SFB1510 - Ígrundun um lykilhugtök námskeiðs by Ellen Sif Skúladóttir

Starfsþróun
Starfsþróun getur m.a. átt sér stað starfsmannaviðtöl sem snúast um það hvað maður vill fá í starfi og finna út hver framtíðarsýn og væntingar eru gagnvart manni sjálfur ásamt því að heyra hvað vinnuveitanda finnst.

Menntabúðir eru einnig hluti af starfsþróun, til að efla þekkingu kennara og auka við þekkingu þeirra og verkefni sem þeir hafa.

Sumir úr hópnum hafa reynslu af starfsþróunarviðtölum sem hafa reynst vel ásamt því að aðrir hafa sótt menntabúðir og/eða námskeið til þess að dýpka þekkingu sína.

Ellen Sif Skúladóttir
Ég heiti Ellen Sif og er þrítug. Ég lauk B.Ed gráðu í grunnskólafræðum frá HA vorið 2023 og hef unnið sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla á Akureyri frá 2018, mest með einhverfan einstakling en einnig sem aðstoð inni í almennum bekk. Með MT náminu er ég einnig að taka diplómu í sérkennslufræðum.

Starfsþroski
Sem einstaklingar erum við sífellt að þroskast og því lengur sem þú ert í starfi öðlast þú meiri starfsþroska. Starfsþroski á sér stað þegar kennari er sífellt að þróa sína kennslu og starf í takt við tímann. Starfsþroski byggist þó ekki endilega á lærdóm sem sóttur er á námskeiðum. Heldur snýr hann meira um að þroskast í starfi og vera meðvitaður um að breytingar eru nauðsynlegar.

Silja Rún
Silja Rún heiti ég og er 24 ára gömul.

Ég útskrifaðist með B.S. gráðu í sálfræði frá HA núna í vor og ákvað að ná mér í kennsluréttindin núna vegna þess að ég hef verið að vinna í grunnskóla sem stuðningsfulltrúi og heillaðist ég þá að skólaumhverfinu :)

Atli Freyr Einarsson
Atli Freyr heiti ég og er 32 ára Akureyringur. Ég er með BSc í tölvunarfræði og hef unnið í mörg ár sem forritari og við einkakennslu í stærðfræði og forritun.

Ég starfa í Menntaskólanum á Akureyri sem kerfisstjóri og stefni á að verða kennari á framhaldsskólastigi, að kenna stærðfræði, eðlisfræði og forritun.

Ígrundun og fagmennska kennara
Því meira sem kennari ígrundar kennslu sína getur hún orðið faglegri. Með því að ígrunda starf sitt er kennari sífellt að þróa sína kennslu og auka gæði kennslunnar. Þegar kennari ígrundar starf sitt er hann sífellt að skoða hvað hann er að gera rétt og hvernig hægt er að breyta kennslu til þess að auka frekar námsgæðin.

Breytingastarf
Allir í hópnum höfðu aldrei heyrt þetta orð áður en eftir að hafa rætt um það vorum við með tvær ólíkar skoðanir á orðinu.

Ein skoðunin var sú að kennarastarfið gæti flokkast sem breytingastarf þar sem það er sífellt að taka breytingum og þurfa kennarar einnig að huga að breyttum tímum í starfi sínu. Hin skoðunin var sú að breytingarstarf snúi að þeim breytingum sem gerðar eru í umhverfi skólans og skólaþróun.

Forysta kennara
Við ræddum svolítið um þetta hugtak og komumst að þeirri niðurstöðu að þetta hugtak snúist um að kennarar séu drifkraftur í átt að breytingum og séu tilbúnir til þess að vinna í átt að þeim og koma með hugmyndir. En skólastjórnendur séu síðan þeir sem koma breytingunum lengra og sjái um að þær eigi sér raunverulega stað.

Lærdómssamfélag
Lærdómssamfélag snýr að umhverfinu sem einstaklingur hefur til þess að læra við sitt hæfi. Þegar kennari hugar að lærdómssamfélagi nemenda sinna er nauðsynlegt að hafa ólíkar þarfir nemenda í huga til þess að koma til móts við þarfir allra.

Í lærdómssamfélagi er kjörið tækifæri til þess að læra af hvort öðru til að bæta árangurinn sinn, því mætti segja að í skólar séu lærdómssamfélag fyrir kennara.

