Menntaskólinn á Tröllaskaga by Inga Margrét Benediktsdóttir

Um skólann
Menntaskólinn á Tröllaskaga
Stofnaður 2010 og staðsettur í Ólafsfirði. Ríkisrekinn menntaskóli sem þjónustar unglinga aðallega en þó líka fullorðna til stúdentsprófs. Námstími er að meðaltali 3 ár. (Menntaskólinn á Tröllaskaga, 2014).

Starfsbraut
Innan skólans er starfsbraut (sérdeildar nám) fyrir nemendur sem hafa viðurkennd greiningargögn um fötlun skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Námið er 4 ár óháð þeim einingarfjölda sem nemandinn klárar á þeim tíma. Námið er símats nám og er einstaklingsmiðað og sveigjanlegt. Áhersla námsins er að auka félagsleg samskipti nemenda og undirbúa þá undir áframhaldandi nám og/eða þátttöku á vinnumarkaði. Þá fara nemendur 4 klukkustundir á viku í starfsnám hjá ýmsum vinnustöðum frá upphafi námstíma.

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að eiga samskipti við daglegar athafnir á sínum eigin forsendum. Miðað er að því að auka sjálfstraust, sjálfstæði og samskiptahæfni einstaklingsins til daglegra athafna. Möguleikar á áframhaldandi námi við hæfi aukast eftir útskrift af starfsbraut. Nemandinn á að geta notið íslenskrar menningar og margbreytileika hennar að námi loknu og margir en þó ekki allir nemendur eiga að hafa þá hæfni að geta tekið þátt á vinnumarkaði á sínum eigin forsendum
(Námskrárvefur mennta- og menningarmálaráðuneytisins, e.d.).

Iðja markhóps og áhrif iðju á heilsu
Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 16-20 ára með þroskaskerðingu. Fatlaðir eiga rétt á þátttöku í samfélaginu og eiga að geta upplifað unglingsárin sín á svipaðan eða sama hátt og aðrir unglingar. Hugtakið þátttaka kemur fyrst fram hjá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks og tengist það inn á mannréttindi, félagslega stefnumótun og upplifun fólks af eigin færni. Fatlað fólk á rétt á sömu upplifun á lífinu og allir aðrir og á það við bæði huglæga þátttöku og hlutlæga þátttöku. Virkni, sjálfstæði og að geta stjórnað eigin lífi þótt viðkomandi þurfi hjálp, er mikilvægt fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu eða fötlun (Snæfríður Þóra Egilsson, 2011).

Í Menntaskólanum á Tröllaskaga hittum við nemendur sem eru í námi á starfsbraut og fylgdumst með iðju þeirra innan skólans. Iðja þeirra er mjög svipuð þeirri iðju sem aðrir unglingar stunda við skólann. Nemendur eru að lesa, læra ýmsar greinar t.d. stærðfræði, íslensku og ensku, stunda íþróttir, hlusta á tónlist, tjá sig við aðra, hitta vini sína, stunda listsköpun, nota tölvur og borða í matmálstímum eins og allir aðrir unglingar innan skólans. En þeir þurfa oft hjálp við að stunda iðju og þannig stuðlar iðjuþjálfinn ásamt sínu teymi að því að byggja upp sjálfstraust og æfa upp færni einstaklinga í átt að þátttöku og sjálfstæði í samfélaginu. Iðja og heilsa eiga samleið á þann hátt að ef fólk getur ekki stundað iðju þá eigi það til að detta út úr samfélaginu sem gæti orðið að því að færni, geta og sjálfstraust einstaklingsins fer niður á við.  (Kristjana Fenger og Guðrún Pálmadóttir, 2011).

Þannig að með því að ýta fötluðum einstaklingum áfram í iðju er verið að hafa áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins og hann upplifir að hann hafi tilgang.

