20% verkefni by

Fimm stig svefns
Fyrsta stig: millibil svefns og vöku. Líkamanum er yfirleitt gefnar 15 mínútur áður en farið er yfir í stig tvö.

Annað stig: hjartsláttur hægir töluvert á sér og heilinn reynir við færri flókin verkefni. Annað stig er einnig u.þ.b. korter og líkaminn sekkur hægt í bliksvefn.

Þriðja stig: bliksvefn. Líkaminn framkvæmir svokallaðar viðgerðir. Þar fellur einstaklingur í djúpan og aflsappaðan svefn sem leiðir að stigi fjögur.

Fjóra stig: líkamshiti og blóðþrýstingur lækka og líkaminn fellur í REM svefn.

Fimmta stig: seinasta stigið. Augnhreyfingar, hjartsláttur, öndun, blóðþrýstingur og líkamshiti hækka. Fimmta stig leiðir að enn meiri REM svefni sem leiðir svo aftur að stigi eitt. Draumar eiga sér oftast stað í REM svefn. REM svefn getur hjálpað við að græða tilfinngasár, styrkt óttaviðbrögð, og aðskilið tilfinningar frá minningum svo þegar við vöknum líður okkur betur.

Draumar
Afhverju dreymir okkur?
Vísindamenn vita ekki hvers vegna okkur dreymir en til eru nokkrar kenningar, bæði sálfræðilegar og taugalíffræðilegar. Sumir halda að draumar séu ekkert meira en afleiðing annarra líkamlegra vinnslu en sumir halda að draumar séu ein tegund minninga úrvinnslu eða að draumar séu endurspeglun reynslu sem einstaklingar verða fyrir þegar vakandi. Aðrir halda að draumar séu leið hugans til þess að vinna úr erfiðum hugsunum, tilfinningum og upplifunum til að mynda sálrænt og tilfinningalegt jafnvægi.

Andleg og líkamleg heilsa hafa áhrif á drauma. Martraðir fylgja oft þunglyndi og kvíða og martraðirnar geta gefið til kynna hversu alvarlegt þunglyndið er. Fólk með þunglyndi og kvíða eru líklegri til þess að dreyma átakanlega og stressandi drauma. Til eru sannanir um að ein týpa þunglyndislyfja hafi áhrif á drauma. Eiturlyf og áfengi hafa áhrif á drauma. Áfengi raskar eðlilegan, heilbrigðan svefn og mikið magn áfengis rétt fyrir svefn styttir tíma REM svefns. Fráhvörf frá grasi og kókaíni ýta undir skrítna drauma. Martraðir og svefnvandamál eru meðal algengustu einkenna áfallastreituröskun. Ýmsar svefnraskanir hafa einnig áhrif á drauma. Til dæmis er líklegra að fólk með insomniu fái martraðir og muni eftir því.

Öllum dreymir, það er partur af því að vera mennskur.

Skaðleg áhrif langvarandi svefnleysis?
Alvarlegt svefnleysi getur haft alvarlegar og jafnvel í versta falli lífshættulegar afleiðingar.

Svefnleysi er tengt við ótalmarga geðræna og taugafræðilega sjúkdóma svo sem Alzheimer, kvíða og þunglyndi, geðhvarfasýki, sjálfvígshugsanir, heilablóðfall og langvinna verki

Rannsóknir hafa verið gerða sem geta sýnt fram á að svefnleysi geti aukið mikið líkur á krabbameini, sykursýki, hjartaáföllum, ófrjósemi, offitu og stuðlað að veiku ónæmiskerfi.

Þegar skoðað er þær staðreyndir hér að ofan má gera sér þá hugmynd um að menn séu meðal annars félagslega, efnahagslega, líkamlega, hegðunar- og atferlislega og tilfinningalega séð háðir svefni, við þurfum hann til að tryggja hin bestu lífsgæði sem við mögulega getum.

