Kennslufræði samfélagreina 2025-2026 by Vibeke Svala Kristinsdóttir

Vibeke SVALA Kristinsdóttir
Ég heiti Vibeke Svala Kristinsdóttir en er yfirleitt kölluð Svala (hún).

Ég er starfandi kennari í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ þar sem ég hef einnig verið verkefnastýra fyrir kennaranema frá 2021 þar. Ég er með B.A. í sálfræði og M.A. í uppeldis- og kennslufræði.

Ég hef kennt ýmis fög í framhaldsskóla síðan 2010 oftast kynjafræði, sálfræði og lífsleikni. Mín helstu áhugamál innan kennslufræði eru kynjafræði, UNESCO skólar og mannkostamenntun.

Ég á þrjú börn og eitt barnabarn, fjölskyldusportið er fjallahjól en einnig æfi ég crossfit í góðum miðaldra hóp.

Ég er að kenna þennan áfanga í fyrsta skipti en hlakka mikið til þess að vinna með ykkur í vetur.

Vera Knútsdóttir
Ég heiti Vera Knútsdóttir (hún) og er frá Akranesi. Ég er gift og á tvær prinskessur og einn dramatískan hund. Ég útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskóla Vesturlands í desember 2004. Ég er með B.A. í stjórnmálafræði frá HÍ og M.A. í Security Studies frá Georgetown University í Washington, DC. Ég hef unnið í utanríkisþjónustunni og hjá Sameinuðu þjóðunum í Líbanon og Sómalíu. Ég var framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi frá 2016-2021. Á þeim tíma var ég ASPnet coordinator fyrir Unesco skóla á Íslandi og lagði mikinn metnað í að fá aukið fjármagn til verkefnisins frá menntamálaráðuneytinu. Ég hef haldið erindi og námskeið um heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun og aðstoðað skóla við að koma heimsmarkmiðunum inn í skólastarfið.

Mig hefur lengi langað að ná mér í kennsluréttindi og gerast framhaldsskólakennari en ekki látið verða af því fyrr en núna. Ég byrjaði að kenna í Brekkubæjarskóla á Akranesi í byrjun mars á þessu ári. Ég byrjaði á því að kenna listgreinar í afleysingu og kláraði skólaárið sem umsjónarkennari 9. bekkjar. Það að stökkva í djúpu laugina í kennslu varð til þess að ég ákvað að drífa í þessu núna.

Ég stefni á að kenna stjórnmálafræði, félagsfræði og kynjafræði í framhaldsskóla.

Ég er með ADHD og safna áhugamálum… Ég prjóna, hekla og sauma mjög mikið. Ég er með opean water scuba diving köfunarréttindi og stefni á að ná mér í frekari reynslu og réttindi í köfun. Ég hef aldrei náð að vera algjörlega í núinu fyrr en ég fór að kafa.

Það sem að auðkennir mig frá öðrum útlitslega séð er að ég er með múmínálfa sleeve á vinstri hendi. Annars er ég lausnamiðuð og fljót að bregðast við óvæntum aðstæðum.

ÉG heiti Lísa Margrét (hún). Ég er 58 ára og á þrjú börn og kött. Ég er með B.A gráðu í myndlist frá Listaháskóla í Dundee, Skotlandi. B.A í kvikmynda-og bókmenntafræði frá Hí og Mastersgráðu í kvikmyndagráðu frá Háskólanum í Kaupmannahöfn.

Ég hef unnið við alls konar, á leikskóla, kennt myndmennt, unnið í banka og hjá útflutningsfyrirtæki í garnverslun og fleira. Í nóvember í fyrra byrjaði ég að kenna íslensku á unglingastigi í Rimaskóla og fann að ég var komin á mína hillu. Þess vegna er ég að ná mér í kennararéttindi núna.

Mig langar að kenna íslensku í framhaldsskóla en vegna menntunar í kvikmyndafræði varð samfélagsfræði fyrir valinu, sem mér finnst líka alveg frábært.

Í frítímanum prjóna ég öllum stundum, hlusta á hljóðbækur og hlaðvörp, helst um sönn glæpamál og svo les ég mjög mikið. Ég veit ekki hvað auðkennir mig frá öðrum hef ekki velt því fyrir mér.

Enea Avduramani
Komiði sæl,

Ég heiti Enea (hann) og ég er kallaður Enó. Ég ólst upp og lauk framhaldsskóla í Albaníu. Ég er með BA og master í ferðamálastjórnun og hef starfað sem fjallaleiðsögumaður og þjónustufulltrúi í ferðaþjónustu í Albaníu.

Síðustu þrjú árin hef ég lært íslensku hjá HÍ og lika klárað nokkrar námsgreinar frá Menntavísindasviði. Reyndar vinn ég og bý í Reykjavík. Ég vinn í leikskóla í sérkennsludeild. Í vinnunni minni komst ég að því að ég hef áhuga á að kenna, svo valdi ég þetta nám til að öðlast hæfni og réttindi til að kenna ferðamálafræði í framhaldskóla.

Í frítíma mínum hef ég gaman af að vera úti í náttúrunni og stunda íþróttir. Eitthvað sem auðkenni mig frá öðrum sé kannski að ég get haldið andanum neðansjávar í fjórar mínútur 😄.

Ég hlakka til að læra margt og gera mitt besta í þessu námi.

Gangi ykkur vel! 🙌

Margrét S Benediktsdóttir
Ég heiti Margrét Steinunn Benediktsdóttir (hún/hán).

Ég er 26 ára Akureyringur og er útskrifaðist frá Verkmenntaskólanum á Akureyi 2016.

