Réttindi barna by Brynja Thorsteinsdottir

Umoðsmaður Barna
Embætti umboðsmanns barna var stofnað 1. janúar 1995. Umboðsmaður barna er stjórnvald og heyrir stjórnskipulega undir forsætisráðuneytið sem hefur eftirlit með fjárreiðum þess. Umboðsmanni barna ber að gefa forsætisráðherra árlega skýrslu um starfsemi sína á liðnu almanaksári.
Að öðru leyti er umboðsmaður sjálfstæður og óháður embættismaður, óháður boð- eða skipunarvaldi stjórnvalda, málsvari barna gagnvart stjórnvöldum og einkaaðilum.

Barnasáttmálin
Barnasáttmálinn er hluti af íslenskri löggjöf en hann var lögfestur hér á landi 20. febrúar 2013

Réttindum fylgir líka ábyrgð
Börn njóta margs konar réttinda en það fylgir þeim ákveðnar skyldur og ábyrgð. Nýfædd börn hafa engar skyldur en eftir því sem þau eldast þurfa þau að bera meiri ábyrgð. Sem dæmi þurfa börn að fara eftir umferðalögum og skólareglum í sínum skóla. Á unglingsaldri verður ábyrgð þeirra enn meiri og 15 ára eru börn sakhæf.

Barn.is
Á vefsíðunni barn.is sem er upplýsinga síða á vegum umboðsmanns barna er að finna gríðarlega mikið af upplýsingum um réttindi barna.
Þar má finna upplýsingar um embætti umboðsmanns barna og um barnasáttmálann, Þar er einnig að finna undirsíðuna börn og unglingar þar sem koma fram allar helstu upplýsingar um réttindi barna, sett fram á þann hátt að auðvelt er fyrir börn og unglinga að skilja.

Barnasattmali.is
Vefurinn barnasáttmáli.is er samstarfsverkefni Barnaheilla, Unicef á íslandi, Umboðsmanns barna og Námsgagnastofnunar og er verkefnið styrkt af forsætisráðuneytinu.
Vefurinn er aðalega ætlaður til notkunar í grunnskólum en hentar þó einnig almenningi. Á vefnum er að finna barnasáttmálann, bæði heildartexta og styttri útgáfur. Þar er kennsluhugmyndir fyrir bæði yngri og eldri börn ásamt ýmsum verkefnum.

Réttindi fatlaðrar barna.
23. gr.

1. Aðildarríki viðurkenna að andlega eða líkamlega fatlað barn skuli njóta fulls og sómasamlegs lífs, við aðstæður sem tryggja virðingu þess og stuðla að sjálfsbjörg þess og virkri þátttöku í samfélaginu.

2. Aðildarríki viðurkenna rétt fatlaðs barns til sérstakrar umönnunar, og skulu þau stuðla að því og sjá um að barni sem á rétt á því, svo og þeim er hafa á hendi umönnun þess, verði eftir því sem föng eru á veitt sú aðstoð sem sótt er um og hentar barninu og aðstæðum foreldra eða annarra sem annast það.

3. Með tilliti til hinna sérstöku þarfa fatlaðs barns skal aðstoð samkvæmt 2. tölul. þessarar greinar veitt ókeypis þegar unnt er, með hliðsjón af efnahag foreldra eða annarra sem hafa á hendi umönnun þess, og skal hún miðuð við að tryggt sé að fatlaða barnið hafi í raun aðgang að og njóti menntunar, þjálfunar, heilbrigðisþjónustu, endurhæfingar, starfsundirbúnings og möguleika til tómstundaiðju, þannig að stuðlað sé að sem allra mestri félagslegri aðlögun og þroska þess, þar á meðal í menningarlegum og andlegum efnum.

4. Aðildarríki skulu í anda alþjóðlegrar samvinnu stuðla að því að skipst sé á viðeigandi upplýsingum um fyrirbyggjandi heilsugæslu og læknisfræðilega, sálfræðilega og starfræna meðferð fatlaðra barna, þ. á m. með dreifingu á og aðgangi að upplýsingum um endurhæfingaraðferðir, menntun og atvinnuhjálp, er miði að því að gera aðildarríkjum kleift að bæta getu sína og færni og auka reynslu sína að þessu leyti. Hvað þetta snertir skal tekið sérstakt tillit til þarfa þróunarlanda.

Barnaheill.is
Gætum réttinda barna

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa frá upphafi lagt áherslu á að vinna að mannréttindum barna á Íslandi. Með Barnasáttmálann að leiðarljósi hafa helstu áherslur verið á að standa vörð um réttindi barna, baráttu gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál og að efla áhrifamátt barna í íslensku samfélagi.

Samtökin hafa hafa meðal annars vakið athygli á og fjallað um fátækt, mansal á börnum, kynferðisofbeldi gegn gjaldi (sex tourism) og vegalaus börn. Þá hafa Barnaheill skilað fjölda lagaumsagna og ályktana til Alþingis og stjórnvalda auk þess að standa að undirskriftasöfnunum sem beint er til stjórnvalda til að knýja á um úrbætur á ýmsum sviðum sem varða heill og velferð barna.
https://www.barnaheill.is/is/starfid-okkar/gaetum-rettinda-barna

