Dýragarðurinn by 07Hólmdís Rut Einarsdóttir

Upplýsingar um bókina
Höfundur þessarar bókar heitir Ólafur Haukur Símonarson. Sögur er það fyrirtæki sem gaf bókina út og bókin var prentuð út af sama fyrirtæki sem staðsett er í Reykjavík. Bókin var prentuð árið 2017 og blaðsíðufjöldi hennar eru 125  blaðsíður.

Söguþráður
Sagan fjallar um blokk og fólkið sem býr í henni. Sagan er að mestu leyti um í hverju fólkið lendir og hvað það gerir í daglegu lífi. Óli bróðir Viggu byggir dýragarð án leyfis og allt fer í vandræði. Það þarf að brjóta dýragraðinn niður og byggja svokallaða spilahöll fyrir eldriborgara. Krakkarnir reyna að leysa úr þessum vanda.

Aðalpersóna
Aðalpersónan er sú sama og sú sem segir frá sögunni og hún heitir Vigdís kölluð Vigga. Hún er u.þ.b 12 ára en útliti hennar er ekki lýst í bókinni. Hún spilar á fiðlu og yrkir ljóð á næstum hverjum degi. Hún á bróður, hann Óla, systur, hana Söru og pabba og mömmu. Vinum hennar finnst hún gáfuð og hjálpsöm. Hún lætur sig hafa það sem aðrir biðja hana um þó svo að hún nenni því ekki.

Aukapersónur
Óli sem er litli bróðir Viggu er ein af aukapersónum bókarinnar sem mikið er fjallað um í bókinni. Hann er aðeins yngri en Vigga svona 9 ára. Ég myndi segja að hann sé mikill prakkari eða kjáni, en þrátt fyrir það fær hann margar skemmtilegar hugmyndir. Honum er ekki lýst í bókinni heldur. Tvíburarnir sem þau eyða miklum tíma með heita Ari og Bjarni. Þeir eru á svipuðum aldri og Óli og þeir prakkarast oft saman.

Sögusvið
Sagan gerist í blokk í Reykjavík sem er ekki ímynduð og gæti mjög líklega gerst í alvörunni en þessi saga er skáldsaga.

Tími
Sagan gerist á einu sumri í nútímanum. Það kemur fram í byrjun bókarinnar.

Boðskapur
Það sem maður getur lært af bókinni er til dæmis að virða eigur annara og leyfa öllum að vera með og að það sé gott að hjálpast að og fleira.

Mat á bókinni
Mér fannst bókin skemmtileg og ég naut þess að lesa hana. Söguþráðurinn er ekki beint spennandi en hann er t.d. fyndin og skemmtilegur. Þar sem sagan gerist, í blokk, er ekkert endilega mjög spennandi en þegar maður byrjar að lesa þá er það fyndið skemmtilegt. Persónur bókarinnar eru ýmist fyndnar og hafa allar öðruvísi persónuleika sem er  gaman að lesa um. Sumar þeirra eru áhugaverðar á margvíslegan hátt og það er skemmtilegt að lesa þegar það er lýst persónunum vel. Það var mjög auðvelt að lesa bókina og ég skildi næstum öll orð hennar. Ef ég væri höfundur bókarinnar hefði ég örugglega skýrt hana eitthvað annað því það er svo margt annað áhugavert í bókinni sem tengist ekkert nafni bókarinnar. Annars finnst mér bókin bara fín. Framan á bókinni eru margar skrautegar myndir sem auðvelt er að sjá hvað er. Að vísu eru engar myndir inni í bókinni en mér finnst bara þægilegt að lesa bókina þannig og síðan er leturstærðin passlega góð. Ekki of stór né of lítil