Ljóðasafn 20. öldin by Kristín Ólafsdóttir

Finnið ljóð frá 1930-1950 (sem við höfum ekki fjallað um) og settu inn hér.
Munið að setja nafnið ykkar við færsluna

Þorkell - FÍFILKVÆÐI Fífill, grænna grasa ljós,gullið uppi um bæ og fjós,efnið góða í fína festi,- fagnaðu mér nú, vinur besti!Sjáðu hvernig sólin skín,- sálin mín og karfan þínörar verða af einum geisla,eins og það sé stærðar veisla.Manstu forðum – þú varst þáþetta sem ég treysti á;beiska mjólkurblöndu þínabar ég oft á vörtu mína.Nú er ég orðinn iljasár,og mér liði kannski skár,ef ég bæri að undum mínumofurlítið af safa þínum.Heillin mín! Ég heiti á þig:hjálpaðu nú upp á mig,áður en sest okkur hrollurog við verðum biðukollur.
Höf : Jóhannes úr kötlum

Leiksýning eftir Stein Steinarr
Hin mikla leiksýning
var loks á enda.
Eins og logandi blys
hafði leikur minn risið
í hamslausri gleði
og friðlausri kvöl,
uns hann féll á ný
í skoplegri auðmýkt
til upphafs síns.
Það var lífið sjálft,
það var leikur minn.
Og ég leit fram í salinn
og bjóst við stjórnlausum fögnuði
fólksins.
En þar var enginn.
Og annarleg kyrrð hvíldi yfir
auðum bekkjunum.

Úr Í svörtum kufli:Í dynskógum
Gleðin deilir mér drjúgum skerf
í dynskógum norna: leik og söng.
Þar slitna rætur og rifnar lyng
unz ég verð óður og hverf.

Hún seiðir myrkva og feigð í mitt fas,
en fjötrar opnast er líður kveld,
og stofnar bresta og stiknar mold;
og framar grær þar ei gras.

Þórarinn frá Hamri
Helgarfell
1958

Land míns föður - Jóhannes úr Kötlum
Land míns föður, landið mitt
laugað bláum straumi
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi.
þetta auglit elskum vér,
- Ævi vora á jörðu hér
brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.

Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum
hennar sögur, hennar ljóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu ísa og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norður ljósum.

Leiksýning
Hin mikla leiksýning
var loks á enda.
Eins og logandi blys
hafði leikur minn risið
í hamslausri gleði
og friðlausri kvöl,
uns hann féll á ný
í skoplegri auðmýkt
til upphafs síns.
Það var lífið sjálft,
það var leikur minn.
Og ég leit fram í salinn
og bjóst við stjórnlausum fögnuði
fólksins.
En þar var enginn.
Og annarleg kyrrð hvíldi yfir
auðum bekkjunum.
Steinn Steinarr 1937

Nú baðar jörð í blóði,og barist er af móði,og þessu litla ljóðimun lítil áheyrn veitt.Og þótt ég eitthvað yrkium Englendinga og Tyrki,má telja víst það virkisem verra en ekki neitt.Ég ligg hér einn og lúinn,úr lífsins harki flúinn,og vilja og vopnum rúinná vinsamlegum stað.Manns hug ei hátt skal flíka,ég hefi barist líkaog átt við ofraun slíka.En ekki meira um það.Vort líf er mikil mæðaog margt vill sárið blæða,og knappt til fæðu og klæðaer kannske nú sem þá.En samt skal sorgum rýma,þótt sækist hægt vor glíma,því eflaust einhverntímamun einhver sigri ná.Og berjist þeir og berjistog brotni sundur og merjist,og hasli völl og verjistí vopnabraki og gný.Þótt borgir standi í báliog beitt sé eitri og stáli,þá skiptir mestu máliað maður græði á því. Steinn Steinarr

Rósin
Undir háu hamra belti
höfði drúpir lítil rós.
þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.

Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drjúpa milt á blöðin þín.

Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.

Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín

Þótt form þín hjúpi graflín, granna mynd,og geymi þögul moldin augun bláhvar skáldið forðum fegurð himins sá,ó fjarra stjörnublik, ó tæra lind -og eins þótt fölni úngar varir þærsem eitt sinn þíddu kalinn hlekkjamann,þær hendur stirðni er ljúfar leystu hannog lyki dauðans greip um báðar tvær,það sakar ei minn saung, því minning þíní sálu minni eilíft líf sér bjóaf yndisþokka, ást og mildri ró,einsog þú komst í fyrsta sinn til mín;einsog þú hvarfst í tign sem mál ei tér,með tár á hvarmi í hinsta sinn frá mér.Halldór Laxnes

Jólin koma Jóhannes úr Kötlum - Hjálmar
Bráðum koma blessuð jólin,
- börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
- í það minnsta kerti og spil.

Hvað það verður veit nú enginn,
- vandi er um slíkt að spá.
Eitt er víst, að alltaf verður
ákaflega gaman þá.

Máske þú fáir menn úr tini,
- máske líka þetta kver.
Við skulum bíða og sjá hvað setur
- seinna vitnast hvernig fer.

En ef þú skyldir eignast kverið,
ætlar það að biðja þig
að fletta hægt - og fara alltaf
fjarskalega vel með sig.

Hér má lesa um hitt og þetta,
heima og í skólunum,
sem þau heyrðu, afi og amma,
- ekki síst á jólunum.

Allt, sem þjóðin átti og naut
Allt, sem þjóðin átti og naut,
allt, sem hana dreymir,
allt, sem hún þráði og aldrei hlaut,
alþýðustakan geymir.

Pétur Snær

Steingrímur Baldvinsson í Nesi  1940

Fjallganga -Ása
Urð og grjót
Upp í mót.
Ekkert nema urð og grjót.
Klífa skriður.
Skríða kletta.
Velta niður.
Vera að detta.
Hrufla sig á hverjum steini.
Halda, sárið nái beini.
Finna, hvernig hjartað berst,
holdið merst
og tungan skerst.
Ráma allt í einu í Drottinn:
,,Elsku Drottinn,
nú var ég nærri dottinn!
Þér ég lofa því að fara
þvílíkt aldrei framar,bara
ef þú heldur í mig núna!"
öðlast lítinn styrk við trúna.
Vera að missa vit og ráð,
Þegar hæsta hjalla er náð.

Tómas Guðmundsson

Salvar Ég hef drukkið Ég hef drukkið af daganna lindumdánarveig allra harma.Ég hef teygað mig sælan af syndum,sofið og dreymt.Ég hef siglt fyrir öllum örlagavindum,grátið – og gleymt.
Jóhann Jónsson 1932