Einnig útskrifaðist ég núna í febrúar með BA í stjórnmálafræði með grunnskólakennarafræði sem aukagrein.

Ég starfaði sem leiðbeinandi/háskólamenntaður starfsmaður á leikskóla á Akureyri og kveikti það áhugann á því að fara í meistaranám til að verða mér út um kennsluréttindi. Þó að ég stefni að því að starfa í framhaldsskóla að loknu námi er ég afar þakklát fyrir reynsluna af leikskólanum og held að ýmislegt sem ég lærði þar eigi eftir að nýtast mér í náminu og í framtíðinni. Ég starfa núna í félagsmiðstöð í Hafnarfirði.

Ég stefni að því að kenna stjórnmálafræði, kynjafræði og félagsfræði. Ég hef þó einnig áhuga á sérkennslufræðum og get vel hugsað mér að bæta við mig gráðu eftir útskrift.

Mín helstu áhugamál eru handavinna (prjón og hekl), hlutverkaspil (dungeons and dragons), sund og lestur.

Það er erfitt að velja eitthvað sem auðkennir mig frá öðrum. Kannski að þar sem ég er oftast í langermabolum er fólk oft hissa að ég sé með ansi mörg húðflúr á framhandleggnum.

Sara Ósk Rodriguez Svönudóttir
Ég heiti Sara Ósk (hún). Ég er hálf íslensk og hálf kólumbísk.

Ég starfa sem verkefnastjóri félagsmiðstöðvarinnar Ásinn í Áslandsskóla. En ég hef  m.a. unnið á leikskólum, í grunnskóla, á frístundaheimili og í þremur félagsmiðstöðvum. Áður en ég tók við félagsmiðstöðinni vann ég hjá Reykjavíkurborg í 7 ár. Fyrst sem verkefnastjóri félagsauðs og frístunda og síðan sem vettvangsráðgjafi fyrir heimilislausa.

Hvað varðar menntun kláraði ég Verzlunarskólann árið 2007, síðan BA í félagsfræði við HÍ árið 2011 og MA í afbrotafræði frá Álaborgarháskóla árið 2015. Samhliða því síðast nefnda var ég í lærlingsstöðu hjá lögreglunni á Norður Jótlandi og vann sem sjálfboðaliði hjá samtökum sem hjálpa fólki að komast úr vændi/kynlífsvinnu. Ég flutti aftur heim 2017 og tók diplómu í áfengis- og vímuefnamálum 2018-2019.

Mig langar að allra helst að fá að kenna afbrotafræði og jafnvel vera með puttana í nemendafélagi framhaldsskólanema. Einnig væri ekki leiðinlegt að fá að hafa áhrif á nám fanga. Mitt aðaláhugamál er prjón og geri ég mikið af því, sem og að baka.  Ég er gift og á 2 börn, einn 6 ára og eina 9 ára.

Ég heiti Erla Sif Sveinsdóttir (hún) og útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þaðan fór ég í HÍ og lauk fyrst B.S. í sálfræði og svo meistaranámi í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á áhættuhegðun og forvarnir. Eftir nokkra ára pásu þar sem ég starfaði sem flugfreyja ákvað ég að snúa til baka og lauk M.A. prófi í Hagnýtri atferlisgreiningu. Ég hef síðan þá starfað sem klínískur atferlisfræðingur í grunnskóla ásamt því að kenna bæði félagsfærninámskeið fyrir ungmenni og uppeldisnámskeið fyrir foreldra.

Ég á fjögur börn og áhugamálin mín eru að baka, elda og syngja. Ég hef starfað í leikskóla og grunnskóla og er því spennt að afla mér meiri þekkingu á kennslu í framhaldsskólum. Þar vil kenna sálfræði eða uppeldis- og menntunarfræði.

Það sem einkennir mig frá öðrum er líklega að ég tala mjög hratt.

Komið þið sæl,

Ég heiti Lára Margrét og er skráð í Menntun framhaldsskóla kennara með sálfræði sem kjörsvið. Ég útskrifaðist frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2017. Ég ákvað að skrá mig í sálfræði hjá Háskóla Íslands og útskrifaðist ég með BS-gráðu í sálfræði árið 2023 og hélt í kjölfarið til Hollands þar sem ég lauk meistaranámi í sálfræði með sérhæfingu í taugasálfræði.

Frá upphafi stefndi ég á að starfa í akademíu og vinna að rannsóknum í taugasálfræði og fannst mér því kjörið að bæta við mig kennsluréttindum og með því samtvinnað rannsóknir og kennslu. Ég hef þegar aflað mér reynslu af kennslu, meðal annars með því að taka tímabundið við sem umsjónarkennari í 7.bekk síðasliðið vor. Sú reynsla styrkti mig í ákvörðun minni að mennta mig áfram á þessu sviði. Ég er núna að vinna sem stuðningsfulltrúi í 3.bekk.

Markmið mitt er að kenna sálfræði á framhaldsskólastigi og þróa mig áfram í starfi þar sem rannsóknir og kennsla fara saman.

Í frítíma mínum prjóna ég mikið og les bækur.

Hlakka mikið til að vinna með ykkur!

Heba Matthíasdóttir
Hæhæ! Ég heiti Ólafía Heba Matthíasdóttir (hún) en endilega notið Hebu nafnið.😊

Ég er útskrifuð sem stúdent úr Menntaskólanum við Sund og lauk í vor BA-gráðu í sagnfræði þar sem ég skrifaði lokaritgerð um stofnum Húsmæðrafélags Reykjavíkur og mjólkurstríðið árið 1935.

