Námskeiðslok by Jónína Kristinsdóttir

Uppgjör námskeiðs
Gefið dæmi um það sem vakið hefur ykkur til umhugsunar um stærðfræðinám og kennslu og þið teljið að muni nýtast ykkur í starfi.

Gefið dæmi um efni sem ykkur finnst hafa vantað umfjöllun um eða þurft að gefa betra rými.

Albert Hafsteinsson
Það sem ég tók út úr þessu námskeiði í gegnum lesefni og reynslu á vettvangi er hversu skemmtilegt er að fylgjast með nemendum útskýra hugsanir sínar. Myndbönd sem fylgdu námsefninu sýndu að nemendur geta verið á mismunandi stað í stærðfræðináminu sínu. Því er mikilvægt fyrir mig sem kennara að skapa stærðfræðilega umræðu. Með því að láta nemanda segja frá, útskýra og rökstyðja hugsun sína mun ég átta mig betur á hvar hann er staddur. Nemandinn þarf að þróa skilning sinn með því að byggja ofan á það sem hann kann. Það er hlutverk mitt sem kennari að hjálpa honum að beita réttum aðferðum. Við viljum að börn geti unnið með tölur á sveigjanlegan hátt og ályktað út frá þekktum staðreyndum.

Það sem mér fannst vanta í námskeiðið var meiri sveigjanleiki fyrir fjarnema. Til dæmis voru engir tæknitímar teknir upp sem ég hefði gjarnan viljað taka meiri þátt í.

Ásta Ólafsdóttir
Í heildina hefur þetta námskeið verið mjög gagnlegt og skemmtilegt. Það sem vakti mig til umhugsunar var hversu mikið stærðfræðikennsla hefur breyst síðan ég sjálf var í grunnskóla. Þá var mikil áhersla lögð á hefðbundnar reikningsaðgerðir á verkefnablaði en í dag eru kennsluaðferðirnar mjög fjölbreyttar og verkefnin í takt við það. Það sem mun klárlega nýtast mér í starfi er að fá nemendur til að útskýra hvernig þau leysa dæmin eins og við höfum séð í myndböndunum með kennslubókinni, og þá sjá nemendur að það er ekki alltaf bara ein leið að lausninni. Ég mun einnig nýta mér hugmyndir sem ég hef séð hér frá bæði kennurum og nemendum um leiki og spil, sem geta brotið upp þessa hefðbundnu stærðfræðikennslu.

Það sem mér þótti vanta í námskeiðið væri að ekki væri gert ráð fyrir því að allir nemendur væru starfsmenn í skóla með aðgang að öllum gögnum og forritum. Tæknitímarnir voru ekki teknir upp sem ég hafði ekki tök á að mæta í, og verkefnið til þess að bæta upp mætingu í tæknitímann byggir á að nota búnað sem eru einungis til í skólum og ekki allir hafa aðgengi að því. Að auki finnst mér vægið á lokaverkefninu heldur mikið miðað við allar umræður og verkefni sem hafa verið leyst í námskeiðinu.

Jamie Elizabeth Schelvis
Að minni reynslu finnst mér þetta frábær áfangi. Mikilvægt er að vera í takt við tímann og hafa þá hæfni að kenna nemendur skapandi og fjölbreyttar aðferðir við stærðfræði. Ég finn hvað áþreifanlegir hlutir eru mikilvægir fyrir nemendur til þess að skilja stræðfræði dæmin betur og auðveldar þeim við útreikningarnar.  Upptökur af nemendum fannst mér áhugavert að sjá,  til dæmis í number talks myndböndinn. Það kveikti mikinn áhuga hjá mér að prufa það sjálf. Ég gerði það í vettvangsnáminu mínu og var alveg ótrúlega magnað að komast inn í hugarheim barnanna og sjá hvernig þau leysa dæmin og fá sömu svörin en með mismunandi aðferðir.

Ég verð að vera sammála einni hérna og tel að vægi lokaverkefnisins sé fremur mikið miða við allar umræður og verkefni sem við höfum unnið í yfir önnina.

Berta Hrönn Einarsdóttir
Það sem ég tek með mér af þessu námskeiði er meiri jákvæðni í garð stærðfræði og kennslunar sem henni tengist. Þar sem ég er í kennararéttindum er þetta eini áfanginn sem ég tek áður en ég útskrifast og finnst það áhugavert þar sem ég tók ekki grunnámið í kennaranum að önnum nemenum sé skellt saman í einn áfanga.
Tæknin í stærðfræðinámi vakti mestan áhuga minn og mun ég nýta mér verkfærabanka Mixtúru í starfi mínu.
Í mínum huga er ég að skrifa það sem mér finnst umhugsunarvert í lokaverkefninu mínu. Finnst ruglandi að hafa umræðuverkefnin á padlet og á canva. Var oft ekki viss hvað átti að fara hvað samanber vettvangsverkefnið.
Hefði viljað sjá meira af tæknitímunum þó að það hafi ekki verið nema kynning frá kennurunum hvað þeir voru að segja frá.

