Valgreinar í unglingadeild Grunnskólans í Þorlákshöfn skólaárið 2023-2024 by Garðar Geirfinnsson

Afþreying
Hvað er að gerast?

Í þessari smiðju verður farið yfir það sem er að gerst hverju sinni í kringum okkur hér heima sem og út um allan heim. Spjallað verður um það sem fjölmiðlarnir bjóða okkur uppá í fréttum sem og því sem samfélagsmiðlar halda að okkur alla daga. Markmiðið er að gera nemendur meðvitaðri um fréttaflutning almennt sem og þjálfa hugann í að láta ekki mata sig á hverju sem er.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka+ góða skapið!

Horft og spjallað!

Í þessari smiðju munum við sem hópur horfa á ýmiskonar efni bæði gamalt og nýtt. Til dæmis tónlistarmyndbönd, spjallþætti, sjónvarpsþætti og kvikmyndir svo eitthvað sé nefnt. Síðan munum við spjalla um efnið eftir þörfum. Hvað fannst okkur? Gott? Slæm? Af hverju? Og svo framvegis.

Námsmat:  Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka+ góða skapið!

,,Júróvisíón“ hin íslenska.

Í þessari smiðju munum við fara yfir gamlar sem nýjar íslenskar undankeppnir í ,,Júróvisíón“ .  Við munum kynna okkur sögu keppninnar og fara yfir lagaval áranna.  Sjá til dæmis hvaða lög hafa lifað lengst og best úr keppnunum og  gerast sjálfskipaðir dómarar yfir lögum í gegnum árin sem og þeim nýjustu.  Ef möguleiki er á, sem og þátttaka og vilji, munum við stefna á að komast á eina undankeppni ,,Júróvisíón“ í Reykjavík í febrúar/mars.

Námsmat:  Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka+ góða skapið!

,,Eurovision“ hin útlenska.

Í þessari smiðju munum við fara yfir gamlar sem nýjar Eurovision söngvakeppnir. Við munum kynna okkur stuttlega sögu keppninnar og fara yfir skemmtilegar og óvæntar uppákomur sem orðið hafa í gegnum árin.  Við rúllum í gegnum allskonar lög frá allskonar löndum á allskonar tungumálum og höfum gaman af.  Veljum til dæmis uppáhalds atriði, alls ekki uppáhalds atriði, sniðug atriði, hræðileg atriði og svo framvegis og framvegis.  Við gerumst sem sagt sjálfskipaðir dómarar yfir hinu og þessu Eurovision dótaríi.  Hugsanlega munum við standa fyrir Eurovision uppákomum í matsal, og vonandi getum við endað  smiðjuna á veglegu Eurovision teiti fyrir hópinn og hugsanlega fleiri.

Námsmat:  Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka+ góða skapið!

Heilbrigði
Núvitund

Námskeið byggir á fræðslu og fjölbreyttum æfingum sem styðja nemendur við að tileinka sér núvitund í daglegu lífi.

Markmið námskeiðsins er m.a. að byggja upp,  færni í að vera til staðar,  meðvitaða athygli,  sjálfsþekkingu og tilfinningafærni, félagsvitund og færni í samskiptum, samkennd í eigin garð og annarra.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Jóga

Jóga- og öndunaræfingar, hugleiðsla og slökun geta m.a. dregið úr kvíða, bætt einbeitingu og róað hugann. Jóga eflir persónulega tengingu við okkur sjálf. Í valgreininni munu nemendur gera léttar jóga- og öndunaræfingar, prófa hugleiðslu og í lok hvers tíma er farið í slökun. Einnig verða gerð ýmis verkefni sem tengjast sjálfsmynd, samkennd og þakklæti. Sé jóga stundað reglulega getur það gefið okkur aukinn liðleika og styrk, betri einbeitingu, sterkari sjálfsmynd, gleði og ró.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Sjálfstyrking
Námskeiðið byggir á efni úr bókinni Veldu og eru efnisþættir m.a. jafnvægi (næring, hreyfing, hugarfar), jákvæðni, gildi, sjálfsmynd, styrkleikar, draumar, markmið, vinátta og hamingja. Að auki verða stuttar æfingar í öndun og slökun í hverri kennslustund.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Styrkur
Styrktarþjálfun

Styrktarþjálfun má velja tvisvar sinnum í viku. Styrktarþjálfun er mikilvægur þáttur í íþróttum og annarri líkamlegri hreyfingu fyrir ungt fólk. Sýnt hefur verið fram á að ávinningur styrktarþjálfunar hjá börnum og unglingum er mikill og má þar nefna jákvæð áhrif á hjarta- og æðarkerfi, beinþéttni, andlega þætti og góð langtímaáhrif á heilsu. Valgreinin gagnast öllum nemendum, m.a. þeim sem langar að taka þátt í Skólahreysti.

