Leik- og námsumhverfi í leikskóla by Helena Dögg

Verkefni búið til af:
Helenu Dögg Einarsdóttir
Valdísi Evu Ingadóttir

Gagnaöflun fór fram með vettvangsathugunum og ljósmyndum, þátttöku í daglegu starfi og einnig í samtali við starfsmenn leikskólans. Einnig skoðuðum við heimasíðu leikskólans og Aðalnámskrá leikskóla.

Leikskólinn Teigasel - GLEÐI - EINING - VIRÐING
Leikskólinn Teigasel hóf starfsemi sína árið 1998 og varð 25 ára síðastliðinn september. Teigasel er 3 deilda leikskóli með börn fædd á árunum 2018-2022.
Einkunnarorð leikskólans eru Gleði - Eining - Virðing og eins og kemur fram á heimasíðu leikskólans þá "með þessum orðum viljum við tengja saman þá gleði sem fylgir hverju barni, þá einingu sem við viljum ná saman sem heild og að borin sé virðing fyrir öllum."
Í þessi veggspjaldi verður farið yfir leiksvæði tveggja deilda og hvernig skipulagið er, aðgengi, hvernig leikefni er í boði og hvert er hlutverk fullorðinna.
Einnig skoðum við hópastarfið hjá yngstu deild og elstu deild leikskólans og hvernig því er skipt og hverjar áherslurnar eru.
Leikskólinn er mjög lítill og er nýtt hvert horn og hvern gólfflöt fyrir dót og leiksvæði fyrir börnin.

Heimsíða Teigasels: tengill
Hér er hægt að fara inn á heimasíðu leikskólans og skoða starfið betur :)

Innra herbergi: fyrsti helmingur
Hér er svæði þar sem er búið að setja hillusamstæður með einingakubbum og fá börnin að byggja og leika sé hér eins og þau vilja.
Byggingarnar fá að vera uppi alla vikuna og síðan á föstudögum er yfirleitt tekið og gengið frá svo sé hægt að þrífa mottuna.
Börnin hafa góða yfirsýn yfir svæðinu og fá gott aðgengi að kubbunum sem eru í þeirra hæð.
Krakkarnir á elstu deildinni eru mjög duglegir að byggja úr einingakubbunum og er hvatning fyrir þau að byggingarnar fái að standa áfram að byggingu lokinni.
Hlutverk fullorðinna hér er að fylgjast með leiknum og jafnvel koma með hugmyndir um hvað væri hægt að byggja.

Innra herbergi: annar helmingur
Hérna er svæðið frekar opið og er borð með stólum ásamt lítilli mottu fyrir leik og samverustundir. Einnig er hillusamstæða með skúffum barnanna.
Hér er ekki mikið leikefni í boði sem börnin hafa góða yfirsýn yfir en þetta svæði er oft nýtt í lego og börnin eru oftast í einhverskonar hlutverkaleik á mottunni.
Einnig eru börnin mikið að lesa á mottunni þar sem það er hillusamstæða hjá hurðinni og þar hafa þau aðgengi að bókum og spilum sem er í þeirra hæð.

Hillur með aðgengi að bókum, spilum og margskonar hlutum fyrir fínhreyfingar
Þessar tvær hillur eru á sitthvorum staðnum inni á elstu deild.
Önnur hillan geymir ýmis spil og púsl sem börnin sjálf hafa aðgang að og geta börnin gengið í hillurnar þegar þau vilja. Þetta leikefni nota þau oftast við borðin sem eru á svæðinu, hvort það sé í innra herbergi eða ytra herbergi.
Hin hillan (til hægri) geymir bækur og síðan ýmiskonar dót fyrir fínhreyfinar. Börnin hafa gott aðgengi að perlum, litum, blöðum og pinnum. Allt er vel merkt og geta þau börn sem eru farin að lesa æft sig að lesa á kassana.
Hlutverk fullorðinna er að passa að vel sé farið með púslin og spilin og að hjálpa börnunum að læra hvernig á að spila spilin ef þau kunna það ekki. Einnig eiga fullorðnir að hvetja börnin til þess að perla og teikna eitthvað ákveðið mynstur ef þau geta og hjálpa til og vera til staðar.