Hrönn Erludóttir
Það sem hefur vakið mig til umhugsunar um stærðfræðinám og kennslu er hversu mikilvægt það er að nýta fjölbreyttar aðferðir við kennslu. Það er líka í lagi að slaka aðeins á og gefa nemendum rými til þess að finna sínar eigin lausnarleiðir.
Markmið kennslunar ætti frekar að vera að nýta sem fjölbreyttastar leiðir til náms frekar en að fylgja nákvæmri kennsluáætlun eftir bókinni.
Mér fannst tæknitímarnir æðislegir þar sem við fengum smá innsýn inni í fjölbreyttar kennsluaðferðir og fá að sjá hvernig kennarar skipuleggja stærðfræðitímana. Ég lærði heilmikið á vettvangsnáminu og þar sá ég líka að þó maður nýti fjölbreyttar leiðir og leiki til kennslu þá þýðir það ekki að kennsla þurfi að dragast aftur úr samkvæmt kennsluáætlun. Með því að nýta það sem við höfum lært á námskeiðinu þá geta nemendur miklu frekar unnið sjálfstætt og eru sneggri að tileinka sér það sem er kennt ef þau skilja það og nota hlutbundin gögn og leiki sem eru þeim eðlislæg.

Það sem mér finnst geta bætt námskeiðið er að fá betri kynningu á stafrænum forritum til þess að nota í stærðfræðikennslu. Annars fannst mér þetta námskeið mjög fínt og hæfilega mikið álag. Hugarfar mitt hefur líka breyst til stærðfræðinnar og sé ég fyrir mér að nýta helling í kennslu í framtíðinni.
Takk fyrir mig

Erla Bogadóttir, fjarnemi
Uppgjör námskeiðs
Það sem hefur helst vakið mig til umhugsunar eftir námskeiðið er hversu fjölbreytt og skemmtileg stærðfræði getur verið og takmarkast eingöngu við hugmyndaflug kennarans. Núna er ég líka farin að sjá stærðfræði allt í kringum mig og hvernig sé hægt að sam‏þætta stærðfræðina með öðrum fögum. Helsti lærdómurinn finnst mér hafa verið að núna er ég öruggari sem stærðfræðikennari á yngsta stigi í að búa til og kenna eftir fjölbreyttara skipulagi þar sem ég get nýtt mér aukna áhugahvöt á stærðfræði til að auka við áhuga hjá nemendum mínum.

Það er ekkert sérstakt sem mér finnst vanta í umfjöllun en stundum fannst mér smá ruglingslegt að hafa svona mikið af umræðuverkefnum í hverri viku, semsagt skilum á umræðuþræði sem og padlet o.fl. Fannst þá stundum eins og ég væri að gleyma einhverju. Það var mjög gaman að mæta í tæknitímann og hefði ég ef til vill viljað hafa annan slíkan tíma þar sem við gætum æft okkur betur til að vera öruggari að nýta tæknina sjálf í kennslu.

Friðlín
Mér finnst námskeiðið hafa verið mjög gagnlegt. Ég hef velt því mikið fyrir mér á meðan á námskeiðinu stóð hvernig ég kenni og finn það að ég er bæði meðvitað og ómeðvitað að nýta það sem ég hef lært. Mér finnst stærðfræðikennsla (þar sem að ég hef upplifað hana) oft vera svolítið hröð og snúast meira um að klára heldur en að kenna og mér finnst svo frábært hvað viðhorfið er allt annað í þessu námskeiði og ég vona að stærðfræðikennsla breytist aðeins til hins betra á næstu árum. Mér fannst vettvangsnámið æðislegt og kom mér smá á óvart hvað óhefðbundin kennsla, ef svo má að orði komast, er árangursrík. Mér finnst oft eins og viðhorfið innan skólanna sé að það þurfi allt að vera svo rosalega klippt og skorið í stærðfræðikennslu til þess að hún sé árangursrík og til þess að nemendur geti sýnt fram á þekkingu en mér fannst vettvangsnámið sýna það og sanna að svo er alls ekki.

