Leiðsagnarbretti um æfingakennslu by

Hópur 1?
Það eru miklar áskoranir sem fylgja fjarkennslu eins og er núna í framhaldsskólum. Það tekur langan tíma að undirbúa kennslustundina og finna út hvaða forrit hentar best. Það er erfitt að virkja nemendur til umræðu og finna leiðir til að ná sem best til þeirra. Tenging við nemendur vantaði, maður sá þá ekki í myndavél og þeir svöruðu margir bara í gegnum texta. Jákvæða við þetta var að það var engin truflun.

Það sem virkað best til að ná til nemenda er nearpod, padlet og google forms.

-Júlía, Bóas, Katrín, Sólveig P, Arnór A og Heiðdís

Hópur 3
Reynsla okkar er sú að til að ná virkni í umræðum reyndist vel að fá þau til að taka afstöðu með eða á móti ákveðnu málefni (devils advocate/málsvari andskotans).  Einnig reyndist vel að byrja kennslustund á hugmyndaskýi (menti.com)þar sem unnið er út frá viðfangsefni tímans.  Nemendur nefndu sínar fyrirframgefnu hugmyndir um málefnið og út frá því var hægt að mynda góðar umræður. -Andri Sig., Felix Lummer, Guðlaug Elísa, Guðrún Ýr, Sólrún  Þorst., Svanhildur Anna

Hópur 7
*Góður undirbúningur er alltaf lykillinn að góðri kennslu.
*Getur verið erfitt að vita hvernig kennslan gengur á meðan henni stendur ef nemendur eru með slökkt á myndavél. Mikilvægt er að hafa uppbrot á tímanum, með spurningum, verkefnavinnu etc.
*Í æfingarkennslu er gott að komast strax yfir hræðsluna að kalla beint á nemendur, þótt maður kannski þekkir ekki hópinn vel. Sýna nemendum þó skilning.
*Sýna þolinmæði og leyfa þögnum að hanga, frekar en að svara sjálfum sé um leið.

- Bjarni, Friðrik, Kristján, Marta, Rakel, Steinunn

Hópur 2
Kannski er það klisja en nýjir kennarar ætla sér rosa mikið en það er í lagi að slaka aðeins á.
Við rákum okkur á að vera að fylgja bókinni í einu og öllu á meðan að reyndur kennari myndi flæða meira.

Í fjarkennslu er mikilvægt að einfalda kennsluhætti og verkefni. Allt í fjarkennslu tekur lengri tíma. En við megum ekki gera ráð fyrir því að enginn sé á staðnum. Kröfurnar mega ekki minnka.

Hreiðar H, Karen Ösp, Kristín Björk, Ágúst Ingi, Eva-Charlotte, Jóhanna Björk, Auðunn Guðni

Hópur 4
Arndís, Ásbjörg, María, Margrét, Marta. Nanna, Vigdís,
Góður undirbúningur er lykilatriði og mikilvægt að reyna að ná einhverjum tengslum við nemendur þrátt fyrir afmarkanir fjarkennslunnar.
Reyna að halda í mannlega þátt kennslunnar í gegnum tæknina.

Hópur 8
Jón Ragnar, Steinunn, Guðrún Elísa, Bjarni, Anna Ágústs, Anna Ísfold,

Flestir voru að kenna í samtali við aðra kennaranema en mismunandi hvort að þeir skiptu með sér verkum eða kenndu í samtali. Sú sem prófaði að kenna í samtali og vera í sama rými og hinn æfingakennarinn var mjög ánægð með þá upplifun.

Allir sammála um mikilvægi þess að setja markmið fyrir kennslustund í byrjun og jafnvel ræða í samhengi við markmið námskeiðs í heild. Þannig finna nemendur að æfingakennari talar inn í stærra samhengi.

Allir höfðu áhuga á að virkja nemendur í kennslustundum og lögðu því áherslur á það. Allir nýttu sér því þær tæknilausnir sem þeir hafa kynnst í náminu í HÍ  með það að markmið i(padlet, nearpod,kahoot og answergarden.ch) Almennt gekk það allt vel. Einn lenti í því að ekki væri hægt að deila glærum á zoom án þess að minnispunktar kennarans séu líka sýnilegir. Það var leyst með því að finna aðra tölvu á heimilinu og nota sem aukaskjá.

Undirbúningur fyrir kennsluna var meðal þess sem var rætt en mismunandi væntingar virðast hafa verið meðal æfingakennara til kennaranema. Sumir áttu auðvelt með undirbúning þar sem þeir voru með skýrt afmarkað efni eða efni sem var nátengt þeirra sérfræðiþekkingu. Kennaranemi í sagnfræði fékk mikið frelsi í efnistökum og var með efni sem var frekar framandi fyrir hann. Sá nemi talaði því um að mikil orka hafi farið í að finna efni, lesa það og útbúa kennsluefni þar sem það var ekkert skaffað nema þema frá æfingakennara. Annar hafði svo orð á því að það efni sem hafði komið frá æfingakennara hafi ekki verið spennandi og bauð upp á litla möguleika. Hann varði því líka mjög miklum tíma í undirbúning. Aðrir kennaranemar höfðu kannski minna fyrir undirbúningi og nefndu frekar að tímastjórnun innan kennslustofu hafði verið meiri áskorun og að áætlaður tími fyrir sambærileg verkefni hafi gengið fyrir einn hóp en ekki annan.

Allir voru sammála um að það hafi verið minna gefandi að fá ekki viðbrögð frá nemendum sem voru fæst í mynd. Í mörgum kennslustundum hjá æfingakennurum svöruðu nemendur ekki einu sinni öðruvísi en eingöngu á spjallinu. Kennaranemar höfðu annars orð á því að vel hafi gengið hjá þeim sjálfum að virkja nemendur og að lykillinn hafi stundum verið að gefa þeim nægan tíma til að svara og ganga eftir svörum. Vera óhrædd við þögnina.

Hópur 6
Kolbrún Heiða, Konráð, Oddný, Regína, Ísól og Ragnhildur.
Góð og skýr fyrirmæli: Þegar við leggjum fyrir verkefni í tíma. Spurja nemendur hversu skýr fyrirmæli við gefum þeim á skalanum 1-10. Biðja nemendur um að skrifa í spjallið sína einkunn. Ef einhver skrifar 8 að spyrja hvað ég þarf að útskýra betur til þess að nemandinn gefi mér 10. Þá útskýrum við þann part betur. Með þessu þá fer ábyrgðin frá kennaranum til nemenda.

Hópur 5: Kjartan, Sandra Rut, Einar, Hanna Lóa, Bjarni, Elísabet
Umræður í gegnum netið

Mikill kostur að vera alltaf með einn nemanda sem
brýtur ísinn. Það er þá líklegra að aðrir nemendur fylgi með. Við mælum sem sagt með að kennarar fái sér einn málglaðan nemanda. Sumum nemendum fannst þæginlegra að tala í gegnum Zoom með enga
myndavél, það kom okkur á óvart. Þá var meira talað í gegnum netið heldur en í
kennslustund. Það var eins og nemendur urðu öruggari á bak við myndavélina.