FÉLA2SG05 Vor 25 - Lokaverkefni by MTR

Eva Rakel Magnúsdóttir
Matarplans-botti.

Fyrir mitt lokaverkefni ákvað ég að gera botta til að hjálpa við að skipuleggja matarinnkaup.

Ég veit ekki með ykkur, en ég nenni sjaldnast að ákveða hvað er í matin og það verður þvílik kvöð á hverjum deigi eftir langan dag. Og því endar það oft á því að maður kaupir semi-tilbúna rétti sem eru fljótlegir í eldun (en svo kemur það yfirleitt eldurnartíminn á því sama, en bara á miklu hærri kostnaði, og oft mikið unnir).

Matarkarfan hækkar líka í hverjum mánuði og eyðslan virðist oft fara úr böndunum.

Með þessum botta er hægt að biðja um viku/mánaðar matarplan eftir fjölda einstaklinga. Hann mun altaf koma með mat sem er í hollari kantinum, og halda sig við upplýsingar frá íslenskum verslunum.

Það er hægt að biðja hann um að halda sig við x upphæð og fá innkaupalista.

Það er hægt að fá innkaupa lista og linka á hverja vöru.

Einnig er hægt að biðja um uppskriftir af réttunum úr matarplaninu og með linkum.

Vona að þetta nýtist!

Hjálmar Helgi Jónsson
Ég kynni hér með bottann Túkall. Túkall er stafrænn fjármálaráðgjafi sem þú getur rætt við um þín eigin fjármál. Hann hjálpar þér að flokka útgjöldin þín, setur upp áætlun til að borga niður skuldir, finnur leiðir fyrir þig til að spara og svarar ýmsum spurningum um fjármál á mannamáli.

Ástæðan fyrir því að ég bjó hann til er einföld, ég og konan mín erum sjálf í miðju ferli við að taka til í okkar eigin fjármálum. Mér finnst þetta frábær þróun á gervigreind og þá sérstaklega mikilvæg fyrir ungt fólk sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjármálum.

Túkall er settur upp á poe.com. Hann er á ensku, einfaldlega vegna þess að íslenskumælandi  bottar á þessari síðu virka ekki nógu vel og geta veitt rangar upplýsingar.

Vona að þið getið nýtt ykkur hann.

Lokaverkefni
Verkefnið mitt verður teikning eða málverk sem sýnir  þessar “hvað ef?” spurningar. Eins og ég hef áður talað um í verkefnum þá hef ég aldrei verið með neinar áhyggjur þegar það kemur að gervigreind en eftir að heyra umfjöllun í Velvítinu þá langar mig að skoða meira hvað það er sem fólk hefur áhyggjur að. Þess vegna vil ég gera verkefnið mitt um það. Ég ræddi mikið við gervigreind og fólk í kringum mig til þess að sjá hvaða hræðslur eru algengastar og komst að því að mjög margir eru hræddir um vinnuna sína eða aðrar vinnur. Ég málaði þetta verk til að merkja nákvæmlega það.

Karen Sif
Ég valdi að gera listaverk, mig langaði að gera eitthvað listaverk sem myndi sýna bæði jákvæð og neikvæð áhrif gervigreindar,  eitthvað sem við erum búin að vera að fjalla um í náminu og líka að nýta  gervigreindar forrit til að hjálpa mér.

Ferlið byrjaði þannig að ég lét ChatGpt koma með hugmynd að mynd sem ég gæti teiknað fyrir þetta verkefni. Það sem sagt kom með hugmynd að ég myndi gera mynd og skipta henni í tvo helminga og á öðrum helming myndi ég sýna jákvæð áhrif gervigreindar og hinum megin neikvæðu áhrifin.

Mér leyst bara vel á þessa hugmynd hjá ChatGpt og því var næsta skref að finna eitthvað gervigreindar forrit sem gæti teiknað mynd fyrir mig.  Ég valdi að nota OpenArt.ai og þar setti ég inn ákveðinn texta og bað það um að teikna mynd eftir honum. Ég ákvað síðan að reyna að teikna eins eða svipaða mynd og gervigreindin gerði.