Stutt lýsing á heimsókninni - Stiklað á stóru
Við fórum í heimsókn á vettvang 9., 11. og 12. október 2017. Vorum tvo hálfa daga fyrir hádegi og einn heilan dag.
Fyrsta daginn fylgdumst við með Guðrúnu sinna einum skjólstæðingi og fylgdumst svo með hennar vinnu innan skólans og fengum að sitja starfsmannafund með henni.
Annan daginn hittum við Guðrúnu og fylgdumst með henni að störfum með 4 skjólstæðingum aðallega. Fengum að fara með í sund tíma, fylgdumst með henni nota CAT kassann (hugræn tilfinningaleg þjálfun). Fórum í listatíma og spiluðum svo saman við einn skjólstæðing og fylgdumst síðan með störfum í lok dags.
Þriðja daginn hittum við Guðrúnu í íþróttamiðstöðinni þar sem nemendur fóru í íþróttir.

Okkar sýn á skjólstæðing og tengingar við iðjufræðin
Skjólstæðingurinn er ung kona sem er í námi við Menntaskólann á Tröllaskaga. Skjólstæðingurinn er á starfsbraut og glímir við fötlun og hún þarf alhliða stuðning allan skóladaginn sem er sinnt af iðjuþjálfa, þroskaþjálfa og stuðningsfulltrúum.

Fyrstu skiptin sem hún mætti í skólann átti hún í erfiðleikum með að ganga úr rútunni og inn í skólann án aðstoðar en nú í dag er hún komin með þá getu. Starfsmenn á starfsbraut unnu að því í skrefum og brutu iðjuna „að mæta í skólann“  niður í undiriðjuna „að komast úr rútunni í skólann“ og svo var sú iðja hlutuð niður í framkvæmdarþætti sem voru þá að  standa upp, taka töskuna, labba að útganginum á rútunni, labba niður úr rútunni, labba inn í skólann með töskuna og fara úr skónum. Þau eru en í dag að vinna með þetta ferli og eru þá að vinna með að fá hana til þess að ganga inn í fatahengið með töskuna sína og hengja upp útifatnað. Þetta ferli minnir mig á iðjuþjálfa að nafni Nelson sem gerði greiningu á ungri konu sem hafði hlotið heilaskaða eftir bílslys og skipti þar iðjunni „að keyra bíl“ niður í undiriðjuna „að keyra bíl í streituvaldandi aðstæðum“ og sú iðja var síðan brotin niður í framkvæmdarþætti (Jarman, J, 2014).

Markmið með þjálfun þessa skjólstæðings er aðallega umhirða, aukning á sjálfstæði, þátttaka í samfélaginu og að öðlast tilgang. Fötlun er það mikil að það er ekki líklegt að skjólstæðingurinn muni vinna á vinnumarkaði. Hún fer í Iðjuna á Siglufirði, þar sem fatlaðir og fólk með skerðingu koma saman og vinna handverk, á meðan samnemendur hennar eru á vinnumarkaði einu sinni í viku.

Dæmi um þá iðju sem Guðrún iðjuþjálfi styrkir og vinnur með henni eru almenn heimilisstörf, málörvun í gegnum myndir og leik, þjálfun fínhreyfinga og aukning á orðaforða. Hún notar spil, bækur, leiki og spjaldtölvu til þessa verka. Svona svipað og scaffolded play sem er hugtak sem Loree Primeau notaði sem skilgreiningu á því þegar börn vilja sinna iðju, oft undir verndarvæng foreldris eða annara fullorðinna einstaklinga, sem partur af leik til þess að efla sjálfstæði þeirra, þekkingu og færni (Jarman, J, 2014). Þannig er þá iðjan "að setja í þvottvél" orðin leikur sem eflir sjálfstæði.

