Timeline by

1. Drengurinn sem lifði af.
Herra Dursley var á leiðinni í vinnuna þegar hann sá skringilega hluti, kött lesa á skilti og fólk í skikkjum. Það var einnig mikið af uglum að fljúga um hábjartan dag. Herra Dursley fannst þetta mjög undarlegt en nefndi þetta ekki við konuna sína. Þegar Dursleyfjölskyldan var sofnuð birtist maður í götunni þeirra. Kötturinn sem var að lesa á skilti fyrr um daginn breyttist allt í einu í manneskju að nafni McGonagall prófessor. Dumbledore og McGonagall biðu saman eftir Hagrid sem kom síðan með Harry Potter í fangi sér. Dumbledore prófessor skildi Harry eftir á dyraþrepi Dursleyfjölskyldunnar (vegna þess að frú Dursley var systir mömmu Harrys) og lét bréf fylgja með.

2.Glerið sem hvarf.
Næstum 10 árum seinna bjó Harry Potter ennþá hjá Dursleyfjölskyldunni. Einn daginn fóru þau í dýragarðinn vegna þess að Dudley, frændi Harrys, átti afmæli og vinur Dudleys, Piers, fékk að koma með. Harry komst bara með vegna þess að það fannst ekki fyrir hann pössun. í dýragarðinum byrjaði Harry að tala við kyrkjuslöngu sem talaði við hann til baka. Og töfrum líkast hvarf glerið í búri slöngunnar og hún skreið út. Herra Dursley hafði séð Harry tala við slönguna svo Harry var settur í straff.

3. Dularfullu béfin.
Þegar Harry var búin í straffi var komið sumarfrí. Harry fékk dularfullt bréf en áður en hann gat opnað það tóku frænka hans og frændi það af honum. Harry hélt áfram að fá fleiri og fleiri bréf svo að herra Dursley fór með þau á hótel. Harry fékk ennþá fleiri bréf á hótelinu þannig að frændi hans fór með þau í einhvern kofa úti á eyju. Á miðnætti varð Harry 11 ára og einhver var að reyna að brjóta niður hurðina á kofanum.

4. Skógarvörðurinn.
Hurðin á kofanum brotnaði og inn kom risastór maður að nafni Rubeus Hagrid. Hagrid sagði Harry að hann væri galdramaður og gaf Harry bréfið hans. Inni í bréfinu stóð að honum væri boðinn skólavist í galdraskólanum Hogwarts, þar sem Hagrid var skógarvörður. Hagrid sagði Harry líka að foreldrar hans voru myrtir af Voldemort en dóu ekki í bílslysi eins og frænka hans og frændi höfðu sagt honum. Og að hann, Harry, væri frægur vegna þess að Voldemort náði ekki að drepa hann og flúði á brott. Harry fékk eldingarlaga ör á ennið eftir bölvun Voldemorts.

5. Skástræti
Harry og Hagrid tóku lest til London og fóru inn á litla krá sem leiddi þá inn á stóra verslunargötu fyrir galdrafólk sem hét Skástræti. Harry keypti allt skóladótið sitt þar og að lokum keypti hann töfrasprota. Þegar sprotinn valdi Harry tautaði Ollivander (sem átti sprotabúðina) fyrir munni sér ,,undarlegt" og þegar Harry spurði hvað væri svona undarlegt sagði Ollivander að sprotinn hans Harrys væri bróðursproti sprota Voldemorts. Síðan fylgdi Hagrid Harry aftur heim til Dursleyfjölskyldunnar.

6. Ferðin frá brautarpalli níu og þrír fjórðu.
Um haustið átti Harry Potter að byrja í Hogwartskóla. Á lestarstöðinni fann Harry ekki brautarpall níu og þrjá fjórðu, eins og stóð í bréfinu, svo hann spurði rauðhærða fjölskyldu til vegar. Hann komst á brautarpallinn með því að hlaupa í gegnum múrsteinsvegg. Þegar Harry var sestur inn í klefa kom yngsti rauðhærði strákurinn og settist hjá honum. Hann hét Ron Weasley og var í sjokki þegar Harry sagði honum hvað hann hét. Harry keypti handa þeim fullt af nammi sem þeir borðuðu saman í lestinni. Þegar lestin var komin fóru allir fyrsta árs nemar í báta og sigldu upp að risastóra kastalanum á klettinum.

7. Flokkunarhatturinn.
Þegar fyrsta  árs nemarnir komu inn í stóra salinn var settur á þau flokkunarhattur sem flokkaði þau í vistir, Harry og Ron lentu í Gryffindor. Þegar Harry var að borða leit maður með svart fitugt hár illilega á hann og Harry fékk nístandi verk í örið. Fyrstu vikuna í skólanum var mikið pískrað um Harry á göngunum.

8. Miðnætureinvígið.
Kennarinn með svarta hárið hét Snape og kenndi töfradrykkjarfræði og var greinilega með óbeit á Harry. Fyrsta árs nemar í Gryffindor sóttu flugtíma með krökkunum í Slytherin. Klaufabárðurinn Neville flaug óvart strax upp í loftið og datt og missti minniskúluna sína. Draco Malfoy tók hana og flaug á kústinum sínum upp í loftið og Harry elti. Draco kastaði henni upp í loft og Harry greip hana eftir 15 metra dýfu. Prófessor McGonagall sá hann og bauð honum stöðu sem leitara í Quidditchliði Gryffindors. Eftir þetta sagði Draco Harry að hitta sig á miðnætti til að fara í galdraeinvígi en Draco kom aldrei. Harry, Ron, Hermione og Neville voru næstum því gómuð á næturrölti en fóru óvart inn á forboðna ganginn og sáu þriggja höfða hund sem stóð vörð um einhvern hlera.

