Raggi litli í sveitinni by Hjalti Freyr Magnússon

Kveikja:
Bókin Raggi litli í sveitinni eftir Harald S. Magnússon er frábær saga um lítinn strák sem fer í sveitina að vori og dvelur þar sumarlangt. Í sveitinni býr strákur á sama aldri og Raggi, sem heitir Bjössi, og saman lenda þeir í óteljandi ævintýrum yfir sumarið. Þeir kynnast dýrunum, bústörfum, kanna umhverfið í sveitinni og týnast meira að segja einu sinni. Bókin er því í senn skemmtileg, fræðandi og spennandi. Hún er passlega löng fyrir yngri lesendur, aðalpersónur hennar eru strákar á sama reki og nemendur á yngsta stigi og ættu þeir því að eiga auðvelt með að tengja við söguna.

Þema:
Þema verkefnisins er íslenska sveitin og dýrin sem þar er að finna. Þemað hentar vel til margskonar verkefnavinnu, t.d. varðandi dýrin sjálf, umhverfið í sveitinni, hvað er líkt og hvað ólíkt með sveit og borg - og margt fleira.

Hópavinna:
Nemendum skipt í 3 hópa. Hver hópur föndrar sinn eigin bóndabæ, með hliðsjón af dýrum sem þeir velja sér og umhverfi þeirra.

Kennsluaðferðir:
Notast er við útlistunarkennslu til að kynna bókina fyrir nemendum. Þá er bókin lesin og sveit og dýr kynnt aðeins betur eftir því sem þau koma fyrir í sögunni. Eftir að lokið er við að lesa bókina er farið í skoðunarferð í Húsdýragarðinn.
Nemendur horfa á fræðslumynd þar sem fylgst er með dýrunum frá því þau eru lítil og þar til þau verða fullvaxta.
Notast er við skemmtilega vinnubók sem þjálfar orðaforða í tengslum við dýrin sem finna má í sveitinni.

Unnið verður með viðfangsefni þemans í hópum, t.d. með púslaðferðinni. Þá draga nemendur dýr sem þau síðan leika og finna þannig hópfélaga sína. Þau byrja á að vinna í heimahópum þar sem þau ræða spurningar um dýrin. Spurningarnar gætu t.d. verið Hvað borðar dýrið?, Hvernig lítur dýrið út? Hvaða hljóð gefur dýrið frá sér? Framleiðir dýrið einhvern mat sem við borðum? o.s.frv. Nemendur skipta síðan námsefninu á milli sín og fara svo í sérfræðingahópa þar sem þau fræðast um viðfangsefni hinna hópanna og fara svo aftur í heimahópa sína að því loknu og fræða hópfélaga sína um það sem þau lærðu í sérfræðingahópunum.
Að lokum verður unnið með sveitina og dýrin á myndrænan hátt í samstarfi við myndmenntarkennara, þar sem nemendur teikna og föndra bóndabæ með uppáhalds dýrunum sínum og umhverfi þeirra.

Krækjur:
http://leikjavefurinn.is/dyraleikur-agiskun/

https://mms.is/namsefni/fylgst-med-theim-vaxa-dyrin-a-bondabaenum

http://vefir.mms.is/ordasjodur/pdf/8.pdf

Námsefni og námsgögn:
Bókin Raggi litli í sveitinni.
Húsdýragarðurinn.
Stutt fræðslumynd um dýrin á bóndabænum.
Vinnubók með ýmsum æfingum tengdum húsdýrum.
Dýraleikur á vefnum.