Ytra herbergi deildarinnar
Hér er hluti af svæðinu þar sem maður sér þegar maður gengur beint inn á deildina.
Svæðinu er skipt þannig að 3 stór borð með stólum eru á deildinni og síðan kemur þessi leik-krókur.
Í þessum krók er ekki að finna aðgengilegt leikefni en það sem börnin gera er að ganga inn í geymslu þar sem eru geymdir kassar af allskonar dóti sem er bæði í þeirra hæð og ekki. Þau geta gengið inn í geymsluna og valið sér það dót sem þau vilja og komið með það hingað í krókinn.
Borðin sem eru síðan á hinum hluta herbergisins er nýttur í perl, að lita, föndur, kubbaleik og í raun það sem börnunum dettur í hug.

Hillur í ytra herbergi
Búið er að koma fyrir hillum þar sem börnin hafa gott aðgengi að leikefninu sem er í boði og er allt vel merkt. Hér er ýmislegt í boði eins og kubbar, spil, bílar og dýr. Þetta nota þau bæði í leik á gólfi og á borðum.

Krakkakot: fyrsti helmingur
Krakkakot er skipt í tvö svæði með hillum til að afmarka svæðin. Hér er er opið svæði með mottu fyrir leik og lestrastundir. Það er hilla með ýmis leikefni fyrir börnin og á móti henni er hilla með einingakubbum.

Hér er leikefnið aðgengilegt fyrir börnin og geta þau sótt sér sjálf það leikefni sem þau vilja. Mottan nýtt í allskonar leiki og leikefni eins og kubba, dúkkur, bangsa, dýr, eldhúsdót og allskonar fleira. Mottan er einnig nýtt fyrir einnigakubba, börnin sækja sér einingakubba og kynnast kubbunum með að labba með þá á milli staða, stafla þeim óreglulega og oftar en ekki setja þá í munninn.

Krakkakot: annar helmingur
Hérna er svæðið meira afmarkað, það er stór motta og hilla með leikefni fyrir börnin.
Þetta svæði er notað fyrir samverur og er búið að setja myndir af börnunum á vegginn þar sem þeirra sæti er. Einnig er þetta svæði mikið notað í leik og er aðgengilegt leikefni fyrir börnin.
Í hillunni á efri myndinni hafa börnin aðgang að búningum, dýrum og kubbum og geta gengið í kassana sjálf.

Litla kot
Þetta herbergi er notað fyrir hvíld á deildinni og einnig leik barnanna. Hér er leikefnið geymt upp í hillu og hjálpa fullorðnir að sækja leikefnin sem börnin vilja.
Leikefni sem er í boði á þessu svæði eru duplo kubbar, lest, snyrtidót, bækur, bílar, boltar og fleira.
Leikefninu er síðan oft skipt á milli herbergja og fara þá kannski bílarnir inn í krakkakot og í staðinn fara búningarnir inn í litla kot.

Dótageymslan
Í innra herberginu má einnig finna þessa geymslu sem er stútfull af dóti sem börnin hafa fullan aðgang að.
Hér sækja þau sér dót sem þau vilja leika með og fara með á það svæði sem er laust. Oft blanda þau saman leikefnum og er það bara skemmtilegt og eflir leik þeirra og býr oft til góðan hlutverka leik.

Krílakot
Í þessu herbergi er lítið borð og stóll sem börnin nýta í leik eins og til dæmis í eldhúsleik. Þetta herbergi er smá eins og geymsla fyrir þessa deild, það eru margar vegghillur sem eru nýttar undir ýmis efnivið sem börnin hafa ekki aðgang að.