Segja vil ég söguaf sveinunum þeim,sem brugðu sér hér forðumá bæina heim. Þeir uppi á fjöllum sáust,- eins og margur veit, -í langri halarófuá leið niður í sveit. Grýla var þeirra móðirog gaf þeim tröllamjólk,en pabbinn Leppalúði,- það var leiðindafólk. Þeir jólasveinar nefndust,- um jólin birtust þeir. Og einn og einn þeir komu,en aldrei tveir og tveir. Þeir voru þrettánþessir heiðursmenn, sem ekki vildu ónáðaallir í senn. Að dyrunum þeir læddustog drógu lokuna úr. Og einna helzt þeir leituðuí eldhús og búr. Lævísir á svipinnþeir leyndust hér og þar, til óknyttanna vísir,ef enginn nærri var. Og eins, þó einhver sæi, var ekki hikað viðað hrekkja fólk og - truflaþess heimilisfrið. Stekkjarstaur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laumaðist í fjárhúsinog lék á bóndans fé. Hann vildi sjúga ærnar,- þá var þeim ekki um sel,því greyið hafði staurfætur,- það gekk nú ekki vel. Giljagaur var annar,með gráa hausinn sinn.- Hann skreið ofan úr giliog skauzt í fjósið inn. Hann faldi sig í básunumog froðunni stal,meðan fjósakonan áttivið fjósamanninn tal. Stúfur hét sá þriðjistubburinn sá.Hann krækti sér í pönnu, þegar kostur var á. Hann hljóp með hana í burtuog hirti agnirnar, sem brunnu stundum fastarvið barminn hér og þar. Sá fjórði, Þvörusleikir, var fjarskalega mjór. Og ósköp varð hann glaður, þegar eldabuskan fór.Þá þaut hann eins og eldingog þvöruna greip,og hélt með báðum höndum,því hún var stundum sleip. Sá fimmti, Pottaskefill,var skrítið kuldastrá.- Þegar börnin fengu skófirhann barði dyrnar á.Þau ruku' upp, til að gá aðhvort gestur væri á ferð. Þá flýtti 'ann sér að pottinumog fékk sér góðan verð. Sá sjötti, Askasleikir,var alveg dæmalaus. -Hann fram undan rúmunumrak sinn ljóta haus. Þegar fólkið setti askanafyrir kött og hund,hann slunginn var að ná þeimog sleikja á ýmsa lund. Sjöundi var Hurðaskellir,- sá var nokkuð klúr,ef fólkið vildi í rökkrinufá sér vænan dúr. Hann var ekki sérlegahnugginn yfir því,þó harkalega marraðihjörunum í. Skyrjarmur, sá áttundi,var skelfilegt naut. Hann hlemminn o´n af sánummeð hnefanum braut. Svo hámaði hann í sigog yfir matnum gein,unz stóð hann á blístriog stundi og hrein. Níundi var Bjúgnakrækir,brögðóttur og snar. Hann hentist upp í rjáfrinog hnuplaði þar. Á eldhúsbita sat hanní sóti og reykog át þar hangið bjúga,sem engan sveik. Tíundi var Gluggagægir,grályndur mann,sem laumaðist á skjáinnog leit inn um hann. Ef eitthvað var þar inniálitlegt að sjá,hann oftast nær seinnaí það reyndi að ná. Ellefti var Gáttaþefur,- aldrei fékk sá kvef,og hafði þó svo hlálegtog heljarstórt nef. Hann ilm af laufabrauðiupp á heiðar fann,og léttur, eins og reykur,á lyktina rann. Ketkrókur, sá tólfti,kunni á ýmsu lag. -Hann þrammaði í sveitinaá Þorláksmessudag. Hann krækti sér í tutlu,þegar kostur var á.En stundum reyndist stutturstauturinn hans þá. Þrettándi var Kertasníkir,- þá var tíðin köld,ef ekki kom hann síðasturá aðfangadagskvöld. Hann elti litlu börninsem brostu, glöð og fín,og trítluðu um bæinnmeð tólgarkertin sín. Á sjálfa jólanóttina,- sagan hermir frá, -á strák sínum þeir sátuog störðu ljósin á.Svo tíndust þeir í burtu,- það tók þá frost og snjór. Á þrettándanum síðastisveinstaulinn fór. Fyrir löngu á fjöllunumer fennt í þeirra slóð.- En minningarnar breytastí myndir og ljóð.
-Jóhannes úr kötlum 1932
Heimir

Vetrardagur, Stefán Hörður Grímsson
Í grænan febrúarhimin
stara brostin augu vatnanna
frá kaldri ásjónu landsins.

Af ferðum vindanna eirðarlausu
um víðáttu hvolfsins
hafa engar spurnir borizt.

Litlausri hrímþoku blandið
hefur lognið stirðnað
við brjóst hvítra eyðimarka.

Undir hola þagnarskelina
leita stakir bassatónar
þegar íshjartað slær.

Á mjóum fótleggjum sínum
koma mennirnir eftir hjarninu
með fjöll á herðum sér.

Lestin mikla - sóley
Engum er ljóst, hvaðan lagt var afstað, né hver lestinni miklu ræður. Við sláumst í förina fyrir það, jafnt fúsir sem nauðugir, bæður!

Og hægt hún fer, en hún færist um set, þessi fylgd yfir veginn auðan, kynlóð af kynslóð og fet fyrir fet. Og ferðinni er heitið í dauðann.

Tómas Guðmundsson

Hver á sér fegra föðurland, Hulda
Hver á sér fegra föðurland,
með fjöll og dal og bláan sand,
með norðurljósa bjarmaband
og björk og lind í hlíð?
Með friðsæl býli, ljós og ljóð,
svo langt frá heimsins vígaslóð.
Geym, drottinn, okkar dýra land
er duna jarðarstríð.

2. Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð
en lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?
Við heita brunna, hreinan blæ
og hátign jökla, bláan sæ,
hún uni grandvör, farsæl, fróð
og frjáls - við ysta haf.

3. Ó, Ísland, fagra ættarbyggð,
um eilífð sé þín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu styggð
og stöðugt allt þitt ráð.
Hver dagur liti dáð á ný,
hver draumur rætist verkum í
svo verði Íslands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð
Svo aldrei framar Íslands byggð
sé öðrum þjóðum háð.

Meydómurinn mesta þykir hnoss
Meydómurinn mesta þykir hnoss
á meðan hann er þetta kringum tvítugt.
En verður stundum þungur kvalakross
ef kemst hann nokkuð teljandi yfir þrítugt.

Pétur Snær

Steingrímur Baldvinsson í Nesi

Heima, Halla Eyjólfsdóttir
Sjá hinn fagra fjallahring
fjörðinn vefja örmum sínum,

þar er engin umbreyting

allt frá bernskudögum mínum.

Ennþá gnæfir hyrnan háa

hátt við loftið fagurbláa.

Sumarkvæði syngja enn

svanir fyrir Múlalandi,

ó, hve hrifnir heyra menn

hljóminn berast upp að sandi,

yfir túnin, engi og dali

upp um háa fjallasali.

Sælt er enn í sölum þeim

sitja ein og hlusta í næði,

hugglöð taka höndum tveim

hásumarsins besta kvæði.

Svanatónar ljúft framleiða

ljóðin öll um fjörðinn Breiða.

Ó, hve sælt að sofna hér

síðsta blund að ævikveldi,

helst er kvöldsól kveðja fer,

krýnir fjöllin rauðum eldi.

Englaskari ofan stígur,

upp með sálu mína flýgur.

Elvar Atli

Hugleiðingar um nýja heimsstyrjöld - Freyja
Nú baðar jörð í blóði,
og barist er af móði,
og þessu litla ljóði
mun lítil áheyrn veitt.
Og þótt ég eitthvað yrki
um Englendinga og Tyrki,
má telja víst það virki
sem verra en ekki neitt.

Ég ligg hér einn og lúinn,
úr lífsins harki flúinn,
og vilja og vopnum rúinn
á vinsamlegum stað.
Manns hug ei hátt skal flíka,
ég hefi barist líka
og átt við ofraun slíka.
En ekki meira um það.

Vort líf er mikil mæða
og margt vill sárið blæða,
og knappt til fæðu og klæða
er kannske nú sem þá.
En samt skal sorgum rýma,
þótt sækist hægt vor glíma,
því eflaust einhverntíma
mun einhver sigri ná.

Og berjist þeir og berjist
og brotni sundur og merjist,
og hasli völl og verjist
í vopnabraki og gný.
Þótt borgir standi í báli
og beitt sé eitri og stáli,
þá skiptir mestu máli
að maður græði á því.

Steinn Steinarr

Finnið ljóð frá 1950-1970 (sem við höfum ekki fjallað um) og settu inn hér.
Hvernig sérðu að þetta ljóð tilheyri módernisma? Rökstutt svar.
Settu nafnið ÞITT líka við færsluna, svo kennari sjái þitt framlag.

Skeyti til Prag eftir Jóhannes úr Kötlum - Snæþór
Tvö risavaxin finngálkn

kennd við Atlantshaf og Varsjá

skipta okkur smælingjunum á milli sín

eins og auvirðilegu herfangi

En hversu ég blygðast mín Vaculík

teinréttur mætir þú ofbeldinu

meðan ég skríð um sölutorgið

líkastur hræddri auðmjúkri pöddu

og býð þeim Dean Rusk og Pipenelis

að spígspora á aumingjaskap mínum.

Þetta er dæmi um atómljóð. Atómljóð eru formfrjáls og ekki alltaf í bundinni stuðlasetningu og rími. Atómljóð voru áberandi á tíma módernismans.

