. Hengja afraksturinn upp með málbeininu. Jafnvel föndra skúlptúra eða gera samvinnulistaverk.

Vettvangsferðir:

Hægt er að heimsækja ýmsa staði sem byrja á málhljóðum sem tekin eru fyrir. Hægt er að fara í gönguferð, apótek, bakarí eða pósthús sem dæmi. Til að gera meira úr þessum gönguferðum eða öðrum gönguferðum sem farnar eru í öðrum tilgangi er hægt að fara í hljóðabingó.

Hljóðabingó er hægt að úfæra á ýmsan hátt. T.d. er hægt að ákveða að taka eitt málhljóð fyrir, einfaldlega taka mynd af fyrirbærinu sem deilir málhljóðinu þegar börnin finna það. Eða þá að kennari getur prentað út bingóspjald með fyrirfram ákveðnum fyrirbærum sem tengjast þeim málhljóðum sem verið er að taka fyrir.

Matatímar:

Hægt er að bjóða uppá öðruvísi hressingu t.d. bjóða upp á ananas þegar A er tekið fyrir eða mangó þegar M er tekið fyrir.

Bíó: Til uppbrots er hægt að sýna sjónvarpsefnið um Lubba ef kostur er á því. Einnig eru myndbönd á Youtube sem eru aðgengileg öllum þar sem barnakór syngur Lubba lögin og gerir hreyfingar. Það er ekki síðra bíó.

Lubbi á kaffistofunni
Hvernig er hægt að fá starfsfólk til að hafa verkefnið hugfast allan ársins hring?

Ein hugmynd er að hafa töflu á kaffistofunni þar sem starfsfólk getur deilt orðum sem byrja á málhljóði vikunnar. Öll geta bætt sínu orði við á töfluna. Þetta getur skapað skemmtilega stemmingu.

Gullabúið hans Lubba
Það eru margar leiðir til að flétta Lubba inn í starfið og gera hann meira sýnilegri. Ein hugmynd er að hafa glerskáp í sameiginlegu rými skólans með hlutum og munum sem allir eru ígildi eins málsbeins. í skápnum gæti því t.d. verið sólgleraugu fyrir S, ígulker fyrir Í og svo framvegis. Eitthvað sem sem vekur athygli barnanna og er spennandi að skoða. Skápurinn er hugsaður sem málörvunar kveikja, hægt er að labba að skápnum og ræða innihald hans.

Grunnþættirnir útfrá Aðalnámskrá leikskóla
Þegar unnið er með Lubba er hægt að samþætta ýmsa grunnþætti menntunar. Í Aðalnámskrá leikskóla er lögð áhersla á að grunnþættirnir sex fléttist inn í allt skólastarf og styðji hver við annan. Um þetta er fjallað í öðrum kafla aðalnámskrár. Þó svo að það augljósa við það verkefni sem hér hefur verið unnið um Lubba sé læsi og sköpun þá er þó hægt að færa rök fyrir því hvernig öllum grunnþáttunum er gefinn gaumur.

Læsi samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla snýst ekki eingöngu um hefðbundið læsi heldur einnig um læsi á umhverfið, samfélagið og menningu. Lubbi er ekki bara að kynnast málhljóðunum hann er nefnilega líka á ferð um landið okkar og kynnist fjölmörgum stöðum og bæjum á Íslandi.

Það helsta sem verið er að kenna börnunum er hljóðlæsi og táknlæsi en einnig er vel hægt að nýta hann í að leggja inn tilfinningalæsi.

Hljóðlæsi: Börnin læra að þekkja málhljóð íslensku og hljóð- og bókstafstengsl

Táknlæsi: Börnin læra að þekkja tákn og myndir sem fylgja hverju málhljóði

Tilfinningalæsi: Hvernig ætli Lubba líði í hinum og þessum aðstæðum sem upp koma í sögunum er dæmi um það hvernig er hægt að vinna með hann.

Aðalnámskrá leikskóla leggur áherslu á að börn þrói með sér læsi í víðum skilningi þannig að þau geti lesið í umhverfi sitt og tjáð sig á fjölbreyttan hátt. Lubbaefnið eflir ekki bara hljóðvitund heldur einnig orðaforða og málskilning, sem eru undirstöðuþættir hefðbundins læsis.