Mér fannst ég læra og pæla mun meira af virkniverkefnunum heldur en umræðunum (enda átti ég til að gleyma þeim vegna þess). Ég hefði því lagt kannski meiri áherslu á þessi virkniverkefni og einmitt meiri áherslu á að gera. Þetta er þó það eina sem ég get sagt þar sem að mér fannst þetta mjög gagnlegt námskeið. Mér fannst það henta vel fyrir fjarnema í fullri vinnu (sem er að ég held mjög stór hluti nemenda) sem er oft ábótavant í öðrum námskeiðum. Mér fannst skil og álag bara í hæfilegu magni, nógu mikið til þess að halda manni við efnið en ekki svo mikið að maður kæmist varla yfir það. Að lokum fannst mér þetta fá mig til þess að líta allt öðruvísi á stærðfræði og stærðfræði kennslu og vona að ég fái tækifæri til þess að nýta það sem ég hef lært hér.

Íris Anna Arnarsdóttir
Efni þessa námskeiðs hefur leitt til þess að ég pæli meira í minni eigin kennslu og hvrenig nemendur hugsa. Ég legg meira upp úr því að hafa kennsluna fjölbreytta og reyni að samþætta eins og hægt er með öðrum greinum. Mér fannst sérstaklega áhugavert og lærdómsríkt að horfa á myndböndin í bókinni, sjá hvernig kennarinn talar við nemendur og hvernig nemendur fara mismunandi leiðir í að finna lausn á verkefnum. Ég spyr mína nemendur meira út í hvernig þeir fara að einhverju frekar en áður var kanski meira spurt um hver útkoman væri.
Mér dettur ekkert sérstakt í hug sem hefði mátt vera betra, nema kanski að það tók mig nokkrar vikur  að átta mig á vefnum og skipurlaginu. Mér fannst það flókið og ruglinslegt í byrjun. Ég var oft lengi að leita af umræðum og verkefnum. En annars bara flott námskeið sem ég lærði helling af.

Sveinn Ægir
Það sem hefur kannski vakið hvað mest yfir mér er það hvernig nemandinn hugsar og sjá öll þessi myndbönd þar sem nemendur eru beðnir um að reikna dæmi og lýsa því hvernig þeir fóru af því. Það var gaman að fá að kynnast Number Talks og læra um það, skemmtilegast var þó að fá að prófa framkvæma hana í vettvangsnáminu og heyra af eigin raun hvernig nemendur takast á við verkefnin. Þó ég sjálfur hef lagt áherslu á kennslu eldri nemenda var einnig áhugavert fyrir mig að sjá alla hjálpargögnin sem til eru fyrir nemendur til að aðstoða þá við sína vinnu og að maður getur bara notað eitthvað í nærumhverfinu t.d. steina eða liti.

Það sem mun nýtast mér til framtíðar er þessi skapandi hugsun og leyfa nemendum að prófa aðrar leiðir eins og að teikna dæmin upp eða tengja þau betur við raunveruleikann eins og almenn brot og pizzur. Þá var gaman að kynnast hugbúnaði og leikjum sem hægt er að nýta til kennslu og ljóst að maður þarf að fylgjast vel með sjálfur öllu því nýja sem er að koma þar.

Ef eitthvað er væri maður til að læra meira inna þessa leiki og smáforrit sem eru kominn. Væri líka gaman að fá að heyra hvernig þeir verða til. Þá verð ég að taka undir orð samnemenda minna um lokaverkefnið finnst það gilda allt of mikið og ekki vera gott námsmat.

Andrea Björk
Þetta námskeið var mjög áhugavert og hagnýtt. Ég tek að mér fullt af nýjum aðferðum til þess að innleiða inn í mína stærðfræðikennslu og nú þegar legg ég meira upp úr stöðvavinnu og hlutbundinni kennslu. Viðhorfið mitt hefur breyst þannig að ég er mun jákvæðari og óhrædd við að prófa nýja hluti og vonandi koma til móts við fjölbreyttari nemendahóp.

Það hefði verið gaman að fara enn þá meira í tækni í stærðfræðikennslu því ég tel að sá vinkill veki sérstaklega áhuga meðal nemenda.

María Dögg Halldórsdóttir
Mér fannst þetta námskeið mjög áhugavert og skemmtilegt, það kom mér á óvart þar sem ég hef aldrei verið mikið fyrir stærðfræði. Það sem hefur vakið mig til umhugsunar um stærðfræðinám og kennslu er að stærðfræði er miklu skemmtilegra nú til dags miðað við áður þegar ég var yngri. Það er mun fjölbreyttara og margt hægt að gera skemmtilegt með stærðfræði. Það var áhugavert að fara í verklegu tímana, að skoða forritunarmús og Geobra var alveg nýtt fyrir mig. Hefði alveg verið til í fleiri tæknitíma. Mér fannst mjög gaman að fara í vettvangsnám, græddi mikla reynslu.

Verð að vera sammála sumum að vægi lokaverkefnisins sé frekar hátt miðað við öll verkefnin sem við erum búin að vinna að í námskeiðinu.

