Paulo Freire by Ingibjörg Ragna Malmquist

Hver er maðurinn?
Paulo Freire er fæddur árið 1921 í norðaustur Brasilíu. Hann fæddist inn í ágætlega efnaða fjölskyldu en hann og fjölskylda hann lifðu við fátækt eftir að faðir hann lést þegar Paulo var 13ára gamall. Kenningar Freire eru sprottnar upp úr hans eigin reynslu af fátækt, hungri, skorti á menntun og því að vera fastur í stéttaskiptingu eigin samfélags.
Freire sat um tíma í fangelsi og var síðan gerður útlægur frá heimalandi sínu vegna starfa sinna í fátækrahverfum. Hann snéri aftur til Brasilíu eftir 15 ár í útlegð og varð seinna menntamálaráðherra og lagði grunn að breytingum á skólakerfi og námskrá
landsins.  Á útlegðarárunum vann hann hann fyrir UNESCO – menntunar og menningarstofnun
Sameinuðu þjóðanna. Þá var hann gistiprófessor við Harvard Háskólann og var ráðgjafi hjá
alkirkjuráðinu um skipulagða fræðslu í þróunarlöndum.

Kenning
Bók sína Kennslufræði hinna kúguðu (e. Pedagogy of the Oppressed) skrifaði hann í útlegð sinni frá Brasilíu. Í bókinni tekur Freire mjög skýra afstöðu gegn því formi kennslu sem hann kallar bankakennslu, þar sem kennarinn er yfirvaldið og uppfræðir nemandann, kennarinn er sá sem veit en nemandinn sá sem ekkert veit. Nemandinn tekur af hlutleysi við upplýsingum frá kennaranum eins og gjaldkeri í banka, þar sem kennarinn ræður því hvað hann leggur inn á bankabók. Freire vill meina að lærdómur muni aldrei eiga sér stað með þessu móti, nemendur geta þulið upp einhverjar upplýsingar en skilningurinn er lítill sem enginn. Hann segir að nemendurnir sjálfir verða að vera hluti af og meðvitaðir þátttakendur í þeim breytingum sem eiga að eiga sér stað, þeir verða því að taka þátt í að búa til þá kennslufræði sem mun að lokum kenna því að lesa og skilja heiminn. Freire leggur til  að hugsað verði samband kennara og nemenda upp á nýtt sem og alla þá kennslufræði sem liggur að baki. Að hætta verði að hugsa um nemendur sem tóm ker sem hægt sé að fylla á vélrænan hátt. Kennarar og nemendur verði að vera í gagnvirku sambandi þar sem kennarinn kennir nemendum og nemendur kenna kennaranum.

Paulo Freire var á undan sinni samtíð í kennslufræði, kenningar hans eiga meiri samhljóm með þeim kenningum sem eru ríkjandi í dag og falla til dæmis vel að hugmyndafræðinni um skóla án aðgreiningar.

Freire í kennslustofunni
Freire vill umturna þessari gamaldags kennslu þar sem kennarinn er alvitur og predikar fyrir framann bekkinn. Hann leggur áherslu á samvinnu kennara og nemenda, hann kallar þetta lausnamiðaða þátttakakennslu. Hann vill að nemendur séu meðvitaðir og gagnrýnir þátttakendur og að kennari og nemendur vinni saman og rannsaki það efni sem liggur fyrir hverju sinni. Hlutverk kennarans sé að virkja nemendur og að búa til gott námsumhverfi svo að nemendur geti blómstrað.

Samræður er lykilhugtak í kennslufræði Freire. Kennara og nemendur eiga að ræða saman og læra hvert að öðrum. Freire segir að ást, auðmýkt og von verði að vera til staðar svo að samræðunám skili árangri. Gagnrýnin hugsun er ein forsenda samræðunáms en gæta þarf að bera virðingu fyrir skoðunum annara. Nemendur hafa frjálsar hendur og hjálpast að undir leiðsögn kennarans að velja viðfangsefni. Með þeirri leið eru nemendur líklegri til að takast á við málefni sem hafa áhrif á daglegt líf þeirra.

YouTube video

Afhverju Freire?
Þegar farið var af stað með þetta verkefni var hugmyndin að fá nemendur til að fá nemendur til að vinna sjálfstætt og skapa sitt eigið nám sjálfir. Nemendurnir eru í 10.bekk og útskrifast bráðum úr grunnskóla. Það eru ákveðin tímamót í lífinu, þeir hafa þá val um hvort þeir fari í framhaldsskóla, vinna eða eitthvað allt annað.

Hugmyndir Freire falla vel að verkefninu. Hann leggur áherslu á sjálfstæði nemenda, þeir þurfa að vera virkir í sínu námi en ekki bara taka við upplýsingum frá kennaranum. Verklagið í þessu verkefni passar vel við þessa lýsingu. Nemendur vinna saman í hópum og stjórna sinni vinnu að stórum hluta sjálfir. Kennarinn er á staðnum til að leiðbeina en ekki til að mata nemendur.

Samræða er lykilhugtak hjá Freire. Nemendur læra vel í gegnum samræðu. Í vinnu við þetta verkefni vinna nemendur í hópum, þurfa að ræða saman og komast að sameiginlegri niðurstöðu. Þeir þurfa að læra að bera virðingu fyrir skoðunum annara og sýna náunganum ást og umhyggju.