Í ljóðinu er talað um „Tvö risavaxin finngálkn kennd við Atlantshaf og Varsjá" sem „skipta okkur smælingjunum á milli sín". Þarna er verið að tala um Atlantshafsbandalagið (NATO, hernaðarbandalag vesturlanda) og Varsjárbandalagið (Hernaðarbandalag Sovétríkjanna og annarra Austur-Evrópskra kommúnistaríkja). Þetta gefur okkur hugmynd um hvenær ljóðið kom út.

Alexander
Ferðavísur. Jóhannes úr Kötlum

Þungt er að bera um fjallveg

fullan mal af haustkvíða

þegar dagurinn geispar golunni

í gúlp hinnar blökku nætur

og svikulir steinar skríða

undir skeikulum fótum manns.

Það setur að mér hroll

er helsingjarnir koma yfir mig

með nepjusúg í flugum

fara hátt og mikinn

glam þeirra er kaldhamrað bergmál

af buldri grasafólks

sem enn er að villast í þokunni

á þessari afskekktu heiði.

Haustkvíðinn gefur til kynna hræðslu sem var mikil á þessum tíma vegna hugsanlegu kjarnorkustríði. Og að dagurinn geispi golunni gefur til kynna að líf eins og við þekkjum það gæti endað eða breyst framm í tímann.

Arnar
Jól

Jól,

kertaljós í bláum fjarska,

bak við ár,

æskumining um fegurð.

Stíg ég hreinn upp úr bala

á eldhúsgólfnu,

singdur af þreyttri móður,

færður í nýja skyrtu.

Jól,

fagnaðartár

fátæks barns-

Á þessum tíma var mikill fátækt og sínir þetta ljóð okkur hversu mikilvægar allar hátíðar voru fyrir börn á þessum tíma. Sumir elskuðu jólaþvottin því það var nú ekki alltaf þvegið börnin á hverjum sunnudegi.

Geislavirk tungl-Kristján
Geislavirk tungl

Yfir heimskringlu heilans

ganga beinagrindur í faðmlögum

augntóftir tækninnar

gráta blóði herjanna

vinna vélbyssur að vélritun

á sögu mannsins

skríða drekar eða sýklar

inní morgunsárið

úr skýjum hugmyndanna

steypast vetnissprengjur

upp út gufuhvolfinu

spennast dauðateygjur eldsins

Þetta ljóð er eftir Jónas Svafár(fæddur 1925). Ljóðið kom út árið 1957 og er hægt að flokka þetta ljóð sem atómljóð. Það er afar sterk tenging við módernisma enda kom ljóðið út á tíma sem módernisma ljóð voru vinsæl. Eitt af aðal umfjöllunarefnum Módernisma er heimsendasýnin og kjarnorkuógn. Í ljóðinu eru myndrænar lýsingar á hryllingum stríðs með orðum eins og ,,spennast dauðateygjur eldsins”, ,,skríða drekar eða sýklar” og ,,úr skýjum hugmyndanna steypast vetnissprengjur”. Ljóðið er frekar þunglindislegt og er afar innblásðið af kjarnorkuógn tímanns. Þess vegna er þetta ljóð alveg dæmigert módernisma ljóð.

Hjálmar - Hermenn í landi mínu
Hermenn í landi mínu

Í augum ykkar hef ég séð þá brjóta upp
hurðina. Þeir eru kommir langt að til að
frelsa heiminn.

Nei!

til að bera ranglætið inn í augun ykkar
að það ljómi í sjálfu sér eins og maurildi
þúsund smásynda. Ég hef séð þá brjóta upp hurðina og ryðja ófrelsinu inn um dyrnar og þið hélduð að það væri þreyttir ferðamenn að leita sér að næturstað.

(1953) eftir Jón óskar

Þetta ljóð tengist módernismanum og hernaði.

Veðurvísa - Heimir
Í nótt fer stormurinn geyst, hinn grályndi jötunn.

Gjallandi rómi stikar hann eftir hjörnum

og smalar loftin, safnar skýjunum saman

í svartleita hjörð sem treður á öllum stjörnum.

