Vinnustofa um aðalnámskrá - Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2025 by Ingvar Sigurgeirsson

Vinnustofa: Hvernig styður aðalnámskrá við skipulag náms og kennslu í fjölmenningarlegum nemendahópum?
Í vinnustofunni verður fjallað um skipulag náms, kennslu og námsmats í fjölmenningarlegum nemendahópum. Þátttakendur í vinnustofunni velja sér afmarkaðan námsþátt og nemendahóp og fara í gegn um ferli þar sem búin er til einstaklingsmiðuð námsáætlun fyrir fjölbreyttan nemendahóp. Gott er að teymisfélagar sæki vinnustofuna saman svo að afurðir hennar nýtist sem best inn í skipulag komandi skólaárs.

Stjórnendur vinnustofunnar leggja upp verkferli og gefa þátttakendum tækifæri til að deila hugmyndum og afurðum. Nýr vefur aðalnámskrár verður kynntur og sýnt hvaða gögn má nýta á honum til að styðja við skipulag náms og námsmat. Áhersla verður lögð á tengsl hæfniviðmiða, námsmarkmiða og matsviðmiða. Einnig verður sýnt hvernig hægt er að flétta lykilhæfni inn í kennsluáætlanir til að þjálfa vinnubrögð nemenda og gera leiðsagnarmat sýnilegra í daglegu starfi. Vonast er til að breiður hópur kennara sæki vinnustofuna svo hægt verði að taka samtal þvert á greinasviðin.

Lykilspurningar í vinnustofunni:

Hvernig hjálpar aðalnámskrá mér að skipuleggja nám, kennslu og námsmat?

Hvernig get ég nýtt stuðningsefni á vef aðalnámskrár til að einstaklingsmiða markmið náms og námsmat?

Afurð þátttakenda við lok vinnustofunnar:

Einstaklingsmiðuðu námsáætlun um afmarkað viðfangsefni sem ákveðinn nemendahópur mun vinna að á komandi skólaári. Við gerð námsáætlunarinnar verður nýr vefur aðalnámskrár nýttur á mjög verklegan hátt.

Hvað þurfa þátttakendur að hafa með á vinnustofuna?

Til þess að vinnustofan nýtist sem best er mikilvægt að þátttakendur hafi með sér tölvu.

Auður Bára Ólafsdóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri aðalnámskrár hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Auður Bára Ólafsdóttir er grunnskólakennari og starfaði í 15 ár við kennslu, í Vestmannaeyjum og í Hamraskóla í Grafarvogi. Hún starfaði hjá Menntamálastofnun sem ritstjóri í námsgagnagerð og við verkefnastjórn. Hún starfar nú hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu við verkefnastýringu og utanumhald málefna Aðalnámskrár grunnskóla.

Brynhildur Sigurðardóttir, grunnskólakennari og sérfræðingur í málefnum aðalnámskrár hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Brynhildur Sigurðardóttir er grunnskólakennari og almenn áhugamanneskja um menntun og skólastarf. Hún hóf kennsluferilinn í Síðuskóla á Akureyri, vann í 20 ár við kennslu og stjórnun í Garðaskóla í Garðabæ og starfaði síðan sem kennari í Stapaskóla í Reykjanesbæ. Hún hefur alltaf kennt á unglingastigi: Íslensku, heimspeki, lífsleikni og samþættingu.

Brynhildur hefur sérstakan áhuga á samræðu í skólastarfi og leiðbeinir kennurum gjarnan um slíka kennsluhætti. Nú starfar hún sem sérfræðingur í málefnum aðalnámskrár hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Aftur á ráðstefnusíðuna