Kynjafræði - Heimilisverk by

Verkaskipting
Verkaskipting er þegar að ákveðin verk er skipt á milli fólks, hvort sem það eru einstaklingar eða hópar. Emile Durkheim, franskur prófessor í félagsfræði var fyrsti maðurinn til að greina verkaskiptingu eða division of labour í félagsfræðilegum skilningi í umfjöllun sinni um félagslega þróun. Hann sagði að verkaskipting væri breyting á samfélaginu af völdum stækkun og þéttleika íbúa og aukinni samkenndi til að lifa af. Verkaskipting var einungis til að koma í veg fyrir að samfélög færu í sundur.

https://www.britannica.com/money/division-of-labour#

Verkaskipting karla og kvenna borið saman
Verkaskipting karla og kvenna er samkvæmt öllum heimildum ósanngjörn. Karlar tóku oftast minni þátt í heimilisverkum, það eina sem hjálpaði til með að mennirnir voru duglegri á heimilinu var það ef þeir ólust ekki upp með pabba. Þá voru þeir ólíklegri til að alast upp við að sjá þessa kynjaskiptingu, sjá mömmuna vinna meira heima og pabban minna. Konurnar sjá yfirleitt um að elda mat, þrífa, sjá um innkaupin á meðan að karlarnir sjá oft um fjármálin, slá grasið, sjá um bílinn ef eitthvað kemur upp þar. Það er líka sett meiri pressa á konur með öðruvísi hlutverk sem eru ekki beint heimilisstörf, frekar að muna eftir afmælum og skipuleggja þau, læknistímum sem getur verið þreytandi. Í samkynhneigðum samböndum er þessi verkaskipting oftast meira jafnt skipt.

https://www.theguardian.com/money/2022/aug/15/how-to-achieve-an-equal-split-of-household-chores-kate-mangino

Viðtal 1
Unnar Jóhannsson er 34 ára gamall karlmaður sem ólst upp í Grafarvogi og býr þar enn í dag. Hann er með M.Ed. í grunnskólakennarafræði og KSÍ A þjálfararéttindi og starfar í Víkurskóla og þjálfar 2. flokk kvenna í fótbolta í Stjörnunni.

Viðtal 2
Sveinbjörg er 81 árs og býr á Álftanesi með manninum sínum. Hún ólst upp á Siglufirði með systrum sínum sem voru fimm. Sveinbjörg á tvo syni og vann mikið með tónlist allt sitt líf.

Viðtal 3
Tony er 79 ára og ólst upp á Englandi. Hann er maður Sveinbjargar og þau hafa verið gift í rúm 50 ár. Tony ólst upp við mikla tónlist og hefur starfað við að semja tónlist allt sitt líf. Hann flutti til Íslands með Sveinbjörgu þegar hann var 23 ára og hefur búið hérna síðan.

Stráka og stelpuverkefni
Unnar

Unnar sagði að í gamla daga væru til stelpu- og strákahlutverk á heimilinu, konan ætti alltaf að gera meira, það væri hennar verk að setja í þvottavél, elda matinn og sjá um allt. Þegar við spurðum hann hvernig þetta væri í dag sagði hann að þetta hefur breyst til hins betra, núna er meira ætlast til þess að konur og karlar hjálpi bæði til á heimilinu og að álagið bitnar ekki bara á konunum sem gerir hann ánægðan.

Sveinbjörg

Sveinbjörg sagði að það eru til einungis strákaverk en ekki stelpuverk. Henni finnst að karlinn á heimilinu eigi að gera öll verkefnin sem tengjast því að viðhalda húsnæðinu og allt tengt rafmagni.

Tony

Tony sagði að það væru í raun og veru ekki til nein stráka og stelpu verk og að honum finnst að öll verk séu fyrir bæði kynin og að kynin eru með jafn mikla getu til að gera öll húsverkin á heimilinu.

Verkaskipting fjölskyldunnar
Unnar

Mamma Unnars gerði nokkurn veginn allt á heimilinu, hann og systur hans voru ekki dugleg að hjálpa til nema ef þau voru beðin um að gera eitthvað og þá skiptu þau þeim verkum á milli sín. Þegar ég spurði hann betur út í verkin og nefndi dæmi þá tók hann eftir nokkrum hlutum sem pabbinn gerði á heimilinu. Þau fóru saman að versla þar sem mamman keyrir ekki og pabbinn sér um fjármálin þeirra og bílinn.

Sveinbjörg

Mamma Sveinbjargar gerði öll húsverkin eins og að vaska upp, ganga frá eftir matinn, elda o.s.frv. Pabbi hennar gerði öll útiverkin eins og að slá grasið og einnig var hann að vinna mikið og sjá um fjárhaginn þeirra. Systurnar hjálpuðu mikið til á heimilinu með allskonar húsverk. Sveinbjörg sagði að þær gerðu ekki bara hluti inni á heimilinu heldur einnig út í garði t.d. að reita arfa og svoleiðis.

Tony

Mamma Tony gerði öll húsverkin og var einnig í hlutastarfi sem þjónn. Tony segir að hún var alltaf á fullu og hafði aldrei tíma fyrir sig. Pabbi hans vann og hugsaði einungis um fjárhaginn og var ekki mikið heima.

Tony og Sveinbjörg

Það var og er eingin verkaskipting hjá Tony og Sveinbjörgu og þau haf alltaf gert allt jafnt á heimilinu. Þau segja að þau hafa aldrei ætlast til þess að annað hvort þeirra eigi að gera eitthvað ákveðið verkefni vegna kynsins.