María Rut Róbertsdóttir
Í þessu námskeiði lærði ég ýmislegt nýtt er kemur að stærðfræði og hef getað kennt stærðfræði á allt annan hátt en áður. Ég hef líka lært það að stærðfræði er meira en að reikna dæmi á blaði og mikilvægi þess að kenna börnum fleiri en eina aðferð við útreikninga. Ég mun nota námskeiðið og það sem ég hef lært í framtíðinni og hlakka núna til að fara og kenna hvern stærðfræðitíma sem framundan er.

María Tinna Hauksdóttir
Mér fannst þetta námskeið vera virkilega áhugavert og öðruvísi en ég bjóst við. Ég hélt að meiri um reikning væri á námskeiðinu þar sem ég leit alltaf stærðfræði á sem að sitja við skrifborðið og reikna dæmi. Sú hugsun hefur breyst og horfi ég á stærðfræðina með allt öðrum augum. Stærðfræðin er mikið meira en reikningur. Stærðfræðin er alls staðar sem við gerum okkur ekki grein fyrir. Öll formin í umhverfinu og hvernig byggingarnar voru byggðar var allt nýtt stærðfræðina í það. Mælingar, rúmfræði og svo margt fleira.

Verklegu tímarnir gáfu manni margs konar hugmyndir með vinnu með börnum í skapandi stærðfræði og hefði ég vilja í raun fleiri verklega tíma eða jafnvel farið dýpra í hvert námsefni verklegu tímana. Þetta voru rétt kynningar og stundum vantaði mér aðeins meiri kennslu eins og til dæmis í geogebru. En yfir heildina var þetta mjög skemmtilegt og áhugavert námskeið.

Steinunn Sara Arnardóttir
Þetta námskeið hefur verið virkilega gagnlegt og skemmtilegt, ég hef lært heilmargt sem ég mun koma til með að taka með mér í komandi nám og starf.
Ég áttaði mér á hvað stærðfræði er skapandi og fjölbreytt og það er ekkert mál að gera stærðfræði skemmtilega. Ég áttaði mig líka á hvað stærðfræði er allstaðar, hún er í náttúrunni, nær umhverfi, og svo framveigis. Núna þegar ég lít í kringum mig sé ég stærðfræði.
Verklegu tímarnir voru frábærir, og sérstaklega rétt fyrir vettvangsnám, ég lærði svo margt sem ég bæði nýtti mér í vettvangsnáminu og mun koma til með að nýta mér í komandi starfi.

Það er ekkert sem mér dettur í hug sem mætti bæta við í umfjöllun á námskeiðinu, allt sem námskeiðið hafði upp að bjóða hentaði mér vel.

Heiðrún Harpa Marteinsdóttir
Í heildina finnst mér námskeiðið hafa verið mjög gagnlegt. Það hefur opnað enn frekar augu mín fyrir því hvað stærðfræðikennsla getur verið fjölbreytt og takamarkast bara af hugmyndum kennaras.

Mér fannst ég læra margt af upptökunum sem við horfðum á í námskeiðinu og áhugavert að spá í muninn á því hvaða leiðir nemendur (og líka við) nota til þess að komast að niðurstöðu. Í myndböndunum kom skýrt fram hvað það er mikilvægt að nemendur fái að þróa sinn skilning á stæðrfæði og byggja ofan á hann sjálfir. Ég sem kennari get stutt við það með því að skapa umræður og grundvöll fyrir nemendur til að útskýra hugsanir sínar.

Mér fannst þessi fjöldi umræðu- og virkniverkefna svolítið ruglingslegur og var oft ekki alveg með það á hreinu hvað átti að fara hvert.

Salóme Svandís Þórhildardóttir
Þetta námskeið hefur gert mig jákvæðari gagnvart stærðfræði og stærðfræðikennslu og opnað augu mín fyrir því hversu ólíkar aðferðir við notum við útreikninga í stærðfræði. Maður er oft svo ótrúlega sjálfhverfur og finnst að það hljóti allir að hugsa á svipaðan hátt og maður sjálfur. Það kom því skemmtilega á óvart að sjá hvað við gerum hlutina á ólíkan hátt og ég fann hvað það var gagnlegt að fá annað sjónarhorn á hlutina. Þetta er eitthvað sem ég á eftir að taka með mér út í kennsluna. Ég vissi að það verður að leyfa nemendum að spjalla saman um námið og vinna saman en ég hef ennþá meiri trú á því eftir þetta námskeið. Það var gagnlegt og fróðlegt að fá innsýn í kennslu hjá öðrum kennunum varðandi hin ýmsu viðfangsefni og frábært að fá að mæta í tæknitíma og prófa hin ýmsu tæki. Ég er búin að læra heilmikið af þessum áfanga. Takk fyrir mig! J

