Íslenska sem annað tungumál: Málstofa á vegum MEMM, MML og MMS - Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun 14. ágúst 2025 by Ingvar Sigurgeirsson

Aftur á ráðstefnusíðuna

Þorbjörg Halldórsdóttir
Þorbjörg Þorbjörg starfar sem sérfræðingur í íslensku sem öðru tungumáli hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Hún ritstýrði breytingum á aðalnámskrá grunnskóla og leikskóla sem tóku gildi árið 2021 og sneru að námi barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, m.a. endurnýjun kaflans um íslensku sem annað tungumál í aðalnámskrá grunnskóla. Hún hefur komið að margvíslegum verkefnum á sviði íslensku sem annars tungumáls og menningarmiðaðs skólastarfs, m.a. ritstjórn námsgagna og fræðslu og ráðgjöf til skóla og kennara. Áður starfaði hún m.a. í Hagaskóla sem umsjónarkennari, íslenskukennari og kennari í íslensku sem öðru tungumáli og í Mími-símenntun sem verkefnastjóri og kennari. Hún lauk M.Paed prófi í íslensku frá HÍ árið 1999 og diplómu í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf frá sama skóla árið 2022.

Þorbjörg hefur lengi starfað með Ísbrú, félagi kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál og var formaður Ísbrúar 2022-2024. Ísbrú fer nú með formennsku STÍL, Samtaka tungumálakennara og Þorbjörg er formaður samtakanna síðan árið 2023. Hún er höfundur námsefnisins Íslenska fyrir alla 1-4 ásamt Sólborgu Jónsdóttur.

Þorbjörg Halldórsdóttirsérfræðingur hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu: Íslenska sem annað tungumál, kennslufræði og námsefni
Nýr kafli um íslensku sem annað tungumál í aðalnámskrá grunnskóla tók gildi í lok árs 2021 og síðan þá hefur MMS lagt áherslu á útgáfu námsefnis í íslensku sem öðru tungumáli. Auk þess er námsefniútgáfa eitt af áhersluatriðum Memm verkefnisins sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tekur þátt í. Kynnt verður það efni sem þegar er komið út, það efni sem er í vinnslu og væntanlegt ásamt því sem komið er á teikniborðið. Farið verður yfir þá kennslufræði sem liggur til grundvallar efninu en hún á sér rætur í samskiptamiðuðu tungumálanámi, Evrópska tungumálarammanum og annars máls fræðum. Skoðaðar verða hagnýtar leiðir til að nýta efnið. Lögð verður  áhersla á mikilvægi þess að allt sem kennt er í kennslustofunni nýtist utan hennar enda er hér um að ræða námsgrein sem er undirstaða annars náms fyrir nemendahópinn sem hana lærir. Kennsla tungumálsins er á ábyrgð alls skólasamfélagsins og samvinna vegna náms nemenda með fjölbreyttan tungumála-og menningarbakgrunn er forsenda þess að þeir nái árangri í námi.