Aðalrýmið - Aðgengilegt leikefni
Þetta leikefni er á veggjum í aðalrými deildarinnar. Börnin hafa góðan aðgang og góða yfirsýn. Þetta er sett upp á vegg í þeirra hæð og er þetta mikið notað.
Í aðalrýminu eru tvö stór borð þar sem börnin borða hádegismat og er þetta svæði oftast notað í lok dags þar sem börnin setjast og púsla, kubba, lita og fleira.
Aðalrýmið er einnig nýtt í sköpun og skynjun.

Skipting í hópa
Börnunum á deildinni er skipt upp í 3 hópa fyrir hópastarfið.
Hundahópur: 6 börn fædd árið 2021 og er hópurinn blandaður, strákar og stelpur.
Kisuhópur: 6 börn fædd árið 2021 og er hópurinn blandaður með öllum kynjum.
Músahópur: 6 börn fædd árið 2022 og aftur er hópurinn blandaður.

12 börn fædd árið 2021 og til þess að börnin fá meira út úr hópastarfinu þá er búið að skipta þeim í tvennt og hafa tvo hópa fyrir 2021.
6 börn fædd árið 2022 og er fullkominn stærð á hópnum fyrir hópastarfið.

Könnunarleikur
Áhersla er lögð á að allir hópar fari einu sinni í viku í könnunarleik.
Á þriðjudögum fyrir hádegi fara kisuhópur og músahópur í könnunarleik en á fimmtudögum fer hundahópurinn.
Börnin fá hvert og eitt box með ýmsum náttúrulegum efnivið og kennarinn fylgist með og skráir hjá sér hvað gerist og hvernig hverju barni gengur.

Blær: vinátta
Börnin fara einu sinni í viku í blæ stund og fara kisu- og músahópur á mánudögum fyrir hádegi og hundahópur fer á fimmtudögum fyrir hádegi.

Lögð er áhersla á vináttu og að börnin velti sjálf fyrir sér hvað er að vera vinur.
Öll börn eiga sinn blæ bangsa sem er geymdur í hillum þar sem börnin geta gengið og sótt sinn bangsa hvenær sem þau vilja. Oft vilja yngstu börnin sofa með blæ hjá sér og oft vilja þau fá knús frá honum.

Lubbastund
Mánudagar, þriðjudagar og miðvikudagar fara í lubbastund og fer hver hópur á sitthvorum deginum.
Lubbastundirnar fara fram eftir útiveru og fyrir hádegismat.

Hér er lögð áhersla á stafina og verið að kynna fyrir börnunum hver Lubbi er.

Sköpun/skynjun
Föstudagar eru nýttir í sköpun og skynjun þar sem börnin mála, leika sér í sullukarinu og ýmisskonar önnur verkefni.
Helmingur hópsins fer í sköpun og skynjun fyrir hádegi á föstudögum á meðan hinn helmingurinn fer í útikennslu.
Sköpun og skynjun fer samt fram á hverjum degi þar sem þau mega alltaf lita og mála en föstudagar eru nýttir í verkefnavinnu ef það er á dagskránni.

Útikennsla
Helmingur hópsins fer í útikennslu á föstudögum og skiptist það viku og viku.
Þessi tími er nýttur í að fara í göngutúr og skoða náttúruna þar sem þau eru svo lítil.

Leikur sem námsleið
Í kafla 9 í breyttri Aðalnámskrá leikskóla kemur fram að í leiknum mynda börnin tengsl við önnur börn, búa til ímyndaðar aðstæður og búa sjálf til reglur í leiknum sínum.
Þau hafa mismunandi áhuga og börnin læra hvort af öðru með hjálp leikskólakennara.

Leikskólinn Teigasel leggur áherslu á að börnin fá jákvæða upplifun á leik og námsumhverfi sínu. Börnin leika saman og hafa aðgang að fjölbreyttum efnivið.
Ef plássið væri meira væri hægt að hafa enn betri efnivið og bæta fleiru við en börnin hafa nóg að gera og eru kennarar og starfsmenn duglegir að skipta út efnivið svo börnin kynnist nýjum hlutum og skapa nýjan leik.

