Ferilmappa - þriðji hluti í starfstengdri leiðsögn by Þóra Sigrún Hjaltadóttir - HI
Lestrardagbók 1
12. Sep kl. 19:44
Mjög fín lestrardagbók. Þér tekst að vekja áhuga lesanda strax í upphafi með því að nefna ákveðið dæmi í textanum sem þú fjallar svo um í gegnum færsluna. Þú gerir góða grein fyrir lesefninu, veltir niðurstöðunum fyrir þér og setur í samhengi við eiginn reynslu. Gott flæði er í textanum og hann nánast villulaus. Það er ekki þörf á forsíðu en mjög fínt að hafa heimildaskrá og tilvísanir þó það hafi ekki verið gerð krafa um það í fyrstu skilum.
- Björg Melsted
Lestrardagbók 2
28. Sep kl. 17:48
Fín umfjöllun og ígrundun.
- Björg Melsted
Lestrardagbók 3
rannsóknarblogg
Anna Pála Gísladóttir (Hún/hennar)
23. Okt 15:53
Stjórna umræðu með Anna Pála Gísladóttir
Svör frá Anna Pála Gísladóttir
Þetta er mjög áhugavert og hefur líklega ekki fengið næga athygli. Við leitum til stjórnenda með allt okkar en þeir hafa kannski síður einhvern til að leita til og ígrunda með.
En í lærdómssamfélaginu ætti skólastjórinn að læra og ígrunda með öðru starfsfólki. Það á þó einungis við um nám og kennslu og vantar kannski vettvang fyrir þá til að ígrunda saman sem stjórnendur, mannauðsstjórar og allt það sem starf skólastjóra felur í sér. Það væri kannski sniðugt fyrir stærri sveitarfélög að búa til pör gagnrýninna félaga (sem væru skólastjórnendur) þvert á skóla sveitarfélagsins. Það væri líka örugglega áhugavert og fræðandi að fylgjast með öðrum stjórnendum að störfum.
Það kemur líka fram í greininni að þegar stjórnendur komu til baka var lítill tími aflögu til ígrundunar og það er auðvitað sama vandamál hjá kennurum og öðru starfsfólki skóla. Hins vegar tel ég mikilvægt að fólk gefi sér þennan tíma. Það að ígrunda gæti í stóra samhenginu sparað tíma þegar fram í sækir.
Svona eins og þegar við erum of þreytt til að fara í ræktina en vitum samt alveg að með því að vera dugleg að hreyfa okkur bætum við svefn og aukum orku.
Líka ekki við póst frá Anna Pála Gísladóttir2Fjöldi Líkar við: 2
Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Breytt 26. Okt 12:56Skoða ferli
Stjórna umræðu með Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Svör frá Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Mér þykir þessi hugmynd um pör gagnrýninna félaga mjög áhugaverð og verðugt að skoða slíkt. Ég og aðstoðarskólastjórinn minn höfum hist einu sinni áður á þessu skólaári með öðru skólastjórapari og var meginmarkmiðið jafningjastuðningur. Fundurinn varð mjög áhugaverður, kannski dálítið yfirborðskenndur svona í fyrstu tilraun og snéri meira að verkefnum og áskorunum, en kannski minna að kafa í dýptina. En við eigum skipulagðan annan svona fund þar sem ég ætla einmitt að ræða innihald þessarar rannsóknar við þær.
Ég veit líka að sveitarfélagið sem þær eru í er búið að vera í samstarfsverkefni með Háskólanum á Akureyrir varðandi lærdómssamfélagið og verður áhugavert að skoða betur með þeim, hvað felst í því verkefni og skoða hvort áherslurnar eða útkoman eigi samhljóm með þessum niðurstöðum.
Eins er ég sammála þér með mikilvægi þess að gefa sér tíma til ígrundunnar. Fyrirstaðan sem maður heyrir oftast er að það sé ekki tími til þess, en hvað ef við bara setjum þetta á dagskrá-hvað gerist þá? ef við forgangsröðum ígrundun sem mikilvægum lið í vaxandi skólastarfi? Samlíking við að fara í ræktina held ég að sé nokkuð rétt - það sem maður nærir vex og dafnar. Forgangsröðum ígrundun og faglegu starfi, þá verður mögulega minna rými fyrir hversdagslega hluti og kannski með því að vanrækja þá - þá visna þeir og taka minna pláss, s.s. að slökkva elda? ég allavega læt mig dreyma ;)
Hafdís Ingvarsdóttir (2014) skoðar vinnumenninguna og áhrif hennar á starfsþróun kennara. Jákvæð samskipti og uppbyggilegt samstarfi sem stuðlar að árangri heildarinnar byggir á ígrundandi samræðum við jafningja. Í leikskólastarfinu er oft lítill tími til samtals og jafningjastuðnings, en með útsjónarsemi og góðu skipulagi er engu að síður hægt að koma því við og hlakka ég til að prufa mig áfram.