Allir nemendur á starfsbraut eru í myndlist og upp kom það vandamál að skjólstæðingi fannst ógeðslegt þegar málning klíndist á hendurnar, sem eru viðbrögð tengd hennar fötlun. Guðrún vann að lausn þess vandamáls svo nemandinn gæti sýnt verk með samnemendum sínum á sýningu. Nemandinn vildi bara lita myndir á blaði með tússlitum. Guðrún sá að til voru sérstakir málningarpennar sem hún gat notað án þess að fá klístur á hendurnar. Þá var komin lausn á vandamálinu og skapar skjólstæðingurinn nú listaverk til sýningar ásamt samnemendum sínum. Þetta er gott dæmi um inngrip eða íhlutun sem hefur jákvæðar afleiðingar í för með sér.

Þegar iðja hefur jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklinga þá felur hún í sér upplifun af færni og afrekum, félagsleg samskipti, áskorun, stuðning, margbreytileika eða orkueyðslu. Flæðikenning Csikszentmihalyis útskýrir bein áhrif iðju á heilsu og vellíðan þar sem hann útskýrir samræmi milli áskorunar og færni. Slökun eða örvun einstaklingsins og stjórn hans á aðstæðum einkennir gott samræmi milli færni og áskorunar. Hæsta stig gleði og fullnægju nefnist flæði og er því náð þegar algjört samræmi ríkir milli áskorunar og færni. Þá fær einstaklingur umbun  sem felst í athöfninni sjálfri og þeirri tilfinningu sem fylgir henni. Ósamræmi veldur neikvæðum tilfinningum eins og áhyggjum og kvíða eða leiða og einnig til sinnuleysis ef að áskorunin er ekki næg fyrir einstaklinginn. Þessi kenning á mjög vel við í þeim aðstæðum sem að eiga sér stað í myndlistartíma. Einstaklingurinn upplifir samræmi milli færni og áskorunar og fær tilfinningalega umbun í lokin. Með því að styðja við jákvæða þætti, hefur iðjuþjálfinn áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins og hann upplifir sig hafa tilgang. Í þessu tilviki upplifir hún að vera partur af heild með samsýningu nemenda. Umbunin felst í því stolti að fá og geta verið með. (Kristjana Fenger og Guðrún Pálmadóttir, 2011)

Við fórum með Guðrúnu og nemendum hennar í sund og íþróttatíma og sáum að skjólstæðingurinn gat ekki stundað íþróttirnar á sama hátt og aðrir samnemendur. Hún fékk að nota eigin aðferð við sund og þar með var hún partur af tímanum með samnemendum sínum.  Í íþróttunum var umhverfinu breytt til að aðlaga iðjuna að einstaklingnum og þá gat hún tekið þátt með öllum hinum. Hindranirnar voru teknar úr umhverfinu og þá gat nemandinn stundað íþróttirnar, eins og talað er um í kanadíska kerfinu sem Guðrún styður sig við í starfi.

Gísli Hvanndal Jakobsson
Nemi í iðjuþjálfunarfræði við Háskólann á Akureyri

Heimildaskrá
Jarman, J.(2014). What is Occupation? Interdisciplinary Perspectives on Defining and Classifying Human Activity. Í Christiansen, C. og  Townsend, E. (ritstjórar). (2014). Introduction to Occupation: The Art of Science and Living (2.útgáfa). England: Edinburgh Gate.

Kristjana Fenger og Guðrún Pálmadóttir. (2011). Iðja og heilsa. Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilsson (ritstjórar). Iðja, heilsa og velferð: Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi. (bls. 21-33). Akureyri: Háskólinn á Akureyri.

Menntaskólinn á Tröllaskaga. (2014, 14. mars). Skólinn. Sótt af https://www.mtr.is/is/skolinn

Námskrárvefur mennta- og menningarmálaráðuneytisins. (e.d.). Starfsbraut ( 15-30-1-12 ). sótt af http://namskra.is/programmes/cc3f45cc-eef9-4657-805e-90fdaaab8771

Sérkennslutorg. (e.d.) Hugræn tilfinningaleg þjálfun (CAT). Sótt af http://serkennslutorg.is/throskastigin/felags-og-tilfinningathroski/hugraen-tilfinningaleg-thjalfun-cat/

Sjálfsbjörg Akureyri og Nágrenni. (e.d). Fræðileg nálgun. Sótt af http://www.bjargendur.is/is/starfsemi/idjuthjalfun/fraedileg-nalgun

Snæfríður Þóra Egilsson. (2011). Umhverfi og þátttaka. Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilsson (ritstjórar).  Iðja, heilsa og velferð: Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi. (bls. 67-79). Akureyri: Háskólinn á Akureyri.