Ingibjörg Gylfadóttir
Mér finnst þetta námskeið vera mjög gagnlegt og það hefur gefið mér mörg ný verkfæri í kennslu. Ég hafði aldrei horft á stærðfræði sem skapandi grein en eftir að hafa setið þetta námskeið sé ég hvað stærðfræði er skapandi og bíður upp á margt . Mér fannst mjög áhugavert og gagnlegt að horfa á myndböndin og margt sem ég tók úr þeim og bætti inn í mína kennslu. Nálgunin að leiðrétta nemendur ekki heldur að fá þá til að lýsa ferlinu og leyfa þeim að leiðrétta sig sjálf hefur bætt kennslu mína til muna. Ég hafði aldrei beint fattað að stærðfræðin er í raun í öllu en mér fannst það mjög áhugavert.  Mér fannst verklegu tímarnir mjög gagnlegir og ef það væri eitthvað sem ætti að gefa meira rými væri það að fá að prufa meiri af því sem talað var um í verklegu tímunum um upplýsingamennt.

Alma Björk Clausen
Í þessu námskeiði lærði ég margt og get tekið margt með mér eftir það, það var margt gagnlegt sem ég get séð fyrir mér nýta í kennslu og gerði það í vettvangsnáminu. Það var gaman að læra það að stærðfræði er mjög fjölbreytt og að það sé hægt að vinna hana eftir því hvernig hugmyndaflug kennarans er, það þarf ekki að vera bara bókin eins og vill oft verða. Með stærðfræði eru miklir möguleikar til dæmis á samþættingu, þessi áfangi hefur svolítið opnað á það hjá mér að það er hægt að nýta marga aðra áfanga með stærðfræðinni.

Það sem mér þótti samt sem áður áhugaverðast í þessu námskeiði er að það er mikið verið að leggja áherslu á það hvernig nemandinn hugsar, mér þykir það mjög áhugaverð aðferð og hef ég verið að kynna mér hana vel og þykir mér hún skemmtileg og eitthvað sem ég myndi vilja tileinka mér í stærðfræðikennslu, myndböndin sem hafa verið sýnd í kennslunni hafa kennt mér mjög margt og vakið mikinn áhuga og fengið mig til að langa prufa í minni kennslu þegar ég var í vettvangsnáminu, það að nota aðferðina sýnir líka nemendum að það hugsa ekki allir eins.

Einnig hefur námskeiðið hjálpað mér að læra nota önnur orð og tengja við daglegt líf. Því stærðfræði byrtist okkur á svo miklu meiri hátt heldur en við áttum okkur á.

Það er ekkert sem mér dettur í hug sem betur hefði mátt fara.

Þórey Magnúsdóttir
Þetta námskeið hefur verið mjög skemmtilegt og krefjandi með nýjum hugtökum og efni sem hefur tekið mig vandræðalega langan tíma að skilja ,því ég fór að ofhugsa dæmin hvernig á að leysa þau.

Það var mjög áhugavert að sjá hvað það er mikið af stærðfræði í umhverfinu sem við notum dagsdaglega án þess að pæla í því, svo eitthvað af stærðfræðinni sem ég lærði í grunnskóla liggur þarna í undirmeðvitundinni.

Mér fannst stundu erfitt að vita hvort ég ætti að skila inn einhverju verkefni ef ég hefði tekið þátt í tíma á netinu og þá hvar ætti að skila því inn. Einnig fannst mér stundum fara svolítill tími í það að lesa aftur yfir námsefnið í tímanum sem ég var búin að lesa fyrir tímann hefði viljað nota þann tíma í frekari umræður um námsefnið.

Íris Eva Stefánsdóttir
Námskeiðið í heild sinni hefur haft mikil áhrif á mig sem kennara þar sem ég hef alltaf kviðið fyrir því að kenna stærðfræði. Mín eigin reynsla af stærðfræði hefur ekki verið góð sem hefur litað viðhorf mitt til greinarinnar síðustu ár. Með námskeiðinu hef ég lært nýjar leiðir til að ná til nemenda og hvernig ég get reynt að temja þeim vaxtarhugarfar. Ég hef jafnframt áttað mig á mikilvægi samræðna í stærðfræðinámi og skil betur hvernig nemendur leita lausna og með hvaða hætti ég get aðstoðað þá. Ég hef kynnst betur hinum ýmsu verkfærum stærðfræðinnar og hvernig ég get nýtt mér þau í kennslu. Mér fannst sérstaklega skemmtilegt og lærdómsríkt að sjá hversu margar mismunandi leiðir nemendur nota til að leysa stærðfræðiþrautir. Eftir námskeiðið hef ég áttað mig betur á mikilvægi sköpunar í stærðfræðinámi barna og tel sem betur fer að sköpun gegni stærra hlutverki í stærðfræðinámi barna í dag samanborið við þegar ég var í grunnskóla.