Áhugi minn á sögu kemur frá því að horfa á heimildamyndir með pabba mínum þegar ég var yngri um seinna stríð og hefur sá hluti sögunar, sem sagt stríð og afleiðingar þeirra, alltaf gripið mig. Ég stefni á að kenna sögu í framhaldsskóla og langar mig að veita fræðunum meira rými í kennslustofum á því stigi.

Ég á eina sæta kisu sem elskar að fara úr hárum sem er sérstaklega leiðinlegt þar sem ég sauma (útsaum og krosssaum) og er þessa vegna alltaf kattarhár í öllum verkefnum sem ég er að vinna í. Annars er ég bókadreki með dálæti á há-fantasíu og vísindaskáldskap. Ég er ljóshærð en alls engin ljóska!

Spennt fyrir komandi misseri með ykkur :D

Kristján Thors
Sæl,

Kristján heiti ég og er 39 ára 2 barna(2 og 8) faðir á Hvanneyri. Var í Menntaskólanum við Hamrahlíð, eftir það fór ég að vinna þar til að ég skellti mér í  B.A nám í stjórnmálafræði og svo seinna meir gráðu í matreiðslu frá Le Cordon Bleu úr Bandaríkjunum.

Ég hef hægt og rólega verið að færa mig úr matreiðslu í kennslu en starfa í dag í grunnskóla borgarfjarðar við matreiðslu :)

Lausnamiðaður og hress, nýjasta afrekið mitt var að bjóða upp á Dubai style baklava í 8 ára afmæli. Foreldrar voru mikið glaðari með þann afrakstur. Annars hef ég líka afrekað það að vinna verðlaun fyrir frumlegustu brauðtertuna í brauðtertu samkeppni sem var harðfiskbrauðterta.

Ég hef margar góðar minningar frá því að vera í MH og langar mig að hafa áhrif á krakkanna líkt og kennararnir höfðu áhrif á mig á sínum tíma :)

Stjórnmálafræði, Sögu og félagsfræði osfrv :)

Brynjar Kári Kolbeinsson
Ég heiti Brynjar (hann) og er 29 ára. Ég er með stúdentspróf frá Verzló og útskrifaðist með BA í félagsfræði árið 2022.

Ég flutti nýlega aftur heim til Íslands eftir að hafa verið í þrjú ár í Svíþjóð og var að byrja að vinna í sérkennslu á leikskóla.

Ég var á viðskiptabraut í Verzló og fékk litla sem enga félagsfræðikennslu á minni framhaldsskólagöngu. Mér þætti því mjög gaman að fá að kynna sem flestum nemendum fyrir félagsfræðinni og þeim fjölmörgu undirgreinum hennar.

Mín helstu áhugamál eru íþróttir, sjónvarpsþættir og að hlaupa á eftir litla tveggja ára gaurnum mínum.

Kristín Gunnarsdóttir
Sæl öll.

Kristín heiti ég og er frá Hafnarfirði. Ég er Sports Performance Coach, sú eina á Íslandi og ein af fáum í heiminum sem starfa á þessu sviði. Starf mitt snýst um að hámarka árangur íþróttafólks, lengja ferilinn þeirra og hjálpa þeim að setja heimsmet og verða meistarar í sinni grein.

Ég er sérhæfð í Sport Injury Management frá Bandaríkjunum og útskrifaðist með mína aðra mastersgráðu í Sports Health Science í mars 2021. Ég kenni einnig reglulega við háskólann sem ég útskrifaðist frá.

Menntavegurinn minn hófst í Flensborg, þaðan fór ég í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri og útskrifaðist árið 2009. Síðan lauk ég mastersnámi í Marketing and International Business við Háskóla Íslands í samstarfi við Harvard Business School árið 2011.

Sjálf hef ég æft íþróttir frá fjögurra ára aldri og keppt á móti fremstu keppendum heims í minni íþrótt síðan 2014. Þessi reynsla, ásamt fjölbreyttri menntun minni, gerir mér kleift að kenna og miðla þeirri þekkingu sem ég hef aflað mér, bæði hér heima og erlendis.

Það sem greinir mig frá öðrum er að ég er sú eina á Íslandi sem starfar sem Sports Performance Coach og ein af örfáum í heiminum með slíka sérhæfingu af sama sniði og ég.

Ég er með gráður á fleiri sviðum en læt þetta duga.

Ég elska að eyða tíma með fjölskyldu og vinum. Ég er sannur Bogamaður og elska því ævintýri og að ferðast.

Ég hlakka til að hitta ykkur og kynnast betur 😊

Jón Bjarki Magnússon
Ég heiti Jón Bjarki Magnússon (hann) og er 41 árs gamall heimildamyndagerðarmaður með bakgrunn í sjónrænni mannfræði og blaðamennsku. Ég útskrifaðist með BA-gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands árið 2012 og lauk meistaragráðu í sjónrænni mannfræði frá Freie Universität í Berlín árið 2018. Síðustu ár hef ég jafnframt stundað doktorsnám í mannfræði við Maynooth-háskóla á Írlandi.

Ég hef starfað við ýmislegt í gegnum tíðina, lengst af sem blaðamaður á íslenskum og erlendum miðlum, og á síðari árum sem heimildamyndagerðarmaður hjá mínu eigin framleiðslufyrirtæki.

Á undanförnum árum hef ég einnig fengið tækifæri til að sinna stundakennslu við ýmsa háskóla, sem hefur reynst mjög gefandi, og því lá beinast við að bæta við mig þekkingu í kennslufræðum. Uppáhaldskennarar mínir í gegnum tíðina hafa einmitt verið þeir sem lögðu áherslu á hið skapandi ferli og mikilvægi frjórra hugmynda, sem hefur haft mikil áhrif á mína eigin nálgun á kennslu. Þar sem ég hef lengi starfað á mörkum samfélagsgreina (mannfræði og blaðamennska) og lista (ritlist og heimildamyndagerð), hef ég mikinn áhuga á að finna skurðpunkta þar sem þessi svið geta stutt hvort annað.