Hlutverk og ábyrgð leikskólakennara og starfsfólks
Í kafla 7, bls 2 í breyttri Aðalnámskrá leikskóla kemur fram að leikskólakennari skal meðal annars:

aðlaga námsvið leikskólans að áhuga barna

Hafa yfirsýn yfir almenna færni og nám barna og vera leiðandi í að efla nám þeirra með þátttöku í leik

bera virðingu fyrir fjölbreyttum tungumálum

velja fjölbreyttar námsleiðir og vinnubrögð

(Fleiri punktar eru á bls 2)
Okkur finnst að Teigasel sinni þessum punktum úr Aðalnámskránni vel en það mætti bæta skráningar í ígrundun á leik barnanna.

Námsumhverfi
Í kafla 8 í breyttri Aðalnámskrá leikskóla (2023) kemur fram að húsnæði á að vera skipulagt þannig að það stuðli að samskiptum milli barna og á milli starfsfólks og barna. Það ætti að skipuleggja svæði þar sem leikur og nám fara fram í litlum hópum, rými þar sem börn geta verið í ró og næði og svæði þar sem börn geta leikið í stærri hópum. Umhverfið þarf að vera sveigjanlegt.

Efniviður leikskóla á að vera margbreytilegur og höfða til ólíkra barna á ólíkum aldri.

Okkur finnst að Teigasel bjóði upp á svæði á öllum deildum leikskólans þar sem hægt er að vera í minnum hópum og þar sem skapast ró og næði en einnig eru svæði þar sem hægt er að vera í stærri hópum. Þótt að leikskólinn sem lítill þá er samt alltaf hægt að breyta skipulagi deildanna þannig að svæðið nýtist börnunum sem best og er starfsfólk duglegt að breyta skipulagi deildanna þannig að það nýtist sem best.

"Hlustun"
Hér er lítið herbergið inn á deild þar sem börnin ýmst skapa listaverk og fá börnin að koma í pörum þar sem þau fá sinn tíma til þess að skapa.
Þetta svæði er einnig nýtt fyrir litla hópa í leik. Oft eru 3-4 börn sem koma saman hér og lesa eða eru í hlutverkaleik. Á bak við hurðina er sófi þar sem börnin setjast og lesa og nota í leik.

Tengill á Aðalnámskrá leikskóla

Skipting í hópa
Börnunum á deildinni er skipt í fjóra hópa fyrir hópastarfið.
2019 árgangnum er skipt í tvo hópa gulur og rauður. hópunum eru skipt eftir stafrófsröð. 2020 árgangurinn er einnig skiptur í tvo hópa grænn og blár, hópnum er líka skipt eftir stafrófsröð.

Gulur: 6 börn fædd árið 2019, hópurinn er blandaður með öllum kynjum.
Rauður: 6 börn fædd árið 2019, hópurinn er blandaður með öllum kynjum.
Grænn: 6 börn fædd árið 2020, hópurinn er blandaður með öllum kynjum.
Blár: 7 börn fædd árið 2020, hópurinn er blandaður með öllum kynjum.

börnunum er skipt í litla hópa fyrir hópastarfið til þess að börnin fái sem mest útúr hópastafinu.

Unnið er með flæði
Lagt er áhersla á að það sé flæði í leik og starfi barnanna. Börnin finna sér þann efnivið sem þau vilja leika með og fara á svæði sem þau sjá að er laust. Rýmin eru opin og geta börnin farið á milli rýma eins og þau vilja og skoða hvað er í boði þannig þau finni sér öll eitthvað sem þeim finnst áhugavert og skemmtilegt. Þegar þau detta úr leiknum, ganga þau frá eftir sig og finna sér nýtt dót til að leika með eða fara í sköpun.
Í samtali við starfsfólk deildarinnar finnst þeim að flæði virkar mjög vel fyrir deildina og að það skapast meiri ró í leiknum þar sem börnin finna sér efnivið fyrir þeirra áhugasvið.