Hver hugsaði mest um börnin?
Unnar

Unnar sagði að mamma sín hafði hugsað miklu meira um hann og systur sínar, hann mundi ekki eftir því hvort að pabbi sinn hefði hugsað eitthvað mikið um börnin, en mamman var alltaf mest með börnin.

Sveinbjörg

Móðir Sveinbjargar hugsaði mest um hana og systur hennar en pabbi þeirra hugsaði um þær þegar að hann var heima.

Tony

Móðir Tony hugsaði um hann og Tony man varla eftir því að pabbi hans hafi einhverntíman hugsað um sig því hann var mjög lítið heima.

Tony og Sveinbjörg

Tony og Sveinbjörg hugsuðu jafn mikið um strákana sína og þegar þau voru bæði með vinnu pössuðu þau að vinnutímar sínir væru ekki á sama tíma til þess að skiptast á að hugsa um börnin.

Voru börnin dugleg að hjálpa heima?
Tony og Sveinbjörg

Þau segja að strákarnir voru ekki duglegir að hjálpa til á heimilinu. Þeir voru samt ekki með nein ákveðin verkefni aðeins út frá kyni. Þeir áttu t.d. að hjálpa að vaska upp, ganga frá eftir sig o.s.frv.

Finnst þér að verkaskipting hefur breyst í gegnum árin?
Unnar

Unnar sagði að verkaskiptingin hjá foreldrum hans hafi ekki mikið breyst í gegnum árin, kannski eitthvað smá. Maðurinn eldar aðeins oftar í viku en hann gerði áður fyrr. Annars er allt hitt eins, hún eldar oftar, passar yngsta barnabarnið, þrífur. Þau fara enn þá saman tvö í búðina en yngsta barnið þeirra kemur stundum og þrífur húsið fyrir þau og eldar. Einnig fer maðurinn og kaupir í matinn fyrir mömmu sína sem á núna aðeins erfiðara með að hugsa um sig en áður fyrr.

Sveinbjörg og Tony

Sveinbjörg og Tony segja að það var mjög óvenjulegt að gera húsverkin jafnt á þeim tíma sem þau hittust. Þau segja að konan gerði öll húsverkin á meðan að karlinn hugsaði um peninga. Í dag finnst þeim að verkskipting sé búin að breytast mikið og að kynin gera oftast jafn mikið á heimilinu þó að í sumum tilvikum geri konan aðeins meira.

Önnur vaktin
Önnur vaktin er hugtak sem felur í sér starf á heimilinu sem er ólaunað. Dæmi um það er umönnun barna, þrif/tiltekt eða að elda matinn o.fl.

Tenging

Hægt er að tengja þetta hugtak við öll viðtölin þar sem að mamma allra gerði nánast öll húsverkin á heimilinu og sá um börnin.

Þriðja vaktin
Þriðja vaktin er hugtak yfir hluti á heimilinu sem sjást yfirleitt ekki. Þessi vinna er yfirleitt að hafa umsjón yfir hlutum, skipuleggja hluti, t.d. innkaup, afmæli, vita hvar hlutir eru geymdir, passa að allt gangi vel. Þetta snýst líka um að vita hvenær læknatímar eru, og hvenær börnin eiga afmæli.

Tenging

Unnar sagði í viðtalinu að pabbi hans vissi ekki hvenær neinn í fjölskyldunni ætti afmæli, amma myndi sjá um allt, líka núna í dag.

Hægt er að tengja þetta hugtak við viðtalið við Tony þar sem að pabbi hans var aldrei heima þannig líklegt er að pabbi hans vissi mun minna um almenna hluti tengt Tony og heimilinu.

Kynhlutverk
Kynhlutverk er hugtak sem passar fullkomlega við þessi viðtöl. Kynhlutverk er þegar hlutverk eru tileinkuð öðru kyninu frekar en hinu. Það fer mikið eftir menningu og breytist með tímanum. Á tíma iðnbyltingarinnar var talið að hæfileikar og skyldur kvenna var að vera einungis heima og ala upp börnin, ættu ekki að gera neitt annað.

Tenging

Hægt er að tengja þetta hugtak við öll viðtölin þar sem að mömmur allra þeirra sem við tókum viðtal við gerði alltaf öll húsverkin og allt tengt heimilinu sem eru þá kölluð stelpuverk. Pabbarnir voru að vinna og sjá um peninga sem voru þá strákaverk.

Við ákváðum að taka fyrir verkskiptingu á heimilinu og skoða hvort að það sé skipt verkum upp eftir kyni. Við tókum þrjú viðtöl og spurðum einstaklingana sömu spurningar. Við ákváðum að taka viðtal við einstaklinga sem koma frá mismunandi bakgrunni og á mismunandi aldursskeiði til þess að sjá hvort það væri einhver munur á verkaskiptingu tengt aldri og bakgrunni einstaklinganna.

Verkaskipting á heimilum var mikil fyrir nokkrum árum. Konurnar sáu um heimilisverkin og karlarnir um peninga. Hins vegar var verkaskiptingin ekki eins hjá öllum. Sum pör skiptu verkunum jafnt á milli sína en önnur skiptu verkunum í ´´stelpu og strákaverk´´. Það virðist svo vera að verkaskipting milli kynjana er búin að breytast með árunum og sumir telja að konur og karlar gera verkin jafnt og telja að það séu engin stráka og stelpuverk.

Isabella A. og Elísabet. 3.FA