Ég hef meðal annars áhuga á að kenna félagsfræði á framhaldsskólastigi og hvetja nemendur til að miðla hluta verkefna sinna sjónrænt — hvort sem það væri með stuttum heimildamyndum eða myndaseríum.

Ég er í sambúð með myndlistarkonu og kennara, og saman eigum við fjögurra mánaða gamlan dreng. Mér finnst einstaklega gaman að ferðast og hef farið víða — meðal annars til Mongólíu, Íran og Afganistans — auk þess sem ég hef búið í Peking, Berlín, Aþenu og í sveitum Írlands.

Hreiðar Már
Sæl og blessuð, Hreiðar (hann) heiti ég og er meistaranemi í kennslu félagsfræði, þjóðfræði og mannfræði. Ég hef áður lokið BA námi í félagsfræði frá Háskóla Íslands og síðan starfað á ýmsum sviðum sem tengjast menningu, listum og frítímastarfi með ungu fólki. Í dag starfa ég sem deildarstjóri í Upplýsingamiðstöð Hins hússins, miðstöð fyrir ungt fólk á aldrinum 16–25 ára í Reykjavík.

Áhuginn minn á félags og menntamálum kviknaði í Framhaldsskólanum í Breiðholti þar sem ég stundaði nám og tók virkan þátt í félagsstarfi. Ég hef síðan unnið bæði sem sjálfboðaliði og starfsmaður fyrir hagsmunasamtök námsmanna og frjálsra félagasamtaka ungs fólks bæði hér og á evrópskum vettvangi. Þessi reynsla hefur mótað mig og gefið mér dýrmæta reynslu í starfi mínu með ungu fólki í dag.

Vonast ég til þess að vera hvetjandi og styðjandi kennari og leiðbeinandi sem hvetur til gagnrýninnar hugsunar og jákvæðs viðhorfs.

Mín áhugamál tengjast öll tónlist en ég hef samhliða öðrum störfum unnið sem trommu/slagverksleikari og við upptökur á tónlist um árabil.

Það, einkennilegt göngulag mitt og óvilji til að gangast við hárlengdarviðmiðum samfélagsins fyrir karlmenn er líklegast það sem einkennir mig að einhverju leiti frá öðrum.

Hlakka til að kynnast ykkur betur yfir önnina.

Lára Björk
Ég heiti Lára Björk og er uppalin og búsett á Selfossi. Ég á einn tæplega tveggja ára son. Ég kláraði framhaldsskólann hér og starfa í dag sem deildarstjóri á leikskóla á Selfossi. Uppeldi, menntun og vellíðan barna og ungmenna hefur alltaf skipt mig miklu máli og stefni ég að efla þekkingu mína enn frekar á því sviði.

Ég er með BA gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum og hef einnig lokið diplómu sem snýr að áhættuhegðun og velferð ungmenna. Í vetur bætti ég svo við mig nokkrum námskeiðum sem nýtast til kennsluréttinda og þa sérstaklega horft sé til menntun framhaldsskóla – þar sem mig langar að fara að kenna, sérstaklega greinar eins og uppeldisfræði, félagsfræði og lífsleikni.

Ársól Clara Arnardóttir
Hæhæ! Ég heiti Ársól (hún/hennar) og er ég 24 ára, fædd og uppalinn í Vesturbænum. Ég er mannréttindafræðingur og er með M.A í mannréttindafræðum frá Háskólanum í Lund, Svíþjóð. Ég er með B.A í alþjóðlegu námi í menntunarfræði með aukagrein í stjórnmálafræði frá HÍ. Ég útskrifaðist úr Kvennó árið 2019 af félagsvísindabraut.

Ég starfa sem háskólamenntaður starfsmaður í sérkennslu á leikskóla á stór-höfuðborgarsvæðinu. Í mínum "frítíma" þjálfa ég borðtennis hjá KR og er í nýliða prógramminu hjá Björgunarsveitinni Ársæll. Ég elska þó að prjóna og að lesa mér til skemmtunar, en einnig get ég horft á hvaða íþrótt sem er og fundist hún frábær.

Ég er ekki 100% á því hvaða fagi ég væri helst til í að kenna en mannréttindinn eru þó mitt helsta áhugasvið. Einnig hefði ég þó áhuga að kenna kynjafræði eða stjórnmálafræði en sá áhugi kveiknaði í Kvennó þar sem kennarinn kveikti áhuga minn á þessu sviði.

Ég heiti Jónína Sif (hún) og bý í Mosfellsbæ. Árið 2008 útskrifaðist ég af náttúrufræðibraut Fjölbrautaskólans í Ármúla. Þá tók við nám í sagnfræði og þjóðfræði og síðan MA nám í blaða- og fréttamennsku.

Ég hef mikinn áhuga á útivist og hestamennsku og hef starfað við leiðsögn meðfram öðru síðan 2010 og rek í dag litla hestaleigu.

Þá hafa æskulýðsmál og staða barna verið mér hugleikin, en ég hóf mjög ung að starfa í barna og unglingastarfi bæði á vegum Þjóðkirkjunnar og innan ÍTR. Ég var framkvæmdastjóri Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar í 7 ár.