OpenArt kom með nokkrar hugmyndir af myndum sem ég gæti teiknað,  þær eru allar frekar svipaðar en ég velja eina mynd að lokum.

Ég valdi þessa mynd aðallega af því að mér fannst eins og það væri auðveldast að teikna þessa mynd en líka af því að þótt að gervigreindin réði ekki alveg nógu vel við að setja orðin inn á myndina því þau komu eitthvað rugluð á myndina,  sá ég að ég gæti nýtt mér það og skrifað sjálf inn orð eða setningar sem segja frá bæði jákvæðum og neikvæðum áhrifum gervigreindar.

Hér er svo myndin sem ég teiknaði eftir AI

Lokaverkefni
Verkefnið mitt tengist náttúrunni. Ég vildi teikna eitthvað sem ég hef áhuga á þrátt fyrir að kunna ekki að teikna. Ég bað ChatGPT um smá hjálp varðandi hvað ég get teiknað sem tengist náttúrunni. Það kom með allskonar hugmyndir sem mér leist vel á og bað ég það um að teikna upp fyrir mig listaverk með öllu því sem það nefndi. Ég fékk ótrúlega flotta mynd frá ChatGPT og ég ákvað að reyna að teikna þessa mynd sem gekk brösulega en ég náði þó að klára hana. Ástæðan fyrir því að ég valdi að teikna eitthvað sem tengist náttúrunni er því að ég elska hana, mér finnst gaman að fara að skoða hitt og þetta og er því mikill “túristi” á mínu eigin landi.

Ég ákvað að búa til botta sem veitir notendum einfaldar og aðgengilegar upplýsingar um hvað gervigreind er, hvernig hún virkar og hvernig við getum nýtt hana á ábyrgan hátt.

Markmiðið með botnum er að hjálpa fólki að öðlast skilning á bæði áhrifum gervigreindar á samfélagið og mikilvægi siðferðislegrar ábyrgðar í notkun hennar.

Ég valdi að búa til þennan botta vegna þess að gervigreind er að verða sífellt meira áberandi í lífi okkar og það er mikilvægt að auka vitund og þekkingu um hvernig hún er notuð á réttan og ábyrgðan hátt.

Ég setti bottann upp á vefsíðunni Poe.com, sem leyfði mér að bæta við spurningum og svörum og sérsníða svörin þannig að bottinn gæti útskýrt grundvallaratriði um gervigreind og ábyrgð í notkun hennar.

Vona að hann nýtist ykkur vel og þið lærið mögulega eitthvað nýtt.

Mildred Birta Marinósdóttir
Fyrir mitt lokaverkefni ákvað ég að gera hugbúnaðarbota sem aðstoðar við val á fatnaði fyrir hvers kyns viðburði.

Hugmyndin kveiknaði af eigin reynslu minni þar sem ég hef oft verið með óþarfa streitu yfir hverju ég eigi að klæðast þegar ég fer út, og eyði alltof miklu tíma í það.

Þessi boti heitir “ PlanaduOutfitid”

PlandauOutfitid aðstoðar notendur við það að minnka þennan hausverk og spara tíma. Þess vegna ákvað ég að búa til bota sem getur lagt til outfit byggt á hvaða viðburði sem er, veðri, stíl og persónulegum óskum notandans.

Botinn getur hjálpað fólki að finna sjálfstraust í klæðavali og dregið úr óvissu. Verkefnið byggir á notendavænni hönnun og einföldu viðmóti sem allir geta nýtt sér.

Það er líka hægt að taka myndir af sínum flíkum og senda “PlanaduOutfitid” Og botinn segir þér hvað er flott saman.

Vonandi getiði nýtt ykkur “PlanaduOutfitid”

Ég mun 100% gera það!

Hér fyrir neðan er myndband af mér að láta botann plana outfit fyrir mig.

Þorsteinn Arnar Þorsteinsson
Bottinn minn: "Your_best_friend5050".