Guðrún - iðjuþjálfi
Guðrún Þorvaldsdóttir, 33 ára. Hún er gift og á 2 börn. Iðjuþjálfi á starfsbraut við Menntaskólann á Tröllaskaga. Hóf störf haust 2017.

Við skólann starfar 31 starfsmaður og þar af er 1 iðjuþjálfi starfandi í 50% starfi. Hún starfar með einum þroskaþjálfa og tveimur stuðningsfulltrúum og svo er einn aðili með yfirumsjón á starfsbrautinni. Það eru 14 nemar á starfsbraut og vinnur Guðrún með 5 til 6 einstaklingum á þeirri braut. Auk þess að starfa í menntaskólanum þá starfar hún líka í leikskólum Fjallabyggðar í 50% starfi.

Guðrún lærði iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri og valdi það nám því henni þótti það áhugavert og það var boðið upp á það á norðurlandi. Hún hóf nám 2004 og útskrifaðist 2009. Hún er með Bs. c. gráðu í iðjuþjálfun en hefur sótt fjölda námskeiða tengd hennar vinnu umhverfi og nýtir endurmenntunar rétt sinn á hverju ári. Endurmenntun hennar snýr aðallega að börnum og unglingum en það er markhópur hennar í starfi.

Guðrún hóf strax störf eftir námið og starfaði hjá félagsþjónustu austur Húnavatnssýslu með starfsstöð á Blönduósi sem ráðgjafi í málefnum fatlaðra.

Guðrún notast við kanadíska kerfið. En þó hefur hún tekið upp þann sið að meta hvern og einn einstakling eftir færni þeirra. Hún vinnur ekki eftir greiningu eða fötlun einstaklingsins heldur út frá einstaklingnum og þeirri færni sem þarf að styrkja. Þannig er hver og einn nemandi með einstaklingsbundna stundaskrá eftir þeirra færni, getu og markmiðum.

Kanadíska kerfið (Canadian Model of Occupational Performance)
Sú hugmyndafræði sem Guðrún vinnur eftir er Kanadíska kerfið.

Þar er horft á einstaklinginn, umhverfið og iðju sem eina heild.
Skoðaðar eru fjórar umhverfisvíddir: efnisheimur, samfélag, menning og stjórnsýsla sem samofið fyrirbæri sem hefur áhrif á hvert annað (Snæfríður Þóra Egilsson, 2011).

Guðrún er skjólstæðingsmiðuð, vinnur með hverjum einstaklingi fyrir sig og skoðar líkamlega, huglæga og tilfinningalega færni hvers og eins. Iðjan og einstaklingurinn er alltaf miðpunkturinn í starfi hennar. Hún skoðar einnig umhverfi einstaklingsins til þess að sjá þá þætti sem styðja eða hindra þátttöku í iðju (Sjálfsbjörg Akureyri og Nágrenni, e.d.).

Stór hluti þeirra sem eru á starfsbraut finna sér starf á ákveðnum tíma í náminu og vinna þar einu sinni í viku. Þannig aðlagast einstaklingurinn hægt en örugglega að breyttum aðstæðum og venjum, samhliða þess að geta, færni og sjálfstraust vex.

Sumir skjólstæðingar Guðrúnar glíma við það mikla fötlun að þeir geta aldrei farið út á vinnumarkað í neinu formi. Takmark þeirra snýst um að efla færni við tjáningu , eiga almenna þátttöku í samfélaginu, athafnir daglegs lífs eins og heimilisstörf, klæða sig, elda mat, fínhreyfingar og virkja áhugamál.