Mikilvægt er að nemendur sem velja styrktarþjálfun hafi áhuga á því að læra og stunda styrktaræfingar, því námskeiðið er kennt allan veturinn.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Hreyfing
Dans og Zumba

Í dansi verður lögð áhersla á sköpun og freestyle dans. Nemendur læra grunnspor, semja dansa saman og koma fram á danssýningu skólans að vori. Zumba er skemmtileg hreyfing þar sem dönsuð eru einföld spor við skemmtilega tónlist. Styrking og mikil brennsla.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Áhugi
Kökuskreytingar
Nemendur baka og skreyta kökur t.d. með smjörkremi. Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Jólasögustundir
Nemendur útbúa jólahorn á bókasafni og skreyta það.  Nemendur velja sér jólasögu sem þeir æfa og lesa á aðventunni fyrir yngri nemendur sem heimsækja bókasafnið (frístundarbörn). Æfður „leiklestur“ og framkoma.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.
Húð og hár
Nemendur læra um umhirðu á húð og hári. Kynnt verða grundvallaratriði förðunar og einfaldar hárgreiðslur.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Peysuprjón
Kennd eru grunnatriði við peysuprjón. Nemandi lærir uppfit, prjóna slétt og brugðið, gera laskaermar, fella af og frágang. Athugið að nemendur gætu þurfa að prjóna heima á milli kennslustunda. Kynnt verða efni og áhöld og hvernig lesa á uppskriftir.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Sköpun
Akrýlmálun

Nemendur kynnast akrýlmálningu, læra að vinna verk með mismunandi tækni og læra að blanda liti. Nemendur læra að byggja upp myndir og kynnast lögmálum myndlistar.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Fab Lab

Fab Lab er námskeið með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur nemendum tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Í smiðjunni lærum við á hönnunarforrit og hönnum t.d. límmiða, filmur, texta eða myndir á tau. Möguleiki verður á að fá að prufa þrívíddarprentun. Að lokum heimsækjum við Fab Lab smiðjuna á Selfossi og fullvinnum hönnunina okkar.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Endurnýting

Nemendur vinna með verðlausan efnivið. Skúlptúrar unnir og líkön, ásamt því að túlka hugtök í skúlptúragerð. Nemendur sjá að mestu um að safna efnivið sem þarf til verkefnisins, ásamt því að nota það sem til er í skólanum.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Nýsköpun og frumkvöðlafræði

Heimurinn er fullur af áskorunum sem bíða þess eins að við leysum þær á skapandi, skemmtilegan og hugmyndaríkan hátt. Í nýsköpun og frumkvöðlafræði förum við í svokallaða ,,uppfinningaferð“ og lærum vinnsluferli í anda nýsköpunar. Fáum hugmyndir að einhverju sem gæti bætt lífið okkar, gert heiminn að betri stað eða finnum upp eitthvað glænýtt og skemmtilegt. Þitt áhugasvið ræður ferðinni og þú vinnur því með þínar hugmyndir.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Miðlun
Hlaðvarp/ podcast

Í þessu námskeiði kynnast nemendur hlaðvarpsforminu í gegnum áheyrn og eigin sköpun. Nemendur læra að afla sér upplýsinga um ákveðin málefni og miðla sögu með hjálp tónlistar, viðtala og almennrar söguuppbyggingar. Markmið námskeiðsins er að nemendur finni sína rödd og geti miðlað sögum eða upplýsingum á markvissan og skemmtilegan hátt öðrum og sér til ánægju.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Tölvuleikjahönnun

Nemendur byggja upp sögusvið og söguþráð tölvuleiks. Hanna bakgrunna, persónur o.fl. fyrir einfaldan tölvuleik sem þau forrita svo í næstu smiðju.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Forritun