Eftir að ég hætti þar fann ég að áhugi minn á að vinna með ungu fólki hafði síst minnkað og ég ákvað því að láta gamlan draum um að gerast kennari verða að veruleika og skráði mig í nám. Mig langar að kenna samfélagsgreinar og lífsleikni. Ég hef fengið að máta mig við kennarastarfið þó mest í tengslum við óformlega kennslu en einnig námskeiðahald. Þá starfaði ég líka sem kennari eina önn í skóla í Kólumbíu og naut þess í botn.

Ég elska að ferðast bæði innan lands og utan og vil verja sem mestum tíma utandyra.

Þeim tíma sem ég ver ekki með fjölskyldunni, hestunum eða hundinum nýti ég gjarnan í að lesa eða hlusta á mis góðar bækur, laga girðingar, gleyma mér úti í náttúrunni eða skrattakollast eitthvað með vinkonunum eða systrum.

Ég veit svo sem ekki hvað auðkennir mig frá öðrum, kannski auðveldara fyrir aðra að svara því en ég er samt alveg fáránlega gleymin og mikill sveimhugi. Tjah og já þegar ég fór að leita að mynd kom í ljós að ég á tæplega mynd af mér án hesta, hjóla eða skíðahjálms nú eða með hatt, der eða húfu.

Elísa Ósk
Ég heiti Elísa Ósk (hún).

Ég er 36 ára vestfirðingur, búsett í með manni og barni í Hafnarfirði. Ég er stúdent frá FNV og með BS í Sálfræði frá Háskóla Íslands. Ég er með MA í uppeldis og menntunarfræðum með áherslu á sérkennslufræði frá Háskólanum á Akureyri.

Ég hef starfað í Alþjóðaskólanum á Íslandi síðan 2012, og hef verið deildarstjóri stoðþjónustu síðan haustið 2014. Frá haustinu 2020 hef ég starfað sem aðstoðarskólastjóri við skólann, og geri enn. Í starfi mínu hef ég tekið mörg námskeið og sótt ráðstefnur á alþjóðlegum vettvangi en er spennt að fá að kynnast kerfinu hér heima betur. Mér finnst mjög gaman að kenna á unglingastigi (high school) og mig langar að kenna sálfræði og/eða uppeldisfræði á framhaldsskólastigi. Eins hef ég mikinn áhuga á öllu sem tengist félags- og tilfinningaþroska barna og ungmenna og hvernig hægt er að vefja það inn í námsskrá og kennslu.

Ég er tiltölulega nýlega fallin fyrir utanvegahlaupum, og myndi segja að mitt helsta áhugamál sé að vera einhverstaðar úti í náttúrunni með þungarokk í eyrunum.  Hlaupin eru þó á ís og verða það næstu mánuðina þar sem ég er að jafna mig eftir mjaðmarbrot og aðgerð vegna þess. Auk þess fylgist ég með enska boltanum eins og ég get. Gott vín og góður matur skorar líka hátt hjá mér.

Það sem einkennir mig svona venjulega er að ég er stutt í annan endann og mér liggur hátt rómurinn. En ætli aðaleinkennið mitt þessa dagana sé ekki að ef ég þarf að fara eitthvað þá dröslast ég um á hækjum. Ég er því skráð í fjarnám til að byrja með en vona að ég geti náð einhverjum tímum í raunheimum með ykkur.

Helga Guðrún
Hæhæ. Ég heiti Helga Guðrún (hún), ég er 38 ára. Ég er uppalinn í Breiðholti, en flutti fyrir nokkrum árum í Mosfellsbæ. Eftir grunnskóla fór ég Í Borgó en hætti námi eftir 2 annir, fór eftir nokkurt hlé í MK og kláraði stúdentinn þar 2011. Þaðan lá leiðin í HA í fjölmiðlafræði, flutti norður til að stunda staðarnám þar og bjó þar í 3 ár sem var ótrúlega skemmtilegt að prófa eittvað nýtt þar sem ég hef alltaf búið í Reykjavík. Einnig er ég með MS gráðu í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá HÍ sem ég lauk 2017. Draumurinn var að starfa við markaðsmál en það átti ekki við mig. Ég ætlaði alltaf í kennsluréttindi eftir menntaskóla en tók aðra ákvörðun á sínum tíma, en ég er hér núna það er aldrei of seint að skipta um skoðun.

Ég hef starfað við hin ýmsu þjónustustörf og starfaði lengi sem verslunarstjóri. Ég starfa sem stendur sem leiðbeinandi með umsjón í 2.bekk í Helgafellsskóla. Þetta er annað skólaárið mitt, ég fann loksins rétta starfsvettvanginn en elska að vinna með börnum á mjög vel við mig. Hlakka alltaf til að mæta í vinnuna.

Ég hef mikinn áhuga á utanlandsferðum og þá allra helst borgarferðir. Einnig hef ég mikinn áhuga á snyrtivörum.

Ég er ekki alveg klár hvaða grein mig langar helst að kenna, en hugsa að væri fjölmiðlafræði eða saga.

Hlakka til vetrarins með ykkur.

Hanna Þráinsdóttir
Ég heiti Hanna Þráinsdóttir (hún) og er 27 ára Hafnfirðingur.

Ég útskrifaðist úr Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2016. Ég hélt svo til Bandaríkjanna í háskólanám og að spila körfubolta árið 2018 og útskrifaðist með BA gráðu í stafrænni miðlun og sálfræði frá Georgian Court University árið 2022 og MA gráðu í fjölmiðla-, menningar-, og boðskiptafræði frá New York University árið 2024.

Síðan ég flutti heim hef ég starfað sem kynningarstjóri fyrir Grænni byggð, félagasamtök um vistvænan byggingariðnað og spilað körfubolta í Bónus deildinni.