Hafdís Ingvarsdóttir (2014). Reflection and work context in teacher learning: Two case studies from Iceland. Promising Pedagogies (Part A), 91-112.
Líka við póst frá Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Inga Þóra Ásdísardóttir
23. Okt 17:19
Stjórna umræðu með Inga Þóra Ásdísardóttir
Svör frá Inga Þóra Ásdísardóttir
Virkilega flott blogg og afar áhugavert að lesa yfir það. Ég get vel tekið undir niðurstöðurnar og tengi við þær þegar ég leysti af í eitt ár starf leikskólastjóra en þá var endalaust eitthvað að koma aftan að mér. Sem aðstoðarleikskólastjóri og starfsmaður við sama leikskóla í yfir 10 ár þá taldi ég mig vera inn í flestu og kunna margt. Þegar ég spurði um ársyfirlit leikskólastjóra var svarið, þetta er bara alltaf eins á milli ára. Nákvæmlega og af hverju er það þá ekki til á blaði til að auðvelda nýjum starfið. Í sveitarfélaginu sem ég starfa í var okkur reyndar úthlutaður mentor í öðrum leikskóla sem maðru átti að heyra í ef manni vantar hjálp. Þá var talað um að aðstoðarmaður sviðstjóra myndi hringja reglulega en það var mjög óreglulega. Eins og fram kemur í greininni að á þriðja ári hafi verið jafningjastuðningur og einstaklingsmiðuð markþjálfun á vinnustaðnum, það ætti vera strax á fyrsta ári. Eins og fram kemur að stjórnendur hafi kunnað að meta tímann sem fór í leiðtoga nám er afar sorglegt að það hafi ekki haft jákvæðar afleiðingar.
Til gamans þá fóru leikskólastjórar og aðstoðarleikskólastjórar vorið 2022 á 24 klukkustunda Dare to lead námskeiðið með Brene Brown undir handleiðslu Ragnhildar Vigfúsdóttur markþjálfa. Námskeiðið stóð yfir fjóra mánuði og var ótrúlega lærdómsríkt. Allir leikskólar í sveitafélaginu eru ennþá að græða á því. Eftirfylgnin er til fyrirmyndar, leikskólastjóri og aðstoðarleikskólastjóri í hverjum leikskóla fengu einkatíma með Ragnhildi ef þeir vildu og hún hefur komið með erindi inn í alla leikskólana um jákvæðni. Eftir námskeiðið fengu allar skíretini - Dare to Lead trained. Þetta námskeið hefur gert mig að töluvert öflugri stjórnanda og er ég miklu kjarkaðri í að takast á við mis krefjandi verkefni sem mér eru falin í þessu starfi.
Líka ekki við póst frá Inga Þóra Ásdísardóttir1Fjöldi Líkar við: 1
Þóra Sigrún Hjaltadóttir
26. Okt 13:48
Stjórna umræðu með Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Svör frá Þóra Sigrún Hjaltadóttir
þegar ég les skrif þín af reynslu þinni af því að leysa af sem skólastjóri í eitt ár, þá verður mér hugsað til greinar sem við lásum fyrr í vetur Resilience as a Contributor to Novice Teacher Success, Committment, and Retention (2008), en þar bendir Tait (2008) á að nýliðar eru með sömu ábyrgð, kennsluskyldu og verkefni og reyndir kennarar. Ef við yfirfærum þetta á þínar aðstæður þá varst þú með sömu ábyrgð, skyldur og verkefni og reyndur skólasjtjóri. Tait (2008) skrifaði að nýliðar leita síður eftir aðstoð af ótta við að virðast illa undirbúnir og/eða óhæfir. Sveitarfélagið útvegaði þér mentor sem síðan var á þína ábyrgð að heyra í ef þig vantaði aðstoð og svo aðstoðarmann sviðsstjóra sem hringdi óreglulega, þetta er í raun ekki sá stuðningur sem þú þurftir a að halda sem "nýliði" og velti ég fyrir mér hvort þetta hafi dregið úr áhuga þínum á starfi skólastjóra. Ég tek undir með þér að betra hefði verið þar sem þú varst að leysa af að útvega þér markvissa starfstengda handleiðslu inn í skólann, þannig að þú fengir stuðning í raunaðstæðum á rauntíma.
