Bókaklúbbur by Matthildur Þórðardóttir

Það er síðasti dagur fyrir vetrarfríið. Bergljót hlakkar til að fara í tíundabekkjarpartý og Bragi bróðir hennar ætlar að gista hjá vini sínum. Foreldrarnir stefna á rómantíska sumarbústaðarferð. En allar áætlanir fara fyrir lítið þegar furðuleg plága brýst út. Eftir það hugsar enginn um neitt annað en að bjarga lífi sínu.

Vetrarfrí er hörkutryllir sem engin leið er að leggja frá sér fyrr en að lestri loknum. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut Fjöruverðlaunin 2016. Í umsögn dómnefndar Fjöruverðlaunanna segir meðal annars: „Vetrarfrí er spennandi unglingabók með sterka samsvörun til nútímans og heimsmálanna. Bókin færir þær hörmungar sem fylgja lífi flóttamannsins nær unglingum og lesendum. En þó að sagan lýsi óhugnaði og blóðugu ofbeldi er mikill húmor í henni og því um leið líka stórskemmtileg.“

Rithöfundurinn Alice flytur út á land og kynnist Felix, sem vinnur í vöruhúsi, og býður honum með sér í vinnuferð til Rómar. Vinkona hennar, menningarvitinn Eileen, býr í Dublin og veit alls ekki hvað hún vill. Simon er einlægur vinur þeirra vinkvenna – en hvað býr undir traustu yfirborði hans?

Alice og Felix, Eileen og Simon eru ung – en yngjast ekki. Þau þrá hvert annað meira en nokkuð, en þau svíkja hvert annað samt sem áður. Þau hafa áhyggjur af vináttunni og heiminum sem þau búa í og hvort hann sé kominn á heljarþröm, gegnsýrður af kapitalisma, trúarbrögðum, valdaójafnvægi og hamfarahlýnun.

Geta þau fundið leið til að trúa á fegurð heimsins?

Þetta er þriðja skáldsaga Sally Rooney en áður hafa komið út á íslensku Okkar á milli og Eins og fólk er flest sem sömuleiðis var vinsæl sjónvarpsþáttaröð.

Sara Björk Gunnarsdóttir er fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu og íþróttamaður ársins 2018.

Hér segir Sara frá fótboltaferlinum, allt frá Pæjumótinu til úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu. Stelpa úr Hafnarfirði lagði allt í sölurnar til að láta drauma sína rætast og verða ein besta fótboltakona heims.

Einlæg og fallega myndskreytt frásögn um sigra og vonbrigði, átök utan vallar, samrýmda fjölskyldu og glímuna við kvíða.

Ástarsaga með uppskriftum!

Líf Pollyar Waterford er heldur dapurlegt: Fyrirtækið er gjaldþrota, fína íbúðin horfin undir hamarinn og kærastinn fluttur heim til mömmu. Sárblönk neyðist Polly til að flytja í hrörlegt hús í litlu sjávarþorpi í Cornwall þar sem hún þekkir ekki nokkurn mann. Til að gleyma sorgum sínum hellir hún sér út í það sem veitir henni mesta ánægju í lífinu: að baka brauð. Fljótlega rennur þorpið á lyktina og fyrr en varir hefur Polly tekið við rekstri bakarísins á staðnum.

Hér kynnist hún litríkum þorpsbúunum: sjómanninum Tarnie og skipsfélögum hans, myndarlega bandaríska býflugnabóndanum Huckle og ríka, skrautlega vini hans Reuben, skapilla bakaríseigandanum Gill Manse og hinum óframfærna Jayden, svo ekki sé minnst á Kerensu, kjaftforu og hressu vinkonuna úr höfuðborginni.

Hugljúf og heillandi saga um konu sem þorir að hefja nýtt líf.

Jenny Colgan er skoskur metsöluhöfundur sem heillað hefur lesendur um allan heim með notalegum, fyndnum og lystaukandi bókum sínum. Litla bakaríið við Strandgötu er fyrsta bók Jennyar Colgan sem kemur út á íslensku, alþjóðleg metsölubók sem hefur komið út í 15 löndum.

Hin skoska Chocolat!

Anna Þóra er 14 ára. Hún æfir bæði handbolta og dans og er virk í félagslífi Rökkurskóla. Hana langar að gera margt annað en hefur engan tíma til þess. Dag einn hittir hún undarlega stelpu sem býðst til að sjá um heimanámið gegn einföldum samningi. Samningi sem varla er hægt að hafna. Þegar hræðilegir atburðir fara að gerast í kringum Önnu Þóru er hún viss um að stelpan eigi sök á þeim. En þá er orðið of seint að hætta við.