Sköpun er annar mikilvægur grunnþáttur í Aðalnámskrá leikskóla. Í vinnu með Lubba er sköpun virkjuð á margvíslegan hátt:

Tónlist og söngur: Börnin læra lög og hreyfingar fyrir hvert málhljóð

Myndlist: Börnin teikna, mála og skapað út frá Lubba og málbeinunum.

Frásagnir: Börnin taka myndir af Lubba og málhljóðum og segja frá því.

Aðalnámskrá leggur áherslu á að í sköpun felist að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi en viðkomandi kann eða hefur gert áður. Lubbaefnið hvetur til slíkrar nýsköpunar með opnum verkefnum þar sem börn geta prófað sig áfram á eigin forsendum.

Í öllu uppbrotinu sem hægt er að gera með Lubba námsefninu er hægt að leggja sérstaka áherslu á heilbrigði og velferð sem eru hluti af grunnþáttunum. Göngutúrar og að kynna börnum fyrir nýjum ávöxtum eða mat er dæmi um það. Það að tákna öll lög sem sungin eru eflir hreyfifærni og jafnvel er hægt að gera dans.

Heilbrigði og velferð

Jafnrétti sem er annar grunnþáttur er sýnilegur í Lubba á þann hátt að verkefnin gera ráð fyrir fjölbreyttri tjáningu tákn með tali er mjög mikilvægur partur af Lubba vegna þess að börn eru komin mislangt í þeirri færni sem þarf til að segja málhljóðin en flest börn geta þó lært hreyfingarnar.

Lýðræði og mannréttindi sýnir sig þanngi að börnin hafa á ákveðin hátt áhrif á það hvernig unnið er með efnið og geta með sinni sköpun sett sitt mark á verkefnið. Þá er aftur hægt að koma inná mikilvægi fjölbreyts tjáningarmáta.

Sjálfbærni er sá þáttur sem er kannski hve minnst notaður í okkar verkefni um Lubba en þó er vel hægt að tengja hann í starfið t.d. með því að nota endurunnin efnivið í listsköpun tengdri Lubba. Já og ræða við börnin um það hvernig Lubba myndi líða ef hann væri að ferðast um landið og allt væri bara í rusli. Í framhaldinu fara í ruslatýnsluferð og greina hvaða málhljóð fundust.

Það segir sig sjálft að með Lubba er markvisst verið að vinna með hæfni og námshæfni. Börnin þróa með sér aukna einbeitingu og athygli í gegnum Lubbaverkefni

Börnin prófa sig áfram með hljóð og bókstafi og þróa getu til að tengja saman fyrri lærdóm og nýjan með endurtekningum og stigvaxandi verkefnum (Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 2011).

Eins og sjá má að þegar unnið er með Lubba á markvissan og fjölbreyttan hátt er hægt að samþætta alla grunnþættina og stuðla þannig að heildstæðri menntun barnanna.

Hópastarf
Fyrst og fremst verða nemendur að geta setið og hlustað þegar kennarinn kynnir í byrjun um þann málhljóð sem er verið að vinna með. Besti tíminn fyrir það er í hópastarfi þar sem börnin sitja undir Lubba beininu sínu og hlusta á kennaran lesa söguna og spila lagið. Einnig virkar hópastarf fyrir Lubba kassa þar sem kennarinn sínir börnunum það sem leynist í kassanum.

Hópastarf er frábær vettvangur vegna þess að börnum er oft skipt niður í minni hópa svo kenarinn hefur meiri tíma til að hafa betri og lengri umræður við nemendur og getur svarað spurningum betur ef þess þarf.

Samverustundir
Hópastarf virkar líka mjög vel þar sem börn eru öll saman að hlusta á kennaran. Þá hefur kennarinn möguleika á að hafa góða athygli hjá börnum. Það er hægt að nýta einmitt þann tíma í að lesa hvað Lubbi hafði gert í heimsóknum hjá hverju barni fyrir sig, hvort það sé að Lubbi fari heim yfir helgi eða eina nótt. Börnum leiðist aldrei að heyra skemmtilegu ævintýri sem Lubbi hafði lent í deginum áður.

Ljósmyndaverkefni
Fyrir ljósmyndaverkefnið þá eru margar mismunandi leiðir til útfærslu. Það er hægt að fara í ævintýraferð þar sem krakkarnir fá leiðbeiningu um að þurfa finna eitthvað út í náttúrunni sem tengist málhljóðinu hverju sinni. Nemendur sem finna t.d. lauf og tengir það vil L mega þá taka myndir af því. Yngri börnin myndu fá hjálp frá kennaranum að taka myndir af hlutum sem þau finna.