Sjálfsmat skóla
Skólinn þarf reglulega að meta sitt starf. Ekki endilega hvaða nám á sér stað í skólanum helfur heildarstarf skólans. Þegar það kemur að því að meta skólann eru margir þættir sem þarf að hafa í huga s.s. aðstaða nemenda, þarfir þeirra og gæði kennslu.

Sjálfsmat er mikilvægur hluti af þróun, bæði fyrir skólann og starf kennara og annars starfsfólks. Skólar eru með ákveðin markmið sem þeir vinna eftir og í sjálfsmati er verið að meta og endurskoða þessi markmið. Athuga hvort þeim hafi verið náð og hvort þurfi að endurskoða markmiðin.

Teymisvinna kennara
Teymisvinna kennara hefur aukist mikið á síðustu árum og eru margir (ef ekki flestir) leik- grunn- og framhaldsskólar landsins með teymiskennslu að einhverjum hluta í sínu starfi. Þessi teymiskennsla birtist ekki endilega í kennslunni sjálfri heldur á hún sér meiri stað í undirbúning kennslu s.s. að finna og útbúa námsefni, semja próf o.fl.

Með teymisvinnu er líklegra að fjölbreytt kennsla eigi sér stað þar sem mismunandi kennarar komi með ólíkar þekkingu, reynslu og skoðanir inn í starfið.

Samstarf við foreldra
Samstarf við foreldra er misjafnt eftir skólastigi. Í leikskóla er samstarfið mest og eiga foreldrar og kennarar dagleg samskipti, í grunnskóla eru regluleg foreldraviðtöl og tölvupóstar sem eiga sér stað en í framhaldsskólum eru samskiptin lítil sem engin við foreldra. Í framhaldsskólum hafa foreldrar aðgang að einkunnum og mætingu barna sinna upp að 18 ára aldri.

Í leik- og grunnskóla eru þessi samskipti mikilvæg og nauðsynlegur hluti af velgengni barna í skólanum. Auðvitað getur þetta samstaf verið mismunandi og eru sum samskipti auðveldari en önnur. En að okkar mati þurfa kennarar og foreldrar að geta átt góð samskipti til þess að barninu vegni vel í skólanum.

Bekkjar/hópastjórnun
Bekkir og hópar geta verið mismunandi og því er nauðsynlegt að kennari sé vakandi fyrir því og sé tilbúinn að breyta sinni kennslu ef þess þarf. Sumir nemendur geta t.d. ekki setið saman og þarf kennari að hafa gott skipulag á því og gæta þess hvernig raðað er í sæti og hópa til þess að vinnufriður sé sem bestur.

Kennari þarf einnig að sýna ákveðna samblöndu af góðvild og festu í sínu starfi. Nemendur þurfa að hafa ákveðin mörk sem þeir vita að þeir eigi að fara eftir en þeir þurfa líka að finna fyrir ákveðnum góðleika til þess að gagnkvæm virðing á milli kennara og nemenda myndist.

Einelti
Þegar kemur að einelti er kennarinn í algjörri lykilstöðu bæði til þess að fræða nemendur sína um það hvað einelti sé og hver munurinn er á einelti og stríðni. Kennari þarf einnig að vera vakandi fyrir því hvað er að eiga sér stað í skólanum á milli nemenda og vera tilbúinn til þess að stíga skrefið ef honum finnst einelti vera að eiga sér stað. Kennarar þurfa líka oft að eiga við foreldra í þessum málum og þurfa kennarar því að vera tilbúnir að ræða erfið mál og segja sína skoðun á hlutunum.

Barnavernd
Foreldrar senda börnin sín í skólann og treysta á það að þau séu örugg. Allt starfsfólk skólans ber ábyrgð á að vernda börnin og gæta þess að taka á hlutum sem eitthvað kemur uppá. Kennari er þó helsti samstarfsaðili foreldra og eiga flest samskipti sér stað á milli þeirra og því líklegt að starfsfólk skólans leiti til kennara nemenda ef eitthvað kemur fyrir. Skólastjórnendur eru einnig stór hluti af velferð barna og gæta hagsmuna þeirra.

Birgitta Fjóla
Ég heiti Birgitta Fjóla 34 ára, kláraði B.Ed. gráðuna mína í leikskólakennarafræðum vorið '24, er ekki að starfa með náminu nema á sumrin, en hef verið að vinna á leikskóla síðan 2013.