Jóhannes 16 kafli vers 24. by Gudmundur Gils Gudmundsson

Jóh 16;24.
Mig langar að tala um "sverð Guðs". Vilji guðs birtist opinbert í orði Guðs, og ein af birtingamyndum orðsins er sverð.

,,Barátta 34 Ætlið ekki að ég sé kominn að færa frið á jörð. Ég kom ekki til að færa frið heldur valda sundrungu.
35 Ég er kominn að gera son andvígan föður sínum, dóttur móður sinni og tengdadóttur tengdamóður sinni.
36 Og heimamenn manns verða óvinir hans.
37 Sá sem ann föður eða móður meir en mér er mín ekki verður og sá sem ann syni eða dóttur meir en mér er mín ekki verður.
38 Hver sem tekur ekki sinn kross og fylgir mér er mín ekki verður.
39 Sá sem ætlar að finna líf sitt týnir því og sá sem týnir lífi sínu mín vegna finnur það". Matteus 10;34.
JESÚS kom til að,færa okkur sverð, ekki til að sópa synd okkar undir gólfteppið heldur til að skera hana burt.

Það þarf að umskera okkar synduga eðli burt svo að það blæði, og stundum þurfum við að takast á við okkar eigið synduga fallna eðli og það krefst átakas, andlega og líkamlega ,Bæn föstu og baráttu'. ,,Þetta kyn verður ekki rekið út nema fyrir bæn og föstu". Matt 17; 14-21.
Kom ekki Jesú til að, færa okkur frið? Jú, víst gefur hann frið, en sverðið kom á undan.
Það kemur engin friður nema sverðið komi fyrst. Hann er kominn með sverð sitt til að skera burt syndina, og síðan fylgir friðurinn í kjölfarið.
Og hann er kominn til að gjöra: son andvigan föður sínum, dóttur móður sinni og tengdadóttir tengdamóðir sinni.
Hér á hann við: ,allt sem að greinir á við orð Guðs. þeas: í andstöðu við vilja Guðs.
,,Frekar ber að hlýða Guði en mönnum".
Það þýðir: ,,Börn eiga að vera foreldrum sínum undirgefin"  og ekki í andstöðu við yfirvöld/valdhafa. En þar sem vilji Guðs og  mannsins skarast og kemur í andstöðu við vilja Guðs, þá ber fremur að hlýða Guði en mönnum.

,,Og heimamenn manns verða óvinir hans."   Vegna sverðsins - vilja Guðs með okkur i Jesú kristi.
Og það segir að við eigum að elska okkar foreldra, okkar systkini...
Heiðra skalt þú föður þinn og móður. Fjórða boðorðið talar um um skyldur barna til foreldra sinna og sistkyna. að virða þá og heiðra og taka tillit til þeirra alla þeirra ævi og þeir sem það gera munu verða til blessunar fyrir þjóðina.
Guð og mammón: Matt 6; 24. Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón. G3404: Greek: love=μισέω = less = miseō - þýðir: ,að elska minna'.  Og hann segir: ,,Sá sem föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður". Hér reynir á andlegan vöxt, því við eigum að hata þetta synduga eðli í manninum, hvort sem það er okkar vinir vinnufelagar eða okkar nánasta fjölskylda.
Hér reynir á; því okkur mönnunum er það svo eðlislægt að vera undir mótandi felagslegri menningu og áhrifum sem frekar nær athyggli en orð Guðs. Hér skilur á milli þeirra sem vilja vera lærisveinar og likjast meistara sinum.  Milli þess að vera andlegt barn eða að geta náð þroska fullorðinna, á milli trúar og vantrúar, á milli ljóss og myrkurs, milli andlegs lífs og andlegs dauða.

Jóhannesar guðspjall 1. kafli 1 - 5. ,,.....í því (orðinu) var líf, og lífið var ljósi mannanna; og ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið (Hindrun) hefur ekki tekið á móti því."

1. Pétursbréf 2; 11 - 17. ,Þjónar Guðs. v 11 ,,Þið elskuðu, ég áminni ykkur sem gesti og útlendinga að halda ykkur frá holdlegum girndum sem heyja stríð gegn sálunni.
12 Hegðið ykkur vel meðal þjóðanna, til þess að þeir sem nú hallmæla ykkur sem illgjörðamönnum sjái góðverk ykkar og vegsami Guð þegar hann kemur.
13 Verið Drottins vegna hlýðin allri mannlegri skipan, bæði keisara, hinum æðsta,
14 og landshöfðingjum sem hann sendir til að refsa illgjörðamönnum og til að hrósa þeim er breyta vel. 15 Það er vilji Guðs að þið þaggið niður í vanþekkingu heimskra manna með því að breyta vel. 16 Þið eruð frjálsir menn. Notið frelsið til að þjóna Guði en ekki til að hylja vonsku. (hjúp yfir vonskuna)  17 Virðið alla menn, elskið samfélag þeirra sem trúa, óttist Guð, heiðrið keisarann".

,Varið yður.'
16 Ég sendi yður eins og sauði meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur.
17 Varið yður á mönnunum. Þeir munu draga yður fyrir dómstóla og húðstrýkja yður í samkundum sínum.
18 Þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna til þess að bera vitni um mig fyrir þeim og heiðingjunum. 19 En þá er menn draga yður fyrir rétt skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því hvernig eða hvað þér eigið að tala. Yður verður gefið á sömu stundu hvað segja skal. 20 Það eruð ekki þér sem talið heldur talar andi föður yðar í yður.
21 Bróðir mun selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða.
22 Allir munu hata yður af því að þér trúið á mig. En sá sem staðfastur er allt til enda mun frelsast.
23 Þegar menn ofsækja yður í einni borg þá flýið í aðra. Sannlega segi ég yður: Þér munuð ekki hafa náð til allra borga Ísraels áður en Mannssonurinn kemur.
24 Ekki er lærisveinn meistaranum fremri né þjónn herra sínum.
25 Nægja má lærisveini að vera sem meistari hans og þjóni sem herra hans. Mik 13:56