Nemendur læra um undirstöðuatriði forritunar og nýta til að forrita leik eftir eigin hönnun sem þau unnu í smiðjunni Tölvuleikjahönnun.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Stuttmyndagerð/ heimildarmyndagerð

Nemendur vinna einnar mínútu stuttmyndir/heimildarmyndir um sín áhugasvið.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Umönnun
Frístund

Nemendur fá tækifæri til að kynnast starfi yngri nemenda í frístund með því að dvelja þar við leik og störf. Nemendur fá hvatningu og aðstoð við að skipuleggja 1-2 klst. starf.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Nían

Nemendur fá tækifæri til að kynnast starfi eldri borgara á Níunni. Nemendur munu t.d. spila, fara í göngutúr, baka fyrir kaffitíma og jafnvel aðstoða eldri borgara við að læra á spjaldtölvu.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Sambýli

Nemendur fá tækifæri til að kynnast heimilisfólki og heimilisbrag sambýlisins við Selvogsbraut. Hugmyndin er að spila, spjalla og aðstoða heimilisfólkið við bakstur og verslunarferðir.  Nemendur verða alltaf með leiðsögn starfsmanns Sambýlisins.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Leikskóli

Nemendur fá tækifæri til að kynnast starfi leikskólakennara og leikskólabarna með því að heimsækja Bergheima klukkustund í senn í níu vikur. Nemendur fá hvatningu og aðstoð við að skipuleggja 1-2 klst. starf.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Framtíð
Heilsurækt

Heilsa er öllum mikilvæg, regluleg hreyfing, svefn og næringarríkt mataræði eru taldir mikilvægir þættir þegar kemur að heilsu. Reglulega hreyfingu er hægt að stunda á margskonar vegu og fá nemendur að kynnast nokkrum aðferðum í þessum áfanga.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Kynfræðsla 1

Nemendur kynnast mannslíkamanum og þroska hans, frjósemi, barneignum, tíðarhringnum og tíðarvörum. Þeir læra um hinar ýmsu getnaðar- og kynsjúkdómavarnir og hvað skal gera ef þær klikka. Fjallað verður um kynferðislega ánægju og sjálfsfróun auk annarra umræðuefna sem nemendur munu koma með hugmyndir um.

Tjáning og umræða eru mikilvægir þættir á námskeiðinu.

Kynfræðslan er ávallt hluti af víðara samhengi þar sem málefni hinsegin- og fötlunarfræða tvinnast inn í umræðuefnið.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Kynfræðsla 2

Nemendur fá fræðslu um flóru hinseginleika og fjölbreytileika. Fjallað verður um virðingu, samskipti og sambönd, auk fræðslu um mörk og samþykki og ólíkar birtingarmyndir kynferðisofbeldis og afleiðinga þess. Nemendur fá fræðslu um klám þar sem verður fjallað um mun á klámi og kynlífi. Auk þess verður fjallað um efni sem nemendur leggja til.

Tjáning og umræða eru mikilvægir þættir á námskeiðinu.

Kynfræðslan er ávallt hluti af víðara samhengi þar sem málefni hinsegin- og fötlunarfræða tvinnast inn í umræðuefnið.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Leikur úti og inni
Golf
Nemendur kynnast og læra í gegnum leiki helstu grunnatriði golfíþróttarinnar. Kennslan mun fara fram ýmist á æfingasvæði golfklúbbsins, á útisvæði grunnskólans eða innandyra í skóla eða íþróttahúsi.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Pílukast
Nemendur læra leikreglur pílukasts og spila með samnemendum. Pílukast er skemmtileg íþrótt sem hentar öllum.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Enski boltinn
Megin tilgangur kennslu í enska boltanum er að nemendur öðlist dýpri þekkingu og skilning á ýmsum atriðum í tengslum við enska knattspyrnu. Farið verður yfir enska boltann frá hinum ýmsu sjónarhornum þar sem m.a. er farið yfir ýmsa tölfræði, árangur einstaklinga og liða, sögu félaga, leikgreiningu og fleira.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Frisbígolf
Nemendur læra leikreglur frisbígolfs og spila með samnemendum. Frisbígolf er einföld og skemmtileg íþrótt sem hentar öllum.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Spilafjör
Borðspil
Nemendur kynnast nýjum og skemmtilegum borðspilum í bland við eldri og klassísk.