Alvarlegt svefnleysi getur haft skaðlegar og jafnvel í versta falli lífshættulegar afleiðingar.

Heimsmetabók Guinness hætti að samþykkja allar tilraunir til þess að slá heimsmetið í svefnleysi og eyddu einnig svefnleysisheimsmetum úr fyrri annálum þeirra vegna hræðslu þeirra um að þau myndu verða hvati til tilrauna með svefnleysi seinna meir eftir að þeim hafði verið gert grein fyrir andlega- og líkamlega skaðanum sem að getur fylgt langvarandi svefnleysi. Það er einnig vegna þessa sem að vísindamenn hafa takmörkuð sönnunargögn um áhrif langvarandi svefnleysis á menn. Það er siðferðislega óviðunandi að leggja það á einhvern.

Góð áhrif svefns á heilsu okkar
Svefn og stöðug svefn rútína er okkur mjög mikilvægur hlutur og því fylgja margir kostir.

Góður svefn getur varið okkur gegn öllu sem nefnt var í hlutanum um skaðleg áhrif svefnleysis, en hann getur einnig gert okkur sterkari, betri í að takast á við tilfinningalega erfiðleika og grætt tilfinningaleg sár sem við höfum fengið á lífsleiðinni. Góður svefn skerpir einbeitingu, hjálpar okkur að læra betur og festa fleiri hluti á minnið. Skörp einbeiting og góður svefn gerir okkur einnig að betri bílstjórum svo við getum fullvissað að við séum ekki okkur eða neinum öðrum til hættu. Svefnleysi hefur valdið mörgum stórslyssum sem sem eru jafnvel söguleg, eins og Chernobyl. Hann hjálpar okkur að finna lausnir á erfiðum vandamálum. Og síðast en ekki síst getur góður og reglulegur svefn stuðlað að góðri heilsu, verndað okkur gegn sjúkdómum og veikindum og hjálpað okkur að takast betur á við átakanlega og erfiða hluti sem geta fylgt okkur í gegnum ákveðna daga eins og kvíða og þunglyndi

Svefn og örvandi efni
Áfengi
Áfengi býr til kvíða og er einn af bælir niður REM svefn, stigið þar sem draumar eiga sér stað. Matthew Walker, rannsakandi svefns, kallar REM svefn ,,sálfræði meðferð að nóttu til''. Þegar við missum REM svefn hefur það áhrif á kvíðakerfið okkar og við sjáum hættur allsstaðar. Í einni rannsókn kom fram að fólk sem hrjáist af svefnleysi sýndi yfir 60% aukningu í virkni í part heilans sem nefnist amygdala, þessi partur heilans stjórnar minningum um tilfinningar og þá sérstaklega hræðslu. Ef einstaklingur fær sér nokkra drykki með kvöldmatnum en líður eins og hann sé edrú þegar hann fer að sofa mun hann samt missa REM svefn. Það er ekki áfengið sjálft sem bælir REM svefn heldur efnin sem líkaminn býr til þegar efnaskipti til að vinna úr áfenginu eiga sér stað. Áfengi getur hjálpað fólki við að sofna en hefur þau áhrif að það heldur ekki stöðugum svefn í gegnum nóttina heldur vaknar oft, þótt það muni ekki eftir því þegar það vaknar.

Koffín (og blundar)
Það sem menn þurfa að hafa í huga er að koffín eða góður blundur mun aldrei geta komið í staðinn fyrir góðan nætursvefn og munu þessir hlutir ekki heldur verja okkur gegn þeim vandamálum sem geta fylgt svefnleysi. Hægt er að bæla niður syfjutilfinningu með því að nota efni sem gerir þig meira virkan og vakandi, það efni kallast koffín. Koffín er eitt af mest notaða og mögulega misnotaða örvandi lyf í heiminum. Nú til dags er koffín önnur mest selda verslunarvaran í heiminum á eftir olíu. Í heila okkar er til efni sem kallast adenosine, það má lýta á það efni sem þann hlut sem segir okkur til um hvenær við ættum að fara að sofa.