Ég hef mestan áhuga á að kenna fjölmiðlafræði og koma minni sérfræðiþekkingu á sviðinu áleiðis til framhaldsskólanema, enda tæknin orðin gríðarlega stór hluti af lífi ungmenna.

Það sem einkennir mig frá öðrum er eflaust botnlaus vitneskja mín á hinsegin birtingarmyndum í íslensku sjónvarpsefni, hæfni mín í að jöggla og það hvað ég er afskaplega örvhent.

Sigurbjörg Ósk Friðleifsdóttir
Ég heiti Sigurbjörg Ósk og er ýmist kölluð Sigurbjörg eða Sibba. Ég er 29 ára (þrítug í október) Álftnesingur og útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2015. Ég lauk svo B.A. gráðu í lögfræði frá HR árið 2019 og M.L. gráðu í sama fagi árið 2021.

Samhliða háskólanámi mínu starfaði ég sem leiðbeinandi á leikskólanum Ásum í Garðabæ, ásamt því að starfa sem flugfreyja á sumrin en í dag starfa ég sem lögfræðingur á stofu í Reykjavík. Kveikjan á áhuga mínum á lögfræði var líklega áfanginn viðskiptalögfræði sem ég sat hjá minni allra bestu Tinnu í FG. Það var líka hún sem var hörð á því að einn daginn yrði ég kennari, og ef ekki að þá yrði ég lögfræðingur.. hún hafði svo sannarlega rétt fyrir sér.

Ég elska að ferðast, bæði innan sem utanlands, og svo er ég nýbyrjuð að lesa mér til skemmtunar aftur enda tók laganámið það svolítið frá mér.

Ég hef meðal annars áhuga á að kenna lögfræði, kynjafræði og lífsleikni en auk þess hefði ég gaman af því að vera með puttann í félagslífinu hjá nemendum.

Það sem einkennir mig líklega mest er hversu hávær en lítil ég er, jú og hversu hátt ég þramma.

Ég hlakka til að kynnast ykkur betur og vera með ykkur í vetur!

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Hæhæ! Ég heiti Sigurbjörg Erla Egilsdóttir og nota persónufornafnið hún. Ég á eiginmann og þrjú börn á aldrinum 8-13 ára. Ég er fædd 18. nóvember 1986 í Neskaupstað, þar sem ég bjó framyfir fermingu. Ég fluttist svo á höfuðborgarsvæðið með fjölskyldunni minni og fór í MH að loknum grunnskóla. Eftir MH fór ég í tvær 6 mánaða reisur með bakpoka, annars vegar um Suður-Ameríku og hins vegar um Kína og Suðaustur-Asíu. Þá var ég loksins tilbúin til þess að fara aftur í skóla og lærði sálfræði í HÍ. Síðustu ár hef ég starfað við stjórnmál, sem bæjarfulltrúi í Kópavogi og af og til í aðstoð við kennslu við HÍ og HR. Ég hef bætt við mig diplómagráðu í opinberri stjórnsýslu og meistaranámi í stjórnun og stefnumótun. Ég hef áhuga á að kenna sálfræði og önnur félagsvísindafög.

Thelma Þorbjörg
Heil og sæl,

Ég heiti Thelma Þorbjörg og er í grunninn lögfræðingur frá Háskóla Íslands með lögmannsréttindi, en ég starfaði í 9 ár hjá hinu opinbera, eða allt þar til ég ákvað að taka 180° beygju og gerast sjómaður í alþjóðasiglingum árið 2023.

Forsaga málsins er sú að ég lærði skipstjórn í fjarnámi hjá Skipstjórnarskóla Tækniskólans, samhliða vinnu minni sem lögfræðingur. Við útskrift árið 2023 tók ég ákvörðun að leggja lögmanninn á hilluna og fara í starfsnám á flutningaskipum til að safna sjótíma (cadet). Ég hef svo starfað sem stýrimaður frá árinu 2024, að mestu í alþjóðasiglingum, eftir að ég lauk námsári mínu.

Frá janúar 2024 hef ég sömuleiðis sinnt stundakennslu við Skipstjórnarskólann í hinum ýmsu fagáföngum skipstjórnar og haft verulega gaman af því að miðla þekkingu minni á náminu sem ég hafði svo gaman af því að læra. Er það ástæða þess að ég er komin í þetta nám núna.

Ég hlakka til að kynnast ykkur og vinna með ykkur í vetur 😊

Elísabet Davíðsdóttir
Ég heiti Elísabet Davíðsdóttir. Ég er frá Selfossi og þar starfa ég sem leiðbeinandi með umsjón í grunnskóla . Ég er búin með meistarnám í lögfræði við HÍ. Í lögfræðinni lagði ég helsta áherslu á barnarétt og kviknaði þar áhuginn á kennarastarfinu. Ég ákvað því að skrá mig í menntun framhaldsskólakennara.

Tandri Halldórsson
Ég heiti Stefán Tandri Halldórsson (Tandri) og er 34 ára giftur tveggja barna faðir búsettur í Reykjavík. Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og síðar meir B.A. prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Er hálfnaður með meistaranám í hugmynd- og vísindasögu en kennslan togar í auknum mæli í mig og ég hef því ákveðið að fylgja þeirri stefnu. Hef ávallt haft mikinn áhuga á kennslu og miðlun þekkingar og langar að reyna fyrir mér á þeim vettvangi.

Hef gegnt ýmsum störfum um starfsævina en í dag starfa ég sem flugþjónn hjá Icelandair. Hugurinn leitar þó í auknum mæli aftur niður á jörðina og vonast ég til þess að þetta sé fyrsta skrefið á þeirri vegferð.

Helstu áhugamál mín snúa að sögu, matar- og drykkjarmenningu, heilsu (bæði lýðs og sjálfs) og þróun samfélagsins.

