Dagur íslenskrar tungu by Luna Senpai
Útlit
Jónas var gildur meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og limaður vel, en heldur feitlaginn á hinum seinni árum sakir vanheilsu, vel rjettur í göngu, herðamikill, baraxlaður, og nokkuð hálsstuttur, höfuðið heldur í stærra lagi, jarpur á hár, mjúkhærður, lítt skeggjaður og dökkbrýnn. Andlitið var þekkilegt, karlmannlegt og auðkennilegt, ennið allmikið, og líkt því, sem fleiri enni eru í hans ætt. Hann var rjettnefjaður og heldur digurnefjaður, granstæðið vítt, eins og opt er á Íslendingum, og vangarnir breiðir, kinnbeinin ekki eins há og tíðast er á Íslandi, munnurinn fallegur, varirnar mátulega þykkvar; hann var stóreygður og móeygður, og verður því ekki lýst, hversu mikið fjör og hýra var í augum hans, þegar hann var í góðu skapi, einkum ef hann ræddi um eitthvað, sem honum þótti unaðsamt um að tala
La belle
Mín er meyjan væna
mittisgrönn og fótnett,
bjarteyg, brjóstafögur,
beinvaxin, sviphrein;
hvít er hönd á snótu,
himinbros á kinnum,
falla lausir um ljósan,
lokkar, háls inn frjálsa.
Systkini Jónasar
Jónas átti þrjú systkini. Þorsteinn var elstur, fæddur árið 1800, næst í röðinni var Rannveig, fædd árið 1802, þriðji í röðinni var Jónas og yngst var Anna Margrét, fædd árið 1815.
Jólavísa
Jólum mínum uni ég enn,
og þótt stolið hafi
hæstum guði heimskir menn
hef eg til þess rökin tvenn
að á sælum sanni er enginn vafi.
Heylóarvísa
lofti bláu „dírrindí“
undir sólu syngur:
„lofið gæsku gjafarans –
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.
Ég á bú í berjamó,
börnin smá í kyrrð og ró
heima’ í hreiðri bíða;
mata ég þau af móðurtryggð,
maðkinn tíni þrátt um byggð
eða flugu fríða.“
Lóan heim úr lofti flaug
(ljómaði sól um himinbaug,
blómi grær á grundu)
til að annast unga smá –
alla étið hafði þá
Föðurmissir
Árið 1808 fluttist Jónas með fjölskyldu sinni að Steinsstöðum í Öxnadal. Þar ólst hann upp til níu ára aldurs en þá missti hann föður sinn sem drukknaði í Hraunsvatni. Eftir föðurmissinn var Jónas sendur í fóstur til móðursystur sinnar að Hvassafelli í Eyjafirði og er talið að þar hafi hann dvalið til ársins 1820.Árið 1808 fluttist Jónas með fjölskyldu sinni að Steinsstöðum í Öxnadal. Þar ólst hann upp til níu ára aldurs en þá missti hann föður sinn sem drukknaði í Hraunsvatni. Eftir föðurmissinn var Jónas sendur í fóstur til móðursystur sinnar að Hvassafelli í Eyjafirði og er talið að þar hafi hann dvalið til ársins 1820.
Útför
Fæðingardagur
Hrasaði í stiga
Foreldrar
Námsárin
Jónas stundaði almennt nám í Bessastaðaskóla í sex vetur frá 1823 til 1829 og naut til þess skólastyrks. Eftir útskrift frá Bessastaðaskóla flutti Jónas til Reykjavíkur og gerðist skrifari hjá Ulstrup bæjar- og landfógeta og bjó á heimili fógetans. Jafnframt því að vera skrifari fógeta var Jónas skipaður verjandi í nokkrum málum fyrir landsrétti.