Mér finnst skipulag námskeiðsins vera ansi ruglingslegt og kom það fyrir að ég missti yfirsýn yfir verkefnaskil í námskeiðinu vegna þess að þau voru svo mörg og á mörgum mismunandi stöðum. Ég er mjög hlynnt símati en finnst að þegar svo mikið er um verkefnaskil yfir önnina væri hægt að auka vægi þeirra verkefna og minnka vægi annarra verkefna. Þannig væri til að mynda hægt að dreifa álaginu betur í stað þess að enda önnina á tveimur 30% verkefnum.

Tanja Ólafsdóttir og Kristín Helga Bjarnadóttir
Við lærðum margt í þessu námskeiði og mikið sem við tökum með okkur í komandi kennslu. Það sem okkur fannst áhugavert var hvað það er mikið í umhverfinu okkar sem hægt er að tengja við stærðfræði og hvað það eru miklir möguleikar fyrir samþættingu við stærðfræði. Okkur fannst gaman að kynnast verkefnum í áfangum sem við gátum prufað að leggja fyrir nemendur í vettvangsnáminu.
Tæknitíminn var einnig skemmtilegur og mikið sem við fengum að sjá sem við höfum ekki áður séð.
Það sem okkur fannst þurfa vera öðruvísi er að lokaverkefnið hefði mátt vera para- eða hópverkefni þar sem það var svoldið langt og opið eða hafa í staðinn fleiri minni verkefni yfir önnina.

Davíð Agnar D Hraunfjörð
Þetta var mjög áhugavert námskeið og gaf mér nýja sýn á stærðfræði. Bæði hvernig börn vinna með hana en líka hvernig maður ætti að kenna börnum hana. Stærðfræðikennslan sem maður fékk sjálfur í skóla er í raun á skjön við það sem allar rannsóknir sýna að sé árangursrík stærðfræðikennsla. Því miður virðast þessar aðferðir hins vegar enn vera mjög algengar í skólum.
Ég vonast þá til að geta hrist aðeins til í stærðfræðikennslu þegar ég byrja að vinna sem kennari. Reiða mig minna á endurteknar stærðfræði æfingar, og nota umræðu og áþreifanlega stærðfræði meira.
Ég hafði ekki verið neitt áhugasamur um stærðfræði eða stærðfræðikennslu fyrir þetta námskeið. En auk þess að taka þetta námskeið og vettvangsnám þess hef ég líka verið að prófa þessar aðferðir í námsver sem ég vinn í og þetta virkar mjög vel fyrir nemendur sem eru eftirá í stærðfræði. Bæði að þau fái áþreifanlegri aðferðir til að nota en líka að viðfangsefnið sé ekki í sama stíl og stærðfræðin sem þau hafa átt erfitt með í langan tíma.

Matthildur Bergþórsdóttir
Það sem ég hef lært í þessu námskeiði og mun taka með mér er hversu auðvelt er að samþætta sköpun inn í stærðfræðinám. Það sem stærðfræðin hefur breyst mikið til muna og komið á móts við þarfir nemenda. Ég mun hafa kennsluna mína með sköpun í huga og samþættingar greina. Gaman var að sjá kennslu fara fram í vettvangsnáminu og sjá börnin njóta stærðfræðarinnar því hún var brotin upp og ekki þessi þurra hefðbundna kennsla. Það var áhugavert að sjá hvernig kennarar töluðu við nemendur sína í bókinni og sjá hvernig þau leiða nemendur að svari án þess að segja þeim svarið. Annars fannst mér þetta frábært námskeið í alla staði og ekkert sem mér dettur í hug sem vantaði upp á.

Þorbjörg Erna Mímisdóttir
Í heildina litið var námskeiðið mjög gagnlegt og held ég að efni námskeiðsins muni hjálpa mér vel í starfi mínu. Námskeiðið var einnig rosalega fræðandi og skemtilegt. Mjög gott að læra um allar mismunandi aðferðirnar við að kenna börnum stærðfræði. Myndböndin sem voru notuð með í kennslu voru mjög góð og fannst mér þau gríðarlega mikilvæg til að dýpka skilninginn minn á námsefninu.

Lokaverkefnið í áfanganum er mjög stórt og mikið og hefði ég viljað hafa það aðeins minna og veigaminna. Einnig var skipulagið á umræðu- og virkniverkefnana frekar ruglingslegt og var svoldið erfitt að hafa þetta dreift út um allt.