Kristín Egilsdóttir
Heil og sæl.

Ég heiti Kristín Egilsdóttir, er 57 ára viðskiptafræðingur. Á menntaskólaárunum stefndi ég á kennaranám en á þessum árum voru ítrekuð verkföll í skólanum sem varð til þess að ég ákvað að fara í viðskiptafræði, opin fyrir möguleikanum á því að bæta við mig kennsluréttindum síðar - og hér er ég nú!

Það er kostur við það að vera viðskiptafræðingur, að hafa tækifæri til að kynnast ólíkri starfsemi. Megnið af starfsævinni hef ég starfað við fjármálastjórnunm í ýmsum greinum bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum.

Ég hef mikinn áhuga á fjármálafræðslu einstaklinga og hef verið með mörg námskeið fyrir einstaklinga, bæði unglinga og fullorðna.

Ég er gift og við hjónin eigum þrjú uppkomin börn og það er von á fyrsta barnabarninu síðar á árinu.

Vinnan hefur alltaf verið stórt áhugamál hjá mér en finnst líka mjög gaman að ferðast bæði innanlands og erlendis. Svo er ég nýbyrjuð í golfi og á gönguskíðum.

Telma
Sæl og blessuð

Ég heiti Telma Magnúsdóttir (hún). Ég ólst upp í sveit í Húnavatnssýslu en hef búið í Vesturbæ Reykjavíkur síðan ég fór suður í háskóla. Ég er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og er með BSc. og MSc. gráðu í ferðamálafræði frá Háskóla Íslands. Í bjó í stutta stund í Danmörku og á Spáni að loknum framhaldsskóla en í dag bý ég í vesturbænum með manni og þremur sonum.

Ég var plötuð í kennslu fyrir nokkrum árum og áttaði mig fljótt á því að ég hef mikla ánægju ef því að kenna og starfa með ungmennum. Ég starfa sem umsjónarkennari í grunnskóla og hef gert í nokkur ár en hafði sinnt ýmsum störfum fram að því, m.a. í stjórnmálum og banka. Áður en ég snéri mér að kennslunni og samhliða henni var ég í ýmiskonar listsköpun og skartgripagerð undir heitinu Varpið en þar sótti ég innblástur minn í náttúruna. Segja má að Varpið sé mitt fjórða barn.

Ég nýt þess að verja tíma með fjölskyldunni úti í náttúrunni og í allskonar útivist. Í frítíma mínum ver ég töluverðum tíma í sveitinni minni, þvælist um landið og upp á hálendi. Ég sæki minn innblástur í leik og starfi í náttúruna eins og ég nefndi að ofan, legg áherslu á að nýta náttúrulegan efnivið og hef lagt mig fram um að flétta hana inn í kennsluna eins og mögulegt er.

Ég hef mikinn áhuga á fólki og samfélagslegum málefnum, ekki síst þeim sem snúa að ungmennum. Ég reyni að hafa ekki of miklar áhyggjur af hlutunum og finnst mikilvægt að sjá það spaugulega þegar á reynir.

Á fimmtudagskvöldum æfi ég svo körfubolta með hinum margumrómaða liði Svuntunum, sem samanstendur af mæðrum í KR. Þar er skylda að vera skemmtilegur og bannað að segja “sorry” ef kona klúðrar inn á vellinum.

Heil og sæl

Erna heiti ég, þrjátíu og fimm ára kona (hún), systir, móðir, vinkona og eiginkona.

Ég útskrifaðist frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla og er með B.A í sagnfræði og M.A í Alþjóðasamskiptum. Ég er líka með hálfa hjúkrunargráðu.

Ég er alltaf að læra og finnst það langskemmtilegast. Ég á tvær skessur sem eru mun skemmtilegri en þau eru krefjandi. Ég er með endalaust af áhugamálum og er spennt að klára loksins þessi kennararéttindi.

Ég er að kenna sjötta bekk í Snælandsskóla í vetur og er mjög til í þetta

Berglind L. Hafsteinsdóttir
Hæ hæ,

Ég heiti Berglind, ég tók sameinaða gráðu mastersgráðu úr tveimur deildum Hróarskelduháskóla, annarsvegar fjölmiðlunardeild og hinsvegar menningar og tungumáladeild skólans. Lauk ég námi fyrir um sextán árum síðan. Í gegn um tíðina hef ég meðal annars starfað sem kynningarfulltrú/fræðslufulltrúi og sem deildarstjóri erlendra nema hjá AFS skiptinemasamtökum. Stefni ég á að kenna félagsfræði í framhaldsskóla. Ég bý í miðbænum og á eina uppkomna dóttur. Áhugamál mín eru samvera með ástvinum, útivist, sjálfsrækt, jafnréttismál, fjölmenning, matur og matreiðsla og listsköpun, svo eitthvað sé nefnt.

Friðbjörg
Ég heiti Friðbjörg og er 28 ára frá Akranesi. Ég var í Kvennó og fór svo í HÍ og útskrifaðist þaðan með B.A. í tómstunda- og félagsmálafræði. Ég hef síðustu ca. 8 árin unnið í ýmsu sem viðkemur tómstundafræði, félagsmiðstöð, ungmennaráði Reykjavíkur og starfa nú sem forstöðukona á frístundaheimili.

Ég hef gaman af því að ferðast, hef lokið námi frá Hússtjórnarskólanum í Reykjavík og hef mjög mikinn áhuga á flest öllu sem viðkemur handavinnu og listum.

