SFT by

Inngangur
hvað eru þið að fara að fjalla um, hvernig gerið þið það og hvers vegna.

Klemmusagan okkar fjallar um eldri konu sem er orðin mjög veik með marga sjúkdóma, hún á tvær uppkomnar dætur sem eru með ólíkan bakgrunn. Þær ólust ekki upp saman og eiga misgott samband við móðir sína og eru ekki sammála um meðferð hennar. Við komum upp með greiningar á aðstæðum þeirra og álitamálin eru skoðuð.

Klemmusaga
Öldruð kona í kringum áttrætt, ekkja og á tvær uppkomnar dætur sem eru 40 ára og 60 ára. Hún leggst inn á spítala út á landi með krabbamein á lokastigi. Hún greindist með æxli í ristli fyrir þremur árum, síðan þá hefur krabbameinið dreift sér um allan líkamann. Áður en hún greindist með krabbamein þá var hún greind með heilabilun sem hefur farið versnandi með árunum og þá sérstaklega eftir að hún greindist með krabbameinið, því það gerði hana enn þá meira veikburða.

Yngri dóttirin vill senda móður sína suður til að fara í aðgerð á krabbameininu og gera allt í sínu valdi til að halda móðurinni á lífi lengur en eldri dóttirin vill halda henni á spítalanum sem hún er á og leyfa henni að fara á líknandi meðferð. Eldri dóttirin hefur átt erfitt samband við móðir sína sem endurspeglar langanir hennar en yngri dóttirin hefur átt betra samband við hana og finnst hún ekki hafa haft nægan tíma með móður sinni. Tilfinningarnar sem systurnar bera til móður sinnar eru mjög ólíkar. Eldri dóttirin rífst mikið við móður sína og þrasar við heilbrigðisstarfsfólk um að þau séu að gera of mikið fyrir móður sína. Yngri dóttirin grætur mikið og líður illa yfir framkomu systur sinnar því hún túlkar það eins og hún vilji bara að mamma þeirra deyi. Yngri dóttirin vill að heilbrigðisstarfsfólkið geri allt í þeirra valdi til að halda mömmu hennar lengur á lífi og talar náið við hjúkrunarfræðing um líðan sína.

Aðstæðugreining og álitamál
Vandinn sem kemur upp er ósætti á milli þeirra systra og samskipti þeirra við móðir og heilbrigðisstarfsfólk. Yngri dóttirin talaði við hjúkrunarfræðing á vaktinni og sagði henni bakgrunn þeirra systra og hvernig þær hefðu mismunandi upplifun í æsku með móður sinni. Eldri systirin fékk ekki eins gott uppeldi vegna þess að móðir hennar var ung þegar hún átti hana og var ekki á góðum stað andlega. Þegar yngri systirin fæddist þá var móðir þeirra komin á betri stað í lífinu og gat því gefið henni betra uppeldi. Á þeim tíma var eldri dóttirin flutt að heiman og fékk því móðirin ekki að laga samband sitt við hana og hefur samband þeirra verið stirt alla tíð.

Þessi vandamál sem komu upp í sögunni á milli þeirra systra er hugsanlega vegna þess að það sem þær eru í erfiðum aðstæðum og að upplifa hlutina mjög ólíkt. Það er mikil togstreita á milli þeirra systra í þessum aðstæðum og mögulega eru það gömul sár sem þær hafa ekki náð að vinna úr sem hafa áhrif á hegðun þeirra í þessum aðstæðum.

Hugsanlega eru samskipti eldri systurinnar við heilbrigðisstarfsfólkið svona leiðinleg vegna þess að hún átti erfiða æsku og ekki gott samband við móðir sína. Hún er mögulega líka afbrýðisöm út í yngri systur sína vegna þess að hún fékk öðruvísi og betra uppeldi en hún sjálf. Því er sambandið á milli þeirra systra ekki gott.