Guðrún leitar eftir því hvar áhugasvið og færni einstaklingsins liggur og setur niður áætlun/markmið hvers einstaklings fyrir sig. Hún hugsar alltaf í lausnum, aldrei í hindrunum.

Inga Margrét Benediktsdóttir
Nemi í iðjuþjálfunarfræði við Háskólann á Akureyri

CAT- Kassinn (Cognitive Affective Training) - Hugræn tilfinningaleg þjálfun
CAT-kassinn er samtalstæki til þess að hjálpa börnum og ungu fólki sem á erfitt með að tjá sig um líðan sína. Upphaflega var hann þróaður fyrir börn með einhverfu en síðar kom í ljós að hann gagnaðist bæði börnum með eðlilegan þroska til að tjá tilfinningar sínar og hugsanir sem og einstaklingum með þroskahömlun.
Kassinn inniheldur m.a. 9 grunntilfinningar sem hægt er að tjá með 90 mismunandi andlitum og 90 tilfinningaorðum og tengja það við stóra mynd af líkamanum, dagsform o.fl. (Sérkennslutorg, e.d.).

Flestir skjólstæðingar Guðrúnar eru á einhverfurófi auk þess að glíma við aðrar þroskaskerðingar.

Við fengum að fylgjast með Guðrúnu nota kassann með stelpu sem hefur átt erfitt með að tjá tilfinningar sínar og hugsanir. Þessi unga stelpa er með þroskaskerðingu en er byrjuð að vinna fyrir hádegi einu sinni í viku með náminu og iðjuþjálfun sinni. Það var athyglisvert að sjá að hún tengdi alltaf tilfinningar eins og reiði eða gleði við höfuð sitt en ekki búk. Þegar Guðrún lýsti gleði eða ánægju sem tilfinningu við hjartastað (brjósti) þá benti hún á höfuð sitt, eins var með reiði. En þegar kom að ótta þá lýsti hún líkamlegum einkennum eins og skjálfta og svita í höndum.

Með því að nota CAT-kassann náði Guðrún að byggja upp samtalið við stelpuna og ræða við hana um daglegt líf og líðan.

Við lærðum að fólk með þroskaskerðingu og einhverfu á mjög erfitt með að tjá tilfinningar sínar, hugsanir. Það getur skapast togstreita innra með þeim sem leiðir til reiði og/eða annarra neikvæðra tilfinninga sem þau eiga erfitt með að útskýra. En þetta samtalstæki gerir þeim kleift að tjá sig myndrænt og með orðum.

Hver, hvað, hvenær, hvar, hvernig og af hverju?
Hver: Nemendur á starfsbraut, 16-20 ára með þroskaskerðingu og/eða á einhverfurófi. / Iðjuþjálfi.
Hvað: Stunda nám. / Starfa með nemendum.
Hvenær: Klukkan 8-16 á virkum dögum.
Hvar: Menntaskólinn á Tröllaskaga í Ólafsfirði.
Hvernig: Með mætingu í skólann og taka þátt í því sem verið er að vinna að hverju sinni. / Með mætingu í vinnu og styðja og efla einstaklinga í því sem verið er að vinna að hverju sinni.
Af hverju: Til að auka þátttöku sína í samfélaginu, efla sjálfstæði og öðlast þekkingu og starfsgetu. / Til þess að nemandinn hafi sama rétt og upplifun og aðrir nemendur eða fólk á sama aldri hefur, efla getu einstaklinga til daglegs lífs, stuðla að aukinni þátttöku í samfélaginu og sjálfstæði hjá einstaklingum.