Kristleifur Lúðvíksson
Ég tel mig hafa lært heilan heling af þessu námskeiði. Viðhorf mitt gagnvart stærðfræði og sérstaklega starfræði kennslu hefur breyst mikið. Ég fýla hvað þetta námskeið ýtti undir fjölbreyttar aðferðir til að kenna og vekja áhuga á nemendunum það þarf ekki alltaf bara að vera blað með reikningsbækum.  þetta námskeið ýtti líka mikið undir munnlegar æfingar þar sem allir fá sinn tíma til að prófa sína aðferð og mér finnst hún vera mjög flott í notkun en smá erfið að nota með stórum hóp af minni reynslu. Ég lærði fullt af bæði stærðfræðileikjum og aðferðum til að reikna dæmi sem ég sé að kæmu sér vel fyrir framtíðar stærðfræðikennslu.
Takk fyrir mig

Asti Tyas Nurhidayati
Fjölbreytt námsefni og kennsluaðferðir sem ég lærði í Skapandi Stærðfræði námskeiðinu, þar á meðal umræður í kennslustofunni, virkniverkefni í Padlet, verkefni og samvinnu á sex vikna verklegum tíma, kynningar á tækniverkefnistíma hafa veitt mér nauðsynlega þekkingu, færni, hæfni, sjálfstraust og hugmyndir til að kenna stærðfræði á skapandi og áhugaverðan hátt.
Gagnleg og áhugaverð reynsla af vettvangsnámi er mjög dýrmæt til að komast að því hvað virkar vel og hvað þarf til að bæta stærðfræðikennslu í framtíðinni.
Stærðfræði kennsla byggð á skilningi barna veitir skilning á því hvernig börn hafa mismunandi leiðir til að læra, hugsa og leysa stærðfræðiþrautir og nauðsyn þess að efla gagnrýna og skapandi hugsun barna. Að læra fjölbreytt stærðfræðihugtök með því að nota ýmis forrit, tæki, gögn, leiki á netinu og utan nets, örva börn til að efla reiknihugsun sína og hæfileika til að leysa vandamál.

Talið er að gefa betra rými að samþætta stærðfræði við aðrar námsgreinar. Mikilvægt er að hvetja börn að sjá heildarmyndina að stærðfræði er hvar sem er í kringum okkur og rjúfa múrinn milli námsgreina.

Rita Svanhild Rusborg
Eitt af því sem mér fannst áhugaverðast í námskeiðinu er að sjá hvernig börnin læra og fara í gegnum “sama” ferlið. Það nýtist vel að vita hvernig þau læra fyrst hlutbundið, svo yfir í að telja og hvernig þau geta fundið lausnirnar á marga vegu. Myndböndin voru mjög gagnleg til að sjá hvernig börnin vinna. Það er mjög langt síðan ég var í grunnskóla og ég er glöð yfir því hvernig hugmyndir um stærðfræðikennslu og nám hafa breyst. Það að vera með “number talk” og leggja áherslu á skilning og samræður um stærðfræði frá byrjun er mun skemmtilegra og styrkir grunninn að áframhaldandi námi.

Þetta námskeið hjálpar mér klárlega að undirbúa stærðfræðitímana með fjölbreyttum hætti.

Það hefði verið gott að fá að taka þátt í tæknitímunum þó það hefði verið í gegnum zoom, í það minnst fá að fylgjast með. Það hefði líka mátt taka þá upp. Það hefði hugsanlega mátt ræða aðeins meira um stærðfræðina í margbreytilegum hópum t.d með erlendum börnum. ég hafði til dæmis ekki leitt hugann að því að það reikna ekki allir eins og það hefði verið áhugavert að sjá dæmi um hvernig t.d hægt er að skrá dæmin á mismunandi hátt. Taka þekkingu erlendu nemendanna til greina og skapa umræðu, það læra allir á því.

Arndís S. Ingvarsdóttir
Eftir að hafa verið í þessum áfanga hefur sýn mín á stærðfræðikennslu breyst. Ég er ekki að starfa sem kennari og hef því ekki kennt stærðfræði sjálf og get því bara borið þetta saman við þá kennslu sem ég fékk. Sú kennsla var nánast bara að læra í stærðfræðibókinni en þetta námskeið hefur kennt mér að stærðfræðikennsla getur verið svo fjölbreytt, skemmtileg og skapandi. Ég mætti í tæknitímann og fannst mjög gaman að sjá öll þessi nýju, spennandi og tæknilegu námsgögn, þetta er pottþétt eitthvað sem hefði getað aukið áhuga minn á stærðfræðinámi þegar ég var yngri. Það hjálpaði mér líka mjög mikið að fara í vettvangsnámið og fá góða leisögn og góðar hugmyndir frá leiðbeinanda.

Ég er viss um að það er margt sem ég mun geta nýtt mér þegar ég fer að kenna en þá helst myndi ég segja að ég mun hafa stærðfræðitímana fjölbreytta.