Tait, M. (2008). Resilience as a Contributor to Novice Teacher Success, Commitment, and Retention. Teacher Education Quarterly, 35(4), 57-75.
Líka við póst frá Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Inga Þóra Ásdísardóttir
31. Okt 21:14
Stjórna umræðu með Inga Þóra Ásdísardóttir
Svör frá Inga Þóra Ásdísardóttir
@Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Þar sem ég sé að þú ert að velta fyrir þér þá dró það alls ekki úr mér og var þetta mjög lærdómsríkt ár. Ég er klárlega reynslunni ríkari. Til dæmis þá er ég að útbúa mitt eigið árshjól og er í þessu námi til að undirbúa mig betur og auðvelda mér starf leikskólastóra þegar þar að kemur.
Líka ekki við póst frá Inga Þóra Ásdísardóttir1Fjöldi Líkar við: 1
Þóra Sigrún Hjaltadóttir
1. Nóv 12:54
Stjórna umræðu með Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Svör frá Þóra Sigrún Hjaltadóttir
@Inga Þóra Ásdísardóttir
frábært og þá verð ég að spyrja :) hvað er árshjól? @Inga Þóra Ásdísardóttir
Líka við póst frá Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Ólesinn póstur
Inga Þóra Ásdísardóttir
4. Nóv 18:23
Stjórna umræðu með Inga Þóra Ásdísardóttir
Svör frá Inga Þóra Ásdísardóttir
@Þóra Sigrún Hjaltadóttir
Árshjól er yfirlit yfir verkefni ársins :)
óvænt atvik
Umsögn um úrvalsverkefni
Fékk 10 í einkunn - vúbb vúbb :D
ég verð að segja að þetta verkefni var einstaklega lærdómsríkt og kveikti svo marga neista að það stendur klárlega upp úr.
Þetta verkefni þótti mér lærdómsríkast og áhrifamest í áfanganum. Ég er óvön að rýna inn á við og hafði ekki tileinkað mér sérstaklega vel ígrundandi rými í starfi mínu. Þessi áfangi hefur svo sannarlega styrkt mig faglega og aukið fagvitund hjá mér ásamt verulegum áhuga fyrir faglegri uppbyggingu. Ég er farin að forgangsraða og setja á dagskrá faglega þætti umfram hversdagsleg verkefni.
Auðvitað tekst mér misvel að stýra þessu og það koma upp hversdagsleg og aðkallandi verkefni sem hafa áhrif bæði á skipulag og dagsformið, en á orðið auðveldara með að takast á við slík verkefni, jafna mig fyrr (þegar það á við) og nýti mér betur jafningjastuðning.
Bara á þessari önn í skólanum er ég farin að iðka faglestur reglulega yfir vikuna. Þetta þótti mér erfitt í upphafi og fannst ég vera að svíkjast undan daglegum verkefnum. En það undarlega gerðist að því meira sem ég forgangsraða faglegri uppbyggingu, þá er minna rými fyrir þetta daglega og ég tel að það sé vegna þess að því meira sem við veitum einhverju athygli því meira vex það og dafnar.
Ég byrjaði að taka markviss og regluleg samtöl við hluta af starfsfólkinu, samtöl sem eru blanda af jafningjastuðningi, leiðsögn og rýnifundum. Þar nýti ég mér aðferðir Pendeltons og BOOST sem útgangspunkta og spyr reglulega hvað fólkið mitt vil fá frá mér.
Ég og aðstoðarskólalstjórinn minn útbjuggum samtalshorn inni á skrifstofunni okkar og núna eigum við oftar ígrundandi samtöl við hvor aðra og fólkið okkar, þar sem umhverfið býður upp á slíkt. Því umhverfi skólanna þarf að styðja við faglegan starfsvöxt. Við erum hugsi yfir húsnæði flestra leikskóla á landinu, en nánast hvergi er gert ráð fyrir almennilegri aðstöðu sem styður við teymisfundi og/eða starfsmannafundi og hamlar þetta faglegri uppbyggingu leikskólanna. Leikskólar funda almennt inn á deildum barnanna, sitja á barnastólum og/eða inni á kaffistofu.
