Barnabókaverkefni by

Úrdráttur um efni bókarinnar
Bókin sem ég las er ensk barnabók sem heitir Hide and Seek. Þar sem að bókin er á ensku þá er hægt að nota hana annaðhvort í enskutímum eða íslenskutímum en þá myndi ég sem kennari þýða bókina yfir á íslensku fyrir nemendur mína. Hún er um 3 bestu vini sem eru að leika sér úti í skóginum og enda á því að fara í feluleik rétt fyrir myrkur. Þegar einn strákurinn byrjar að telja, þá felur stelpan sig á bakvið tré nálægt honum en þegar strákurinn er búinn að telja upp og finnur hinn strákinn sem er að fela sig, þá finna þeir hvorugir stelpuna. Hún endaði á því að detta ofan í holu hjá tréinu sem hún faldi sig á bakvið og byrjaði að öskra á strákana svo þeir gætu fundið hana. Eftir að þeir finna hana, þá hleypur einn strákurinn heim til sín og nær í pabba sinn og hann kemur og nær henni upp. Á meðan stelpan er ennþá niðri í holunni þá finnur hún eitthvað strjúkast upp við fótinn á sér og heldur að það sé manneskja eða dýr niðri með sér vafið í teppi þannig þau taka það upp með sér. Svo kemur í ljós að þetta er fjársjóðakista með helling af demöntum og gulli. Sagan endar á því að lögreglan gefur stelpunni sem fann fjársjóðinn hann tilbaka og hún gefur öllum 1/6 af honum.

Upplýsingar um verkið. Höfundur og útgefendur.
Höfundurinn er T. Albert og bókin kom út 15. janúar árið 2000. Útgefendur bókarinnar eru Monkey Pen Ltd. Það eru ekki til neinar upplýsingar um höfundinn sjálfann.

Aldurshópur; hvaða árgang þið veljið að vinna með? Af hverju?
Bókin er ætluð börnum frá 0-9 ára og ég myndi vilja að nemendur í 3-4. bekk myndu lesa hana vegna þess að bókin er stutt og laggóð, kemur sér beint að efninu þannig að börnin missa ekki áhugan eins og þau gera þegar þau lesa langdregnar bækur og hver blaðsíða verður meira og meira spennandi. Sagan snýst um vinskap og að vera góður við þá í kringum sig og að deila með sér og börn á þessum aldri gætu lært heilmikið útfrá þessari stuttu sögu.

Kennsluhugmyndir (2-4) um hvernig skemmtilegt væri og æskilegt að vinna með bókina.
Sagan er örstutt, aðeins 27 blaðsíður þannig það væri þess vegna hægt að klára söguna í einni kennslustund. Ég myndi vilja hafa nemendur í heimakrók og annaðhvort lesa bókina upp fyrir þau á meðan þau hlusta og láta þau samt fylgja mér í lestrinum eða láta þau lesa nokkrar línur á mann svo að þau haldi áhuganum allan tímann.

Það væri líka sniðugt að lesa bókina fyrir nemendur og svo spyrja þau spurninga í heimakrók um bókina.

Þar sem að teikningarnar í bókinni eru svakalega fallegar, þá væri líka hægt að spyrja nemendur út í myndirnar og láta þau lýsa myndunum og hvernig myndirnar tengjast sögunni.

Umræðuspurningar – ef það á að ræða söguna – hverjar eru þær? hvenær og hvernig á að ræða saman, allir, pör eða hópar?
Í lok kennslustundarinnar eftir að það væri búið að lesa söguna, þá myndi ég vera með tilbúna, útprentaða spurningalista (aðeins 2-3 spurningar) fyrir nemendur að svara heima og svo í næsta tíma myndi ég setja nemendur saman í hópa (2-3 manns) og láta þá bera saman svörin sín og svara saman í heild uppi á töflu.

Rök fyrir því af hverju bókin er góð fyrir viðkomandi nemendahóp.
Þessi bók er frábær fyrir unga krakka upp í kannski 9 ára aldur vegna þess að bókin snýst um hjálpsemi, vinskap, kærleika og góðsemi. Það er nauðsynlegt að kenna börnum um þessa hluti því þau taka það með sér alla ævi. Það sem heillaði mig við þessa bók er að hún er mjög stutt og laggóð og hún er þannig sett upp að maður er spenntur að vita hvað gerist á næstu blaðsíðu og það er líka mikilvægt fyrir börn á þessum aldri vegna þess að ung börn eru mjög fljót að missa áhugan á sögum ef að þær eru langdregnar og leiðinlegar en þar sem að þessi bók er svo stutt og spennandi allan tímann, þá hef ég engar áhyggjur að þau myndu fylgja sögunni vel.

Lokaorð
Takk kærlega fyrir mig.
Tanja Marsibil Sigurðardóttir

Hlekkir að barnabókum sem hægt er að lesa ókeypis á netinu
Hérna fann ég bókina sem ég er að tala um ásamt hinum bókunum sem höfundurinn hefur samið. Allar mjög stuttar og skemmtilegar!

Youtube myndband þar sem er verið að lesa bókina.
Þetta hentar fyrir þá sem eru ekki eins sterkir í lestri og vilja frekar að það sé lesið bókina upp fyrir þau.