Eftir að hafa verið vakandi í ákveðinn tíma fer meira og meira adenosine að vera til staðar og því meira adenosine sem er til staðar, því þreyttari verður maður. Þegar koffíns er neytt festir það sig við adenosine viðtaka í heilanum og gerir þá óvirka í ákveðin tíma. Koffín hindrar þannig syfjutilfinninguna sem við finnum fyrir. Því miður er afar stór hluti þess hóps sem neytir koffíns ekki meðvitaður til fulls um hversu lengi koffín getur verið í kerfi líkamans. Það tekur koffín um fimm til sjö klukkutíma til þess að hætta verka á einstakling og þess vegna er mikilvægt að passa hvenær maður ákveður að drekka koffín svo maður geti reynt að tryggja sem bestan nætursvefn. Með mikilli koffínneyslu geta fylgt erfiðleikar við að sofna og þar með slæmur nætursvefn. Það leiðir að neyslu koffíns næsta dag og jafnvel neyslu meira magns en hafði verið neytt daginn áður, hér getur myndast slæmur vítahringur sem maður verður að passa sig á.

Blundur getur einnig ekki komið í staðinn fyrir svefn, blundar geta aukið einbeitingu og virkni í stutta stund út daginn ef sofið var illa daginn áður en munu þeir aldrei vera nóg. Bæta þarf upp þann svefn sem ekki var fenginn nóttina áður. Oft vinna blundar og koffín saman hjá einstaklingum.

Nikotín
Nikotín er ávandabindandi og örvandi lyf. Þeir sem neyta nikotíns geta vaknað yfir nóttina vegna fráhvarfseinkenna og átt erfitt með að sofna aftur, þetta myndar slæman svefnhring og getur skilið einstakling eftir órólegan og fullan af syfju yfir daginn. Einnig er talið að þeir sem neyta nikotíns eða tóbaks eiga erfiðara með að sofna almennt, sofa lausar, vakna oftar yfir nóttina og ná ekki eins djúpum og endurnærandi svefni.

Hvað er svefn og hvers vegna svefn?
Við köllum svefn það ástand líkama og hugar sem að venjulega endurtekur sig í nokkrar klukkustundir á hverri nóttu. Talið er að við eyðum um þriðjungi hvers dags sofandi, oftast í átta tíma samfellt þó það geti verið mismunandi eftir menningu, aldri eða persónulegum aðstæðum. Sem gefur til kynna að sama hvert mynstrið er af svefni og vöku þá er það alltaf reglubundið eftir hverri manneskju.Sérfræðingar mæla með að minnsta kosti 8 klukkustundum til þess að líkaminn nái að endurhlaða sig til fulls.

Í svefni verður taugakerfi okkar óvirkt, augu okkar lokast, líkamsstöðuvöðvarnir slaka og meðvitund verður stöðvuð. Svefn hefur lengi verið ein stór ráðgáta sem snertir mörg svið sálfræðinnar og eru læknar enn til dagsins í dag að rannsaka svefn.

Við þurfum svefn fyrir einbeitingu og virkni út daginn, við þurfum hann til þess að geta lifað hinu besta lífi og verið við hina bestu heilsu.

Svo virðist vera að menn séu með einhvers konar innri ,,líkamsklukku” sem að stýrir þessum dægursveiflum okkar. Þegar við sofum eru líkamar okkar tiltölulega óvirkir og aðgerðalitlir og við erum með takmarkaða vitund um umheiminn, en heilar okkar eru enn virkir til ákveðna marka og við förum í gegnum mismunandi stig í meðvitundinni í endurteknum lotum.