Hannes Pétursson

Í eftirfarandi ljóði vísar til dæmis á skemmtilegan hátt í þjóðararfinn, þar sem jötnar og tröll eiga sína staði, og einnig til rótgróins áhuga þjóðarinnar á veðrinu.

Tíminn og vatnið
Tíminn er eins og vatnið,
og vatnið er kalt og djúpt
eins og vitund mín sjálfs.

Og tíminn er eins og mynd,
sem er máluð af vatninu
og mér til hálfs.

Og tíminn og vatnið
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.

Eftir Stein Steinarr

Þarna er hann að skrifa um stöðu mannsins sem er slæm í þessu tilfelli.

Pétur Snær Ómarsson

-Á öld kjarnorkunnar- -Salvar Þór Jóhannsson- á öld kjarnorkunnar mig dreymirá öld kjarnorkunnar dreymir mig friðað hurðir fángelsanna verði opnaðar og róleg heimilin verði athvarf okkarað við þurfum ekki leingur að berjast við ofureflifyrir hinni hversdagslegustu hamingjuheldur komi hún til okkar á léttum morgunskómog leiði okkur við hönd sér allan daginná öld kjarnorkunnar dreymir mig frelsiað það verði ekki séreign hinna útvölduað forréttindi auðkýffinganna verði afnuminsvo frelsið verði annað og meiri en slagorðmorgunblaða og formsatriði harðstjóraá öld kjarnorkunnar dreymir mig matað þessi mikla orka verði hagnýtttil framleiðslu á brauðiað mjólk, fiskur, grænmeti og kjöt hylji eldhúsborðinsvo allir megi verða saddirá öld kjarnorkunnar og auðvaldsins dreymir miguppreisn hinna undirokuðuhinna svörtu, gulu og rauðuog hins hvíta verkalýðs í löndum auðmannanna -Jón frá Pálmholti-

Freyja Fannberg
Ég veit ekki hvar ég er

veit ekki hvert ég fer

en þó held ég áfram

Ég veit ekki hvort syrtir

veit ekki hvort birtir

en þó held ég áfram

Snorri Hjartasson: Lauf og stjörnur;1966

Módernísk ljóð eru oftast fáguð og hnitmiðuð um eina mynd eða hugsun.  Stílinn er oftast knappur og fáein orð koma í stað heillar setningar. Þetta ljóð hér fyrir ofan er dæmi um módernískt ljóð.

Söknuður - Jóhann Jónsson. Þorkell Mar Jóhannsson.
Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað,
og ljóðin, er þutu um þitt blóð frá draumi til draums,
hvar urðu þau veðrinu að bráð, ó barn, er þig hugðir
borið með undursamleikans
eigin þrotlausan brunn þér í brjósti,
vinur?

Við svofelld annarleg orð,
sem einhver rödd lætur falla
á vorn veg ? eða að því er virðist
vindurinn blæs gegnum strætin,
dettur oss, svefngöngum vanans, oft drykklanga stund
dofinn úr stirðnuðum linum.
Og spunahljóð tómleikans lætur í eyrum vor lægra.
Og leiðindin virðast í úrvinda hug vorum sefast.
Og eitthvað, er svefnrofum líkist, á augnlok vor andar,
vér áttum oss snöggvast til hálfs, og skilningi lostin
hrópar í allsgáðri vitund
vor sál:
Hvar!

Ó hvar? Er glatað ei glatað?
Gildir ei einu um hið liðna, hvort grófu það ár eða eilífð?
Unn þú mér heldur um stund, að megi ég muna,
minning, hrópandi rödd,
ó dvel!

En æ, hver má þér með höndum halda,
heilaga blekking!

Sem vængjablik svífandi engla
í augum vaknandi barna
ert þú hverful oss, hversdagsins þrælum,
og óðar en sé oss það ljóst, er undur þitt drukknað
í æði múgsins og glaumsins.

Svo höldum vér leið vorri áfram, hver sína villigötu,
hver í sínu eigin lífi vegvilltur, framandi maður;
og augu vor eru haldin og hjörtu vor trufluð
af hefð og löggrónum vana, að ljúga sjálfan sig dauðan. . .