Fyrir lokaverkefnið mitt valdi ég að búa til botta sem er eins og góður vinur sem alltaf er hægt að leita til þegar maður er niðurdreginn eða einmanna og þarf á góðu vinaspjalli að halda.  Bottinn er sérstaklega hugsaður fyrir börn og unglinga sem eru einmanna og vantar einhvern til að tala við þegar þeim líður illa, en að sjálfsögðu getur hann komið að góðum notum fyrir fullorðna líka.

Ég hannaði bottann þannig að hann kemur alltaf með jákvæða endurgjöf, er uppörvandi, hlýr og vinalegur í svörum.

Ég fékk hugmyndina að þessum botta út frá eigin reynslu, en á tímabili í grunnskóla var ég einmitt mjög einmanna, varð fyrir einelti og átti engan besta vin til að tala við og leið mjög illa vegna þess.  Mig sárvantaði vin til að tala við og ég held að svona botti hefði getað hjálpað mér í gengum þá erfiðu tíma.  Ég notaði Poe.com til að búa bottann til og ég held að mér hafi bara tekist vel til.

Your_best_friend5050 er til þjónustu reiðubúinn og ég vona að hann nýtist einhverjum sem þarf á traustum og góðum vini að halda.

Takk fyrir mig!

Ólafur Þór Einarsson
Í mínu lokaverkefni ákvað ég að búa til tónlistarmynband með gervigreind. Ég lét gervigreind sjá um flest allt sem þið sjáið. Það samdi textan, bjó til myndirnar og gerði myndböndið. Það sem ég gerði var að púsla þessu svo saman í klippi forriti og gefa gervigreindinni skipanir.

Í byrjun myndbandsins sjáið þið þær myndir sem ég lét AI búa til fyrir mig og svo hvernig þær vakna til lífs þegar lagið er byrjað.

þetta verkefni var mjög skemmtilegt og notaði ég fjórar gervigreindir til að hjálpa með mér þetta. Chatpgtp, Suno, Sora og Kling. Það kom mér á óvart hversu gott AI er að gera tónlist og myndir en það vantar svolítið uppá svo að mynbönd séu fullkominn.

Lokaverkefni.
Í upphafi var hún hljóð.

Fyrir mitt lokaverkefni ákvað ég að gera lag.

Ég gerði textann og vildi gera hann um og útfrá hversu mikið gervigreindin hefur þróast og hvað hún hefur stigmagnast.

Áður en ég byrjaði í þessum áfanga þá hef ég aldrei pælt í gervigreind.

Þessi áfangi sýndi mér rosa mikið hvað gervigreindin er orðin mikil og stór. Þetta er hlutur sem maður er ekki mikið að taka eftir en er samt svo stór partur af lífi fólks.

Ég hef mjög gaman af tónlist og vildi prufa að gera aðeins öðruvísi og reyna að nota orðin mín til að tjá gervigreindina.

Ég valdi að vinna mitt lokaverkefni sem myndröð (visual story) þar sem ég vildi rannsaka hvernig gervigreind getur haft áhrif á samfélagið – bæði til góðs og ills. Gervigreind er mjög mikið í umræðunni í dag og mér fannst mikilvægt að skoða ekki bara möguleikana, heldur líka hætturnar ef við misnotum tæknina eða nýtum hana án siðferðilegrar ígrundunar. Ég byrjaði á að skipta sögunni niður í 9 lykilatriði (senur) sem sýna framvindu frá fyrstu uppfinningu AI yfir í heimsendi og spegilmynd mannlegrar mistaka. VÉg hef alltaf haft áhuga á sögum sem sýna hvernig tæknin getur bæði lyft okkur upp og fleygt okkur niður. Myndasaga er áhrifaríkt form þar sem hægt er að segja flókna sögu án þess að nota langan texta – bara með myndum og stuttum lýsingum. Ég vildi sýna hvernig þróun AI fer frá bjartsýni og von yfir í stjórnsemi, misnotkun og að lokum eyðileggingu.