Það sem mér finnst að mætti kannski breyta aðeins lokaverkefninu t.d. hafa para- eða hópverkefni og ígrunda námskeiðið saman þá fær maður innsýn inn í hvað aðrir nemendur tóku til sín úr námskeiðinu og ég get deilt því sem mér fannst áhugaverðast. Mér finnst það oft skilja meira eftir sig að ræða hlutina með öðrum.

Ástrún Jakobsdóttir
Ég tel mig hafa fengið meiri og dýpri skilning á stærðfræðikennslu í námskeiðinu Skapandi stærðfræði. Fyrir þetta námskeið miðaðist reynsla mín af stærðfræði að mestu leyti við mitt eigið stærðfræðinám. Mér fannst mjög gagnlegt að læra um hvernig börn læra stærðfræði, áskoranir og úrræði í stærðfræðinámi út frá sjónarhorni kennara. Mér fannst líka mikilvægt að fá að læra um uppbyggingu reikningsaðgerða og þær settar í samhengi við það hvernig hugsunarferlar barna þróast í stærðfræði. Mér fannst ég fá ýmis verkfæri sem ég tek með mér inní komandi stærðfræðikennslu, svo sem orðaforða, leiðir til að auka skilning nemenda, verkleg verkefni og ýmsa tækni. Það sem mér finnst þó standa upp úr er að ég upplifi að þessi aukni skilningur á stærðfræðinámi barna auki jafnframt öryggi mitt gagnvart stærðfræðikennslunni og þeim áskorunum sem ég mun mæta.

Ragnar Birkir Bjarkarson
Ég tel mig hafa grætt mikið á námskeiðinu og aðallega þá í dýpri tilfinningu fyrir sjónrænni nálgun, skipulagi og áþreifanlegum hlutum í kennslu. Upplifun mín er einnig að ég hef fengið fleiri verkfæri í verkfæralkistuna mína fyrir kennslu. Samræðulistin í kennslustofunni, nálgun kennarans og áherslan á að allir hafi eitthvað fram að færa í umræðum. Mér þótti einkar áhugavert hve ólíkt við reiknum og sýnid sig vel hve ólíkt við hugsum. Lesefnið var áhugavert og dýpkaði skilninginn mikið og var gaman að hafa gott úrval af ítarefni.
Ég tek þó undir með samnemendum mínum með að hlutfall lokaverkefnis sé of hátt, mjög opið og að skipulag efnis á námskeiði var oft ruglingslegt.

Rakel Rós Ágústsdóttir
Ég lærði heilmikið í þessu námskeiði og ég upplifi mig núna jákvæðari gagnvart stærðfræði þar sem ég hef alltaf verið frekar neikvæð gagnvart henni. Mér finnst ég vera betur undirbúin í að fara kenna stærðfræði þar sem að ég hef í gegnum tíðina ekki verið með jákvætt viðhorf gagnvart henni en það hefur breyst eftir þetta námskeið. Mér fannst verklegu tímarnir hjálpa mjög mikið og auka skilninginn minn betur á námsefninu. Það sem mér fannst mjög áhugavert sem við lærðum hjá Auði er að vera með stöðvavinnu og kenna börnum í gegnum leik. Ég nýtti mér það mjög mikið í vettvangsnáminu og börnunum fannst það mjög skemmtilegt. Annað sem mér fannst einnig áhugavert var það að reikna með áþreifanlegum hlutum getur skipt mjög miklu máli fyrir börn þegar þau er að reikna, þar sem að þau fá þá að sjá hlutina sjónrænt og koma við þá, þá tengja þau betur við það sem þau eru að reikna. Ég var mjög dugleg að nýta mér áþreifanlega hluti þegar ég var að kenna í vettvangsnáminu. Það sem ég lærði líka í þessu námskeiði er hvað það er gott að gefa nemendum tækifæri á að koma með sínar eigin hugmyndir eða útfærslur á dæmum og ræða síðan um það hvernig þau reiknuðu það og hvernig þau fengu þá útkomu sem þau fengu.

Það sem mér finnst að mætti betur fara er að umræðurnar voru ekki inn í ,,verkefni’’ á canvas þannig maður þurfti alltaf að leita af þeim. Það hefði einnig mátt vera betri upplýsingagjöf um það hvort að þau sem mættu í tímana ættu að skila inn umræðum, ég missti af tveimur umræðum af því að ég hélt að það hefði bara verið nóg að mæta í tímana en svo var ekki. Það hefði einnig verið gaman að fá að gera lokaverkefnið í hóp þannig við myndum þá deila reynslu okkar og ræða þá saman um það hvað við lærðum á þessu námskeiði. En takk fyrir veturinn og skemmtilegt námskeið :)