Við fórum einnig af stað með jafningjastuðning sem hluta af því að fá stjórnendateymi skólans til að temja sér ígrundandi samræður sem mótvægi við öll þau hversdaglegu mál sem við þurfum að skipuleggja og afgreiða. Þegga hefur tekist mjög vel og hefur haft verulega jákvæð áhrif á innra mat skólans, þar sem við erum að rýna í starfshætti okkar í stað verkefna.
Næstu verkefni skólans er að tileinka okkur starfendarannsóknir sem hluta af starfinu okkar. Á næstu önn munum við öll fara í að tileinka okkur að nota dagbækur til að ígrunda og er í raun sameiginleg rannsóknarspurning: hvernig gengur mér að tileinka mér að nota dagbók sem hluta af starfsígrundun?
Þessi áfangi fór langt fram úr mínum væntingum og jók svo á áhuga minn að ég er verulega spennt fyrir skólastarfinu framundan, en hef áður hugsað reglulega um að skipta um starfsvettvang. En eins og staðan er núna get ég ekki hugsað mér skemmtilegra eða betra starf en að vera leikskólastjóri í mínum leikskóla með mínu starfsfólki.
Lestrardagbók 4
12/15
9. Des kl. 17:13
Það er augljóst að viðtalið hefur gengið vel og að þú hefur veitt mjög góðan stuðning. Ígrundun er líka vel úr garði gerð og sett í gott samhengi við fræðilegt efni sem lagt er til grundvallar. Ég sakna þess þó að fá ekki örlítið meiri innsýn í það sem í gangi var í kennslustundinni sjálfri og tengingu við reynslu þína og skoðanir. Verkefnið er þannig nokkuð gott en greining fremur lýsandi en greinandi. Þú hefur mjög faglega sýn á starf þitt og ég trúi því að samtalið hafi verið mjög gagnlegt.
- Anna María Gunnarsdóttir
Leiðsagnarsamtal
Anna María Gunnarsdóttir á Fös 15. Des 2023 10:32á Fös 15. Des 2023 10:32Það er augljóst að viðtalið hefur gengið vel og að þú hefur veitt mjög góðan stuðning. Ígrundun er líka vel úr garði gerð og sett í gott samhengi við fræðilegt efni sem lagt er til grundvallar. Ég sakna þess þó að fá ekki örlítið meiri innsýn í það sem í gangi var í kennslustundinni sjálfri og tengingu við reynslu þína og skoðanir. Verkefnið er þannig nokkuð gott en greining fremur lýsandi en greinandi. Þú hefur mjög faglega sýn á starf þitt og ég trúi því að samtalið hafi verið mjög gagnlegt.
Lokaverkefni um leiðsögn á vinnustað
virkilega áhrifamikið verkefni. ég er sjálf spennt fyrir að móta einhverskonar leiðsagnaráætlun fyrir skólann eða setja slíka áætlun inn í starfsáætlun skólans, því þetta þarf að vera lifandi skjal/áætlun.
19. Des kl. 15:30
Þetta er vel unnið verkefni hjá ykkur og einkum eruð þið vel heima í fræðilegu efni. Mér finnst þið rökstyðja vel þörf stjórnenda fyrir auknum stuðningi en hefði viljað sjá aðeins ákveðnari hugmyndir að útfærslu. Umfjöllun um greiningu í öðrum skólum skortir og eins hefði verið g0tt að fá aðeins gleggri mynd af hvernig viðhorf og stuðningur við starfsþróun og lærdómssamfélag er í Skógarási. Tillögur til úrbóta í hefðu mátt vera meira ígrundaðar og dýpri. Þið nefnið margt en það hefði mátt tengja það betur fræðilega og fara aðeins lengra með það. Framsetning er að mestu til í lagi (eins og hún á auðvitað að vera á þessu stigi náms) en þó slæðast inn leiðinglegar villur bæði í stafsetningu, tilvísunum og heimildaskráningu. En upp úr stendur að þetta er vönduð umfjöllun um stuðning við stjórnendur. Það sem skrifað er inn í skjalið er meira hugsað sem hugmyndir og viðbrögð en athugasemdir. Takk fyrir skemmtilega, gefandi og lærdómsríka samveru í vetur. kveðjur, Anna María
- Anna María Gunnarsdóttir