Áhrif núvitundar á svefn
Núvitund er ein gerð af hugleiðslu. Þessi æfing snýst um að sitja og einbeita sér að því hvernig manni líður, án þess að rýna í það eða dæma það. Til eru margar mismunandi núvitunar æfingar og það er mismunandi hvað hentar hverjum og einum.

Samkvæmt rannsóknum getur núvitund hjálpað verulega við svefn. Þessi æfing róar líkamann og hjálpar bæði við að sofna og halda stöðugum svefni. Núvitund getur verið notuð sem lyfjalaus meðferð við insomníu. Núvitund hjálpar ekki einungis við svefn heldur minnkar einnig blóðþrýsting og léttir á sársauka, kvíða og þunglyndi.

Sturlaðar staðreyndir um svefn
Mannfólk er eina spendýrið sem frestar svefni viljandi

Því hærra sem maður fer því erfiðara er að sofna og/ eða sofa jafnt og þétt. Sumir halda að það sé vegna þess að það er minna súrefni því hærra sem maður fer.

Fólk sem hreyfir sig mikið og oft á auðveldara með að sofna og sofa betur í gegnum nóttina en ef þú æfir þig rétt áður en þú ferð að sofa mun vera erfiðara að sofna.

Hlutfallslega þjást fleiri af insomniu sem hafa gengið í gegnum skilnað eða misst maka.

Við finnum náttúrulega þreytu tvisvar á sólahring, klukkan 2 að degi til og 2 að nóttu til.

Ungabörn sofa 14 til 17 tíma á dag.

Líkaminn getur ekki aðlagast vaktavinnu.

Það er enn ekki vitað hvort að dýrum dreymir í REM svefni eins og menn - og við munum líklegast aldrei vita það.

Fólk sem sefur lítið er líklegra til að borða mikið.

Svefngalsi
Þegar fólk fær svefngalsa á það erfitt með einbeitingu og hagar sér jafnvel kjánalega. Svefn veitir líkamanum hvíld og endurnæringu auk þess myndast vaxtarhormón í svefni. Svefnskortur og þreyta valda ýmsum líkamlegum og andlegum einkennum. Athygli og einbeiting skerðist, líkamleg streitueinkenni, svo sem magaverkir, hjartsláttartruflanir og hækkaður blóðþrýstingur koma í ljós, minnið minnkar og hugsun brenglast. Svefn hefur áhrif á líðan, samskipti við annað fólk og lífsgæði almennt. Í raun er svefngalsi bara samansetning nokkurra einkenna sem koma fram vegna svefnskorts. Einbeitingar- og athyglisleysi og jafnvel örlítið brengluð hugsun veldur því að fólk hættir að geta sinnt almennum verkefnum en fer í stað þess að fíflast og láta kjánalega. Félagslegar aðstæður og umhverfi skipta einnig máli. Ef einstaklingur í hóp fer að haga sér kjánalega dregur hann oft næsta mann með sér og áhrifin geta fljótt magnast upp.

Innri klukka og samvægi
Við erum með tvö kerfi sem vinna að því að við fáum nóg svefn. Annars vegar innri klukkan og hins vegar samvægi. Innri klukkan stjórnar hitastigi líkamans, svefnmynstri okkar, matarlyst og hornómaflæði í líkamanum. Samvægi (homeostasis) reynir sífellt að ná jafnvægi á allskyns þáttum í líkamanum. Samvægið sér til þess að okkur þyrstir þegar líkamanum vantar vatn og okkur syfjar þegar hann vantar svefn. Heilinn þolir ekki að skorta svefn svo hann verður sér úti um örstuttan blund reglulega þegar svefnþörfin er orðin nægilega mikil. Við höfum ekki stjórn á þessum örblundum heldur dettum við bara út. Þetta er mjög snjallt en einnig hættulegt.  Fólk sem vinnur vaktavinnu þekkir þetta vel þar sem það þarf að halda sér vakandi á þegar líkaminn vill svefn. Fólk sem vinnur í vaktavinnum er líklegra til þess að lenda í bílslysum eða gera villur í vinnunni.