Stórhríð geisar uppi á heiðum á Austurlandi fyrir jólin 1987 þar sem hjón búa á einangruðum bóndabæ. Ókunnugur maður ber óvænt að dyrum á Þorláksmessu og segist hafa villst í fárviðrinu. Konan á erfitt með að trúa frásögn mannsins og eftir því sem hátíðin nálgast verður andrúmsloftið á þessum afskekkta bæ meira þrúgandi, símasamband rofnar, rafmagnið fer og ekki munu allir lifa heimsóknina af. Lögreglukonan Hulda Hermannsdóttir þarf að kljást við flókið og erfitt mál skömmu eftir að hafa sjálf lent í fjölskylduharmleik sem skilur eftir sár sem aldrei gróa. Ragnar Jónasson sýnir hér og sannar að hann er í hópi fremstu spennusagnarithöfunda Norðurlanda en útgáfuréttur á bókum hans hefur verið seldur til fjölda landa. Bækurnar hafa hlotið frábæra dóma og víða setið í efstu sætum metsölulista. Unnið er að gerð breskra spennuþátta sem byggjast á bókum Ragnars.

Leikkonan og einfarinn Evelyn Hugo er loks reiðubúin að segja frá glæstri ævi sinni og öllum hneykslimálunum. En þegar hún velur óþekkta blaðamanninn Monique Grant til starfans kemur það engum meira á óvart en Monique sjálfri. Af hverju varð hún fyrir valinu? Af hverju núna? Monique er ekki beinlínis á toppnum á tilverunni. Eiginmaður hennar fór frá henni og starfsframinn virðist ætla að láta á sér standa. En hvaða ástæður sem Evelyn hefur svo sem fyrir því að velja hana sem ævisagnaritara er Monique harðákveðin í að nýta þetta tækifæri til þess að klífa metorðastigann. Í ríkmannlegri íbúð Evelyn hlustar Monique sem bergnuminn á Evelyn segja ævisögu sína. Hún segir frá öllu – allt frá því hvernig hún komst til Los Angeles á sjötta áratugnum og að ákvörðun sinni um að yfirgefa kvikmyndabransann á níunda áratugnum, og auðvita eiginmönnunum sjö sem hún giftist þar á milli. Evelyn rekur sögu miskunnarleysis og metorðagirndar, óvæntrar vináttu og forboðinnar ástar, en þegar sögulokin nálgast verður ljóst að ævi Evelyn tengist lífi Monique með harmrænum og afdrifaríkum hætti.

Allir vita að Maríanna býr í hvíta slotinu með heimreiðinni, þeir vita að mamma Connells er ræstingakona, en enginn hefur enn lagt saman tvo og tvo.

Maríanna er einmana og utanveltu í menntaskólanum á meðan Connell er í hópi vinsælustu nemendanna. Þau verða ástfangin og eiga næstu árin í einhvers konar haltu-mér-slepptu-mér samskiptum sem þau vilja ekki vera án, en um leið er eins og sambandið sé í raun stærsta hindrunin í vegi þeirra beggja.

Eins og fólk er flest er önnur skáldsaga Sally Rooney, sem vakti verðskuldaða athygli fyrir þá fyrstu: Okkar á milli. Sjaldan hefur jafnungur höfundur skotist svo hratt á stjörnuhiminn.

Líf Elísu, sextán ára unglings frá Vestfjörðum, gjörbreytist á einni nóttu þegar hún heyrir tónlist berast frá hafinu. Tónlistin leiðir hana niður í fjöru, ofan í undirdjúpin og að fjólubláu borginni. Elísa dregst inn í háskalega atburðarrás og kemst að því að hún er hluti af spádómi ævafornrar menningar á hafsbotni. Er hún verðug þess að bera titilinn dóttir hafsins? Þegar hún lokaði augunum birtust myndir. Tærir tónar sögðu henni sögur af furðuveröld þar sem myrkrið réð ríkjum, lengst ofan í undirdjúpunum. Elísa tók eitt skref áfram. Svo annað. Lelena var hvíslað. Elísu krossbrá og hún galopnaði augun. Aftur var hvíslað en í þetta sinn var hún ekki hrædd. Áfram. Án þess að hika hljóp Elísa af stað.

Finch er hugfanginn af dauðanum en þráir eitthvað sem er þess virði að lifa fyrir. Violet lifir fyrir framtíðina og telur dagana þar til skólanum lýkur svo hún geti stungið af frá smábæjarlífinu og sárum minningum. Violet og Finch hittast á brúninni á klukkuturns skólans en þaðan er margra hæða fall til jarðar. Þegar þau eru komin niður af syllunni, heil á húfi, er óljóst hver bjargaði hverjum.

Þetta byrjaði þegar ég gleymdi að taka lyfin. Fimm dögum síðar ligg ég í líkhúsinu … dáinn og stjarfur á köldu stálborðinu. Dagur er eitthvað svo ólíkur sjálfum sér, með botnlausa matarlyst, dynjandi höfuðverk, gloppur í minninu og óteljandi spurningar. Hvað varð eiginlega um Breka? Af hverju er auga í klósettinu? Á hann kannski séns í Ylfu Dögg?

