Ágengar tegundir by Masa Dedeic

Minkurinn
Minkur tilheyrir marðarætt sem er af rándýraætt. Minkurinn sem býr á Íslandi nefnist Mustela vison og hann kom fyrst til Íslands haustið 1931 frá Noregi.

Stærð og útlit
Minkur er með stuttar fætur og u.þ.b. 35–42 cm langan búk, en skottið er á milli 16 og 18 cm langt. Það er mikill stærðarmunur á karldýrum og kvendýrum, en að meðaltali vega kvendýr rúmlega 600g og karldýr rúmlega 1200g. Dýrin eru brún á litinn með misstóra hvíta bletti á bringu og höku.

Feldurinn
Feldur minkanna er úr tvennskonar hárum, þeli og vindhárum. Vindhárin haldast óbreytt allt árið en þelið þykknar á veturnar og verður um 80% þéttara. Þelið er vatnsheld loftgildra og virkar vel sem einangrun gegn kulda bæði á landi og í vatni. Minkar fara úr hárum tvisvar á ári og fara þeir í sumarbúning í apríl og vetrarbúning í september og október.

Útbreiðsla
Fyrstu minkarnir voru fluttir til ræktunar í Evrópu á 2. áratug 20. aldar og fyrsta minkabú í Evrópu var staððsett í Noregi og stofnað 1927. Næstu áratugi var verið að flytja minka til flestra annarra landa í Norður-Evrópu. Minkar í Evrópu eru allir afkomendur minka sem sluppu úr búrum eftir að hafa verið fluttir á milli staða af mönnum. Minkarækt hefur að mestu verið bundin við Norður-Evrópu en útbreiðslusvæði minksins virðist vera að stækka þaðan í suður og vestur frá Rússlandi

Ágengni minks á Íslandi
Minkar eru hvorki matvandir né þurftarfrekir og það, sem og skortur á samkeppni er talið hafa gert þeim auðvelt fyrir að setjast að á Íslandi. Rannsóknir á áhrifum minka á fuglastofna á Íslandi eru af eru ekki nægar en talið er að minkar eigi þátt í útrýmingu keldusvíns og vitað er af staðbundnum áhrifum á varpárangur teistu og fleiri sjófuglategunda. Minkur hefur verið skilgreindur sem ágeng tegund á Íslandi og í fleiri löndum þar sem hann er talinn hafa valdið usla í vistkerfum.

Fæða og búsvæði
Minkar geta bæði veitt sér til matar á landi og í vatni. Þá er algengt að minkar haldi sig við vatnsbakka. Stór hluti fæðunnar eru fiskar en einnig fuglaegg og fuglaungar. Hagamýs og ýmsir hryggleysingjar eru einnig hluti af fæðunni en ekki er talið að minkar éti ber. Fæðuframboð er meira við vatnsbakka heldur en inní landinu og talið er að kjörlendi minksins er þar.

Heimildir
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=3687#
https://www.ni.is/is/dyr/spendyr/minkur