Námsmat: Virkni, áhugi og þátttaka.

Skák
Nemendur læra mannganginn og æfa sig að tefla.

Námsmat: Virkni, áhugi og þátttaka.

Borðspil
Nemendur kynnast nýjum og skemmtilegum borðspilum í bland við eldri og klassísk.

Námsmat: Virkni, áhugi og þátttaka.

NBA
Saga og upphaf NBA-deildarinnar tekin fyrir og farið yfir bestu liðin í deildinni og gamlar stórstjörnur. Horft verður á sjónvarpsþætti Stöðvar 2 sport, Lögmál leiksins. Farið yfir liðin og leikmenn í deildinni, styrkleika og  veikleika. Nemendur fjalla um uppáhalds leikmenn eða lið og kynna fyrir hinum. Gerum leikmannaskipti í „Trade machine“ o.fl.   Í bland við þetta verður körfubolti spilaður úti á velli eða inni í sal.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka

Lífið
Dagbókarskrif/ bullet journal

Nemendur búa til sína eigin dagbók t.d. með persónulega markmiðasetningu í huga í bullet journal stíl.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Skyndihjálp 1
Að þátttakendur öðlist þekkingu og færni í að beita einföldum aðferðum skyndihjálpar og geti greint einkenni algengra sjúkdóma og áverka.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Skólablað
Nemendur afla og vinna efni í skólablað.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Árbókaskrif
Nemendur hanna skemmtilega árbók með myndum og textum um nemendur (aðallega 10. bekkjar nemendur) sem verður svo gefin öllum sem útskrifast.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Metið val
Heimilt er að veita undanþágu frá valgrein með því að meta reglubundna þátttöku í félagslífi, íþróttum eða skipulögðu starfi utan skóla. Einnig er heimilt að meta nám utan grunnskóla s.s. nám við tónlistarskóla, framhaldsskóla eða málaskóla. Nemendur geta fengið eina klukkustund á viku metna í vali.  Foreldrar bera ábyrgð á þátttöku nemenda í slíku starfi.
Nemendur velja fimm smiðjur nema þeir hafi óskað eftir undanþágu, þá velja þeir fjórar smiðjur.

Smiðjur utan stundatöflu
Nemendur geta valið þrjár smiðjur sem verða ekki endilega bundnar ákveðnum dögum á stundatöflu.  Þessar smiðjur eru:

Aðstoðarþjálfun
Nemandi kynnist starfi þjálfara í íþróttagrein sem nemandinn hefur æft og þekkir vel. Nemandi starfar sem aðstoðarþjálfari reynds þjálfara. Valgreinin er því stunduð á þeim tímum sem æfingar fara fram. Reynt verður að koma til móts við alla þá nemendur sem vilja kynnast þjálfun í sinni íþróttagrein.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Félagsmiðstöðvarval
Nemendur taka þátt í félagsmiðstöðvarstarfi og sækja þá fræðslu og uppákomur sem boðið er uppá. Gert er ráð fyrir þátttöku í að minnsta kosti klukkustund í hverri viku. Opið er í Svítunni mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 19:00 - 21:30. Dagskrá má sjá á Instagram síðu Svítunnar svitan815 og á veggjum skólans.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Skjálfti
Skjálftinn er hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum á Suðurlandi, byggður á Skrekk í Reykjavík. Nemendur búa til atriði frá grunni, þróa hugmynd, æfa, hanna búninga, sjá um förðun, hár, lýsingu og hljóðvinnslu. Atriðið endar í keppni sem fram fer að vori. Vinnan hefst eftir áramót og er stigmagnandi þungi í æfingum og undirbúningi sem nær hámarki síðustu vikur fyrir keppnina.

Í Skjálftanum er enginn látinn gera eitthvað sem hann/hún/það vill ekki heldur er unnið með styrkleika hvers og eins. Markmiðið með Skjálftanum er að bjóða nemendum upp á verkefni sem eflir sköpunargáfu, þjálfar þau í markvissu langvinnu hópastarfi sem styrkir sjálfsmynd einstaklinga og hefur jákvæð áhrif á skólamenningu.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.