Ég hef mikinn áhuga á að kenna tómstundafræði, en það er einmitt grein sem mér finnst oft lenda undir en að mínu mati eru þetta fræði sem kemur öllum við og því mikilvægt að vita áhrif þess að nýta frítíma sínum á góðan og uppbyggilegan hátt!

María Jónsdóttir
Hæ! Ég heiti María Jónsdóttir (hún) og útskrifaðist sem stúdent úr Menntaskólanum á Akureyri.

Ég lærði uppeldis- og menntunarfræði í HÍ og náms- og starfsráðgjöf og stefni á því að kenna uppeldisfræði og lífsleikni.

Mér finnst gaman að horfa á íþróttir og minn uppáhalds íþróttamaður er Rafael Nadal tenniskappi. Frábær fyrirmynd, einbeittur og ber virðingu fyrir leiknum.

Ég hlakka til að vinna með ykkur.

Andrea Rut Halldórsdóttir
Hæhæ ég heiti Andrea Rut (hún) og er 24 ára. Ég útskrifaðist með Ba í félagsfræði og grunnskólakennarafræði sem aukagrein núna í vor. Ég var í Kvennó á félagsfræðibraut og fékk mjög góða menntaskólaupplifun og kynntist frábærum kennurum sem ég get sagt að séu mínar fyrirmyndir í komandi starfi. Síðustu ár hef ég verið að vinna í grunnskóla sem stuðningsfulltrúi og frístundarleiðbeinandi. Áhugi minn á kennslu hefur farið vaxandi síðustu ár og hef ég einnig mikinn áhuga á félagsfræði og undirgreinum hennar. Ég stefni því á að kenna félagsfræði í menntaskóla og er mjög spennt fyrir því.

Dagný Fjóla
Ég heiti Dagný Fjóla og er með BS-gráðu í ferðamálafræði og frönsku, auk meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði. Ég hef starfað sem grunnskólakennari síðasta árið og fann að kennsla kallaði sterkt á mig. Ég hlakka mikið til að kynnast framhaldsskólakerfinu betur.

Við Jón eigum þrjú börn og erum búsett í Garðabæ. Mín helstu áhugamál eru hlaup, yoga, sund og matargerð. Ég hef mjög gaman af því að ferðast og kynnast nýjum stöðum og menningarheimum. Ég ólst upp í Belgíu, var búsett þar frá sjö ára aldri til sextán ára. Fór síðan í skiptinám á háskólaárunum til bæði Parísar og Tævan.

Aníta Rut
Komiði sæl!

Ég heiti Aníta Rut og er 26 ára gömul. Ég fór í BS í sálfræði frá Háskóla Íslands og eftir því lauk dreif ég mig út til Skotlands til þess að læra master í hagnýtri réttarsálfræði.

Nú vinn ég sem ráðgjafi á réttargeðdeild en er einnig að kenna sem afleysingarkennari í Lágafellskóla í Mosfellsbæ.

Sálfræði hefur alltaf verið númer eitt hjá mér en eftir að ég fór að kenna áttaði ég mig á því að þetta væri eitthvað fyrir mig - þá sérstaklega að geta farið að kenna eitthvað sem ég hef gríðarlegan áhuga á eins og sálfræðin.

Markmið mitt er því að fara að kenna sálfræði og/eða réttarsálfræði á framhaldsskólasitig og hlakka ég til að geta þróað mig áfram þar og nýtt mína reynslu og þekkingu.

Í frítíma mínum hef ég mjög gaman að því að lesa, prjóna, föndra allskyns og elda góðan mat.

Ég hlakka til að bæði kynnast og vinna með ykkur!

Enoch Osei
Ég heiti Enoch Osei og er upprunalega frá Gana. Ég hef búið á Íslandi í fimm ár. Ég lauk grunnnámi í mannauðsstjórnun og iðnaðarfræði og síðar meistaranámi í vinnusálfræði og mannauðsstjórnun við Háskólann í Reykjavík.

Kennsla hefur alltaf verið mín langvarandi ástríða. Þessi ástríða varð þó enn sterkari og meira gefandi þegar ég fékk tækifæri til að vinna með nemendum í fyrsta, öðru, þriðja og fjórða bekk í Krikaskóla í Mosfellsbæ. Sú reynsla styrkti löngun mína til að leggja kennslu fyrir mig sem starfsvettvang.

Auk menntunar hef ég mikinn áhuga á tónlist. Ég er mikill tónlistarunnandi og tjái þessa ástríðu með því að spila á píanó og syngja. Ég er hluti af líflegu íslensku hljómsveitinni sem gengur mjög vel, og tónlistin gefur mér jafnvægi, sköpunargleði og ánægju.

Þessi vegferð er metnaðarfullt og spennandi skref í minni persónulegu og faglegu þróun í átt að því að verða menntaður kennari. Ég sé engar hindranir á þessari leið; ég sé aðeins tækifæri. Fyrir mér er hvert áskorun tækifæri til vaxtar og hver reynsla tækifæri til að læra. Ég mun gera mitt besta til að gera þessa námsferð ekki aðeins farsæla heldur einnig spennandi og gleðilega.

Markmið mitt er að skapa hvetjandi og styðjandi námsumhverfi þar sem nemendur geta dafnað, kannað hæfileika sína og náð árangri. Ég trúi því að kennsla snúist ekki eingöngu um að miðla þekkingu; hún snýst um að móta líf og styrkja næstu kynslóð til að dreyma og ná árangri.

Brenda Prehal
My name is Brenda and I am from the USA. I am an anthropological archaeologist and have been excavating in Iceland for 15 years. I have two MA's and a PhD in anthropology with a focus on archaeology and now I am working on obtaining my teacher's license in Iceland. I have experience teaching university courses and look forward to teaching younger students and prepare them for university.