Einnig er hægt að fara í fjarsjóðaleik inni eða jafnvel úti þar sem börnin leita uppi hlutum sem eru í leikskólanum eða nærumhverfi sínu og taka síðan myndir af þeim hlutum sem tengjast málhljóðinu. Síðan safnar kennarinn öllum myndum, prentar þær út og biður börnin sem tóku myndirnar að klippa og líma á veggspjaldið þar sem kennarinn síðan hengir upp á vegg og börnin geta skoðað verkefnið sitt sem þau framkvæmdu.

Lubbi finnur málbein og leiðarljós leikskóla
Hægt er að tengja Lubba við margt sem kemur fram í fimmta kafla Aðalnámskrár leikskóla sem kallast leiðarljósi leikskóla.

Í leiðarljósi leikskóla er talað um tungumál og tjáningu en

með því að hlusta og syngja um Lubba er verið að hvetha börnin til að tjá sig sem og hlusta á frásagnir og sögur.

Í vinnunni með Lubba gefast fjölmörg tækifæri í leik og daglegum samskiptum til að efla málvitundina og leggja inn ný orð og hugtök. Þetta er t.d. gert með gullabúinu hans Lubba og fjársjóðskistunni hans sem dæmi. Einnig með því að gefa öllu í umhverfinu gaum og tengja eins mikið og hægt er við málhljóð vikunnar.

í leiðarljósinu er einnig er talað um sköpun og leik

Lubbaefnið hvetur börn til að túlka og tjá sig á fjölbreyttan hátt með söng, hreyfingum, myndlist og frásögnum.

Ef horft er til einstaklingsmiðað náms þá tekur Lubbi tillit til ólíkrar tjáningar en einnig eru verkefnin fjölbreytt og börnin fá tækifæri til að fást við viðfangsefni sem taka mið af áhuga þeirra, styrkleikum og þroska. Þessi vinna er öll gerð til að efla trú á eigin getu og námsáhuga.

Lubbaverkefni hvetja til rannsókna og ígrundunar en það er helst þegar börn uppgötva hljóð og tengsl þeirra við bókstafi og fara einnig að tengja fyrirbæri úr umhverfinu við málhljóðin og stafina.

Með því að fara í ferðalag með Lubba og æfa öll málhljóðin þjálfast sjálfstæði og frumkvæði barnanna óneitanlega þar sem þau öðlast betra vald á tjáningu sinni sem ýtir undir jákvæða sjálfsmynd. Með því að ná tökum á nýjum málhljóðum og upplifa börnin árangur (Mennta- og menningarráðuneyti, 2011).

Þannig styður Lubbi finnur málbein við fjölmörg leiðarljós leikskóla og leggur grunn að öflugri málþroska og félagslegri færni barna.

Gögn í námsumhverfi
Það skiptir máli að hafa góð gögn til þess að námsefnið gangi upp og það skortir alls ekki gögn með Lubba. Til þess að börn læri þá verður það oftast að vera myndrænt og sýnilegt svo það sé skiljanlegra og spennandi fyrir yngri aldurinn. Nokkur dæmi um gögn sem má nefna er plaggatið sem hægt er að kaupa plastað inn á vefsíðuni Lubba þar sem kennarar hengja upp inn á deildum. Það er hægt að nýta plaggatið til að sýna öll málhljóðin. Svo er það auðvitað bókinn sem innilehdur efnið. Allar deildir hafa oftast hverja bók fyrir sig svo það er alltaf hægt að sýna börnunum sögurnar.

Svo eru það Lubba kassar. Þar er margt inn í þeim sem tengjast hverju málhljóði fyrir sig. Sumir kassar auðvitað hafa minna efni í sér út frá stafnum. Til að bæta í kassana er hægt að biðja t.d. foreldra, fyrirtæki eins og rauða krossinn eða Hertex eða skoðað sölusíður á netinu hvort þau eiga einhver leikföng eða sniðuga hluti sem tengjast málhljóðum (Heroman, 2017. bls. 19). Kennarar verða samt að vera skírir við það sem þau biðja um. Það þarf t.d. að sýna þeim stærð á kassanum sem hlutirnir fara í svo það passi í þá (Heroman, 2017. bls.19). Því meira efni sem börn hafa því meiri og skemmtilegri umræður geta myndast í hópastörfum og þannig efla börnin meiri málörvunina sína.