Svefnraskanir
Margt fólk á við svefntruflanir að stríða og talið er að um 15% manna eigi við langvarandi svefntruflanir að stríða, og um 20% við tímabundnar.
Til eru ótalmargar svefn- vöku raskanir og verður fjallað um nokkrar hér fyrir neðan.

Drómasýki
eða ,,narcolepsy" er komið úr grísku og þýðir; stjarfi og flog. Þessi svefnröskun er alvarlegri og fátíðnari heldur en hinar meiri almennu svefntruflanir sem menn upplifa. Talið er að röskunin sé erfðatengd og að rannsóknir gerðar af Íslenskri erfðagreiningu sýni okkur að 10/100 eigi náinn ættingja með sjúkdóminn. Drómasýki lýsir sér þannig að einstaklingur dettur út eða sofnar á hinum ólíklegustu tímum dagsins og hafi þeir enga stjórn á því. Drómasýkisköst geta varið í sekúndur en einnig marga klukkutíma og getur viðkomandi upplifað það að vera meðvitaður um umhverfi sitt en geta ómögulega hreyft eða tjáð sig.

Kæfisvefn
Kæfisvefn lýsir sér þannig að í svefni falli efri hluti öndunarvegarins saman og viðkomandi upplifi það að hann missi andann. Einstaklingur getur glaðvaknað og átt erfitt með að sofna aftur á meðan aðrir grípa andann djúpt, rumska til og sofna aftur. Þetta getur leitt að stöðugri þreytu og haft virkileg áhrif á líf manns. Mjög alvarleg röskun.

Svefnsækniröskun
Þessi svefn tengda röskun lýsir sér þannig að einstaklingur kvartar ítrekað um afar ýkta og hamlandi syfju þrátt fyrir að hafa náð meginsvefni af 7 klukkustundum eða meira. Þessi röskun getur leitt til þess að einstaklingur dotti oft í gegnum daginn og að hann eigi erfitt með að ná fullu vökustandi í langan tíma sé hann snögglega vakinn.

Dægursveiflutengd svefnröskun
Þessi röskun er svefntruflun í formi syfju og/eða svefnleysis sem er töluvert algengari er gert er sér grein fyrir. Hún byggist á því að líkaminn geti ekki samhæft svefnmynstur þess einstaklings við núverandi skiptingu dags og nætur. Einkenni geta meðal annars verið stöðug og oft endurtekið mynstur af svefntruflunum sem eiga sér stað vegna stórra breytinga á svefnhringnum eða vegna misræmis á milli innri líkamsklukku okkar og svefn-vöku áætlunar okkar sem hafa myndast vegna umhverfi, félagslífi eða atvinnu. Mikil syfja og svefnleysi og sólarhringur alveg út úr laginu. Getur valdið heftingu í daglegu lífi.

Loka hugdettur
Svefn er okkur svo ótrulega mikilvægur fyrir hina bestu líkamlegu og andlegu heilsu og starfsemi.

Slæmur svefn og mikið svefnleysi getur haft hrikalegar og alvarlegar aukaverkanir sem geta haft áhrif á okkur til lengdar.

Það er í okkar höndum að passa upp á svefnvenjur okkar.

Finnist þér þú eiga við svefnvandamál að stríða og þjáistu vegna svefnleysi skaltu leita aðstoðar hjá fagmanni.

Svefnleysi er lúmsk barátta sem hrjáir marga og týnast kvíðnir unglingar að einhverju leyti í henni.

Það er ekki nóg að segjast kunna að meta svefn... hugaðu að honum.

Svefn er áhugavert fyrirbæri sem dreifir sér út á mörg svið í heiminum og ennþá er verið að læra á hann og um hann.

Sofum vel á næturnar til þess að vera vakandi yfir allan daginn og þá getum við notið hvers dags til fulls :)

Ágústa og Iðunn