Ungt umhverfisfréttafólk - Valáfangi 1 - 3 einingar - utan töflu by Guðný Rún Sigurðardóttir - KV

Valáfangi
Í áfanganum Umhverfisfréttafólk vinna nemendur í anda alþjóðlega verkefnisins Young Reporters for the Environment.

Nemendur kanna umhverfismál á gagnrýnin hátt, læra að nota áreiðanlegar heimildir og vinna svo sín eigin umhverfisfréttaverkefni. Verkefnið er rekið af Landvernd á Íslandi og er hluti af Grænfánanum.

Nemendur geta valið sjálfir hversu margar einingar þeir taka, eftir því hve umfangsmikið verkefni þau vilja vinna. Ein framhaldsskólaeining samsvarar 18 - 24 tímum (2 - 3 dagar í vinnu), því geta nemendur stillt áfangann þannig að hann passi við áhuga þeirra og vinnuálag í önninni.

Nemendur funda reglulega með kennara yfir önnina og halda tímaskýrslu. Þar skrá nemendur  alla vinnu sem fer fram utan kennslustunda, til dæmis rannsóknir, gagnaöflun, viðtöl, skriftir, myndbandsvinnu eða aðra úrvinnslu.

Þetta tryggir að nemendur fái einingar í samræmi við þá vinnu sem þeir leggja í verkefnið og læri um leið að vinna sjálfstætt, skipulega og faglega.

Frábær leið fyrir nemendur sem vilja hafa áhrif á umhverfi sitt
Finndu sköpunarkraftinn í þér:-) Hér er frábært tækifæri ef þig langar að vinna öðruvísi og skapandi verkefni, vinna verkefni sem mögulega getur orðið að einhverju meira - framúrskarandi  verkefni geta mögulega orðið þáttakendur í keppni ungs Umhverfisfréttafólks bæði á Íslandi og svo erlendis.

Frábær leið til að þjálfa sig í sjálfstæðum vinnubrögðum og prófa sig áfram með ólík form miðlunar. Myndbandagerð, ljósmyndun, vefsíðugerð, kynningar, blaðagreinar, þrívíddarvinna(þrívíddarprentari), búa til leiki og keppnir og fleira og fleira...

Tilvalið fyrir nemendur sem vilja stækka vinahringinn sinn, vinna með ólíku fólki - það má líka að sjálfsögðu vinna sér og það getur verið mjög gaman líka:-)

Tilvalið fyrir vini og kunningja sem vilja vinna saman að skemmtilegu verkefni sem nær út fyrir skólann.

Vinnuferli áfangans
1. Kynning á áfanganum, undirbúningur og áætlanagerð

2. Velja umhverfismál sem nemendur vilja rannsaka

nemendur velja sér námsefni sem má tengja við nærumhverfi eða alþjóðleg mál svo sem rusl og flokkun, ferðavenjur, ungt fólk,  vatn, orka, loftgæði, mengun, neysla, matarsóun, plast, lífríki, vistkerfi, ofl.

3. Rannsóknarvinna - mikilvægasta skrefið
Nemendur safna gögnum með fjölbreyttum aðferðum, t.d.:

lesa áreiðanlegar heimildir (tengdar sjálfbærni og umhverfismálum), taka viðtöl, gera kannanir, ljósmynda eða taka myndband, skoða skýrslur og greiningar, tengja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Landvernd leggur sérstaka áherslu á öruggar og traustar heimildir, sérstaklega á tímum falsfrétta.

4. Nemendur velja miðil fyrir lokaverkefnið

myndband, hlaðvarp, grein, ljósmyndasaga, teiknimyndasaga eða önnur listamiðuð nálgun.

5. Framleiðsluvinna – að búa til afurðina

Nemendur vinna úr rannsóknargögnum og setja saman vandað efni: skrifa skýra og rökstudda umfjöllun, undirbúa handrit/málstexta ef þarf, mynda og klippa myndbönd, taka og velja ljósmyndir, setja saman hlaðvarp eða myndasögur o.fl.

6. Kynning og á verkefninu

Nemendur kynna verkefnið

7. Skil á verkefninu

Nemendur skila verkefnunum á vettvangi Grænfánans.

8. Verkefnin fara í samkeppni (valfrjálst)

Innblástur - ljósmyndir
Sæt tortíming – Íris Lilja Jóhannsdóttir, FÁ

Innblástur - greinaskrif
Greinaskrif frá nemendum í MS

Innblástur - myndbönd

Innblástur - leikjagerð og önnur skapandi miðlun
Grænópólý – Guðmundur Berg Markússon, Hjalti Freyr Hjaltason, Daníel Ingi Eyjólfsson, Ívar Patrick Lefort Steinarsson og Sigurður Kári Söndruson, FÁ

Innblástur - skapandi list
Sannleiksmolar, ljúfsárt lostæti – Baltasar Diljan Rúnarsson, Kristófer Birgisson, Lóa Margrét Hauksdóttir, Óliver Ben Viðarsson og Sigrún Ólafsdóttir, Tækniskólinn

Innblástur - bæklingur
Líf í vatni, upplýsingabæklingur – Margrét Helga, Íris Björk og Helgi Már, MA