Þetta byrjaði allt þegar ég gleymdi að taka lyfin mín. Fimm dögum síðar ligg ég í líkhúsinu … dáinn og stjarfur á hrollköldu stálborðinu.

Dagur er eitthvað svo ólíkur sjálfum sér, með botnlausa matarlyst, dynjandi höfuðverk, gloppur í minninu og óteljandi spurningar. Hvað varð eiginlega um Breka? Af hverju er auga í klósettinu? Á hann kannski séns í Ylfu Dögg?

VeikindaDagur er æsispennandi hrollvekja eftir þau Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Sigmund Breiðfjörð. Sögur þeirra og teikningar hafa heillað lesendur um árabil en í þessari blóðugu bók halda þau á nýjar og hræðilegar slóðir. Bókin er prýdd ótal ógnvekjandi teikningum og er ALLS EKKI fyrir viðkvæma!

Rakel, Milla og Lilja þurfa að komast að því hvað þær eigi að gera eftir tíunda bekk. Fara í MH, Versló eða berjast við furðuverur? Æsispennandi og gólandi fyndin saga.

Jón Gunnar Kristinsson er nýfermdur pönkari í Reykjavík sem er sendur í skóla vestur að Núpi í Dýrafirði. Á meðan fjöllin sofa sínum eilífa svefni iðar allt annað af lífi og drengurinn sem snýr aftur tveimur árum seinna er orðinn maður. En enginn venjulegur maður. Enda var það ekkert venjulegt sem gerðist. Örlög útlagans eru óumflýjanleg. Við tekur stefnulaus ferð um borg óttans.

Útlaginn er þriðja skáldævisaga Jóns Gnarr. Áður hafa komið út Indjáninn og Sjóræninginn. Hér rekur Jón sögu sína á aldrinum fjórtán til nítján ára af djúpri einlægni og alkunnum húmor. Með höfundur bókarinnar er Hrefna Lind Heimisdóttir.

Sunna er að ljúka vorprófum í 10. bekk. Fram undan er áhyggjulaust sumar og handan þess spennandi tímar menntaskólaáranna. Kvöldið sem krakkarnir fagna próflokum hittir Sunna Bigga, sætasta strákinn í bekknum. Þau eyða nóttinni saman heima hjá Sunnu. Þegar líður á haustið breytist allt lífið þegar hún kemst að því að nóttin hefur haft afleiðingar.

Orri óstöðvandi er fyrsta bókin um þau Orra og Möggu en uppátækjum þeirra virðast engin takmörk sett og útkoman er bráðskemmtileg. Orri óstöðvandi er ofurhetjuútgáfan af Orra sem hann breytir sér í þegar hann þarf á hugrekki og sjálfstrausti á að halda.

Hugmyndin að baki bókinni var að gera fyndna og spennandi bók sem væri í senn sjálfstyrkjandi fyrir lesandann. Bókin er með u.þ.b. 100 sérlega skemmtilegum myndum og ætti að höfða jafnt til stelpna og stráka frá aldrinum 9-13 ára.

Mannabein finnast í grunni nýbyggingar í útjaðri Reykjavíkur og líkur benda til að glæpur hafi verið framinn. Beinin virðast nokkurra áratuga gömul og sérfræðingar eru fengnir til að grafa þau upp en samtímis hefur lögreglan leit að fólki sem gæti vitað eitthvað um málið.

Lögreglumennirnir Erlendur, Sigurður Óli og Elínborg eiga erfitt verkefni fyrir höndum en smám saman skýrist myndin; fortíðin er grafin upp úr moldinni, upp úr gömlum pappírum, upp úr fylgsnum hugans – og brotin raðast saman í helkalda, óvænta harmsögu.

Þegar Emblu er tilkynnt að fjölskyldan ætli að flytja til Lundúna, þar sem kærasti mömmu hennar er að fara í meistaranám í peningum, ákveður hún að gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir það. Hún vill ekki yfirgefa líf sitt í Reykjavík, vinkonurnar og síðast en ekki síst … GK (fullu nafni Gangandi Kynþokki). En það er enginn barnaleikur að vera unglingur og ætla að snúa á hina fullorðnu. Mun Emblu takast ætlunarverk sitt? Eða mun mamma hennar hafa betur? Eða … mun Embla ef til vill roðna svo mikið einn daginn þegar foreldrar hennar verða henni til skammar – einu sinni sem oftar – að hausinn á henni springur og hún þarf að gefa stráka upp á bátinn, því hver vill fara á stefnumót með hauslausum búk? Raunsönn frásögn um örlög saklausrar unglingsstúlku sem ER EKKI DRAMADROTTNING!