Fjölbreytileiki í starfi
Að fá að fylgjast með iðjuþjálfa við störf í tvo daga var gífurlega fræðandi og bæði víkkaði og dýpkaði sýn okkar á mismunandi þarfir skjólstæðinga. Heimsóknin hjálpaði okkur að sjá fjölbreytileika þeirra starfa sem iðjuþjálfi tekst á við í daglegu starfi. Við sáum mismunandi einstaklinga með mismiklar skerðingar sem eru líkamlegar, tilfinningalegar, huglegar og félagslegar. Við lærðum að iðjuþjálfinn þarf að aðlaga sig og starf sitt að einstaklingnum og vinna út frá honum. Að koma með sömu lausn fyrir alla er einfaldlega ekki raunhæft því þarfir hvers og eins, færni og geta er eins ólík og mannfólkið er margt.

Aðstaða nema - mynd
Aðstaða fyrir nema er til fyrirmyndar og minnir á litla íbúð. Hér má sjá þvottavél og þurrkara en það er meðal þeirra verka sem nemar stunda á starfsbraut að setja í þvottavél.

Aðstaða nema - mynd
Þarna er fullbúið eldhús ásamt tækjum og tólum til eldamennsku og uppvöskunarvél. Einnig er ísskápur í aðstöðunni. Nemendur á starfsbraut stunda eldamennsku einu sinni í viku og læra að ganga frá bæði áhöldum og matvælum. Síðan gefa þeir samnemendum sínum af því sem eldað er.

Aðstaða nema - mynd
Góð aðstaða til slökunar og iðju. Hér vinnur iðjuþjálfi mikið með nemana þá við borð eða í þægindum.

Aðstaða nema - mynd
Borð með 1500 bita púsli sem nemendur eru að púsla saman (efla fínhreyfingar, einbeitningu, þolinmæði og hugsun). Það er hægt að hæðar stilla alla stóla í öllum stofum skólanns.

Iðjuþjálfi að störfum - mynd
Það eitt að hvetja einstaklinginn áfram til þátttöku getur verið mikilvægt. Hér er Guðrún í sundi með skjólstæðingi og hvetur hana áfram og styður í gegnum tímann.

Iðjuþjálfi að störfum - mynd
Hér er Guðrún að efla einbeitningu og fínhreyfingar nema með kapla kubbum þar sem hún lætur nema stafla kubbunum upp í turn. Yfirleitt endar það á að turninn hrynur því neminn gleymir alltaf kubbinum næst sér.

Iðjuþjálfi að störfum - mynd
Hér má sjá Ingu, Guðrúnu og Kristínu þroskaþjálfa inn í vinnuaðstöðu starfsfólk. Þar eru allskonar tæki og tól eins og t.d. púðar til að standa á og hækkanleg borð til vinnu. Hver og einn hefur sinn lampa og er ljósið dempað.

Búnaður til starfa - mynd
Hér má sjá fullan skáp af ýmsum búnaði sem Guðrún notar við vinnu sína.

Búnaður til starfa - mynd
Hér má sjá perlur sem eru þræddar upp á band til þess að æfa fínhreyfingar og efla þolinmæði.

Iðjuþjálfi að störfum - mynd
Hér má sjá Guðrúnu að sinna skjólstæðingi og Gísli fylgist áhugasamur með.

Búnaður til starfa - mynd
Þetta er spil sem við sáum Guðrúnu nota í vinnu sinni. Hún notaði það til málörvunar hjá einum skjólstæðingi.

Búnaður til starfa - mynd
Okkur fannst mjög merkilegt að sjá að nokkrir nemendur með mikla þroskaskerðingu og á einhverfurófi sýndu ótrúlega getu þegar kom að flóknum púslum. Sá nemandi sem býr við hvað mestu skerðinguna er mjög fær á að sjá samstæður, munstur og tengingar í púslum.

Hæfileikar nema - mynd
Hér er mynd sem nemi á starfsbraut er að mála og mun vera á samsýningu nemenda. Sjá má að færni og hæfileikar leynast víða og það á við alla einstaklinga.

CAT kassinn - mynd
Handbókin

CAT kassinn - mynd
CAT kassinn er tæki sem hjálpar ungu fólki að átta sig á og ræða líðan sína.

CAT kassinn - mynd
Hér má sjá nokkrar tilfinningar