Blær: Vinátta
Börnin fara einu sinni í viku í blæ stund. Á miðvikudögum fara báðir hópar 2019 árgangsins í blæstund fyrir hádeigi. Á Fimmtudögum fara báðir hópar 2020 árgangsins í blæ stund fyrir hádegi.

Blær leggur áherslu á vináttu og hvað það er að vera vinur. Börnin velta fyrir sér og ræða saman hvað er að vera vinur og hvað er hægt að gera til hjálpa öðrum ef þeim líður illa. Blær er alltaf aðgengilegur fyrir börnin og geta þau leitað til hans ef þeim vantar vin eða knús.

Lubbastund
Börnin fara einu sinni í viku í lubbastund. Á þriðjudögum fara báðir hópar í 2019 árgangnum í lubbastund eftir hádeigi og á mánudögum fara báðir hópar í 2020 árgang í lubbastund eftir hádeigi.

Í lubbastund er lögð áhersla á stafina, tákn stafanna og hljóð þeirra.

Möguleikarnir á leiksvæðinu
Eins og hefur komið fram eru leiksvæðin á deildinni öll nýtt vel. Börnin leika sér á svæðunum, fara í samverustundir og borða hádegismat á borðunum.
Möguleikarnir eru endalausir og það sem væri gaman að sjá væri að minnka borðin - hafa þau í þeirra hæð og stækka þannig allt rýmið. Það eru líka endalausir möguleikar þegar kemur að endurskipuleggja svæðin og má alltaf gera breytingar og er mikilvægt að sýna sveigjanleika.

Möguleikarnir á leiksvæðinu
Möguleikarnir eru margir þegar kemur að nýta leiksvæðin sem best á yngstu deildinni.
Börnin eru flest öll mjög fljót að aðlagast og því er sniðugt að breyta til uppsetningu svæðanna og hafa efniviðinn ennþá aðgengilegri fyrir þennan aldur.
Það væri hægt að koma fyrir fleiri hillum á stóru svæðin og hafa ennþá fjölbreyttari efnivið fyrir börnin.

Hlutverk fullorðinna á leiksvæði barnanna
Starfsfólk þarf að hafa góða yfirsýn yfir svæðinu og passa að öll börn finni sér eitthvað á sínu áhugasviði. Starfsfólk og fullorðnir eiga að hvetja börnin í leik og að prófa nýja hluti. Passa þarf að allt sé aðgengilegt og ef hlutir eru ekki aðgengilegir þarf starfsfólk að aðstoða börnin við þarfir þeirra. Sína þarf líka umhyggju og traust. Börnin geta svo miklu meira heldur en við höldum.

Hlutverk fullorðinna á yngstu deild
Hlutverk fullorðinna er að vera til staðar fyrir börnin. Leika með börnunum þannig þau kynnast því að vera í leik með öðrum börnum og kynnist því að vera í félagslegum aðstæðum.
Hvetja þarf börnin og styðja við þau. Setjast hjá þeim og hjálpa þeim að komast í leik með öðrum börnum.
Hlutverk fullorðinna er mikilvægt og það þarf að taka sér tíma með börnunum og gefa þeim athygli og umhyggju.

Útikennsla
Skipulögð útikennsla er einu sinni í viku á þriðjudögum þar sem er stundum er árgangaskipt en oftast fara allir saman.
Hér er lögð áhersla á að börnin kynnist náttúrunni betur, læri á umhverfið í kringum sig með því að fara saman í göngutúra og síðan er lögð áhersla á að þau læri hvað er hægt að gera með opna efniviðinn í garðinum okkar.
Frábær viðbót við starfið þar sem börnin njóta sín mjög mikið og elska að vera úti.

Hreyfing
Það er hreyfing einu sinni í viku þar sem er árgangaskipt.
þá er lagt áherslu á grófhreyfingar og bætir það heilbrigði og vellíðan.