Yngri systirin er mun yngri og móðir hennar var 40 ára þegar hún átti hana, og því finnst henni hún ekki hafa haft eins mikinn tíma með henni í lífinu. Henni langar að halda henni lengur á lífi til að eiga meiri tíma með henni. Það sem hún áttar sig kannski ekki á er að móðir hennar mun ekki hafa getuna til þess að lifa lengur því lífi sem dóttirin vill. Því eru samskiptin hennar við heilbrigðisstarfsfólkið betra og nær að tjá sig við það og fá huggun frá þeim.

Leiðir til lausnar
Við sem fagmenn getum haft góð áhrif á fjölskyldur skjólstæðinga okkar, allavega reynt það. Mikilvægt er að búa til pláss þar sem fólk fær að segja sögu fjölskyldunnar. Við sem fagmenn verður að sýna skilning á þeirra líðan, leyfa þeim að tjá sig og segja sínar skoðanir. Fagleg samskipti eru afar mikilvæg þegar kemur að samvinnu og ákvörðunartöku. Faglegu samskiptin eru oft tilfinningahlaðin og liggur oft eitthvað meira að baki, því er nauðsynlegt að finna kjarna málsins. Því er best fyrir þær að eiga samskipti tvær saman eða með þriðja aðila.

Mikilvægt er að skilja af hverju systurnar eru með þessar ólíku tilfinningar og sýna þeim báðum skilning, svo þær geta nýtt upplýsingar sem starfsfólk gefur þeim. Mikilvægt er að gefa þeim tíma til að melta þessar upplýsingar. Ef þessar heilsufarsupplýsingar um móður þeirra eiga að skila einhverjum árangri þá þarf að segja þeim frá þeim upplýsingum á þann hátt að það hvetji þær til að nota þær (Bhatt, A. og Mitchell, A., 2015).

Hluti af starfsskyldu okkar er fagleg umhyggja og eigum að sýna einlægni, auðmýkt og kurteisi í samskiptum, sækjum í brunn sammannlegrar reynslu. Mikilvægt er að hugsa vel um eldri systurina því hún á alveg jafn erfitt með þetta og yngri systirin þótt að hún sýni það öðruvísi.

Við getum gefa ráð og álit og einnig nýtt okkur Calgary módelið, þá getum við metið fjölskylduna með skipulagsmati, þroskamati og virknimati. Við sjáum með því að skoða hvern þátt fyrir sig að skortur sé á uppbyggingu fjölskyldunnar. Eldri dóttirin átti erfiða æsku og ekki gott sambandi við móðir sína sem mótaði ríg á milli þeirra systra. Síðan misstu þær pabba sinn sem hefur einnig mótað þær í dag. Þroski fjölskyldunnar hefur því svolítið hjaðnað og hefur vantað upp á samskipti síðustu ár sem er gríðarlega erfitt þegar á að fara takast á við svona stórar ákvarðanir. Í sambandi við virknina þá hafa þær lokað á tilfinningar í gegnum ævina og er því líklegt að allt sem þær hafa verið að upplifa sé að koma upp núna og því meiri togstreita og gömul sár sem hefur áhrif á hegðun þeirra í þessum aðstæðum.

Módelið hjálpar því til að skilja þarfir fjölskyldunnar, setja markmið út frá mati og að geta beitt aðferðum til að ná markmiðum.

Margir tákna það að þegar nefnt er lífslokameðferð að það er merki um að læknar eða starfsfólk sé að gefast upp eða að það sé engin von. Í sumum tilfellum getur þetta þýtt að það sé að fara koma að lokum en það er alltaf hægt að taka af lífslokameðferð og hefja aðra viðeigandi meðferð (American Cancer Society, 2014). Það þyrfti að útskýra fyrir yngri dótturinni að það sé ekki verið að gefast upp og að þetta snýst aðallega um að móður hennar líði vel.

Lokaorð
hvað lærðuð þið við gerð verkefnisins og hvernig ætlið þið að nota það í ykkar störfum?

Heimildaskrá

Forsíða
Elísa Björg Sindradóttir

ebs2@unak.is

kt. 211201-2580

Mercedes Bóasdóttir

meb1@unak.is

kt. 270401-3840

Oddný Halla Haraldsdóttir

ohh1@unak.is

kt. 170902-3430

Persónur
80 ára gömul kona

60 ára gömul dóttir

40 ára gömul dóttir