En þei, þei, þei, - svo djúpt er vor samvizka sefur,
oss sönglar þó allan þann dag
við eirðarlaus eyrun
eitthvað þvílíkt sem komið sé hausthljóð í vindinn,
eitthvað þvílíkt sem syngi vor sálaða móðir
úr sjávarhljóðinu í fjarska.
Og eyðileik þrungið
hvíslar vort hjarta
hljótt út í bláinn:
Hvar? . . . Ó hvar?

Hef ekki hugmynd afhverju þetta er módernískt ljóð, en veit samt að þetta er fyrsta eða allavega  með fyrstu módernísku ljóðum sem búin voru til.

Rannveig
Andvaka

Strætisvagn draumsins nálægist hraðar og hraðar.

Heppnast mér loksins í síðasta strætó að ná?

Skinið frá luktum hans andvaka augu mín baðar

einmana, bíðandi, slokknuðu ljóskeri hjá.

Ég man, hvernig vagnstjórinn farmiðablokkinni blaðar,

- brátt mun síðasti farþeginn ná til síns hvíldarstaðar.

Svefninn hinn margþráði örþreyttan líkama laðar,

loks mun ég ró í sætinu dúnmjúka fá. - -

Ég náði ekki strætó, hann nam reyndar aldrei staðar.

Náttmyrkrið kringum mig biksvörtu múrunum raðar.

Um niðdimma vegi er síðasti bíll ekinn hjá.

Strætisvagn draumsins farlægist hraðar og hraðar.

Ásta Sigurðardóttir (1953)
Það er módernískt því það er óbundið og í frjásu formi.

Heimferð-Hannes Pétursson
Í hermannakápu óvinar,

í hólkvíðum skóm,

að haustlagi,

á vegum þar sem laufið liggur strjált

heldur þú heim.

Hanarnir gala

gleði þína út í bláinn,

og hikandi staðnæmist

ökklinn

andspænis þöglum,

nýjum dyrunum.

Ljóðið er í frjálsu formi, forminu er hent. Það er Módernískt. Tengist stríði, vísar til hermannajakka af óvini.
Ása

Haustið er komið - Lára
Haustið er komið

Haustið er komið handan yfir sæinn,

hvarmaljós blárrar nætur dökkna af kvíða

og þungar slæður hylja hárið síða,

hárbrimið gullna er lék sér frjálst við blæinn

og seiddi í leikinn sólskinsrjóðan daginn;

nú sezt hann grár og stúrinn upp til hlíða

og veit að það er eftir engu að bíða,

allt gengur kuldans myrka valdi í haginn.

Hann heyrir stráin fölna og falla, sér

fuglana hverfa burt á vængjum þöndum,

blómfræ af vindum borin suður höf,

og brár hans lykjast aftur; austan fer

annarleg nótt og dimm með sigð í höndum,

með reidda sigð við rifin skýatröf.

Snorri Hjartarson

Í ljóðinu er maðurinn andspænis dauða og náttúru

Í ljóðinu sést líka staða mannsins í flóknum heimi

Þar er Heimsendasýn -atómsprengjur - stöðug ógn.

Haustljóð á vori, Einar BragiSigmundur
Ein flýgur sönglaust til suðurs,
þótt sumartíð nálgist,
lóan frá litverpu túni
og lyngmóa fölum,
þytlausum vængjum fer vindur
um víðirunn gráan.
Hvað veldur sorg þeirri sáru,
svanur á báru?

Misst hefur fallglaður fossinn
fagnaðarróminn,
horfinn er leikur úr lækjum
og lindanna niður,
drúpir nú heiðin af harmi
og hörpuna fellir.
Hvað veldur sorg þeirri sáru,
svanur á báru?

Felmtruð og þögul sem þöllin
er þjóðin mín unga,
brugðið þér sjálfum hið sama:
þú syngur ei lengur,
þeyrinn ber handan um höfin
haustljóð á vori.
Hvað veldur sorg þeirri sáru,
svanur á báru?

Þetta er módernískt ljóð því það er hnitmiðað og ákveðið ljóð sem er kveðið til að setja út á herinn og dvöl hans á Íslandi