9. Hrekkjavakan.
Við morgunverðarborðið fékk Harry risastóran pakka í uglupóstinum sem reyndist vera Nimbus 2000 kústur frá McGonagall prófessor. Oliver Wood, fyrirliði Gryffindorliðsins, tók Harry á stutta quidditch æfingu um kvöldið. Næsta dag var hrekkjavaka en þegar allir voru að borða kvöldmat kom Quirrel prófessor og sagði að það væri komið tröll í skólann. Hermione var samt ennþá inni á stelpnaklósettinu grátandi vegna þess að Ron var leiðinlegur við hana. Harry og Ron komu samt í tæka tíð til að bjarga Hermione og rotuðu tröllið.

10. Quidditch
Harry, Ron og Hermione sáu Snape haltra í frímínútum. Svo fór Harry inn á kennaraskrifstofu til að sækja bók sem Snape hafði tekið af honum en sá þá Snape og að hann var með blóðugt sár á fætinum, greinilega eftir þríhöfðahundinn. Harry keppti sinn fyrsta quidditch leik gegn Slytherin en kústurinn hans var að láta mjög skringilega. Ron og Hermione voru á áhorfendabekkjunum og sáu Snape leggja bölvun á Harry. Hermione stoppaði hann með því að kveikja í skikkjunni hans í laumi. Harry náði gullnu eldingunni og Gryffindor vann leikinn.

11. Draumaspegillinn.
Það voru komin jól og flestir nemendurnir voru komnir í jólafrí, til dæmis Hermione. Í jólagjöf fékk Harry huliðskikkju en það stóð ekki á henni frá hverjum. Harry notaði skikkjuna til að fara inn á lokuðu deildina á bókasafninu til að reyna finna út hver Nicholas Flamel væri. En hann þurfti í staðinn að fela sig frá húsverðinum og fann þá draumaspegilinn. Í honum sá hann mömmu sína og pabba og fullt af fleiri ættingjum sínum.

12. Norski rákdrekinn Norbert.
Harry, Ron og Hermione fundu það út að Nicholas Flamel væri frægur fyrir að geta búið til viskustein, sem var þá mjög líklega það  sem hundurinn var að varðveita. Þau voru í heimsókn hjá Hagrid og þá var Hagrid að hita drekaegg. Eggið klaktist og út kom norskur rákdreki sem Hagrid nefndi Norbert. En Hagrid mátti ekki vera með dreka svo Harry og Hermione læddust með Norbert upp í hæðsta turn Hogwartskóla undir huliðsskikkjunni til að vinir Charlies (bróðir Rons) gætu tekið Norbert til Rúmeníu þar sem Charlie vinnur við dreka. Á leiðinni úr turninum gerðu Harry og Hermione þau mistök að gleyma huliðsskikkjunni þar og húsvörðurinn Filch gómaði þau.

13. Forboðni skógurinn.
Draco Malfoy hafði klagað í McGonagall að Harry og Hermione voru á næturrölti og Neville hafði reynt að vara þau við. Refsingin var að þau fjögur þurftu að fara í forboðna skóginn með Hagrid að finna særðan einhyrning. Í skóginum skiptu þau liði og Draco og Harry fóru með hundinum hans Hagrids. Draco og Harry sáu skikkjuklædda veru sjúga blóð úr öðrum einhyrningi og mjakaði sér svo að Harry en kentárinn Flórens bjargaði honum. Flórens sagði Harry að þessi vera hafi verið Voldemort.

14. Í gegnum hlerann.
Harry, Ron og Hermione ákváðu að fara í gegnum hlerann sem þríhöfða hundurinn stóð vörð um til að hindra Snape í að ná viskusteininum. Harry spilaði á flautu til þess að hundurinn sofnaði. Þau hoppuðu í gegnum hlerann og lentu á einhverri plöntu og þau rétt sluppu áður en hún náði að drepa þau. Næst þurftu þau að tefla með risastórum skákmönnum til að komast að næstu hurð. Ron fórnaði sér til að Harry gæti mátað kónginn en Ron rotaðist bara. Það komu tvær svona svipaðar þrautir í viðbót en á þeirri seinustu þurfti Hermione að snúa við og hjálpa Ron, Harry hélt áfram.

15. Maðurinn með andlitin tvö.
Það var Quirrell prófessor sem mætti Harry þarna en hann var ekki jafn taugaveiklaður og alltaf og hann var að reyna að ná viskusteininum fyrir Voldemort. Quirrell sagði Harry að það hefði verið hann sem lagði bölvun á kústinn hans. Síðan tók Quirrell af sér vefjarhöttinn sinn og aftan á höfðinu hans var andlit Voldemorts. Quirrell reyndi að drepa Harry en gat ekki snert hann en Harry snerti andlit Quirrells þannig hann dó úr sársauka. Harry var fjóra daga í sjúkrahúsálmunni þar sem Dumbledore sagði honum að viskusteininum hefði verið eytt. Skólaárið var búið og það voru gefin nokkur stig að lokum til Harry, Ron, Hermione og Neville sem varð til þess að Gryffindor vann heimavistarbikarinn.