Hvert get ég leitað eftir hjálp?
Starfsfólk í skólum og frístundum
Nemendur eiga að geta leitað til starfsfólks skóla með trúnaðarmál, s.s. kennara, umsjónarkennara, námsráðgjafa, skólahjúkrunarfræðings, þjálfara eða annarra. Ef um heimilisofbeldi er að ræða geta þessir aðilar tilkynnt um ofbeldið til Barnaverndarnefndar og leiðbeint um næstu skref.
Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111
Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar eru staðsettar í 6 hverfum og sinna þjónustu ýmiss konar við einstaklinga og fjölskyldur. Þar er hægt að leita sér stuðnings ef um ofbeldistengd málefni er að ræða, hvort sem það er á heimili eða utan þess. Stuðningurinn er í formi ráðgjafar ýmiss konar þar sem að þjónustumiðstöðvarnar veita meðal annars félags og fjölskylduráðgjöf.
Umboðsmaður barna
Sími: 552-8999
Barnavernd Reykjavíkur
Sími: 411-1111
Almennum fyrirspurnum og tilkynningum er hægt að koma á framfæri til Barnaverndar Reykjavíkur. Hægt er að hafa samband við Barnavernd allan sólarhringinn í gegnum neyðarsímann 112.

Barnaverndarnefnd fer með mál barna sem sæta illri meðferð, eru beitt ofbeldi eða búa við aðstæður sem eru ekki ásættanlegar fyrir þau. Barnaverndarnefnd er skylt að aðstoða börn sem búa við slæmar aðstæður heima fyrir. Telji fólk sig verða vitni að slæmri meðferð á börnum er því með lögum skylt að tilkynna það til Barnaverndarnefndar.

Neyðarlínan – 112
1-1-2 er ekki bara neyðarnúmer þegar slys verða og kviknar í. Það er líka barnanúmerið á Íslandi.

Hópur 3
Brynja Thorsteinsdóttir
Ingi Rúnar Árnason
Kristín Tryggvadóttir
María Davis
Silvía Sól Snæbjörnsdóttir
Sandra Dögg Svansdóttir

Réttindi barna.
Þegar talað er um réttindi barna er verið að meina allt það sem börn þurfa að hafa til að geta lifað, þroskast og liðið vel.

Mikilvægt er fyrir leikskóla kennara að þekkja réttindi barna. Þegar foreldri skráir barn á leikskóla, gefur hann starfsfólki skólans rétt til að annast uppeldi, menntun og umönnun barnsins og því fylgir gríðarlega mikið traust. Starfsmönnum leikskóla er treyst fyrir að taka réttar ákvarðanir og að bregðast rétt við í mismunandi aðstæðum er varðar barnið. Því þurfa starfsmenn leikskóla að vera meðvitaðir um hvað börnum er fyrir bestu og teljum við það vera nauðsynlegt að kynna alla starfsmenn leikskóla fyrir reglum um réttindi barna.

Réttindi barna í lögum
Barnasáttmálinn mælir fyrir um réttindi barna og er hann lögfestur hér á landi. Í 2 . gr. sáttmálans er jafnræðisregla og kveður hún á um að öll börn skulu njóta réttinda sáttmálans án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar, stjórnmálaskoðana, ætternis, fötlunar, félagslegrar stöðu eða annarra aðstæðna þeirra eða stöðu eða athafna foreldra þeirra. 3. gr. sáttmálans kveður á um hvað barninu er fyrir bestu og er þar meðal annars kveðið á um að aðildarríki eigi að setja lög og reglur sem tryggja börnunum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.

Stjórnaskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 eru æðstu lög landsins og verða því sett lög að standast ákvæði stjórnarskrárinnar. Í 65. gr. laganna er jafnræðisregla og kveður hún á um að allir séu jafnir fyrir lögum. Í 76. gr. er kveðið á um að börnum skulu vera tryggð vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.

Barnalög nr. 76/2003 eru sett útfrá þeim ákvæðum sem koma fram bæði í barnasáttmálanum og stjórnarskráinni. 1. gr. laganna snýr að réttindum barnsins og er það einnig megin markmið laganna. Í 1. mgr. 1. gr. kemur fram það sem mestu máli skiptir í þessu samhengi „Barn á rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar, umönnunar og annarra réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og án mismununar af nokkru tagi. Óheimilt er að beita barn hvers kyns ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi.“

Lög um leikskóla nr. 90/2008 eru sett vegna alls ofangreinds. Þessi lög hafa að geyma allar helstu reglur sem leikskólakennarar þurfa að taka tillit til í sínu starfi og eru ýtarlegri útfærsla á þeim skyldum sem mótast af réttindum barna. Gildissvið laganna kemur fram í 1. gr. „Lög þessi taka til starfsemi leikskóla. Leikskólinn er fyrsta skólastigið í skólakerfinu og er fyrir börn undir skólaskyldualdri. Leikskóli annast að ósk foreldra uppeldi, umönnun og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við lög þessi.“ Leikskólakennarar taka við uppeldi foreldra á meðan barnið er í leikskólanum og má því með sanni segja að starfið mikilvægt.

Forvarnir
Vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi.
Besta forvörnin er fræðsla.

Við höfum komist að..
Þegar við byrjuðum á að afla okkur upplýsingum um efnið þá tókum við eftir því að við vissum öll margt um réttindi barna en mis mikið á mismunandi sviðum.  Því meira sem við skoðuðum um réttindi barna því meira sáum við hvað margt var ólært. Réttindi barna er hægt læra á marga vegu, til dæmis eru upplýsingarnar á netinu óendanlegar. Réttindi barna eru kennd á mismunandi vegu eftir aldursstigi. Hópurinn lærði það að þó að vitum öll eitthvað varðandi efnið þá tókum við eftir því að við værum með mis mikla reynslu á þessu sviði.  Sama hvað maður lærir mikið um efnið í bókum þá skiptir reynslan samt miklu máli.