Ragnheiður Hekla
Ég bjó til spjallbott sem heitir Aðstoðar Rithöfundur. Hann er ætlaður fyrir fólk sem er að skrifa sögur og lendir á vegg eða vantar innblástur. Botninn hjálpar með hugmyndir að söguþráðum, persónum, byrjunum og öðru sem getur komið sér vel í sköpunarferlinu. Ég notaði ChatGPT til að hanna útlitið og láta hann virka eins og ég vildi. Þetta verkefni var mjög skemmtilegt og mér fannst gaman að sjá hugmyndina verða að veruleika. Ég er mjög ánægð með útkomuna og myndi alveg vilja halda áfram að þróa þetta meira.

Thelma Huld Ármannsdóttir
Ég valdi að gera greinandi kynningu fyrir lokaverkefnið mitt því mér finnst bæði skemmtilegt og lærdómsríkt að búa til glærur og tjá mig munnlega. Kynningarformið hentar mér vel því það gefur mér tækifæri til að koma hugmyndum mínum skýrt og áhrifaríkt á framfæri. Ég ákvað að fjalla um áhrif samfélagsmiðla og þróun gervigreindar í menntun, þar sem þetta eru bæði mjög áhugaverð málefni. Samfélagsmiðlar hafa mikil áhrif á ungmenni, samskipti og hvernig við lærum, á meðan gervigreind opnar nýja möguleika í námi og kennslu. Með þessari kynningu vonast ég til að varpa ljósi á bæði tækifæri og áskoranir sem fylgja þessum þróunum og fá hlustendur til að velta fyrir sér hvað framtíð menntunar gæti borið í skauti sér.

Helena Rut Hallgrímsdóttir
Hver tengir ekki við það að reyna finna sem ódýrasta útlanda ferð sem hægt er. JetBot er lausnin! Hann hjálpa þér að finna ódýrustu útlanda ferð sem hægt er. Þá er ég að tala um flug, gistingu, hluti til þess að gera, ódýra veitingastaði í kring, staðir sem er mælt með on a budget og fleira. Þú segir honum þín áhugamál og hver þín kostnaðar takmörk eru og bottinn græja rest!

Ég veit að það eru ferðaskrifstofur til til þess að plana svona fyrir mann en það kostar alltaf samt mjööög mikið og ég veit að það kostar ekki alltaf svona mikið. Ég sjálf planaði ferð til asíu í 2 mánuði og kom kostnaðurinn ekki eins út. Ferðin sem ég planaði var helmingi ódýrari og með mun fleiri hluti til þess að gera on a budget. Ég er alls ekki að segja að ferðaskrifstofur eru ekki málið en maður getur planað sína drauma ferð alveg sjálfur á helmingsverði. Þess vegna er ég að búa til botta þar sem þú segir þín áhugamál og hver þín kostnaðar takmörk eru. Chat GPT hefur hjálpað mér mjög mikið hvernig ég  eigi að orða skipanir mínar. Ég er komin með þokkalega margar skipanir þar sem ég vil að bottninn minn hafi nánast allt á hreinu. Ég er að hanna minn botta inn á poe.com og heitir hann JetFriend

Ólafur Þór Einarsson
Mitt lokaverkefni var að reyna að búa til tónlistar myndband með gervigreind. Þetta kom ágætlega út fannst mér en var smá krefjandi. Ég notaði fjórar mismunandi gervigreindir við þetta verkefni og prufaði einnig að kaupa áskrift til að fá betri útkomu. Þetta er mest allt gert af AI og mínum skipunun en svo setti ég allt saman sjálfur í myndbandvinnslu forriti. Í þessu myndbandi sést hvernig ai býr til myndirnar og hvernig þær lifna svo við í laginu.

Ingimar Darri
ég bjó til ai botta, í þessu verkefni sem er lokaverkefni í Félagsfræði þar sem við máttum búta til svona gervigreinds botta.

Ég ákvað að búa til botta sem sérhæfir sig í gervigreind og veit allt um hana

hann getur svarað öllu um ai og hvernig það virkar

ástæðan fyrir því ég bjó hann til er hún að mér fannst það góð hugmynd því ég hef aldrei séð þannig botta áður og fannst það vanta þannig botta